24.03.1977
Neðri deild: 63. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2835 í B-deild Alþingistíðinda. (2103)

199. mál, virkjun Blöndu

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég vil taka undir þau orð hv. þm. Páls Péturssonar, að ég fæ ekki skilið hvaða hátt menn ætla að hafa á afgreiðslu þessa máls í umr. í dag. Það er á allra vitorði að nú standa yfir fundir í þingmannahópunum samkv. beiðni formanns fjvn. til þess að fjalla um skiptingu vegafjár í hinum einstöku kjördæmum. Forsetar hafa mælst til þess við þingmannahópana að þessir fundir séu ekki boðaðir á almennum fundartíma þingsins. Við vestfirðingar höfum farið að þessum tilmælum hæstv. forseta og boðuðum fund til þess að skipta fjárveitingum til vegamála í okkar kjördæmi kl. 4, þegar eðlilegum fundatíma þingsins á að vera lokið. Við verðum að vera búnir að skila af okkur þessum störfum samkv. fyrirmælum formanns fjvn. fyrir morgundaginn, þ. e. a. s. við höfum aðeins þann tíma til að vinna þetta verk sem nú er. Þetta er á allra vitorði og ég fæ ekki skilið hvernig á því stendur, þegar við virðum óskir hæstv. forseta um afgreiðslu þessa máls, eins mikilvægasta máls þingsins, að þá skuli vera höfð umr. um þetta frv. eftir að eðlilegum fundatíma þingsins er lokið að viðstöddum örfáum þm., og þeir, sem hafa áhuga á að taka til máls um þetta frv., verða að gera það upp við sig annaðhvort að láta það vera að hverfa af vettvangi frá viðfangsefnum sem þeim ber að sinna og þeir eiga að vera viðstaddir. Ég vil eindregið spyrja hæstv. forseta að því, hvort það samrýmist þeirri ósk hans til þm. að boða ekki til fundar í kjördæmishópunum til að fjalla um vegáætlun á eðlilegum fundatíma þingsins, hvort sú ósk hæstv. forseta samrýmist svo því að hann haldi áfram umr. um mikilsverð mál eins og þetta á þeim tíma þegar flestir þm. eru fjarstaddir til þess að sinna skyldustörfum eftir að hafa tekið mark á og farið eftir orðum hæstv. forseta.