03.03.1977
Sameinað þing: 59. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2390 í B-deild Alþingistíðinda. (1786)

86. mál, kosningaréttur

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég skal ekki á þessu stigi hafa mörg orð um þá þáltill. sem hér er nú til umr. Þetta er mál sem lengi hefur verið á dagskrá og margar útgáfur komið út hjá einstaklingum um á hvern hátt skyldi með farið og með hvaða hætti skyldi breytt því fyrirkomulagi sem nú er.

Það er engu líkara en þeir, sem hæst hafa talað í þessum efnum um nauðsyn skjótrar breytingar hér á, líti svo til að þetta sé í raun og veru eina óréttlætið sem viðgengst í þjóðfélaginu að þeirra mati, það sé hversu tiltölulega fáir kjósendur standi að baki þm. úr hinum dreifðu byggðum, miðað við það sem er á þéttbýlissvæðunum. Ég dreg enga dul á að hér er á munur. En væri nú ekki rétt fyrir þessa hv. þm., sem hæst hafa haft í þessum efnum, að huga að fleiri verkefnum í réttlætisátt, þannig að það væri í leiðinni skoðað betur og gerðar um það beinar till. með hverjum hætti mætti létta af því hróplega ranglæti sem einmitt þetta fólk úti í hinum dreifðu byggðum hefur búið við og hýr við samanborið við það sem er hér á stór Reykjavíkursvæðinu, sem þessir hv. þm. bera hvað mest fyrir brjósti?

Staðreyndin er sú, að þrátt fyrir þetta herfilega óréttlæti, sem þessir hv. þm. telja kjósendur hér á þéttbýlissvæðinu hafa verið beitta, hefur eigi að síður verið sú þróun í landinu að byggðaröskun hefur átt sér stað í þá átt, að það hefur fækkað stórlega í þessum kjördæmum úti á landsbyggðinni, en að sama skapi fjölgað fólki hér, sem býr þó að mati þessara hv. þm. við þetta óréttlæti. Það hefur kosið fremur að setja sig niður hér, þrátt fyrir þetta óréttlæti, heldur en að halda áfram á réttlætisstöðunum hinum miklu og búa þar við þau kjör sem hv. þm., sem að þessari þáltill. standa, svo og margir fleiri telja að hafi verið á þessum svæðum.

Það má kannske segja að í raun og veru sé ekki nema eitt svar við þessu. Og það er ákaflega einfalt og það hefði átt að vera í verkahring stjórnvalda og er það auðvitað enn. Eina svarið við þessu er auðvitað að fjölga fólki úti á landsbyggðinni. Það er hið rétta svar og raunhæfa. Ættu þessir hv, þm. fremur að beita sér fyrir að ráðstafanir af því tagi væru gerðar. Þetta er í mínum huga ekki það stórt mál í sniðum að það sé réttlætanlegt að taka það eitt út úr dæmi um ójöfnuð og óréttlæti milli íslendinga eftir því hvar þeir búa í landinu. Það er hægt að nefna ótalmörg dæmi um það, hversu herfilegt óréttlæti hefur viðgengist og er látið viðgangast enn á hinum ýmsu sviðum í óhag fyrir dreifbýlisfólk, en til hagnaðar fyrir þéttbýlissvæði.

Hv. frsm. og 1. flm. þessarar þáltill. sagði áðan að hann og þeir flm. þessarar till. væru þeirrar skoðunar, að sömu réttindi öllum til handa ættu að vera án tillits til búsetu, og ég tók það svo, að það ætti ekki að gilda bara í þessu tilviki. Hins vegar höfum við ótal dæmi þess, að þm. úr dreifbýliskjördæmum hafa flutt hér hvert málið á fætur öðru í leiðréttingarátt í hinum ýmsu málaflokkum fyrir fólkið úti á landsbyggðinni þing eftir þing, en bæði þessi hv. þm., frsm. og fyrsti flm., hann og margir aðrir réttlætispostular í þessa átt hafa snúist gegn þessu máli og vilja viðhalda og jafnvel í mörgum tilfellum auka á óréttlætið sem er viða í þjóðfélaginu ef við berum saman aðstöðu dreifbýlisfólks og þéttbýlisfólks.

Það hefði auðvitað verið miklu heillavænlegra til árangurs fyrir bæði þennan hv. þm. og aðra, sem er mjög umhugað um að breyting verði á í þessum efnum, að þeirra réttlætistilfinning hefði komið víðar við og fyrr að því er varðar að jafna réttlætið, burt séð frá því hvar fólk er búsett í landinu.

Ég eins og ég sagði, sé ekki ástæðu til þess að hafa mörg orð um þetta, en ég vildi aðeins að hér kæmi þó fram rödd við umr. um þessa till. sem er þeirrar skoðunar, að það sé síður en svo að þetta mál beri höfuð og herðar yfir önnur hin fjölmörgu mál sem að mínu viti ætti fyrst að snúa sér að að finna leiðréttingu á dreifbýlisfólkinu til handa. Það er hægt að færa fram ótalmörg rök fyrir því.

Ég skal ekki hafa um þetta fleiri orð, ekki a. m. k. að sinni.