08.03.1977
Sameinað þing: 61. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2464 í B-deild Alþingistíðinda. (1856)

170. mál, stóriðja á Norðurlandi og Austurlandi

Flm. (Eyjólfur K. Jónsson):

Herra forseti. Ég flyt hér ásamt hv. 3. þm. Austurl. till. til þál. um staðarval til stóriðju á Norðurlandi og Austurlandi. Eins og till. þessi ber með sér fjallar hún einungis um athugun á því, hvar í þessum tveimur landshlutum væri heppilegast að setja niður stóriðju ef að því ráði yrði horfið að reisa fleiri stóriðjufyrirtæki hér á landi en þau sem þegar hafa verið ákveðin.

Ástæðan til þess, að við flytjum þessa till., er kannske fyrst og fremst sú, að nú að undanförnu hafa heyrst um það raddir að fleiri stóriðjufyrirtæki ætti að byggja suðvestanlands eða þá sunnanlands. Hafa verið tilnefndir ýmsir staðir og forustumenn í byggðarlögum óskað eftir því, að til þeirra yrði litið ef að ráði yrði að setja á stofn fleiri stóriðjufyrirtæki á Íslandi. Við teljum það fráleita stefnu að hrúga öllum stórfyrirtækjum niður á Suðvesturlandi. Og ég get sagt það sem mína persónulegu skoðun, að ég mundi verða eindregið andvígur því að ákvörðun yrði tekin um byggingu fleiri stóriðjuvera á Suðvesturlandi án þess að litið yrði til þeirra landshluta sem hér er um fjallað, Norðurlandsins og Austurlandsins, því að vissulega væri það einn vísasti vegurinn til byggðaröskunar að reisa fleiri slík fyrirtæki hér um slóðir. Hitt kynni að koma til álita, að líta til Skaftafellssýslna ef þar væri ástæða talin til og hægt að byggja höfn með viðráðanlegum kostnaði, því að vissulega væri höfn við Dyrhólaey mjög merkilegt og gott fyrirtæki.

En sem sagt, hér er ekki verið að biðja um neina ákvörðun um frekari stóriðju, heldur einungis að athugaðir verði þeir staðir sem best kynnu að henta, ef að ráði yrði að fara í fleiri stóriðjufyrirtæki.

Fyrir áratug eða rúmlega svo, þegar umr. voru hvað heitastar um stóriðju, var ég einn í hópi þeirra, sem vildu stóriðju, og barðist fyrir því eins og ég gat að við legðum inn á þessa braut. Ég býst ekki við að neinum hv. alþm. sé um það ókunnugt, þar sem því var þá haldið fram að ég hefði í sjónvarpsþætti óskað eftir því, að svo sem eins og 20 álbræðslur yrðu byggðar á Íslandi eða að við hefðum með að gera nokkurn veginn heimsframleiðsluna á þeim merka málmi. Þetta voru auðvitað hrein ósannindi, því að ég minntist aðeins á að álbræðslan í Straumsvík tæki ekki nema sem svaraði einum tuttugasta af virkjanlegu afli — vel virkjanlegu afli. En síðan var það nokkrum vikum eða mánuðum seinna, eftir að búið var að eyðileggja útvarpssendinguna eða sjónvarpsspóluna, að þá var það rifjað upp, að ég hefði eitthvað verið að tala um 1/20, og sagt, að ég hefði óskað eftir 20 álbræðslum.

Ég gerði iðnrh. þeim, sem síðastur var á undan núv. ráðh., það tilboð í hans ráðherratíð, að við sameinuðumst um að strika þetta núll aftan af tölunni og hefðum álverin tvö, og yrði þá annað, hið síðara, annaðhvort norðanlands eða austan. Og þá hefur einkum verið rætt um tvo staði, þ. e. Eyjafjörð og Húsavík. Talsvert mikil andstaða er gegn byggingu álbræðslu eða álverksmiðju í Eyjafirði og alveg ástæðulaust að neyða nokkurt byggðarlag til að taka við slíku fyrirtæki ef fólkið heima fyrir vill það ekki. Þá á auðvitað ekki að ráðast í framkvæmdina. Það yrði sjálfsagt kannað nánar hver vilji manna er í raun og veru þar. Eins er sjálfsagt að huga að Húsavík. En það eru margir fleiri staðir, sem til greina koma, og engin ástæða til annars en að gera a. m. k. lauslega athugun á hvað hafnarmannvirki og slíkt mundi kosta á hverjum stað fyrir sig, þannig að menn renndu ekki alveg blint í sjóinn.

Ég held að menn hljóti líka að vera sammála um það, að ekki verði ráðist í fleiri stórvirkjanir en þær, sem þegar hefur verið tekin ákvörðun um, á jarðeldasvæði eða jarðvirknisvæði. Þess vegna hlýtur Blanda að verða næsta stórvirkjunin. Nú á þessu ári verða miklar rannsóknir við Blöndu, og ég vænti þess að ákvörðun um Blönduvirkjun verði tekin nú á þessu þingi og framkvæmdum við hana hraðað eins og frekast má verða. Auðvitað væri það heppilegra við Blönduvirkjun fjárhagslega að eitthvert stóriðjufyrirtæki risi norðanlands samhliða, en þó er það ekki skilyrði, vegna þess að byggðalínuna má eins nota til að flytja orku suður um stundarsakir eins og að flytja hana norður, þ. e. a. s. þegar Blanda kæmist í gagnið, þá gæti hún séð málmblendiverksmiðjunni fyrir rafmagni að hluta til a. m. k. En hvað sem öllu öðru líður, þá kemur það ekki til greina að mínu mati að gera hvort tveggja í senn, að byggja enn eina stórvirkjun hér sunnanlands og jafnframt nýtt iðjuver.

Ég held raunar líka að það sé e. t. v. ekki sama ástæða til að berjast fyrir stóriðju nú eins og fyrir einum áratug eða svo. Kemur þar auðvitað fyrst og fremst til, að við höfum náð fullum yfirráðum yfir okkar landhelgi miklu fyrr, hygg ég, en nokkur þorði að gera sér vonir um þá og þess vegna mun sjávarfengur verða meiri en þá var áætlað. En samt sem áður teldi ég það síður en svo óæskilegt að eitt eða tvö stóriðjuver risu á næsta áratug, skulum við segja, og þá, eins og ég hef margtekið fram, nyrðra eða austanlands, og ef þau yrðu tvö, þá yrði sitt í hvorum landshlutanum.

Ég vona að þessi till. þurfi ekki að valda neinum deilum. Ég held að menn ættu að geta sameinast um að þessi skoðun fari fram alveg óháð því hver framvindan yrði. Þetta á ekki að þurfa að vera kostnaðarsamt, heldur aðeins að menn hafi augun opin og að heilbrigðar umræður um þetta mál geti farið fram algjörlega öfgalaust.

Ég legg svo til, herra forseti, að málinu verði vísað til hv. allshn.