29.03.1977
Sameinað þing: 71. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2982 í B-deild Alþingistíðinda. (2164)
195. mál, leigu- og söluíbúðir á vegum sveitarfélaga
Fyrirspyrjandi (Gunnlaugur Finnsson) :
Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 390 að bera fram fsp. til hæstv. félmrh. um framkvæmd laga um leigu- og söluíbúðir á vegum sveitarfélaga, og er fsp. í þremur liðum:
„1. Hve margar íbúðir voru fullgerðar 1. jan. 1977?
2. Hve margar ófullgerðar íbúðir voru í smiðum á sama tíma?
3. Hve mörg leyfi hafa nú verið veitt til smíði nýrra íbúða á þessu ári og hve margar umsóknir þar að lútandi hafa borist.?“
Með breyt. á l. um Húsnæðismálastofnun ríkisins 1973 var tekin inn í lögin heimildargrein um að fjármagna 1000 leiguíbúðir á vegum sveitarfélaga næstu 5 ár. Hér var að vísu um heimild að ræða, en eftir ýmsum sólarmerkjum að dæma mátti ætla að heimildin yrði ekki notuð að fullu fyrir árslok 1918 eða 5 árum eftir að lögunum var breytt. En með breytingu á þessum sömu lögum á síðasta þingi var heimildarákvæðunum breytt í skyldu, þannig að á næstu 5 árum frá gildistöku laganna skal reisa eða fjármagna 80% af byggingarkostnaði 150 íbúða ár hvert næstu 5 árin, samtals 750 íbúða, og samtímis var sveitarfélögunum heimilað að selja íbúðirnar.
Ég tel að það sé æskilegt að bæði Alþ. og þeim, sem knýja á um þessar framkvæmdir, sé gerð grein fyrir stöðu þessara mála: Annars vegar hvað framkvæmdir eru hafnar á mörgum íbúðum, þar með talið hve mörgum íbúðum er lokið. Þá geta menn séð hvenær því marki verður náð sem stefnt var að með áðurnefndri lagabreytingu 1973, þar sem fjármögnun 150 íbúða á ári er nú lögbundin næstu 4 ár frá þessu vori að telja. Þá finnst mér einnig æskilegt að upplýsingar komi fram um það, hvernig mái standa með úthlutun íbúða fyrir þetta ár og hve miklum hluta umsókna er hægt að sinna, þannig að við gerum okkur nokkra grein fyrir hver eftirspurnin er og að hve miklu leyti hægt er að sinna henni varðandi þessar íbúðir.