29.10.1976
Sameinað þing: 12. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 351 í B-deild Alþingistíðinda. (223)

Umræður utan dagskrár

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég bið afsökunar á því, að vegna þess hve seint ég kom inn í þinghúsið gat ég ekki haft samband við forseta áður en fundur var settur. En ég kveð mér hljóðs vegna þess að í Morgunblaðinu í gær, sem ég las ekki fyrr en ég kom heim í gærkvöldi, var frétt um að fjvn. hefði ákveðið að veita rétt til fundarsetu Karvel Pálmasyni með málfrelsi og tillögurétti. Ég var að leita að því í þingsköpum hvort þetta væri rétt að farið og rétt að staðið, og ég get ekki séð að svo sé. Mál þetta kom til umr. í þingflokki Sjálfstfl. og fékk ekki afgreiðslu þar. Ég geri ekki aths. við það að Karvel Pálmasyni verði veittur réttur til að sitja fundi fjvn. á þann hátt sem nú hefur verið samþ., en ég tilkynnti jafnframt að ég mundi þá gera sömu kröfu til þessarar hv. n.þm. frá Reykjavík komi líka á sama hátt inn í nefndina.

Ég álít að hér sé ekki rétt að farið. Ég álít að þegar Sþ. hefur kosið í n., þá hafi n. ekki rétt til þess að fjölga í þeim á neinn hátt. Í þingsköpum segir á 11. bls.:

Fjvn. fjallar um frv. til fjárlaga og fjáraukalaga og þáltill., sem til hennar kann að verða vísað og fara fram á útgjöld úr ríkissjóði“

Það er eina verkefnið sem fjvn. hefur. Ég tel að þarna hafi þingsköp verið brotin, og ég óska eftir að þetta verði leiðrétt.