13.04.1977
Sameinað þing: 74. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3077 í B-deild Alþingistíðinda. (2246)
148. mál, bygging nýs þinghúss
Þorv. Garðar Kristjánsaon:
Herra forseti. Ég ætla nú ekki að fara að lengja þessar umr. En það kemur ýmislegt upp í hugann þegar hlustað er á umr. sem þessar. Slíkar umr., eins og hér hafa verið, hafa stundum áður farið fram hér á þingi þó að ég hafi ekki, að því er mig minnir, verið viðstaddur slíkar umr.
Ég hygg að alltaf þegar þetta mál hefur komið á dagskrá bygging nýs alþingishúss, hafi umr. mjög hnigið að þeirri spurningu hvar eigi að reisa húsið. Og það hefur verið komið inn á það einnig nú. Það hefur þá ekki alltaf verið haldið sér við lögsagnarumdæmi höfuðborgarinnar.
Menn hafa getað hugsað sér annað heldur en að hafa þingið hér í Reykjavík. Ég ætla nú ekki að fara að rifja upp þá sögu. En til gamans má þó rifja það upp, að 1925 fluttu þrír menn þáltill. í Nd., Sveinn Ólafsson, Ásgeir Ásgeirsson og Benedikt Sveinsson, um að skora á ríkisstj. að láta fara fram þjóðaratkvgr. á sumri komanda, eins og það var orðað, jafnhliða landskjörinu um það hvort samkomustaður Alþ. skuli vera á Þingvöllum við Öxará frá 1930. Þessi till. hafði nærri náð fram að ganga, hún var felld með tveggja atkv. mun, svo að eitthvað hafa þá líka verið skiptar skoðanir um þetta efni.
Það er ekki heldur lengra en frá 1965, að þá kom till. til þál. um þjóðaratkvgr. um samkomustað Alþ. þar sem skyldi fara fram þjóðaratkvæði um hvort stefna skuli að því að Alþ. verði háð á Þingvöllum. Þessi till. var borin fram af Ágúst Þorvaldssyni og Gísla Guðmundssyni, en náði ekki fram að ganga.
Þegar þetta er haft í huga er ekkert einkennilegt að það komi fram mismunandi skoðanir hér í dag um það hvar eigi að reisa nýtt alþingishús.
Ég tek undir sjónarmið þeirra manna sem hafa haft við það að athuga að sú till., sem hér er til umr., gerir ráð fyrir að nýtt alþingishús verði vestan við núverandi þinghús. Ég skal taka það fram, að fyrst þegar ég fór að hugsa um þessi mál var efst í huga mínum, eins og mér skildist á hv. þm. Benedikt Gröndal að hefði verið hjá honum, að þinghúsið ætti að vera á öðrum stað en hér, þó að ég hafi ekki haft í huga að flytja þingið til Þingvalla. En ég verð að segja að eftir því sem ég hef meir hugsað þetta mál, þá hef ég frekar hallast að því að það væri rétt að hafa þinghús hér í nágrenni þessa húss. Þó verð ég að segja það, að persónulega hef ég ekki gert upp endanlega skoðun mína í þessu efni.
Ég held, að þó að það sé langur tími síðan menn fóru að hugsa um staðarval fyrir alþingishús, þá hafi raunverulega ekki verið unnið að því máli sem skyldi eða nægilega vel til þess að það sé með góðu móti hægt að bera ýmsa valkosti saman. Ég á við það, að það er að mínu viti ekki nægilegt að fara í bíl um bæjarlandið og líta á ýmsa mögulega staði. Það þarf að gera sér grein fyrir hvernig byggingin á að vera, hvernig hún fellur inn í viðkomandi umhverfi, og jafnvel að gera bráðabirgðateikningar af húsi og mannvirkjum á fleiri en einum stað til þess síðan að geta borið þessa kosti saman. Með tilliti til þessa held ég að það sé varhugavert nú fyrir hv. Alþ. að ætla að taka, að því er mér skilst á hv. 1. flm. þessarar till., taka ákvörðun á þessu þingi um það, hvar á að byggja nýtt alþingishús. Ég held að það sé varhugavert að gera slíkt og málið þurfi miklu betri undirbúning. Menn geta sagt að það hafi gefist nógur tími til slíks undirbúnings og það hefði átt að vera búið að vinna það verk, en það er staðreynd að mínu viti að það er ekki búið. Ég held að við eigum að flýta okkur hægt í þessu efni.
