03.03.1977
Sameinað þing: 59. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2414 í B-deild Alþingistíðinda. (1806)
174. mál, atvinnumál öryrkja
Flm. (Helgi F. Seljan):
Herra forseti. Á þskj. 344 höfum við hv. þm. Stefán Jónsson leyft okkur að flytja till. til þál. um atvinnumál öryrkja, svo hljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta útbúa og leggja fram á Alþ. fyrir árslok frv. til l. um atvinnumál öryrkja. Skal frv. miða að því, að öllum með skerta starfsgetu sé tryggður réttur til vinnu við sitt hæfi, annaðhvort á sérstökum vinnustöðum á vegum ríkis og sveitarfélaga eða með því að opna þeim aðgang að hinum almenna vinnumarkaði með sérstökum ráðstöfunum.“
Í grg. með till. okkar segir, að félagsleg samhjálp og félagsleg löggjöf af ýmsu tagi hafi rutt sér æ meira til rúms á undanförnum áratugum með flestum siðmenntuðum þjóðum. Tilgangur þess er að leitast við að jafna lífskjör þegnanna og tryggja með íhlutun hins opinbera, að engin stétt eða einstaklingur verði útundan og undir í lífsbaráttunni.
Við flm. bendum á það, að margt hafi hér áunnist til góðs, en engu að síður séu ýmis verkefni enn að einhverju leyti óleyst eða við eigum eftir betur að gera. Og við höfum einmitt rekið okkur á það, við hv. þm. Stefán Jónsson, að í þessu efni vantar nauðsynlega vissa rammalöggjöf sem tryggi þau meginmarkmið sem við stefnum að með þessari tillögu.
Við bendum á það í grg., að þótt margt hafi verið gert í þessum efnum, mest þó af öryrkjum sjálfum og samtökum þeirra, til að auðvelda þeim að afla sér viðbótartekna, þá er mikill fjöldi öryrkja í dag sem annað tveggja á engan kost atvinnumöguleika eða þá þeir þurfa að stunda atvinnu sem á engan hátt er við þeirra hæfi. Öryrkjum eða fólki með skerta starfsgetu er þó síst minni nauðsyn en öðrum að eiga starfsmöguleika sem fjölbreyttasta og með sem greiðustum aðgangi. Hér koma inn í beinar félagslegar þarfir þessa fólks auk hinna fjárhagslegu, nauðsyn aukinna samskipta við aðra á vettvangi starfsins er svo ótvíræð og lífshamingja og lífsfylling þessa hóps er þessu meir bundin en flestra annarra, ef grannt er að gáð.
Hér þarf því, samhliða hinu ágæta framtaki öryrkjanna sjálfra, beina forgöngu ríkis og sveitarfélaga, einkum með tilliti til verndaðra vinnustaða í stærri sveitarfélögum, og sömuleiðis mætti benda á, að breytingar eru hugsanlegar á lögum um vinnumiðlun varðandi skyldur atvinnurekenda við fólk með skerta starfsgetu og þá með vissri aðstoð ríkis og sveitarfélaga þar við.
Þessi till. er sem sagt þannig, að hún varðar mál, sem okkur öllum á að vera skylt að leysa á besta hugsanlegan veg. Og það fer vart á milli mála, að samfélagslegar aðgerðir þurfa til að koma ef von á að vera um sem viðtækasta lausn þessa vanda. Atvinna fyrir öryrkja, atvinna sem þeim hæfir og þeir geta um leið notið, er að vísu margslungið mál, svo ólíkar sem aðstæðurnar eru, svo mismunandi sem fötlunin er. Hér á höfuðborgarsvæðinu hefur margt verið vel gert og norður á Akureyri myndarlega að staðið. En það eru öryrkjarnir sjálfir, sem hafa þar best og mest unnið, að vísu með góðri samfélagslegri aðstoð.
