29.03.1977
Sameinað þing: 70. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2956 í B-deild Alþingistíðinda. (2146)

162. mál, vegáætlun 1977-1980

Eggert G. Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég var einn þeirra sem töldu að aðra brú á landinu hefði átt að byggja á undan Borgarfjarðarbrú, þ. e. a. s. Ölfusárbrú, en eigi að síður er Borgarfjarðarbrúin nú orðin staðreynd og ég tel að það sé nauðsynlegt að þeim framkvæmdum, sem þar eru nú hafnar með löglegum hætti, verði fram haldið og lokið sem fyrst. Þess vegna segi ég nei.