28.03.1977
Sameinað þing: 69. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2923 í B-deild Alþingistíðinda. (2123)

162. mál, vegáætlun 1977-1980

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara langt út í almennar umr. um þetta mál. Ég býst við að ég gæti sagt ýmislegt í svipuðum dúr og síðustu hv. ræðumenn. Ég gæti talið upp ýmsa vegi í mínu kjördæmi sem ekki hefur verið sinnt sem skyldi. En ég veit og viðurkenni að hér er úr mjög litlu fé að spila miðað við það mikilvæga og fjölþætta viðfangsefni sem við er að glíma. En vonandi hefur yfirlýsing hæstv. samgrh., sem hann hafði yfir hér áðan, hresst einhverja af þeim mönnum sem um þessi mál fjalla.

En það er háttur þm. að minna á brtt. sínar, þó þeir fari ekki langt út í að skýra almenn viðhorf. Á þskj. 363 er brtt. sem ég hef flutt við þessa þáltill. ásamt hv. 2. þm. Vesturl. Þessi till. hnígur í þá átt að lítillega sé breytt flokkun vega, þar sem um er að ræða þjóðvegi eftir kjördæmum. Það er vegur nr. 568 í Vesturlandskjördæmi sem nefndur er Skógarnesvegur. Honum er lýst svo í núgildandi vegáætlun að hann liggi af Ólafsvíkurvegi vestan við Rauðkollsstaði að Hausthúsum. Þar er hann látinn enda. Það hefur hins vegar verið talið sjálfsagt af þeim mönnum, sem gerst þekkja til á þessum slóðum, að þessi vegur verði látinn ná lengra en nú er eða eins og áður var, þ. e. a. s. að till. hnígur nánast í þá átt að lýsa þessum vegi á sama hátt og gert var löngum áður fyrr, þ. e. a. s. að þetta verði hringvegur sem liggur af Ólafsvíkurvegi vestan við Rauðkollsstaði um Hömluholt, Hausthús, Syðra- og Ytra-Skógarnes, Miklholt og Litlu-Þúfu á Ólafsvíkurveg hjá Stóru-Þúfu. Lengd vegarins, eins og honum er nú lýst, er 2.8 km, en ef hann verður lengdur að því marki sem ég gat. hér um, þá lengist hann að vísu upp í 14.8 km. Þar af er góður vegur 5.8 km, ófullnægjandi vegalagning 3.6 km og slæmur vegur 5.3 km.

Það er ekki farið fram á sérstaka fjárveitingu í þennan veg nú, heldur aðeins að honum sé lýst á réttan hátt að dómi okkar heimamanna og miðað við þá lýsingu nú og framvegis. Og brtt. þessi er flutt samkv. ítrekuðum samþykktum og óskum sýslunefndar snæfellinga. Vænti ég þess að hv. alþm. telji sér fært að samþ. þessa brtt.