Spyrja mætti því sem svo, hvort öllu þessu þokaði ekki svo vel fram á við að óþarft væri að hafa uppi tillögugerð af þessu tagi. Auðvitað ber að fagna því, sem gert hefur verið, og aldrei verður nógsamlega þakkað hið mikla starf, sem öryrkjarnir hafa hér af hendi leyst svo að sómi er að í öllum greinum. En tvennt ræður tillögugerð okkar framar öðru: í fyrsta lagi sú fullvissa okkar, að allt of margir vinni störf sem eru algerlega óhæf þeim og beinlínis sum til þess fallin að valda þeim verulegum óþægindum, jafnvel auknu heilsutjóni, og svo það, hve margir eru enn óvirkir þrátt fyrir gott og mikið starf að þessum málum.
Ég gæti af fyrra atriðinu sagt langa sögu af góðvini mínum, sem um áratugi var ekið í hjólastól í vinnu sína að morgni og aftur upp í herbergi sitt að kvöldi. Á skrifstofustólnum sínum sat hann svo hvíldar- og úrtakalaust sína 8–9 tíma, fékk sinn hádegismat að vísu sendan og molasopa. Og haldi menn að sagan sé gömul, þá eru aðeins 5 ár síðan hann fór hingað suður í Hátún þar sem hann býr í dag. Saga hans er í raun hetjusaga, og það var hreint afrek, hversu afköst hans voru mikil, og þó ekki síður, hve andlegur styrkur hans var ævinlega mikill. Það þakkaði hann framar öðru vinnunni, sem var þó á engan hátt neinum bjóðandi sem við slíka fötlun bjó.
Í öðru lagi er okkur flm. ljóst, að lausn þessa vanda er um margt erfiðari í fámennum byggðarlögum. Þar verður aldrei um sérstaka vinnustaði að ræða, svo sem betur þarf að skipuleggja í framtíðinni. Vanda fatlaðra þarf að leysa með öðrum hætti þar, persónubundnari, sem oft er örðugleikum háð sakir einhæfni í vinnumöguleikum á mörgum stöðum, þar sem erfiðisvinnan ein ríkir víðast með sinni auka- og helgidagavinnu oft, svo að menn fái bjargast í glímunni við dýrtíðardrauginn.
Við flm. höfðum það í huga og hafði raunar verið sérstaklega á það bent, að í lög um vinnumiðlun væri unnt að setja ákvæði um vissar skyldur vinnuveitenda gagnvart atvinnu fyrir öryrkja og á móti kæmi þá viss aðstoð eða fyrirgreiðsla af hálfu viðkomandi sveitarfélags eða ríkis, sem auðveldaði vinnuveitendum að taka öryrkja í vinnu. Þetta mun vera gert sums staðar og hefur gefist vel, en er vandmeðfarið í hvívetna, ekki hvað síst að því er snertir öryrkjana sjálfa sem eðlilega vilja engir ölmusumenn vera frekar en aðrir. Þetta teljum við þó að beri að athuga sérstaklega. Ef till. yrði samþykkt og ákveðin löggjöf yrði sett væri eðlilegt að þetta kæmi þar inn, en ekki beint inn í lög um vinnumiðlunina sjálfa.
Fjölmargir öryrkjar, einkum úti á landi, en einnig hér á þessu svæði, hafa bent okkur flm. á leiðir og um leið ítrekað nauðsyn þess að fá löggjöf hér um, sem í nokkru tryggði öryggi þeirra og vissan forgang um leið til þeirra verkefna sem þeim hæfðu best. Mjög voru skiptar skoðanir meðal öryrkja um hina sérstöku, vernduðu vinnustaði, sem oft er rætt um sem allsherjarlausn og þá einkum í mesta þéttbýlinu. Hér kemur fyrst til greina óttinn við of mikla einangrun frá hringiðu mannlegs lífs og um leið of mikil samskipti fólks sem á við sömu eða svipuð vandamál að stríða. Vinur minn í Hátúni 12 sagði eitt sinn: „Mikið líður mér nú betur hér en á Reyðarfirði að flestu leyti, en samt sakna ég stólsins míns vegna þeirrar mörgu, sem þar komu og gáfu sér tíma til að spjalla við mig, þó ekki væri nema örskotsstund.“
Auðvitað eru öryrkjar það raunsæir, því að raunsæi finnst mér oft eitt aðalsmerki þeirra, að þeir gera sér fulla grein fyrir því, að hluti þeirra getur aldrei verið annars staðar en á sérhæfðum vinnustöðum. En þeir vilja einnig sjá sem flesta, er betur geta bjargað sér, á hinum almenna vinnumarkaði á einhvern hátt með a. m. k. lámarksöryggi og sama rétt og aðrir til vinnu, þó þannig, að vinnan verði þeim til ánægjuauka einnig, skapi þeim þá hamingju sem í því er fólgin að starfa, leggja sitt af mörkum.
