29.03.1977
Sameinað þing: 72. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3026 í B-deild Alþingistíðinda. (2189)
189. mál, launakjör hreppstjóra
Flm. (Steingrímur Hermannsson) :
Herra forseti. Ég bið afsökunar á því að vera ekki við, en mér sýndist ekki líklegt að umr. um prestskjör lyki svo fljótt sem raun varð á.
Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 380 till. til þál. um endurskoðun á launakjörum hreppstjóra. Í grg. með þessari till. vísa ég til 7. gr. laga um hreppstjóra frá 1965, þar sem segir svo, með leyfi forseta :
„Hreppstjórar taka laun úr ríkissjóði í hlutfalli við íbúatölu umdæmisins miðað við 1. des. næsta ár á undan. Reiknast launin þannig, að í hreppi með 100 íbúa eða færri eru þau 7500 kr. á ári, í hreppi með 101–150 íbúa 8400 kr. o. s. frv., þannig að launin hækki um 900 kr. fyrir hverja 50 íbúa.“
Í 8. gr. sömu laga segir jafnframt:
„ Nú verða almennar breytingar á launum starfsmanna ríkisins, og er fjármálaráðherra þá heimilt að breyta launum hreppstjóra að sama skapi.
Ég hef aflað mér upplýsinga hjá fjmrn. um laun hreppstjóra árið 1976, og kom þá í ljós að fyrir 1–100 íbúa voru þau á því ári samtals 63 503 kr., fyrir 100–150 íbúa 71 156 kr. á ári og fyrir 150–200 íbúa 78 845 kr. o. s. frv., þannig að hækkunin nemur u. þ. b. 7750 kr. fyrir hverja 50 íbúa. Nú kann sumum að þykja þetta töluverð laun orðin, og sannarlega er þar um verulega hækkun að ræða frá því að lögin voru sett 1965. Hins vegar hef ég orðið var við það á nokkrum árum, þeim sem ég hef starfað nú sem þm. og hitt marga hreppstjóra að máli, að kjör hreppstjóra eða álag á hreppstjórum er ákaflega breytilegt eftir umdæmum. Í sumum hreppum kann þetta að vera sanngjarnt, þar sem umsvif eru lítil, í ýmsum sveitahreppum. En það er allt annað t. d. í sjávarþorpum þar sem umsvif geta stundum verið mjög mikil. Mér þykir því ljóst að ekki er rétt að ákveða laun hreppstjóra fyrir alla eins, eins og gert er með þessum lögum frá 1965 og síðan hefur verið með þeim hækkunum sem framkvæmdar hafa verið.
Það er t. d. ljóst að þau störf, sem hvíla á hreppstjóra í sjávarþorpi þar sem mikill fjöldi aðkomumanna er iðulega starfandi, þar sem oft getur verið að vissu leyti róstusamt, eru mikil, og hefur hreppstjóri á einum slíkum stað, sem er með um 250 íbúa, áætlað að störf hans væru u. þ. b. 4 tímar á dag og félli starfstíminn oft utan eðlilegs vinnutíma, t. d. um helgar. En hins vegar ef þau laun, sem þessum hreppstjóra voru greidd á síðasta ári, eru reiknuð á vikugrundvelli, þá munu þau vera um 1811 kr. á viku eða ekki fjögurra tíma kaup verkamanns. Miðað við þá vinnu sem þessi hreppstjóri, sem er mjög athugull, telur sig inna af hendi yrði tímakaupið um 90 kr. Auk þessa hafa hreppstjórar gegnt ýmsum öðrum skyldum, t. d. annast innheimtu fyrir sýslumenn. Fyrir nokkrum dögum tjáði mér hreppstjóri í þorpi þar sem eru rúmlega 500 manns, að hann innheimti á síðasta ári 28 millj. kr. fyrir sýslumann og fékk enga aukaþóknun fyrir það.
Mér sýnist því að þessu athuguðu að endurskoða beri kjör hreppstjóra, bæði taka tillit til slíkra skyldustarfa sem ég hef nú nefnt, t. d. innheimtu, og einnig ber að taka tillit til þess að aðstaða er mjög breytileg í hinum ýmsu sveitarfélögum.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það, að mjög er mikilvægt að hæfir og traustir menn veljist til hreppstjórastarfa, og sannarlega hafa sem betur fer slíkir menn valist til þessara starfa. En ég hygg að það gerist þó erfiðara með hverju ári ef laun eru ekki bætt. Einnig er hægt að nefna það, að störf hreppstjóra eru töluvert önnur þar sem lögregluþjónn er ekki og meiri á slíkum stöðum heldur en þar sem lögregluþjónn er.
Ég hygg að ég þurfi ekki að fara fleiri orðum um þessa tillögu. Í till. er lagt til að Alþ. feli ríkisstj. að láta endurskoða lög og reglur um launakjör hreppstjóra. Henni fylgir grg. sem lýsir nokkurn veginn því sem ég hef nú rakið. Ég vil svo að lokinni þessari umr. leggja til að till. verði vísað til hv. allshn.