23.03.1977
Neðri deild: 62. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2786 í B-deild Alþingistíðinda. (2063)
198. mál, tímabundið vörugjald
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :
Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., fjallar um breyting á lögum nr. 119 frá 1976, um sérstakt tímabundið vörugjald. Með þeim lögum voru lög nr. 77 frá 23. des. 1975, um sérstakt tímabundið vörugjald, framlengd, en jafnframt voru gerðar nokkrar breytingar á 1. gr. laganna til samræmis við hin nýju tollskrárlög, nr. 120 1976. En eins og kunnugt er urðu verulegar breytingar á undirskiptingu ýmissa vöruliða í fjölmörgum köflum tollskrárinnar við setningu þeirra. Við nánari athugun á lögunum komu í ljós nokkrar misfellur og er með frv. þessu lagt til að þær verði leiðréttar. Hér er annars vegar um að ræða upptalningu í 1. gr. nefndra laga. Þar hafa fallið niður nokkur ný tollskrárnúmer yfir vörur sem fram til þessa hafa borið vörugjald og samræmis vegna þykir ekki fært að fella niður vörugjald á, og svo hins vegar þættir sem nauðsynlegt er að lagfæra.
Vörur þær, sem hér koma einkum við sögu, eru sælgæti ýmiss konar í þremur nýjum tollskrárnúmerum, tengibúnaður í einu númeri 85. kafla tollskrár og plastvörur í nokkrum nýjum undirnúmerum í 39. kafla tollskrárinnar.
Í sambandi við þessar leiðréttingar vil ég taka fram, að fjmrn. hefur þegar nýtt heimild í vörugjaldslögunum til þess að fella niður vörugjald af þeim vörum sem áður voru undanþegnar vörugjaldi, en urðu vörugjaldsskyldar vegna breyttrar undirskiptingar í tollskrá.
Auk framangreindra leiðréttinga í frv. er lagt til að lög nr. 77 frá 1976, um sérstakt tímabundið vörugjald, verði gefin út að nýju í heild með áorðnum breytingum.
Ég leyfi mér, herra forseti, að leggja til að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.