08.03.1977
Sameinað þing: 61. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2499 í B-deild Alþingistíðinda. (1871)
170. mál, stóriðja á Norðurlandi og Austurlandi
Jón Helgason:
Herra forseti. Hv. 5. þm. Vesturl. beindi þannig til mín orðum áðan, að mér fannst hann gefa það í skyn að stóriðja væri mér eitthvert sérstakt baráttumál. Þar sem ég tel hér um nokkurn misskilning að ræða vil ég nota þetta tækifæri til þess að leiðrétta það.
Það gengur mörgum illa að setja sig í annarra spor ef þeir búa við aðstæður sem eru ólíkar þeim sem þeir búa við sjálfir. Þetta virðist mér a. m. k. eiga við þegar vestur-skaftfellingar eru ásakaðir vegna tilmæla þeirra um athugun á möguleikum á hafnargerð við Dyrhólaey sem byggðist á stóriðju. Það er komið á aðra öld síðan fyrst var farið að tala um hafnargerð við Dyrhólaey, án þess að það hafi borið nokkurn árangur. Lengi voru íbúar héraðsins að berjast við brimgarðinn með ærnum mannfórnum til þess að sækja sér björg í bú. Á síðari áratugum hefur þessu verið hætt, en afleiðingin orðið vaxandi fólksflutningur úr héraði og nú vofir einmitt yfir mikið atvinnuleysi í Vík um næstu áramót, þar sem Lóranstöðin, sem þar hefur verið rekin í nokkra áratugi, verður lögð niður þar sem kerfi það, sem þar er notað, er orðið úrelt. Mér finnst því skiljanlegt að sveitarstjórnarmenn hafi áhyggjur af þessu ástandi.
Á undanförnum árum hefur verið reynt að fá rannsakað til hlítar hvaða möguleikar væru á hafnargerð við Dyrhólaey. En það hefur gengið allt of hægt að fá þeirri rannsókn lokið, hvað þá að hefja nokkrar framkvæmdir. Ég var staddur á fundi í Vík skömmu eftir s. l. áramót þar sem m. a. voru mættir allir sveitarstjórnarmenn í Mýrdal. Þar voru þessi mál rædd, og menn voru sammála um að hafnargerð við Dyrhólaey væri svo mikið fyrirtæki að úr henni yrði varla nema þegar í upphafi yrði ærið verkefni fyrir hana með einhverri nokkuð mikilli starfsemi. Og þá var rætt um það, hvort leita ætti eftir því að möguleikar á hafnargerð væru kannaðir með stóriðju í huga eða réttara sagt, að leitað yrði eftir hvort unnt væri að fá þar stóriðju, ef það leiddi til þess að úr hafnargerð yrði. Allir sveitarstjórnarmenn í Mýrdal voru sammála um að það væri æskilegt að þessi athugun færi fram. Ég vil taka það fram, að ég benti á það á þessum fundi að ég teldi ýmsa annmarka fylgja þessari stóriðju, fyrst og fremst að ég óttaðist þá gífurlegu röskun sem slíkt hefði á mannlífið í héraðinu. En menn voru sammála um að nota þetta tækifæri til þess að reyna að fá úr því skorið hvaða möguleikar væru þarna fyrir hendi. Þar kemur einnig fleira til. Sunnlendingar telja að á Suðurlandi séu ýmis jarðefni sem unnt væri að nota til iðnaðarframleiðslu, en undirstaðan að slíku er höfn. Þær athaganir á hafnargerð, sem fram færu í þessu sambandi, gætu því komið að gagni ef í ljós kæmi að unnt væri að hrinda slíkri vinnslu á stað. Það hefur komið fram í umr. að það séu til margar tegundir af stóriðju. Og það getur vel verið að vinnsla á slíkum jarðefnum geti kallast stóriðja, þar sem a. m. k. sum slík vinnsla þarf ærna orku. Ég fyrir mitt leyti vil ekki fordæma hagnýtingu slíkra möguleika. Ég tel að við eigum að íhuga vel alla möguleika sem gera kleift að hagnýta gæði okkar lands.
Vestur-Skaftfellingar voru sammála um að væri komin höfn við Dyrhólaey, þá væri svona athugun um stóriðju algjör fjarstæða, þar sem að þá yrði hún ekki til þess að styrkja annan atvinnurekstur í héraðinu og því kæmi það ekki til greina.
Þetta er sem sagt í stuttu máli það sem ég held að liggi á bak við tilmæli vestur-skaftfellinga. Sveitarstjórnarmenn og allir vestur-skaftfellingar hafa áhyggjur af þessu einhæfa atvinnulífi, og ég held að það sé dálítil skammsýni að álasa þeim allt of mikið fyrir það, þó að þeir vilji nota tækifærið til þess að kanna hvaða möguleikar kunni að vera fyrir hendi til þess að bæta úr þessu. Það á síðan að vega og meta, þegar niðurstöður liggja fyrir, hverju á að taka og hverju á að hafna.