Hér þarf því að ýmsu að gæta. Það er margvísleg hvatning þessa fólks, sem er kveikjan að þessari tillögugerð, og það með, að mörgum hefur þótt eðlilegt að á vissan hátt verði athugað um atvinnumál öryrkja í tengslum við hugsanlega löggjöf um atvinnumál aldraðra sem samkv. samþykkt Alþ. hlýtur fyrr en síðar að sjá dagsins ljós. Í till. þeirri, sem þar á að liggja til grundvallar, segir svo, að fullt samráð beri að hafa við launþegasamtökin, og á það leggjum við flm. einnig áherslu hvað okkar till. snertir, en þó fyrst og fremst samráð við öryrkjabandalagið þar sem menn hafa rækilega og ígrundað skoðað hugsanlega möguleika og eru með á takteinum ýmsar beinar hugmyndir sem fróðlegt væri að sjá í framkvæmd.
Þrátt fyrir mikið og gott starf í þessum málum teljum við ekki vansalaust að löggjöf skuli ekki vera fyrir hendi, hvort sem hún yrði meira sem rammalöggjöf með einstökum markandi aðalatriðum eða nákvæm og ítarleg heildarlöggjöf sem fæli þá e. t. v. meira í sér en við flm. höfum gert till. um, en við vitum að uppi eru hugmyndir um hjá ýmsum forustumönnum öryrkja. Að vísu vaknar sú spurning óneitanlega, þegar um þessi og önnur álíka mál er rætt, hvort skorti ekki löggjöf almennt, eina samhæfða félagsmálalöggjöf, þar sem félagsleg þjónusta og félagsmál í heild væru sett undir einn hatt. Þetta hafa danir gert og eflaust fleiri, og þá er að sjá hver reynslan þar verður, þó að mála sannast sé það, að í þessu litla þjóðfélagi okkar er og verður aldrei hægt að aðhæfa erlenda reynslu að íslenskum aðstæðum.
Ég sé ekki ástæðu til þess að fara út í ýmsar þær leiðir sem við flm. höfum verið fræddir um í þessu efni. Það kemur allt í ljós á sínum tíma og verður án efa vel til skila haldið af þeim sem þekkja hvar skórinn kreppir, ef að löggjöf verður unnið. Áfram eru flm. á þeirri skoðun, að best sé að öryrkjar sjálfir hafi forustu í framkvæmd allri. En ekki hvað síst framtak þeirra bendir á nauðsyn löggjafar til frekari stuðnings og hjálpar, – löggjöf sem m. a. legði fjárveitingavaldinu meiri beinar skyldur á herðar um aðstoð en verið hefur. En við mátum málið þannig eftir samtöl við ýmsa öryrkja, einkum úti á landsbyggðinni, að svo brýn þörf væri engu síður á beinum félagslegum afskiptum,. ekki síst þar, að þar yrði heildarlöggjöf að marka tiltekna stefnu, m. a. í fjárveitingum og ýmsum beinum ákvæðum sem forsvarsmönnum opinberra stofnana sem einkaaðilum væru skylt að taka fullt tillit til.. Því er þessi till. flutt og vísað á það, að æskilegt sé að hafa vissa hliðsjón af samræmingu löggjafar fyrir aldraða sem öryrkja, þótt margt fari þar á misvíxl einnig.
Ég vil svo, herra forseti, leyfa mér að leggja til. að þessari till. verði vísað til hv. atvmn.