07.03.1977
Neðri deild: 57. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2439 í B-deild Alþingistíðinda. (1837)
Umræður utan dagskrár
Svava Jakobsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég vil hefja mál mitt á því að andmæla sem röngum þeim málflutningi hv. síðasta ræðumanns, Gylfa Þ. Gíslasonar, að Alþb. hafi verið andsnúið grunnskólafrv. og það hafi að einhverju leyti verið vegna andstöðu Alþb., samstarfsflokks (Gripið fram í.) Hv. þm. nefndi samstarfsflokka hæstv. menntmrh. (Gripið fram í.) Hv. þm. er ella búinn að gleyma því, að Alþb. var samstarfsflokkur hv. þm. Magnúsar T. Ólafssonar í vinstri stjórn. (Gripið fram í.) Ég ítreka það, að Alþb. stóð fast við hlið hv. þm. Magnúsar T. Ólafssonar þegar hann var menntmrh. og var að koma þessu frv. í gegnum þingið. Hitt var annað mál, eins og hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason veit, að það voru skiptar skoðanir þm. úr öllum flokkum um mörg atriði þessa frv., og auðvitað var ekki við öðru að búast um svo stóran og viðamikinn málaflokk. Og margur ágreiningurinn, sem varð, var náttúrlega alls ekki af flokkspólitískum toga spunninn, heldur öllu fremur deildu menn eftir því, hvort þeir voru þm. þéttbýlis eða sveitanna.
Í öðru lagi langar mig til að beina máli mínu til annars hv. þm. Alþfl., Sighvats Björgvinssonar, sem hneykslaðist hér mikið á því, að nú væri skólastjórum ekki heimilt að lesa einkunnir nemenda upp við skólaslit eða hafa þau yfir í heyranda hljóði. Það hefði raunar komið meira á óvart ef þeir gerðu þetta, vegna þess að það er skýrt kveðið á í grunnskólalögunum sjálfum, í 57. gr., að þetta sé óheimilt. Ætla ég — með leyfi hæstv. forseta — að lesa þessa klausu:
„Óheimilt er að veita upplýsingar um vitnisburði nemenda öðrum en þeim sjálfum og forráðamönnum þeirra, nema nauðsyn beri til vegna flutnings nemenda milli skóla. Þó skal heimilt að veita öðrum þessar upplýsingar vegna fræðilegra rannsókna, enda sé krafist fullrar þagnarskyldu.“
Hér er því ekki um að ræða neina geðþóttaákvörðun rn., heldur var það hið háa Alþ. sjálft sem ákvað þetta með lögum. Þessi klausa kom inn í frv. í meðferð Nd. þegar grunnskólafrv. var til umr., og ég get upplýst þennan hv. þm. um það hér, að ég tel mig hafa átt mikinn hlut að því að semja þetta og koma því inn í lögin. Raunar man ég ekki hvort menntmn. stóð öll að brtt. um þetta eða hvort við vorum aðeins nokkrir þm. sem bárum þetta fram og fengum það samþykkt. Það má gá að því í þskj., ef einhverjir hafa áhuga á því. Það fór ekki á milli mála að við töldum þetta vera í anda grunnskólafrv. Við töldum að ákvæði af þessu tagi mundu draga úr þeim hvimleiða samkeppnisanda, sem ríkti í skólum, og væri fyllilega nægilegt ef nemandinn sjálfur og sá framhaldsskóli, sem hann leitaði til. fengi að vita einkunnina, en óþarfi væri að básúna hana út um allt. Ég er því hæstánægð með að heyra að þessum leiða sið skuli nú vera hætt.
Það ber að harma þau mistök sem urðu við framkvæmd prófanna nú á dögunum. En umr. um mistök eiga ekki að verða til þess að við höfnum stefnunni sem slíkri með órökstuddum sleggjudómum.
Hv. þm. Ellert B. Schram lýsti því yfir að próffyrirkomulagið bryti í bága við anda grunnskólalaganna. Þetta hefði ég viljað skoða nokkru nánar. Samkv. grunnskólalögunum á skólinn að koma öllum nemendum til aukins þroska, og ég held að þær breytingar, sem orðið hafa í kjölfar löggildingar nýs grunnskóla, stefni að miklum framförum einmitt í þá átt. Ég held að þetta getum við best séð með samanburði við eldra fyrirkomulag.
Það er ákaflega skiljanlegt, að það fari ekki allt fram mistakalaust í byrjun. En ég tel það mjög misráðið að veitast að rn. eða skólamönnum fyrir svokallaða „tilraunastarfsemi“, þegar verið er að varpa fyrir róða gamalli skólahefð þar sem úrvalið komst áfram nokkurn veginn hljóðalaust, en hinir urðu að fara ótal krókaleiðir eða detta alveg út. Þar segir sig sjálft, að þegar svo gagngerar breytingar eru gerðar, þá næst hið æskilegasta fyrirkomulag ekki endilega við fyrstu tilraun. En þá er bara að reyna betur. Hér verðum við að hafa í huga ekki bara það, að það er verið að hafna úreltu fyrirkomulagi, úrvalsfyrirkomulaginu, heldur er viðfangsefnið maðurinn sjálfur. Ef við ætlum að hafna öllum breytingum í framfaraátt, þá stafar það annaðhvort af því að þjóðfélagið er algerlega staðnað eða þá menn telja sig hafa komist að sannleikanum um manninn í eitt skipti fyrir öll.
