28.03.1977
Sameinað þing: 69. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2949 í B-deild Alþingistíðinda. (2133)

162. mál, vegáætlun 1977-1980

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Ég hafði ekki ætlað mér að taka þátt í þessum umr., en vegna þess, sem fram kom hjá hv. síðasta ræðumanni, hv. 5. þm. Vestf., um að misræmi væri í yfirlýsingu hæstv. samgrh. annars vegar og því, er lýst hafði verið yfir af formanni fjvn. á fundi fjvn., þá vil ég láta það koma fram, að ég tel að þetta sé misskilningur. Það, sem fram kom í yfirlýsingu hv. þm. Inga Tryggvasonar, formanns fjvn., er það að enda þótt svo færi að vegáætlun væri tekin til endurskoðunar á næsta hausti og næsta þingi, þá mundi það væntanlega ekki þýða að þær fjárveitingar, sem ákveðnar eru með þessari vegáætlun nú, yrðu skertar við slíka endurskoðun. Þar yrði þá væntanlega um viðbótarfjármagn að ræða og fylgdu engar skuldbindingar og engar yfirlýsingar um að því fjármagni yrði skipt í sömu hlutföllum á milli kjördæma eða verkþátta eins og þessi vegáætlun greinir. Þess vegna tel ég að það sé ekkert misræmi á milli þessara tveggja yfirlýsinga. Hygg ég að allir hv. þm. geri sér grein fyrir því, að enda þótt það hefði verið með lögum þegar ákveðið að endurskoða þessa vegáætlun þegar á næsta hausti, þá yrði varla um það að ræða í raun að þau verk, sem fá ákveðna fjárveitingu að þessu sinni, yrðu tekin á brott og fjárveiting til þeirra numin brott úr endurskoðaðri vegáætlun á næsta hausti. Þetta eru einungis staðreyndir málsins í sambandi við yfirlýsingar þessar, sem ég vildi að hér kæmu fram. Fleiri orð þarf ekki um það að hafa að minni hyggju.

Ég skal ekki lengja þetta nema um örfáar setningar til þess að fara ekki að vekja upp meiri umr. Ég vil aðeins segja það, að þessar umr. hafa að ýmsu leyti orðið að vonum. Við hefðum kosið öll, sem hér erum, að meira fjármagni hefði verið hægt að skipta. Það fjármagn, sem skipt hefur verið, er í samræmi við þann ramma sem fjárlagaafgreiðsla markaði, og fram úr því hefur ekki verið farið utan þess sem verktakalánum hefur verið bætt við, og þessi rammi er ákveðinn með hliðsjón af efnahagsástandi og öðrum framkvæmdum hins opinbera í okkar landi. Um það skal ég ekki ræða meir. Ég vil aðeins segja það, að það er ósk okkar allra að greiðist úr í efnahagsmálum okkar þjóðar á þann veg að við getum leyft okkur þegar á næsta ári að ráðstafa meira fjármagni til þessara bráðnauðsynlegu framkvæmda og að tekjustofnar Vegasjóðs megi reynast drýgri en þessi áætlun gerir ráð fyrir. Verður þá allt léttara undir fæti.

Að öðru leyti vil ég segja það, að sumpart hafa þessar umr. verið á þá lund að þm. einstakra kjördæma hafa talað um mikla þörf fyrir framkvæmdafé til einstakra vegkafla og verkþátta í eigin kjördæmi. Slíkar umr. tel ég tiltölulega fánýtar við afgreiðslu þessa máls, vegna þess að í öllum kjördæmum eru mikilsverð verkefni sem eftir sitja, og allir þm. hafa tekið þátt í að skipta því fjármagni, sem um er að tefla, til verka innan eigin kjördæma. Þar hefur, að ég hygg, yfirleitt orðið samkomulag um hvað leggja beri mesta áherslu á. Það, sem þá er eftir, kemur vitaskuld í næstu röð og þýðir ekki um að tala nú, nema um meira fjármagn sé að ræða. Þess vegna vil ég segja það, að tillöguflutningur eins og sá, er birtist á þskj. 438, er í rauninni lítt samboðinn þeim hv. þm. sem þar standa að. Fyrri flm. er þó flokksformaður í einum stjórnmálaflokknum, og þessi hv. þm. tók þátt í því af fullum heilindum og með fullu samstarfi í okkar þingmannahópi að skipta því fé sem um var að ræða. Við erum allir sammála um að það fé er of lítið. Við hefðum kosið að geta sinnt fleiri verkefnum. Vonandi er að sú endurskoðun á möguleikum á aukningu á tekjustofnum Vegasjóðs, sem hæstv. samgrh. hefur lýst yfir að fari fram, leiði í ljós, að við getum veitt meira fjármagni til þessara framkvæmda á næsta ári og skipt því fjármagni svo, bæði á milli kjördæma og til einstakra verkþátta, að allir geti sæmilega við unað.