28.10.1976
Sameinað þing: 11. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í B-deild Alþingistíðinda. (203)

Umræður utan dagskrár

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Tilefni þess, að ég kveð mér nú hljóðs utan dagskrár, er viðtal sem útvarpað var í fréttatíma útvarpsins í gærkvöld við Gunnar Kristjánsson bónda á Dagverðareyri við Eyjafjörð og oddvita í Glæsibæjarhreppi og þar sem ummæli Gunnars bónda stangast berlega á við yfirlýsingu hæstv. iðnrh., Gunnars Thoroddsens, hér á Alþ. í fyrradag, er hann staðhæfði í svari við fsp. hv. alþm. Ingvars Gíslasonar og svari við ræðu minni varðandi fyrirhugað álver við Eyjafjörð að þetta mál væri á algeru könnunarstigi. Þetta ítrekaði ráðh. nokkrum sinnum í máli sínu og síðast með svofelldum orðum nákvæmlega, með leyfi forseta:

„Hv 5. þm. Norðurl. e., Stefán Jónsson, komst svo að orði að hann hefði grun um að þetta mál um álver á Norðurlandi, við Eyjafjörð, væri komið lengra áleiðis en látið væri í veðri vaka. Hv. þm.,“ sagði hæstv. ráðh., „veit þá meir en ég veit. Ég veit ekki annað en málið sé á algeru könnunarstigi, eins og kom fram í svörum mínum, engar ákvarðanir verið teknar aðrar en þær, að sérstakir fulltrúar eigi að gera till. um hvernig haga skuli umhverfisrannsóknum ef til komi.“ Og svo síðast í máli sínu enn, með leyfi forseta: „Ég vil taka það fram að ég mun ekki mæla með byggingu verksmiðju til stóriðju nema með fullu samþykki heimamanna.“

Í fréttatíma útvarpsins í gærkvöld að kalla beint ofan í frétt útvarpsins með þessum fyrrgreindu ummælum hæstv. iðnrh., kemur síðan fyrrnefnt viðtal við Gunnar Kristjánsson bónda á Dagverðareyri við Eyjafjörð og oddvita í Glæsibæjarhreppi, þar sem ráðgert er að fyrr nefnd verksmiðja risi. Þetta viðtal leyfi ég mér nú — það er örstutt — að lesa með leyfi forseta.

Fréttamaður, Kári Jónasson, spyr Gunnar oddvita sem segir:

„Það hefur ekkert samband verið haft við okkur, en við höfum heyrt frá bæjarstjórn Akureyrar að það sé verið að athuga þetta, og hjá forseta bæjarstjórnar sá ég teikningar af fyrirhugaðri staðsetningu verksmiðjunnar.“

Og fréttamaður spyr: „Og hvar er gert ráð fyrir að verksmiðjan risi samkv. þessum tillögum eða hugmyndum?“

Gunnar oddviti svarar: „Það munu vera tvær till. Á annarri tillögunni snúa húsin frá norðri til suðurs og eru á milli bæjanna Dagverðareyrar og Gása. Á hinni er gert ráð fyrir að hún snúi austur og vestur og þá frá sjó, og hún kemur eins og á milli bæjanna Dagverðareyrar og Gása, en fer þá yfir bæinn Helluland sem er hérna norðvestan við. Höfnin er fyrirhuguð í báðum till. á sama stað, innan á svonefndri Dagverðareyri.“

Og fréttamaður spyr: „Hefur þú sem oddviti Glæsibæjarhrepps gert einhverjar ráðstafanir til þess að afla frekari upplýsinga um þetta mál?“

Og oddviti svarar: „Ég skrifaði suður í iðnrn. núna, bréfið er dagsett 5. okt., en ég hef ekki fengið neitt svar þaðan enn þá.“

„Og er þá beðið um upplýsingar?“ spyr fréttamaður.

