08.03.1977
Sameinað þing: 61. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2488 í B-deild Alþingistíðinda. (1866)

170. mál, stóriðja á Norðurlandi og Austurlandi

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Ég heyrði það á hv. 2. þm. Austurl. að hann var nokkuð viðkvæmur fyrir því að ég skyldi hafa haldið því fram að ákvörðun um járnblendiverksmiðjuna hefði í reynd verið tekin um leið og ákvörðun um byggingu Sigölduvirkjunar. Hann hélt því fram að svo hefði alls ekki verið, og ég ætla í sjálfu sér ekki að fara að rengja það. Ég sé hins vegar ekki hvernig er að ganga fram hjá því, að þá voru hafnar viðræður um þessa verksmiðju, og ég kem ekki anga á það, hvernig þessi ákvörðunartaka hefur átt sér stað í vinstri stjórninni. Hann gat þess, að það hefði verið rætt um að nota hluta af þessu rafmagni til að flytja norður í land með svokallaðri byggðalínu. En ég veit ekki betur en einmitt hafi verið tekin ákvörðun í þeirri stjórn — annars ágætu stjórn — að ráðast í virkjun Kröflu og Alþ. veitti heimild til þeirrar virkjunar, þannig að ég verð að segja það eins og er, að ég kem þessu ekki heim og saman. Ég tel að þegar ákveðið er að byggja virkjun eins og Sigöldu, þá sé nauðsynlegt að gera sér grein fyrir hvað á að gera við það rafmagn. Það er alveg sama hvort við erum að ræða Sigölduvirkjun eða aðra virkjun, slík ákvörðun verður að liggja fyrir. Ég hefði hins vegar talið að það væri mjög fróðlegt að við fengjum — þessir villuráfandi menn sem töldum að þessi ákvörðun hefði verið tekin samhliða — einhverjar upplýsingar um þær umr. sem hafa farið fram á sinum tíma um þessi mál í ríkisstj., í vinstri stjórninni. Ég segi fyrir mig, að ég vildi gjarnan fá upplýsingar um hvernig þessi ákvörðun var tekin, þær bókanir, sem liggja fyrir um þau mál, og að hvaða niðurstöðu menn komust þar endanlega. Ég vildi gjarnan að það yrði lagt á borð, þannig að hvorki ég né aðrir þyrftum að vera þarna í neinum vafa.

Það var rætt hér einnig um ákvörðun um Hrauneyjafoss og að við, sem styddum þessa ríkisstj., hlytum að bera ábyrgð á þeirri ákvörðun, og slíkt er mjög eðlilegt. Það hefur komið fram að heimild til virkjunar Hrauneyjafoss var veitt af Alþ. fyrir alllöngu til ríkisstj. Hins vegar er það ofureðlilegt, að ríkisstj. ræði slík mál í sinum flokkum þegar endanleg ákvörðun er tekin. En ég held að það sé allt í lagi að upplýsa það, að slíkar umr. hafa ekki farið fram, a. m. k. ekki í Framsfl. (EKJ: Ekki í hinum heldur.) Ég segi fyrir mig, að ég tel mig á engan hátt vera bundinn þeirri ákvörðun ríkisstj. að heimila virkjun Hrauneyjafoss, og ég hlýt að fara fram á að fá allar þær forsendur og öll þau rök, sem hnigu í þá átt að veita þessa heimild, á borðið áður en ég lýsi því yfir að ég sé samþykkur þeirri ákvörðun. Ríkisstj. hlýtur að gera sér það ljóst fyrst. Í hvorugum stjórnarflokknum var rætt um þetta mál.

