08.03.1977
Sameinað þing: 61. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2479 í B-deild Alþingistíðinda. (1864)
170. mál, stóriðja á Norðurlandi og Austurlandi
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Hv. 1. þm. Norðurl. e., Ingvar Gíslason, gat þess að hann hefði verið að velta því fyrir sér að biðja um frestun þessarar umr. af því að hann væri ólæs um hríð. Ég hins vegar var tepptur undir lóð og átti ekki von á því að umr. hæfust svo snemma um þetta dagskrármál. svo aftarlega á dagskránni eins og raun ber vitni, þannig að ég kem dálítið af fjöllum varðandi það sem hér hefur farið fram. En þó lánaðist mér að hlýða á mál þeirra hv. framsóknarmanna, þeirra hv. þm. Ingvars Gíslasonar, hv. þm. Stefáns Valgeirssonar og hv. þm. Halldórs Ásgrímssonar, og ég held að það hefði gert kannske umr. styttri og einfaldari í sniðum ef þeir, sem ekki þjást af ólæsi, hefðu lesið till. og grg. með henni.
Ég veit að afsökun hv. þm. Ingvars Gíslasonar liggur í ólæsinu. En ég veit ekki hvort hinir hafa þá afsökun, hv. þm. Stefán Valgeirsson og aðrir sem hafa talað í þeim dúr, eins og þeim sem hv. þm. Stefán Valgeirsson gat um, að þessi till. fjallaði um rannsókn á hafnaraðstöðu, að því er honum virtist, nær eingöngu. Og hv. þm. Halldór Ásgrímsson taldi að það vantaði í till. að rannsökuð yrðu hin félagslegu áhrif stóriðnaðar. Ekkert af þessu vantar í till. vitanlega, vegna þess að hér er verið að leggja til að gerð verði athugun á heppilegu staðarvali stóriðju á Norðurlandi og á Austurlandi, og vitanlega felst það í þeirri tillögugerð að allir þættir málsins verði rannsakaðir.
Hv. þm. Stefán Valgeirsson gat um það, að þetta væri ekki einfalt mál, og við hv. þm. Eyjólfur Konráð erum honum sammála um það og förum þess vegna fram á að úttekt á þessu og rannsókn verði gerð í heild sinni, mjög ítarleg, eftir þeim upplýsingum, sem menn hafa nú, og lærdómi, sem þeir hafa dregið af því sem þeir hafa séð og lesið og sýnir sig að vera ekkert einfalt mál.
En hv. þm. Ingvar Gíslason talar um að mikil stóriðja úti á landsbyggðinni mundi valda byggðaröskun. Það kann að vera. Það fer eftir því hvernig á málið er lítið. En ef svo heldur fram sem horfir um stórvirkjun fallvatna, þar sem orkunni er beint að þessu suðvesturhorni og byggingu stóriðju á því suðvesturhorni, hvað vilja menn þá segja um áhrif þeirrar stefnu, þeirrar einstefnu sem ég hef kallað og minn flokkur t. d. ber höfuðábyrgð á, eins og í stórvirkjunarmálunum? Ætli það mundi ekki teljast byggðaröskun í lagi? Við erum ekki að leggja til að tekin verði ákvörðun um stóriðjuframkvæmdir núna, — alls ekki. En ef Alþ. kæmist síðar að þeirri niðurstöðu að reisa bæri slík iðjuver, þá er að okkar dómi eðlilegt, heppilegt og nauðsynlegt að þá liggi fyrir hvort ekki megi velja slíku iðjuveri stað annars staðar en á þessu suðvesturhorni. Við höfum reynsluna af þessu varðandi stóriðjuna. Hér eru keðjuvirkjanir við Þjórsá, þegar einni er lokið tekur önnur við, af því að þeir sem stjórna og ráða ferðinni hafa þá þegar undirbúið hina næstu. Og þá er tekið fram að það verði að velja þann kostinn af því að hann sé undirbúinn og tilbúinn til útboðs. Þannig höfum við séð hvernig þessari einstefnu hefur verið ekið fram.
Ég hafði þá skoðun að stórvirkjun í Fljótsdal austur væri ekki möguleg nema með því að selja meginhluta orkunnar til orkufreks iðnaðar. Ég hef breytt þessari afstöðu minni, og þegar ég hafði borið fram till. mína um rannsókn á Fljótsdalsvirkjun, og í henni fólst einnig að athugaðir yrðu möguleikar á orkukaupanda á Reyðarfirði, þá nam ég þá grein brott úr tillögugerðinni –og reyndar var till. samþ. — af því að ég fór smám saman að átta mig á því að möguleikar okkar sjálfra til nýtingar orkunnar, neyslu orkunnar, væru það miklir að það væri ekki nauðsynleg forsenda fyrir stórum virkjunum að selja meginhluta orkunnar til orkufreks iðnaðar. Ég hef sannfærst enn betur um þetta og vil þess vegna leggja áherslu á áframhaldandi hringtengingu landsins. Nú hefur verið tekin ákvörðun um tengingu byggðalínunnar og lengingu hennar austur í Eyrarteig í Skriðdal, og ég hef að mínu leyti mikinn áhuga á áframhaldandi lagningu byggðalínunnar frá Eyrarteigi og framan lands að Þjórsárvirkjun. Og þá er ég alveg viss um það, að áður en líður uppgötva menn að þá þarf að byggja stórt orkuver í Fljótsdal austur, þó ekki væri nema til öryggis vegna stóru virkjananna á eldvirka svæðinu við Þjórsá og þar getur það orkuver framtíðarinnar gegnt sínu mikilvæga hlutverki. Annað mál er það, að það líða mörg ár þar til, og á meðan þarf auðvitað að huga að því að Austurland sem aðrir landshlutar njóti ódýrrar orku frá hagkvæmum vatnsvirkjunum í eigin landshluta. En hér er lagt til að athugað verði staðarval þá og ef að því dregur að tekin verði ákvörðun um frekari byggingu slíkra iðjuvera.
