08.03.1977
Sameinað þing: 61. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2492 í B-deild Alþingistíðinda. (1868)
170. mál, stóriðja á Norðurlandi og Austurlandi
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég var því miður fjarstaddur við upphaf þessara umr., löglega afsakaður við önnur störf, en hef spurt þau tíðindi, að þm. Framsfl. hafi, a. m. k. tveir, mælt eindregið gegn fyrirhuguðum stóriðjuáformum, ekki aðeins gegn þáltill. þeirri, sem hér er fjallað um, heldur mælt eindregið gegn þeim stóriðjuáformum sem ríkisstj. stendur að bæði leynt og ljóst, — enn fleiri þm. Framsfl. hafi a. m. k. gengið svo langt í ræðum sínum hér, að þingheimur leyfir sér að trúa þeim til hvors tveggja, fylgis við þessar stóriðjufyrirætlanir eða andstöðu. Og er þá hreint ekki svo skammt gengið af hálfu þessara þm.
Ég er þeirrar skoðunar að ekki þurfi ýkjamikla íhugun eða fræðslu í sambandi við stóriðjuáætlanirnar, sem settar hafa verið fram, ef svo má segja undir handarjaðri hæstv. iðnrh. og sérstakra fylgismanna hans innan Sjálfstfl., til þess að gera sér grein fyrir því, að erlent stóriðjuver á einum stað á landinu mun fyrr eða síðar hafa þess háttar áhrif að öðrum stöðum verður þá hætt. Enda hefur það verið haft uppi af hálfu formælenda þeirra stóriðjumanna við eyfirðinga, eftir að þeir afþökkuðu fullum rómi, þó óformlega væri, álverksmiðjuna við Eyjafjörð, á Gáseyri, — það hefur verið haft uppi við eyfirðinga að nú skuli þeir bara finna fyrir því að það verði ekki talað við þá í 20 ár, fyrst þeir hafi verið svona ósvifnir og heimskir að afþakka álverksmiðju við Eyjafjörð. Ég hygg að þeir hv. þm., sem mæla gegn stóriðjuveri af þessu tagi í sínu kjördæmi, en hafa það uppi að þeir séu e. t. v. til viðtals um þess háttar stóriðjuver í öðru kjördæmi, þurfi að gera sér grein fyrir því, að þær fyrirætlanir, sem hér eru á döfinni, gera ráð fyrir að orkunni, sem við erum aflögufærir um, og þá náttúrlega fyrst hinni ódýrustu orku, en síðan allri þeirri orku sem við erum aflögufærir um í bili, henni verði varið með þessum hætti, til sölu til erlendra auðhringa sem fái þá jafnframt að nýta okkar landssvæði og okkar vinnuafl í sína þágu.
Það liggur við að maður undrist þann áhuga sem ýmsir hv. þm. hafa á því að fenginni reynslu af samstarfinu við Alusuisse, af leigjandanum Alusuisse, og viðskiptavininum Alusuisse, að þeir skuli hafa áhuga á því að gera fleiri slíka samninga. Ég vil ekki gera þessum hv. þm. upp neins konar illar eða lítilmótlegar hvatir í þessu sambandi. En ég hygg að þeir hefðu a. m. k. gott af því að ætla sér svolítinn tíma til þess að kynna sér reynslu annarra þjóða, svo sem norðmanna, af stóriðju af þessu tagi. Og þeir gerðu kannske rétt í því að hugleiða örlítið þau náttúrugæði önnur sem við eigum óunnin á þessu landi, eigum ónytjuð á þessu landi, og með hvaða hætti nýting þessara landsgæða til skamms tíma hefur mótað menningu þessarar þjóðar og með hvaða hætti einmitt hinir þjóðlegu atvinnuvegir okkar, bjargræðisvegirnir, hafa gert það fólk, sem byggir land þetta, að sjálfstæðri þjóð og sérstakri þjóð.
Raunar kom mér það helst í hug fyrir 10 dögum, þegar mengunarvandamál Straumsvíkurverksmiðjunnar bar fyrst á góma, að nú kynni svo að fara að þeir hv. þm., sem standa að þessari þáltill. sem hér er til umr., sæju að sér og reyndu að láta hana hverfa úr þingskjalabunkanum, sérstaklega þó þeir þeirra sem studdu af hvað mestri ákefð að samningunum við Alusuisse á sinum tíma og vörðu leynt og ljóst þá samninga opinberlega. Mennirnir sem ritstýrðu blöðunum, sem hæddust að kröfum um hreinsibúnað við þessa verksmiðju, skákuðu í skjóli „ryksugu háloftanna“, eins og þeir kölluðu lægðirnar sem ganga yfir þetta land, níddu íslenska náttúrufræðinga sem vöruðu við mengunarhættunni frá álverinu í Straumsvík, fyrirlitu íslenska lækna sem vöruðu við heilsuspillandi aðbúnaði í álverinu, og raunverulega seldu sál sína að veði fyrir framgangi Alusuisse á Íslandi í einu og öllu, — ég hafði einhvern tíma gert mér vonir um að þeir kynnu nú að doka við og hugleiða upp á nýtt ýmis atriði sem varða þetta fyrirhugaða samstarf við erlenda auðhringa um enn þá fleiri álverksmiðjur af þessari tegund hér á landi. En það gerðu þeir ekki. Hugmynd, eins og það hefur verið kallað með réttu eða röngu, — ég treysti mér ekki til að segja um það, ég hef ekki kynnt mér skjölin —- hugmynd hv. þm. Eyjólfs Konráðs er sögð hafa verið um 20 slíkar verksmiðjur, væntanlega með sams konar hreinsibúnaði, væntanlega með sams konar fjármálaviðskiptum við íslenska aðila, væntanlega með sams konar tilliti til starfsmanna, — 20 slíkar verksmiðjur til viðbótar — eða voru þær 10. hv. þm.? Ég geri ráð fyrir því að það muni ekki koma í minn hlut að setja hv. þm. fyrir eitt né annað til lesturs til undirbúnings eða endurskoðunar afstöðu sinni til erlendrar stóriðju á Íslandi. En ég hygg að ég hafi heimild til þess að ýja að því við hv. flm. þessarar till., hvort þeir sjái sér ekki fært að taka til alvarlegrar athugunar möguleikann á því að skammast sín.