29.03.1977
Sameinað þing: 71. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2959 í B-deild Alþingistíðinda. (2151)
Umræður utan dagskrár
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :
Herra forseti. Hér er um mjög vandmeðfarið mál að ræða þar sem um er að ræða málefni eins banka. Þess vegna skiptir það auðvitað mjög miklu máli að menn fái ekki neinar rangar hugmyndir í því sambandi, — hugmyndir sem gætu orðið til þess að veikja traust almennings á þessari stofnun. Ég tel því eðlilegt að gefnu því tilefni, sem hér hefur verið gefið, að segja örfá orð um málefni þau sem þar bar á góma og flutt voru vegna blaðafregna sem birst hafa að undanförnu.
Það er eitt af sérkennum bankakerfis hér á landi, að lengi hefur verið óvenjulega mikil sérhæfing banka að því er varðar útlán til atvinnuveganna. Þessu skipulagi fylgja ýmsir annmarkar, þar sem sveiflur í afkomu einstakra atvinnuvega hafa af þessum ástæðum mismunandi áhrif á stöðu einstakra banka. Fyrir þessu var á sínum tíma gerð mjög rækileg grein í áliti svokallaðrar bankamálanefndar sem lagt var fram í jan. 1974.
Eitt helsta vandamálið á þessu sviði hefur verið alllengi, því að hér er ekki um nýtt vandamál að tefla, hversu mikill hluti af lánum Útvegsbankans rennur til sjávarútvegsins. Hann hefur því orðið fyrir miklum erfiðleikum, þegar blásið hefur á móti í þessum atvinnuvegi, og hefur þá átt erfitt um vík að sinna með eðlilegum hætti útlánum til annarra atvinnuvega. Við þetta hafa svo bæst vandamál vegna afleiðinga gossins í Vestmannaeyjum,en þar hefur Útvegsbankinn verið aðalviðskiptabankinn. Það er þess vegna rétt út af fyrir sig, að Útvegsbankinn hefur af þessum ástæðum átt um skeið við að etja mun erfiðari lausafjárstöðu en hinir ríkisbankarnir. En Seðlabankinn hefur reynt að koma til móts í þeim efnum og hlaupið undir bagga ef á hefur þurft að halda viðvíkjandi lausafjárstöðu.
Það hefur verið bent á ýmsar leiðir til þess að leysa þetta vandamál, t. d. sameiningu Útvegsbankans og Búnaðarbankans, en bankamálanefndin, sem ég gat um áðan, mælti einmitt með þeirri lausn. Fyrir henni hefur þó ekki virst vera nægilegt fylgi og hefur því verið bent á þá leið í staðinn, að samið yrði um flutning tiltekins hluta af sjávarútvegslánum Útvegsbankans til annarra ríkisbanka. Með því móti yrði stefnt að jafnari útlánadreifingu en nú á sér stað.
Þau vandkvæði, sem hafa steðjað að Útvegsbankanum í þessum efnum, hafa auðvitað engum verið ljósari en bankastjórn hans. Þess vegna var það svo, að fyrir um það bil ári, í marsmánuði, 18. mars fyrir ári, gekk bankastjórn Útvegsbankans á minn fund og lýsti áhyggjum sínum af erfiðleikum, sem bankinn ætti í, og benti á leiðir sem hún teldi að eðlilegt væri að athugaðar væru. Það var í fyrsta lagi að athugað væri, hvort ekki væri hægt að veita Útvegsbankanum leyfi til að setja upp útibú á fleiri stöðum en hann hafði og þá á stöðum þar sem ekki væri gert ráð fyrir að sérstaklega mundi koma til útlána til sjávarútvegs, og í öðru lagi að reynt yrði að greiða fyrir aðgerðum í þá átt að flytja hluta af útlánaviðskiptum Útvegsbankans til sjávarútvegs til annarra banka.
Efni þessara viðræðna ræddi ég við bankastjórn Seðlabankans og skrifaði síðan 22. mars 1976 svo hljóðandi bréf til Seðlabankans sem ég vil leyfa mér að lesa, með leyfi hæstv. forseta — það er dags. 22. mars 1976:
„Í framhaldi af viðtali við dr. Jóhannes Nordal vill rn. hér með mælast til þess, að Seðlabankinn athugi á hvern hátt væri hægt að létta byrði Útvegsbankans vegna útlána haus til sjávarútvegs með samningum við aðra ríkisbanka. Jafnframt vill rn. mælast til þess að Seðlabankinn athugi og geri till. um ný útibú fyrir Útvegsbankann í nágrenni Reykjavíkur.“
Í framhaldi af þessu bréfi hafa síðan farið fram viðræður um þetta efni á milli ríkisbankanna, og fyrir nokkru var samþykkt af Útvegsbankanum eða bankaráði hans tillaga bankastjórnar um samningsgrundvöll þar sem gert var ráð fyrir að veruleg útlánaviðskipti væru flutt frá Útvegsbankanum til hinna ríkisbankanna fyrir milligöngu Seðlabankans.