Ég verð að segja það, að mér kemur út af fyrir sig ekkert á óvart afstaða hv. þm. Ingvars Gíslasonar. Ég minnist þess, að hann sat hjá við lokaafgreiðslu frv. um járnblendiverksmiðjuna í Hvalfirði ásamt mér og þriðja hv. þm. En ég veit ekki hvort hinn stóri sannleikur í þessum málum hefur runnið upp fyrir þeim við viðbrögð kjósenda þeirra í Eyjafirði norður, fyrir honum og hv. þm. Stefáni Valgeirssyni, þegar á dagskrá kom till. í haust er leið um að reisa álver þar eða stóriðju. Það er auðvitað mannlegt, þó að það sé ekki beint stórmannlegt. En ég vil taka það fram, að þótt ég eigi ekki stjórnmálalegra hagsmuna að gæta norður þar, þá mundi ég ekki undir neinum kringumstæðum samþykkja stóriðju sem gæti mögulega haft mengun í för með sér á stað eins og við Eyjafjörð. Það kemur aldrei til greina. Og ég er þeirrar skoðunar að við eigum að fara okkur hægt í þessu, t. a. m. að ætla að binda kannske verulegan hluta af beislanlegri orku í heilum landshluta, á Suðurlandi t. d., í stóriðju á suðvesturhorninu, þó að fyrir liggi að orkuþörfin í þessum landshluta muni margfaldast til almennrar neyslu og smáiðnaðar og fjölþætts iðnaðar á næstu árum og áratugum. Það er hættuleg stefna í meira lagi.
Ástæður fyrir því, að ég gat ekki á sínum tíma fylgt járnblendiverksmiðjunni í Hvalfirði, voru í fyrsta lagi þær, að ég taldi að þar hefði verið dregin burt úr nefi okkar af útlenda auðhringnum bandaríska, og á hinn bóginn, að ég taldi þetta áframhald stórfelldrar byggðaröskunar, þar sem þetta var sett niður hér hið næsta þéttbýlinu eða að segja í því miðju, þar sem er ekki nema steinsnar úr Reykjaneskjördæmi yfir í járnblendiverksmiðjuna. Við verðum að fara með allri gát í þessum efnum um að binda stóran hluta af orku okkar í stóriðnaði. Á hinn bóginn er enginn vafi um það, að álverksmiðjan og e. t. v. væntanlega járnblendiverksmiðjan muni skjóta nýjum stoðum undir okkar efnahagslíf, og það hefur álverksmiðjan vissulega gert, bæði efnalega og eins með tilliti til gjaldeyrisöflunar.
Ég legg alla áherslu á það, og það er óþarft af mönnum að draga aðrar ályktanir af þessu en þær sem ég legg áherslu á, að hér er engan veginn verið að leggja til að horfið verði að nýrri byggingu stóriðjuvera.
Ég ætlaði aðeins að geta þess áðan, þegar ég fór að ræða um fyrri afstöðu hv. þm. til stóriðjuframkvæmda, að Framsfl. var stjórnarforustuflokkur árið 1974 þegar skriðið var tekið um byggingu járnblendiverksmiðjunnar, og það var sótt svo hart fram í því máli af hæstv. þáv. iðnrh., Magnúsi Kjartanssyni, að við í stjórnarandstöðunni, þingflokki Sjálfstfl., höfðum varla flóafrið. Þetta var stutt a. m. k. af meginhluta, nær öllum þm. í stjórnarforustuflokknum þá. Og sá veldur miklu sem upphafinu veldur um járnblendiverksmiðjuna, og það upphaf átti fyrrv. ríkisstj. og hæstv. þáv. iðnrh., Magnús Kjartansson, á því leikur ekki nokkur vafi. Hins vegar kunna að vera margir, t. d. í mínum flokki, sem vilja færa þeim sérstakar þakkir fyrir það forustuhlutverk, en ég er ekki í þeim hópi og ekki í þeim stellingum nú heldur.
Nei, þessi till., það má gjarnan gera hana ítarlegar úr garði. Ég vísa því til þeirrar n., sem fær þessu till. til athugunar, að í framsögu fyrir henni verði ítarlega rætt um tilgang hennar, svo sem ég hygg að hann hafi komið fram í þessum umr. nú.
Hv. þm. Páll Pétursson sagði að í till. fælist stefnumörkun. Hvað vill hann þá segja um þetta sem hv. þm. Eyjólfur Konráð las hér upp og stendur hér, að ljóst sé samkv. þessari till. að hún hnígur ekki að því að tekin verði ákvörðun um frekari stóriðjuframkvæmdir?
Ég sé nú ekki ástæðu til þess að blanda SÍS inn í þetta. Ég ú góða samvinnu við SÍS. Ég skal ekkert dæma um það, hvort þetta er rétt fram talið hjá hv. þm., þessar eigur, en SÍS er ekki ríkt, nei, SÍS er heldur fátækt og 4 milljarðar eru ekki stór eign. En ætli það sé nú ekki gamalt fasteignamat, þannig að við þurfum kannske að grípa til margföldunartöflunnar enn einu sinni,
Ég sé ekki ástæðu til þess á þessu stigi málsins að hafa fleiri orð um þessa till. En það var mjög þénanlegt að okkur flm. skyldi gefast vegna þessara umr. rækilegt tækifæri til þess að taka af allan vafa um við hvað er átt með tillögugerð þessari.