29.03.1977
Sameinað þing: 72. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3006 í B-deild Alþingistíðinda. (2176)
179. mál, mengunarvarnir og heilbrigðisgæsla í álverinu í Straumsvík
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég hef þegar kvatt mér hljóðs við umr. um þessa þáltill., en ég vil nú þegar gera athugasemd og þó í fyrirspurnarformi til hæstv. forseta varðandi meðferð þessa máls hér í þinginu. Er þetta mál þess eðlis, herra forseti, að sjálfsagt geti talist að um það sé fjallað hér í Sþ. yfir tómum stólum? Og ég spyr í áheyrn þeirra tveggja eyrna, sem nú eru hér í salnum að mínum frádregnum: Er eðlilegt að fjallað sé um þetta mál í fjarveru hæstv. iðnrh., í fjarveru formanna iðnaðarnefnda þingsins? Er þetta sæmileg meðferð á máli? Getur Alþingi verið þekkt fyrir að fjalla um málið með þessum hætti, og gætir hæstv. forseti sæmdar Alþingis með því að láta fjalla um það á þennan hátt?