Eins og ljóst er af því, sem ég hef nú sagt, er alger samstaða um það milli bankastjórnar Útvegsbankans og Seðlabankans að raunhæfasta leiðin til þess að styrkja stöðu Útvegsbankans sé fólgin í þeirri tilfærslu viðskipta sem nú er verið að athuga. En jafnframt vil ég geta þess, að á þeim tíma, sem liðinn er síðan ég ritaði þetta bréf, hefur Útvegsbankinn fengið leyfi til þess að setja upp tvö útibú, annað í Kópavogi og hitt á Seltjarnarnesi, og reyndar er í athugun stofnun þriðja útibúsins, þannig að staða hans að því leyti til ætti einnig að geta mjög batnað á næstunni, þó að árangur þeirra aðgerða geti ekki komið í ljós alveg á stundinni.
Ég vil ekki endurtaka út af fyrir sig þær upplýsingar sem komu hér fram hjá hv. síðasta ræðumanni varðandi tölur, bæði hvernig staða Útvegsbankans hefði verið við Seðlabankann um s. l. áramót né heldur hitt, hver innlánsaukning hefði átt sér stað hjá Útvegsbankanum. Ég er ekki að endurtaka það né heldur það sem fram kom hjá honum, að það hefði verið svo á undanförnum árum, að um 60% af útlánum Útvegsbankans hefðu verið bundin í sjávarútvegi. Það voru á s. l. ári, að ég hygg, 56%, svo að maður fari alveg nákvæmlega með, af lánum hans sem voru bundin í sjávarútvegi. En sé miðað við það hver útlán Útvegsbankans í heild eru af öllum útlánum bankanna, þá er augljóst að þetta hlutfall til sjávarútvegsins hlýtur að leggja óeðlilega byrði á Útvegsbankann samanborið við aðra banka. Og þá er sem sagt, eins og ég hef lýst yfir, verið að athuga hvernig létta megi að nokkru af Útvegsbankanum þessari byrði, létta hana nokkuð og færa hana yfir til annarra banka. Með hvaða hætti það eigi sér stað get ég ekki ekki upplýst nú, en vil undirstrika að þar verður ekkert gert sem ekki er fullt samkomulag um á milli þeirra aðila sem í hlut eiga. Og ég hef þá trú að þessar ráðstafanir muni verða til þess að bæta stöðu Útvegsbankans.
Ég vil aðeins enn undirstrika það að það er auðvitað óhjákvæmilegt og það er hægt að sjá af staðreyndum, að afleiðingar eldgossins í Vestmannaeyjum hlutu að bitna mjög á Útvegsbankanum, en hann er eini bankinn sem þar hefur útibú, en Vestmannaeyjar ein aðalverstöð landsins um langa hríð.
En ég vil mjög undirstrika það, að það er engin ástæða til þess fyrir almenning að bera í brjósti neinn ugg vegna þeirra tímabundnu erfiðleika sem átt hafa sér stað hjá Útvegsbankanum. Enginn sparifjáreigandi, sem hefur lagt fé sitt til Útvegsbankans, þarf að ala með sér nokkurn ótta um að það fé sé í hættu, í fyrsta lagi af því að staða bankans er ekki þannig, að hún gefi neitt tilefni til þvílíks ótta, og í öðru lagi af því að eins og menn vita er nú allt innlánsfé í Útvegsbankanum eins og öðrum ríkisbönkum ríkistryggt, innstæður þar eru ríkistryggðar, og það er nauðsynlegt vegna þeirra skrifa, sem kastað hefur verið fram um þessi efni, að fólk almennt geri sér þetta fyllilega ljóst. Og það er engin ástæða til nokkurs ótta í þessu sambandi. Ég er fyrir mitt leyti sannfærður um að þær ráðstafanir, sem hafa verið gerðar og er verið að gera varðandi Útvegsbankann, verða til þess að styrkja stöðu hans þannig að hann geti haft sambærilega stöðu að sínu leyti til gangvart t. d. Seðlabankanum og að því er lausafjárstöðu snertir eins og aðrir bankar. Það væri mjög mikið óþurftarverk, ef það væri vakin hjá nokkrum manni sú hugsun að þessi bankastofnun væri í nokkurri hættu eða þeir, sem hafa átt viðskipti við bankann, þyrftu að bera nokkurn ugg í brjósti. Og mér finnst alveg nauðsynlegt að undirstrika það enn á ný og þetta komi skýrt fram hér af minni hálfu, þannig að það geti ekki átt sér stað og geti ekki breiðst út neinar hviksögur um þetta efni.