Ef við lítum á gamla fyrirkomulagið, þá má fyrst geta þess, að áður fyrr gátu börn fallið á barnaskólaprófi og þá voru allar framhaldsleiðir lokaðar fyrir þeim í eitt skipti fyrir öll. Það er raunar ekki fyrr en með tilkomu öldungadeildarinnar á síðustu árum sem nokkuð hefur verið bætt úr þessu. Samkv. þessu fyrirkomulagi falla menn ekki lengur á barnaskólaprófi eða grunnskólaprófi og geta því hvenær sem er ævinnar tekið upp þráðinn að nýju ef aðstæður breytast. Áður fyrr voru sérstök inntökupróf við suma framhaldsskóla, sérstaklega menntaskólana. Það gekk svo langt að þeir, sem ætluðu sér endilega að komast í menntaskóla, vörðu heilum vetri í aukaskóla til þess að búa sig undir þetta inntökupróf og vörðu til þess óhemjutíma og fjármunum. Ég man þá tíð, að það var nær ógerningur fyrir nokkurn mann að ímynda sér að hann kæmist í fyrsta bekk menntaskóla nema hann hefði gengið í þennan einkaskóla sem hér var í Reykjavík. Úr þessu var bætt með landsprófunum, þar sem allir, sem náðu vissu marki, áttu þó rétt til setu í framhaldsskóla, og var þar reynt að tryggja jafnrétti milli allra barna, hvar sem þau bjuggu á landinu, og jafnrétti milli skólanna. Þar var vissulega um samræmt próf að ræða. Nú er verið að rýmka enn inngöngu í framhaldsskólana, og má í því sambandi telja mjög merkilegt framfaraspor að inntökureglan er sett jöfn núna fyrir alla framhaldsskóla, lágmarkseinkunnin gildir jafnt. En jafnframt er verið að fækka samræmdu prófunum í grunnskóla úr 9 niður í 4. Það sem sagt virðist þróast nokkuð í þá átt að afnema samræmd próf, og það kann vel að vera að það verði þróunin í framtíðinni að svo verði gert. Fækkun samræmdra prófa gefur skólunum sjálfum aukið svigrúm til starfa og jafnframt er meðaleinkunn afnumin, sem þýðir það að einstaklingurinn á að hafa meiri möguleika til að nýta sérgáfu eða sérhæfileika. Það á að geta komið í veg fyrir að heill skóli lokist fyrir nemandanum eingöngu vegna þess að hann lækkar í meðaleinkunn vegna nokkurra námsgreina, þó að hann hafi nógu hátt í hinum. Þetta tel ég mjög mikla framför. Síðan er alltaf spurning hvernig á að meta samræmdu greinarnar.
Ég er sammála hv. þm. Jónasi Árnasyni, að mér þykja krossaprófin heldur hvimleið, og sérstaklega sé ég ekki hvernig þau eiga að geta komið að nokkru gagni í námsgreinum eins og sögu. En það breytir ekki því, að meðan ekki hafa komið fram betri till. hér um eitthvað sem kynni að koma í stað samræmdu prófanna, þá mun ég ekki mæla í gegn þeim og ekki telja að þau brjóti í bága við anda grunnskólalaganna.
Það er auðvitað matsatriði, hvort við fellum okkur við hlutfallseinkunn. Það er tvímælalaust spor í rétta átt, að hlutfallseinkunnin jafnar milli prófa og milli árganga. Þar er komin jöfnun sem lengi hefur verið reynt að ná, hefur raunar stundum verið hægt og stundum ekki. Ég held að það verði síðan að vera einstaklingsbundið mat hvort menn geta fellt sig við hlutfallseinkunn fyrir sjálfa sig, því að þar er auðvitað tvímælalaust um að ræða nokkra breytingu á hugsun. Nemandinn getur ekki í jafnríkum mæli miðað einkunn sina við fyrri einkunnir sinar, og er hlutfallseinkunn kannske ekki nógu góður mælikvarði fyrir hann sjálfan. Hins vegar fær hann góða mynd af því, hvernig hann stendur innan heildarinnar. Það mætti einnig segja, að það væri varhugavert að hafa tvenns konar mælikvarða í sama prófi, hlutfallseinkunn í samræmdu prófunum, en algilda einkunn í skólamatinu.
Ég held að það fylgi þessu fyrirkomulagi bæði kostir og gallar, en ég held að gallarnir séu ekki þeir sem hæst hefur verið talað um undanfarna daga. Í rauninni er vandinn kannske ekki helstur varðandi grunnskólaprófið sjálft, heldur varðandi framhaldið, og mig langar að beina til hæstv. menntmrh. af því tilefni nokkrum spurningum varðandi framhaldsnámið. Frá og með þessu vori verður gagnfræðaprófið afnumið og þá væntanlega þessi framhaldsdeild gagnfræðaskólanna lögð niður sem slík. Það eru, að mér er tjáð, um það bil 2000 nemendur sem munu þá verða á lausum kili, ef svo mætti orða það. Þetta hlýtur að verða stórt vandamál á næsta vetri og sérstaklega fyrir fólk í fámennari sveitarfélögum. Ég hefði gjarnan viljað heyra það hjá hæstv. menntmrh., hvernig hann hyggst bregðast við þessum vanda.
Í öðru lagi og í framhaldi af þessu vil ég spyrja hæstv. menntmrh. að því, hvað frv. um framhaldsskólastigið líði. Ég hef fengið þær upplýsingar, að hann sé reiðubúinn að leggja það fram, en að það strandi á fjmrn. Ég vek athygli á því, að því lengur sem dregst að afgreiða það frv. og koma skipulagi á framhaldsskólastigið, því hættulegra verður málið í heild vegna þess að við getum ekki litið á grunnskólanámið sem afmarkaðan þátt í kennslunni eða skólanum. Ef þær hugmyndir um framhaldsskóla, sem ég held að nú séu uppi, ná fram að ganga, þá verður þetta samfelldur skóli, og því fyrr sem hann kemst á, því betra.