27.10.1976
Efri deild: 6. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 254 í B-deild Alþingistíðinda. (185)
37. mál, tollskrá
Ingi Tryggvason:
Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að segja örfá orð í sambandi við frv. það sem hér er til umr., flutt af þeim hv. 5. þm. Norðurl. e. og 7. landsk. þm.
Ég tel að í frv. þessu og frv. því, sem er á dagskrá hér næst á eftir, sé hreyft mikilsverðu réttlætismáli fyrir þá öryrkja sem eru svo illa staddir að þeir geta ekki með góðu móti gert vart við sig ef eitthvað kemur sérstakt fyrir þá á þjóðvegum landsins. Mér er kunnugt um það, að á vegum Tryggingastofnunar ríkisins fer nú fram athugun á því, hvaða leiðir samtök fatlaðra, samtök öryrkja telja að séu helst hæfar til þess að tryggja þessu fólki að það geti gert vart við sig ef bifreið þess bilar t.d. eða eitthvað annað kemur fyrir sem veldur því að það verður hjálparlaust í bifreiðum sínum. Þarna er náttúrlega aðstaða manna e.t.v. nokkuð misjöfn eftir því hvar þeir eru búsettir. Þeir, sem búa í dreifbýli, geta orðið í vandræðum vegna þess að ekki fari bílar um þá vegi þar sem þeir eru staddir ef eitthvað kemur upp á. En það mun raunar vera líka svo í fjölbýlinu, að þar stansa menn ekki þó að bíll sjáist sem numið hefur staðar, jafnvel þó að reynt sé að gefa merki um að eitthvað sé að. Þess vegna er það áreiðanlega brýnt að þessu fólki, sem reynir eftir bestu getu að bjarga sér þrátt fyrir mikla örðugleika, sé gert kleift að gera það á þann hátt að það stofni ekki öryggi sínu í frekari hættu með því að bera sig um í eigin bifreiðum. Ég vil þess vegna lýsa stuðningi mínum við þær hugmyndir sem koma fram í þessum frv. báðum.
Ég tel að það sé raunar fremur verkefni Tryggingastofnunar ríkisins og almannatrygginganna að leysa þessi mál heldur en Landssímans sem slíks. Ég veit að Tryggingastofnunin hefur komið til móts við þarfir þeirra, sem keypt hafa talstöðvar, með því að styrkja þá til þeirra kaupa þegar þær ástæður hafa verið fyrir hendi sem Tryggingastofnunin hefur talið að gerðu slík kaun nauðsynleg. Hins vegar vantar lagaheimild til þess að koma til móts við þá sem erfitt eiga með að greiða afgjöld af þessum tækjum, en nm það efni er einmitt frv. það sem er á dagskrá hér næst á eftir.
Ég ætla ekki að orðlengja neitt frekar um þetta. en vil aðeins láta það aftur í ljós, að ég tel hér hreyft mikilsverðum réttlætismálum sem nauðsynlegt sé að fá viðhlítandi lausn fyrir þá sem þar eiga hlut að máli.