08.03.1977
Sameinað þing: 60. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2461 í B-deild Alþingistíðinda. (1843)
257. mál, endurskoðun á lögum um hlutafélög
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Ég fagna því, að við eigum von á því að fá hér frv. um hlutafélög til meðferðar. Ég geri ráð fyrir að það verði margt fróðlegt að sjá þar, án þess að ég ætli hér að fara að spyrja að einstökum atriðum. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans.