11.10.1976
Sameinað þing: 1. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í B-deild Alþingistíðinda. (2)

Forseti Íslands setur þingið

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar sameinaðs þings. Þessir menn skipuðu þingið:

1. Albert Guðmundsson, 12. þm. Reykv.

2. Axel Jónsson, 10. landsk. þm.

3. Ásgeir Bjarnason, 1. þm. Vesturl.

4. Benedikt Gröndal, 2. landsk. þm.

5. Eðvarð Sigurðsson, 7. þm. Reykv.

6. Eggert G. Þorsteinsson, 4. landsk. þm.

7. Einar Ágústsson, 10. þm. Reykv.

8. Ellert B. Schram, 11. þm. Reykv.

9. Eyjólfur K. Jónsson, 4. þm. Norðurl. v.

10. Friðjón Þórðarson, 4. þm. Vesturl.

11. Garðar Sigurðsson, 5. þm. Suðurl.

12. Geir Gunnarsson, 11. landsk. þm.

13. Geir Hallgrímsson, 1. þm. Reykv.

14. Gils Guðmundsson, 3. þm. Reykn.

15. Guðlaugur Gíslason, 3. þm. Suðurl.

16. Guðmundur H. Garðarsson, 6- landsk. þm.

17. Gunnar Thoroddsen, 2. þm. Reykv.

18. Gunnlaugur Finnsson, 4. þm. Vestf.

19. Gylfi Þ. Gíslason, 9. þm. Reykv.

20. Halldór Ásgrímsson, 5. þm. Austurl.

21. Halldór E. Sigurðsson, 3. þm. Vesturl.

22. Helgi F. Seljan, 7. landsk. þm.

23. Ingi Tryggvason, 6. þm. Norðurl. e.

24. Ingólfur Jónsson, 1. þm. Suðurl.

25. Ingvar Gíslason, 1. þm. Norðurl. e.

26. Jóhann Hafstein, 6. þm. Reykv.

27. Jón Árnason, 2. þm. Vesturl.

28. Jón Helgason, 4. þm. Suðurl.

29. Jón Árm. Héðinsson, 1. landsk. þm.

30. Jón Skaftason, 4. þm. Reykn.

31. Jón G. Sólnes, 2. þm. Norðurl. e.

32. Jónas Árnason, 5. þm. Vesturl.

33. Karvel Pálmason, 5. þm. Vestf.

34. Lárus Jónsson, 4. þm. Norðurl. e.

35. Lúðvík Jósepsson, 2. þm. Austurl.

36. Magnús Kjartansson, 3. þm. Reykv.

37. Magnús T. Ólafsson, 3. landsk. þm.

38. Matthías Bjarnason, 1. þm. Vestf.

39. Matthías Á. Mathiesen, 1. þm. Reykn.

40. Oddur Ólafsson, 2. þm. Reykn.

41. Ólafur G. Einarsson, 5. þm. Reykn.

42. Ólafur Jóhannesson, 1. þm. Norðurl. v.

43. Páll Pétursson, 3. þm. Norðurl. v.

44. Pálmi Jónsson, 2. þm. Norðurl. v.

45. Pétur Sigurðsson, 8. þm. Reykv.

46. Ragnar Arnalds, 5. þm. Norðurl. v.

47. Ragnhildur Helgadóttir, 5. þm. Reykv.

48. Sighvatur Björgvinsson, 8. landsk. þm.

49. Sigurlaug Bjarnadóttir, 9. landsk. þm.

50. Stefán Jónsson, 5. þm. Norðurl. e.

51. Stefán Valgeirsson, 3. þm. Norðurl. e.

52. Steingrímur Hermannsson, 2. þm. Vestf.

53. Steinþór Gestsson, 6. þm. Suðurl.

54. Svava Jakobsdóttir, 5. landsk. þm.

55. Sverrir Hermannsson, 3. þm. Austurl.

56. Tómas Árnason, 4. þm. Austurl.

57. Vilhjálmur Hjálmarsson, 1. þm. Austurl.

58. Þorv. Garðar Kristjánsson, 3. þm. Vestf.

59. Þórarinn Sigurjónsson, 2. þm. Suðurl.

60. Þórarinn Þórarinsson, 4. þm. Reykv.

Ókominn til þings var:

Matthías Á. Mathiesen, 1. þm. Reykn.

Forseti Íslands (Kristján Eldjárn): Hinn 10. þ.m. var gefið út svofellt bréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsrh., að Alþingi skuli koma saman til fundar mánudaginn 11. okt. 1976.

Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni, sem hefst kl. 13.30.

Gjört í Reykjavík, 10. sept. 1976.

Kristján Eldjárn.

Geir Hallgrímsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til fundar mánudaginn 11. okt. 1976.“

Samkvæmt bréfi því, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því að Alþingi íslendinga er sett.

Mér er ljúft að bjóða alla alþm. velkomna til starfa á nýju þingi. Sagt er að fyrr á tíð hafi þingsetningardagur jafnan vakið talsverða athygli í bæjarlífinu hér í Reykjavík. Nú hafa menn stundum á orði að honum sé lítill gaumur gefinn, enda sé það að vonum þar sem landsmenn láti sig yfirleitt lítið varða um Alþingi og störf þess. Þetta á að vera til marks um að vegur Alþingis fari þverrandi með þjóðinni. Um þetta er þó erfitt að dæma með öruggri vissu, en margt virðist mér benda til að slík ummæli eigi ekki við rök að styðjast. Menn eru ósparir á að gagnrýna allt og alla, og Alþingi fer ekki varhluta í því efni. Til gagnrýni hafa menn rétt, eða allt að því skyldu, er stundum sagt í lýðfrjálsu landi. En gagnrýni er ekki sama og óvirðing eða fordæming. Og það er ekki heldur sérstakt nútímafyrirbrigði að menn segi Alþingi til syndanna. Í þingsetningarpredikun árið 1925 var afstöðu almennings lýst á þessa lund orðrétt: „Alþingi verður fyrir þungum áfellisdómum. Varla heyrist nokkur maður leggja því liðsyrði sem þar fer fram.“

Þannig stóðu málin þá, ef taka mætti þessi stóru orð bókstaflega. Ætla mætti að sú stofnun væri komin að fótum fram, sem ætti sér ekki formælendur fleiri en hér er lýst. En síðan þessi orð voru mælt í sjálfri dómkirkjunni hafa landsmenn nú í hálfa öld haldið áfram að kjósa fulltrúa sína til Alþingis, oftast með miklum áhuga og atfylgi, og sýna þeim traust til að fara með málefni sín. Jafnframt er þá í verki sýndur skilningur á grundvallarþýðingu Alþingis í þjóðlífi voru. Þetta ætla ég að gefi sanna mynd af stöðu þingsins í vitund þjóðarinnar ef þörf væri á að minna á jafnsjálfsagðan hlut í grónu lýðræðis- og þingræðisþjóðfélagi eins og því sem vér búum í.

Hvað sem öllum dagdómum líður bæði fyrr og nú er það staðreynd að íslenska þjóðin hefur ætíð sett traust sitt á forustu og forsjá Alþingis um mál sin, og hún gerir það enn. Þess vegna fer sá dagur, þegar þingið kemur saman að nýju eftir nokkurt hlé, þingsetningardagurinn, ekki fram hjá þeim sem um þjóðmál hugsa, og þeir eru margir. Þvert á móti er nú hingað hugsað í dag og þess beðið með eftirvæntingu hversu skipast um lausn þeirra vandamála sem nú knýja á, því að ekki þarf að fara í grafgötur um að fyrir hverju nýju þingi liggja mörg og vandasöm úrlausnarefni. Þess er að minnast að síðasta þing hófst á þeim örlagatíma þegar óséð var hvernig oss reiddi af í átökunum um fiskimiðin kringum landið. Sá háski er nú liðinn hjá, vonandi fyrir fullt og allt. Þökk sé öllum þeim sem hlut hafa átt að þeirri lausn. Nú gefst Alþingi og ríkisstjórn meira svigrúm til að snúast með óskiptari kröftum við öðrum málum sem ráða þarf fram úr. Þar munu allir þættir efnahagsmála verða efstir á blaði. Gera má ráð fyrir að athygli þjóðarinnar muni mjög beinast að því hversu tekst að finna þar færar leiðir. Sú er vissulega ósk og von allra landsmanna við upphaf þessa þings, að í þeim efnum megi giftusamlega til takast. Undir það vil ég taka af einlægum huga.

Ég býð yður heila til þings komna. Megi störf yðar verða landi og lýð til farsældar í hvívetna. Að svo mæltu bið ég þingheim að rísa úr sætum og minnast fósturjarðarinnar.

[Þingmenn risu úr sætum og forsrh. Geir Hallgrímsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ — Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]

Samkv. 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna fundi þar til kosning forseta sameinaðs Alþingis hefur farið fram, og bið ég aldursforseta, Guðlaug Gíslason, 3. þm. Suðurl., að ganga til forsetastóls.

Forseti Íslands tók sér sæti í þingsalnum, en aldursforseti gekk til forsetastóls og tók við fundarstjórn.