En nú segja menn, og það hefur komið fram í þessum umr., að okkur liggi á vegna þess að aðstaða okkar þm. sé slík að við getum ekki búið við þetta og það komi niður á störfum okkar sem þm. og á Alþ. í heild. Um þetta atriði mætti margt ræða. Ég tek alveg undir það, að það þarf að bæta ýmislegt hér á Alþ. og bæta aðstöðu þm. í ýmsum efnum. Og ég geri ráð fyrir því og ég held að það hljóti að liggja í augum uppi að slíkt verður alltaf hægt að segja. Við gerum ekkert endanlegt í þessu efni. En ég hef tilhneigingu til þess að ætla að það komi ekki — eða kannske ég orði það þannig, að það þurfi ekki að koma svo mjög niður á störfum okkar eða Alþ. sem löggjafarsamkomu, hver aðstaða okkar er í dag. Það eru ýmsar skoðanir í þessu efni.
Til gamans mætti t. d. rifja það upp, að þegar, að lokinni síðustu heimsstyrjöld, breska parlamentið eða neðri málstofan var í rústum, þá lá það fyrir að bæta úr þessu. Það voru miklar umr. um þetta mál, og umr. snerust um það, í hvaða formi ætti að byggja upp nýja neðri-málstofu. Það voru uppi háværar raddir um að það yrði að gera með þeim hætti að málstofan yrði mikið stækkuð og byggð upp í nútímastíl. Aðrir voru á móti og þ. á m. maður sem tekið var mark á, Winston Churchill. Hann sagðist vera á móti þessu, móti þessari fyrirætlun. Það ætti að byggja neðri málstofuna upp nákvæmlega eins og hún hefði verið. Þá var honum bent á að þetta gæti ekki gengið, það væri ekki lengur hægt að una því að aðeins 2/3 þm. neðri deildarinnar hefðu sæti, eigin sæti í málstofunni. Winston Churchill sagði: Það er einmitt þetta sem við þurfum að varðveita. Neðri málstofan á að vera þannig byggð upp að það séu ekki nema 2/3 þm. sem hafa sæti. Þó að svo sé, þá er það þannig undir venjulegum umr. í deildinni að það eru margir stólar auðir, en þegar stóru málin koma fyrir, þá fyllist málstofan, öll sæti full og gólfið á milli stjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar einnig fullt af þm. sem þar standa. Það er þetta sem gefur neðri málstofunni það sérstaka andrúmsloft sem þar og hvergi er annars staðar á nokkurri löggjafarsamkomu. — Þetta sagði Winston Churchill. Og það er alkunna, að það var farið að hans till. Neðri málstofan var byggð svona upp, eins og hún var.
Nú er ég ekki með þessu að segja að við eigum nú að fara að byggja upp þinghús þannig að það verði ekki nægileg sæti einu sinni fyrir alla þm. Mér kemur ekki slíkt til hugar. En ég hygg að þessi saga, sem ég hef hér drepið á, gæti þó gefið okkur til kynna að það sé varhugavert að meta gildi löggjafarþings eftir því hve það er háð á mörgum fermetrum.
Ég held að þó að við, eins og ég sagði áðan, flýtum okkur hægt í byggingarmálum Alþ., þá þurfum við ekki að óttast neitt í því efni. Við þurfum ekki að óttast að það þurfi að hamla störfum Alþ. á þann veg að það gegni ekki eins vel hlutverki sínu sem löggjafarþing þjóðarinnar. En um leið og við flýtum okkur hægt, þá held ég að það sé rétt að við vinnum nú markvissara að því heldur en við höfum gert, svo að málið geti legið þannig fyrir að það sé hægt að velja á milli mismunandi kosta í sambandi við staðsetningu nýs húss. Meðan við erum að gera þetta, þá skulum við halda áfram að vinna að bættri aðstöðu, eins og hv. 1. flm. þessarar till. tók fram að gert hefði verið á síðustu árum undir forustu núv. hæstv. forseta Sþ.
Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta mál frekar, en taldi rétt að koma fram með þessar hugleiðingar mínar í tilefni af þeim umr. sem fram hafa farið.