01.03.1977
Sameinað þing: 57. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2366 í B-deild Alþingistíðinda. (1751)
261. mál, rannsóknir á mengun í álverinu í Straumsvík
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Við höfum hlustað hér á skýrslu og það var eftirtektarverður lestur. Við íslendingar erum nú í tæknibúnu þjóðfélagi, en iðnaður okkar er ungur að árum, en þó sérstaklega hin svokallaða stóriðja.
Ég vil mótmæla því, að það sé samningunum eða löggjöfinni að kenna að ekki er lengra komið en orðið er með allan útbúnað til hollustuhátta í Straumsvík. Ég vil líka mótmæla því, að það hafi verið af slóðaskap hjá hæstv. fyrrv. heilbrrh., Eggert G. Þorsteinssyni, að hann gaf ekki út reglugerð nm þessi efni sem hægt væri að fara eftir. Eggert G. Þorsteinsson, þáv. heilbrrh., hafði áhuga á því að þessi mál kæmust í lag. En eins og hæstv. núv. heilbrrh. sagði áðan, þurfti langan undirbúning fyrir þessa reglugerð, lengri undirbúning en örfáar vikur, fáa mánuði, sem fyrrv. heilbrrh. Magnús Kjartansson hafði. Hann hefði ekki getað gefið út reglugerðina 1. jan. 1972 ef ekki hefði áður verið búið að vinna að undirbúningi hennar undir stjórn fyrrv. heilbrrh., Eggerts G. Þorsteinssonar.
Það er dálítið hlálegt þegar hv. þm. eru að brýna hver annan um skilningsleysi og mannvonsku, jafnvel gefa í skyn að hér í þingsalnum séu menn sem láti sér raunverulega á sama standa hvernig fer með hollustuhætti landa okkar í verksmiðjunni í Straumsvík. Meinar það nokkur hv. þm., að hér sé einhver sem kæri sig ekkert um að hafa hollustu og heilbrigði í lagi í okkar verksmiðjum, bæði í Straumsvík, fiskmjölsverksmiðjum, Áburðarverksmiðjunni, Sementsverksmiðjunni, og gera ráðstafanir í diskótekunum eins og hv. þm. grípur fram í til þess að börn og unglingar missi ekki heyrnina? Við eigum eftir að læra margt og okkur vantar margt til þess að atvinnuhættir okkar verði fullkomnir.
Nú hefur því verið lýst yfir, að það verði ekki fullkomin hollusta eða heilbrigði við störf í Straumsvík nema mengunartæki verði sett upp, og það er ákveðið að þau verði sett upp. Ef mengunartæki hefðu verið sett upp strax í byrjun, sem þá voru þekkt, þá hefðu þau tæki aðeins útilokað mengun utan húss, en ekki í kerskálanum. Þau hreinsitæki, sem nú er ákveðið að setja upp, eiga að útiloka mengun bæði innanhúss og utan. Við skulum vera sammála um að gera kröfu til þess, að þessi tæki verði sett upp í álverksmiðjunni. Og við skulum einnig vera sammála um það, allir þm., að gera ráðstafanir til þess sem allra fyrst eftir ítrustu getu að koma upp tækjum til hollustu- og heilbrigðishátta í öðrum verksmiðjum okkar þar sem óhollusta er, —- í verksmiðjum sem starfa nú á undanþágu vegna þess að við höfum ekki efni á því að stöðva þær.
Ég held að ég geti tekið undir með hv. þm. Benedikt Gröndal og sagt það sem hann meinti, að það er happ fyrir íslendinga að við fengum álverksmiðjuna. En við skulum vera samtaka um að gera hana hættulausa fyrir fólkið sem vinnur þar.