08.03.1977
Sameinað þing: 61. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2497 í B-deild Alþingistíðinda. (1870)

170. mál, stóriðja á Norðurlandi og Austurlandi

Páll Pétursson:

Herra forseti. Ég skil nú ekkert í þeim alþb.-mönnum, hvað þeir eru órólegir yfir því sumir að það tefst í n. þetta járnblendifrv. Ég uni því ágætlega þó að það komi ekki strax úr nefnd.

En út af því, sem ég sagði áðan um stærð Sambands ísl. samvinnufélaga samanborið við stóriðjufyrirtæki, þá get ég áréttað það samkv. upplýsingum sem ég hef aflað mér, að brunabótamat fasteigna Sambands ísl. samvinnufélaga í dag eru rúmir 4 milljarðar. Brunabótamat allra fasteigna kaupfélaganna — sambandskaupfélaganna — er ofurlítið meira, 41/2–5 milljarðar, þannig að fasteignir kaupfélaganna og Sambandsins til viðbótar eru að brunamótamati svipað og hálft álver kostar.

Hér hafa fallið mörg orð og sum viturleg í þessum umr. Lúðvík Jósepsson, hv. 2. þm. Austurl., flutti hér langa og ítarlega ræðu. Margt sagði hann vel, en þó misvel, og eitt atriði kemst ég ekki hjá því að gera aths. við úr því að ég er staðinn hér upp. Hann lét í veðri vaka að við gætum virkjað mjög stórt án stóriðju. Hann vitnaði til þess að við gætum t. d. virkjað Blöndu án þess að leggja út í stórfyrirtæki í orkufrekum iðnaði. Þetta er náttúrlega ekki rétt hjá honum. Orkumarkaður á Norðurlandi er ekki stærri í sniðum en það og flutningsgeta byggðalínu ekki meiri en það, að þetta dæmi gengur ekki upp. Svo þarf að sjálfsögðu að taka það með í reikninginn, að við verðum að vona enn að Krafla komi til með að framleiða ljós og yl, og það bætist náttúrlega í þennan markað, því að að sjálfsögðu fáum við ljósið og ylinn frá Kröflu ásamt með öðrum landsmönnum. Það er ekki heldur hagkvæmt hjá hv. þm. Lúðvík Jósepssyni að ætla að liggja með 4–5 ára forða af orku, fyrningar til 4–5 ára. Það er of stór skammtur. Menn þurfa að vera sæmilega birgir til að geta mætt ófyrirséðum atvikum, sæmilega birgir þannig að ekki komi til orkuskorts eða orkusveltis. En þetta er of stór biti til þess að liggja með ónotaðan svo langan tíma. Að þetta dæmi gangi upp, að það sé hægt að virkja mjög stórt þar sem erfitt er að koma frá sér orkunni og án þess að setja upp fyrirtæki til að nota hana, það er óskhyggja hjá hv. þm. Lúðvík Jósepssyni. Ef hann setti sig inn í þetta mál og kringumstæður okkar þarna fyrir norðan, þá er ég þess fullviss að rökhyggjan mundi ná yfirhendinni og hann sjá að þetta væri ekki hægt.

Menn hafa teygt þessar umr. talsvert í áttina að Grundartanga og hv. þm. Lúðvík Jósepsson ekki síst. Ég lít svo á að hv. þm. Lúðvík Jósepsson sé sýkn saka í þessu járnblendiverksmiðjumáli. En það er miklu meira en ég held að sé hægt að segja um hinn ráðh. Alþb. í vinstri stjórninni. Hann ber að sjálfsögðu talsverða ábyrgð á þeirri þróun sem orðið hefur í því máli. Hæstv. iðnrh. hefur margbent á það og a. m. k. að ýmsu leyti réttilega, því að í stjórnartíð Magnúsar Kjartanssonar var það mál undirbúið og hann stóð í bréfaskiptum við Union Carbide fram til síðustu stundar í ráðherradómi. Það er líka verðugt viðfangsefni fyrir hv. 2. þm. Austurl. að rekja slóð fulltrúa Alþb. í viðræðunefnd um orkufrekan iðnað, Inga R. Helgasonar, og svo þegar hann væri búinn að rekja hana annaðhvort að leiðbeina honum vandlega og sveigja hann inn á nýja braut ellegar þá hreinlega beita sér fyrir því að skipta um fulltrúa fyrir flokk sinn í þeirri n. Ég held að það væri miklu heppilegra fyrir a. m. k. Alþb. og ég vil nú vona þjóðfélagið í heild, að andlit Lúðvíks Jósepssonar og annarra góðra þm. Alþb. hér í d. væri andlit þess flokks í orkumálum.

Hvað viðkemur því sem hv. þm. Jónas Árnason vefengdi, að ég hefði haft lögmæta afsökun fyrir því að vera fjarstaddur atkvgr. í hittiðfyrra við 3. umr. samningsins um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði, þá verð ég að segja Jónasi Árnasyni, hv. 5. þm. Vesturl., að ég er ekki í nokkrum vandræðum að greiða atkv. hér í d. Ég hélt að ég hefði gert rækilega grein fyrir afstöðu minni, bæði úr þessum ræðustól og eins annars staðar, til þessa fyrirtækis og til þessa samnings. Ég hélt að öllum hv. þm., sem á annað borð nenna að leggja að því eyrun, eigi að vera hún ljós. Ég vil ekki þreyta menn með því að fara að endurtaka það í lok þessarar umr., en ég tel nauðsynlegt að lesa örstuttan kafla úr ræðu sem ég flutti við 3. umr. málsins hér í Nd. Þetta er birt í 17. hefti Alþt. 1974–1975. Ég hafði talað í þessu máli við 2. umr. og sagt það þar sem mér fannst ég þurfa að segja. Og við 3. umr. tók ég líka til máls, og með leyfi forseta ætla ég að lesa örstuttan kafla úr þeirri ræðu:

„Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að lengja þessar umr. að marki, en vegna sérstakra ástæðna get ég ekki verið viðstaddur lokaafgreiðslu þessa máls á föstudaginn, og því miður mun ekki verða atkvgr. um málið í kvöld. Því vil ég taka það fram, að ég er enn sömu skoðunar og ég var þegar ég gerði grein fyrir afstöðu minni við 1. umr. þessa máls og sagðist vera á móti þessu máli og ætlaði að segja nei þegar það kæmi til atkvgr., enda hefur málið ekki skipt neitt um svip að marki, jafnvel þó að forustumaður Heilbrigðiseftirlitsins hafi upplýst okkur opinberlega um að Fróðárundrin hafi verið taugaveikifaraldur.“

Ég þreyti ekki hv. þm. á því að lesa meira úr þessari ræðu, en ég vona að þetta sé tekið gilt.