03.03.1977
Sameinað þing: 59. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2413 í B-deild Alþingistíðinda. (1804)
118. mál, upplýsinga- og rannsóknarstofnun verslunarinnar
Flm. (Ellert B. Schram) :
Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt tveim öðrum þm. að leggja fram svo hljóðandi till. til þál.:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að hlutast til um, að ríkissjóður veiti sérstakri upplýsinga- og rannsóknarstofnun verslunarinnar hliðstæða fjármagnsfyrirgreiðslu og aðrar höfuðatvinnugreinar í landinu eru þegar aðnjótandi.“
Í nútímaþjóðfélagi er öllum augljós sú brýna nauðsyn sem á því er, að á hverjum tíma liggi fyrir sem gleggstar upplýsingar um stöðu allra aðalatvinnugreina þjóðfélagsins. Samtök í sjávarútvegi, landbúnaði og iðnaði hafa sjálf og með stuðningi ríkissjóðs ráðist í umfangsmikla upplýsingasöfnun og gagnavinnslu fyrir hlutaðeigandi atvinnugreinar. Auk þess eru reknar sérstakar rannsóknarstofnanir í þágu þessara atvinnugreina.
Eins og nú er háttað málum er verslunin mjög afskipt í þessum efnum. Verslunin er ein af höfuðatvinnugreinunum og mjög margþætt, bæði að því er varðar mismunandi verslunarstig, verslunarform og tegund vöru og þjónustu. Höfuðáherslu ber að leggja ítarlega könnun á afkomu og öðrum helstu rekstrarstærðum verslunarinnar, hinum ýmsu starfsþáttum hennar og skipulagsuppbyggingu, svo og framlagi verslunarinnar til þjóðarbúskapsins og öðru, sem yrði til að auka almenna þekkingu á versluninni í landinu og mikilvægu hlutverki hennar. Mikilvægar og afdrifaríkar ákvarðanir hafa verið teknar í málefnum verslunarinnar án þess að nægjanlegar og haldgóðar upplýsingar hafi verið fyrir hendi. Þetta er að sjálfsögðu mjög bagalegt, bæði fyrir verslunina sjálfa og ekki síður fyrir þá opinberu aðila sem ákvörðunarvald hafa í verslunarmálum. Jafnframt eru bornar fram alvarlegar ásakanir á hendur versluninni, sem að mestu leyti byggjast á misskilningi og vanþekkingu. Bæði áður og eins í tengslum við þessa gagnrýni hafa opinberir aðilar og fjölmiðlar óskað upplýsinga um afkomu verslunarinnar, starfsemi hennar og reglur, sem hún verður að hlíta. Þetta eru eðlilegar óskir og ættu upplýsingar þar að lútandi að liggja fyrir. Það er hins vegar borin von, að verslunin geti orðið við þessum sjálfsögðu óskum af því að veigamiklar upplýsingar um fjölmarga þætti verslunarinnar skortir.
Þröskuldurinn í vegi þess, að upplýsinga- og rannsóknarstofnun fyrir verslunina sé sett á fót, er fyrst og fremst fjármagnsskortur. Með samþykkt þeirrar till., sem hér er flutt, væri gefið vilyrði fyrir fjárhagslegum stuðningi hins opinbera, sem flm. eru sannfærðir um að nægja mundi til að úr framkvæmd yrði, enda verður að telja að verslunin eigi siðferðilegan rétt á slíkum stuðningi til jafns við aðrar aðalatvinnugreinar þjóðarinnar.
Ég legg svo til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði till. vísað til hv. atvmn.