„Já,“ segir oddvitinn. „Það er beðið um upplýsingar og óskað eftir því að þessar teikningar, sem munu liggja fyrir, verði sendar til okkar, þessar teikningar sem munu liggja fyrir, og einnig er óskað eftir því, að við fáum að fylgjast með framvindu þessa máls.“

Og fréttamaður spyr: „Hvernig líst ykkur á þessar hugmyndir, bændum hér í kring?“

Og oddviti svarar: „Ja, okkur líst nú illa á það, því að við teljum að það sé þá búið með allan landbúnað hér á allstóru svæði a.m.k. Annars er ekki gott að átta síg á hvað er rétt og hvað er ekki rétt í því, sem sagt er um mengun og mengunarvarnir frá þessum verksmiðjum. En alla vega virðist það vera sýnt, að hér á allmiklu svæði muni ekki verða búið verði þessi verksmiðja reist.“

Og fréttamaður spyr: „Eru þá hafnar einhverjar rannsóknir hérna, svo að ykkur sé kunnugt um, mengunarrannsóknir?“

Bóndi svarar: „Já, það mun nú vera eitthvað í gangi. Annars virðist þetta fara svo leynt að maður veit ekki nema svona það sem maður fréttir hingað og þangað og óljóst.“

Fréttamaður spyr: „Finnst ykkur þá skrýtilega að þessu staðið, að ekki sé haft samband við ykkur landeigendur?“

Og bóndi svarar, og oddviti: „Já, okkur finnst það mjög einkennilegt, þessi leynd sem er yfir þessu, því að séu þetta bara athuganir og undirbúningsrannsóknir, þá veit ég ekki hverju er að leyna,“ segir oddviti Glæsibæjarhrepps.

Þetta er sem sagt sá hluti viðtalsins, orðrétt, sem lýtur beint að álverinu við Eyjafjörð. Og nú vil ég spyrja hæstv. ráðh.: Vissi hann af þessum teikningum af verksmiðjunni þegar hann talaði við okkur í þessum æruverðuga sal í fyrradag? Vissi hann af þessum teikningum? Telur hæstv. iðnrh. að viðræðurnar um álver við Eyjafjörð séu á algeru könnunarstigi eftir að gerðar hafa verið teikningar af álverinu þar sem m.a. heilt sveitabýli hefur verið lagt í hugskoti þeirra, sem teikningarnar gerðu og áætlanirnar sömdu, undir harðan grunn þess álvers. Hvernig er varið hinum einlæga ásetningi um samráð við fólkið við Eyjafjörð yfirleitt þegar þetta mál hefur ekki verið rætt við eigendur landsins eða býlisins sem þarna er ráðgert að fari undir grunn verksmiðjunnar?

Enn er spurning sem er mjög brýnt að fá svar við. Gunnar oddviti segist hafa séð teikningar af álverksmiðjunni hjá Val Arnþórssyni, forseta bæjarstjórnar á Akureyri. Hvers konar hlutverki gegnir Valur Arnþórsson, forseti bæjarstjórnar á Akureyri, í undirbúningi álverksmiðjumálsins? Hvernig stendur á því að hann er með þessar teikningar? Hvaða hlutverki hefur hann gegnt þarna? Vegna þess að fram kom hjá hv. þm. Steingrími Hermannssyni, sem á sæti í viðræðunefnd um orkufrekan iðnað og er sennilega varaformaður þeirrar n., að öll n. ynni í umboði iðnrn., þá vil ég spyrja: Hefur n. notið aðstoðar Vals Arnþórssonar í viðræðum sínum við Norsk Hydro, eða ber að líta á þetta sem eins konar þegnskyldustarf af hálfu Vals Arnþórssonar í þessu þýðingarmikla máli?

Ég vil ekki undir neinum kringumstæðum ætla hæstv. iðnrh. óheilindi í þessu máli. Ég óska þess innilega að það muni nú koma í ljós í svari hans, að hann reynist bara þegar til kastanna kemur, eins og hann komst sjálfur að orði í fyrradag, vita minna um málið heldur en ég, að það komi í ljós í svari hans að hann hefði ekki vitað af þessum teikningum. Ég vænti þess að hann geri svo annaðhvort: með ljúfu geði og sinn alkunna góða skapi að viðurkenna þetta beinlínis og ganga svo í það af dugnaði og drengskap að afla sér upplýsinga, sem gera honum fært að segja hv. þm. satt og rétt frá þessu máli, er það næst ber hér á góma, eða að biðjast afsökunar að öðrum kosti.