Hv. 2. þm. Austurl. sagði að ég létist ekki skilja hvað orðið stóriðja táknaði. Ég þykist nú skilja það, og ég heyrði ekki betur en við værum nokkuð sammála um að það væri mikil breidd í því orði, þótt vera megi að sú stóriðja, sem hér er talað um, sé af einhverjum ákveðnum stærðarmörkum. Ég segi það fyrir mig eins og mér heyrðist að kæmi fram í hans máli, að ég get í vissum tilfellum verið fylgjandi því að ráðist sé í stóriðju. Og ég veit ekki betur en þegar ákvörðun einmitt um Sigölduvirkjun var tekin, þá hafi reynst nauðsynlegt að taka ákvörðun um einhvern stóran orkukaupanda og þess vegna hafi ákvörðunin um járnblendiverksmiðjuna verið tekin. Það er auðvitað ljóst, að jafnvel þótt við tengjum landið saman í eina heild, þá hvorki flytur þessi svokallaða byggðalína neitt gífurlegt magn af rafmagni eða um 50 mw., og það er annað sem skiptir líka máli, það er nýtingartími orkunnar. Það er ekki nægilegt að þeir, sem kaupa raforku, vilji fá hana allir á sama tíma. Við þurfum að reyna að nýta orkuna sem best.

Ég vænti þess, að í framhaldi af þessari umr. verði hægt að verða við því að leggja fram þau gögn sem studdu ákvörðun um virkjun Sigöldu, koma með þau fram í dagsljósið. Ég held að það væri mjög gott fyrir okkur, sem skiljum ekki alveg samhengið, að fá það fram. En ég vil aðeins vekja athygli á því, vegna þess að það kom fram í umr. að það hefðu í reynd engar beiðnir komið úr landsfjórðungunum um athuganir á þessum málum, — ég vil aðeins til þess að styðja það orðalag, sem ég kom fram með í máli mínu áðan, vitna í till. sem var samþykkt á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi á Höfn í sept. s. l. er svohljóðandi, var samþykkt shlj. og með leyfi hæstv. forseta:

„Aðalfundur S.S.A., haldinn á Höfn í Hornafirði, samþykkir að fela stjórn S.S.A. að hefjast nú þegar handa um að fá gerðar frumathuganir á mengunarhættu af völdum hugsanlegrar stóriðju á Austurlandi, svo og að láta kanna önnur áhrif hennar á byggð í fjórðungnum eftir því sem ástæða þykir til á þessu stigi.“

Það er sem sagt lögð á það áhersla þarna, að það sé gerð könnun á því hvaða áhrif stóriðja mundi hafa á byggð í fjórðungnum.

Í framhaldi af þessu hefur framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Austurlandi gert nokkuð til þess að koma þessu máli áfram. Hann segir:

„Eftir viðræðurnar við heilbrrn., Náttúruverndarráð og Landvernd varð niðurstaðan sú, að rétt mundi að fela Heilbrigðiseftirliti ríkisins ráðgjöf í þessu máli, þar sem umræddir aðilar, að rn. meðtöldu, hefðu ekkert fjármagn til ráðstöfunar í þessu skyni. Er helst svo að skilja að ógerlegt sé að fá fjármagn til að kanna mengunaráhrif af neinu tagi fyrr en ákvörðun hefur verið tekin á æðstu stöðum um það, hvar stóriðjufyrirtæki skuli byggja. En þá er um leið, vitandi eða óafvitandi, búið að byggja inn í könnunina það leiðinlega atriði, að ákvörðun á æðstu stöðum má ekki ómerkja með niðurstöðum rannsóknar eftir á. Nálgast því gildi slíkra rannsókna óðfluga núllpunktinn.“

Hann hefur hins vegar skrifað Heilbrigðiseftirliti ríkisins og Framkvæmdastofnun ríkisins bréf þar sem farið er fram á að annars vegar verði athuguð mengunarhætta og hins vegar áhrif hugsanlegs stóriðjufyrirtækis á byggðaþróun og félagslega þætti á Austurlandi, þannig að slíkar beiðnir hafa komið fram, þ. e. a. s. á þennan hátt, að slíkt sé athugað, hvaða áhrif slíkt fyrirtæki gæti haft á byggð, félagslegar aðstæður og mengun, þannig að ég tel fulla ástæðu til þess að þessari samþykkt sveitarstjórnarmanna á Austurlandi, sem var samþykkt shlj., verði fylgt eftir. Ef flm. þessarar till. vildu breyta þessu orðalagi sem ég tel á allan hátt vera óheppilegt, vildu athuga hvort ekki væri rétt að breyta þessu orðalagi, þá mundi ég vilja athuga fyrir mitt leyti hvort ekki væri hægt að styðja þessa till. En ég get ekki lýst stuðningi mínum við hana eins og hún er orðuð á þessu þskj.