13.04.1977
Sameinað þing: 74. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3080 í B-deild Alþingistíðinda. (2248)

148. mál, bygging nýs þinghúss

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Ég mun á nokkrum þingum hafa hreyft því máli, sem er hér til umr. og mun þá hafa verið hvatamaður nýrrar þinghússbyggingar. Ástæðan til þess, að ég hef ekki breyft þessu máli á síðustu þing­um, er sú, að mér hefur nokkuð snúist hugur og ég er ekki sami áhugamaður um að flýta nýrri þinghússbyggingu og ég áður var. Ég ætla ekki að eyða löngu máli til að gera grein fyrir þess­ari breyttu afstöðu minni, en vil þó nefna sér­staklega tvö atriði. Að sjálfsögðu gæti að ýmsu leyti farið betur um alþm. í nýju þinghúsi. Það er vafalaust. En nýtt þinghús mundi aldrei hafa það sem þetta þinghús hefur. Það hefði enga sögulega hefð, engar sögulegar minningar og tengdi okkur ekki á neinn hátt við fortíðina, eins og þetta þinghús þó vissulega gerir. Á þeim tæpum 100 árum, sem Alþ. hefur starfað hér, hafa gerst margir og stórir atburðir í okkar sögu sem eru tengdir þessu húsi. Hér var sjálf­stæðisbarátta við dani til lykta leidd, hér var unnið að lýðveldisstofnuninni þó að formlega færi hún fram á öðrum stað og hér hefur land­helgisbaráttan verið leidd til fulls árangurs og sigurs, og þannig mætti lengi telja. Það eru því óneitanlega bundnar margar minningar við þetta hús sem ekki mundu fylgja nýju þinghúsi. Og ég held að á þeim tímum, sem nú eru, ættum við ekki að gera lítið úr þeim sögulegu tengslum sem þetta hús varðveitir. Ég held líka að það sé í flestum öðrum löndum þannig háttað, að þó að þinghús þar séu orðin úrelt, eins og t. d. breska þinghúsið, þá eru menn ófúsir að flytja þaðan. Þetta held ég að menn ættu að hugsa vel um áður en endanlega er ráðist í nýja þinghús­byggingu.

Annað atriði, sem hefur haft áhrif á afstöðu mína í þessum efnum, er það, að það eru svo ótalmörg verkefni í þjóðfélaginu sem eru óleyst og að mínu mati eru ekki minna aðkallandi heldur en að byggja nýtt þinghús, þó að það geti verið nauðsynlegt. Það kann að vera satt, að þessi afstaða sýni ekki sama stórhug og var á sínum tíma þegar þjóðin réðst í að byggja þetta þinghús og lét það ganga fyrir öllum öðrum verkefnum. En tímarnir hafa breyst mikið síðan. Þá var ekki verið að hugsa um að sinna mörgum verkefnum sem við teljum hvað nauð­synlegust nú. Þá var t. d. ekki verið að hugsa um það að byggja elliheimili, barnaheimili, skóla og jafnvel ekki spítala. Nú bíða stórfelld verkefni óleyst á öllum þessum sviðum, sem mér finnst mörg þannig vaxin að þau eigi að hafa forgangs­rétt umfram nýja, dýra þinghúsbyggingu. Af þeim ástæðum finnst mér að við eigum að fara okkur hægt í öllum breytingum í þessum efnum.

Hitt er annað mál, og ég skal viðurkenna að það er alveg rétt, að starfsaðstaða þm. er að ýmsu leyti ekki eins góð og hún ætti og þyrfti að vera. En ég álít að þau salarkynni, þar sem við höldum okkar fundi hér, séu alveg fullboðleg fyrir okkur. Jafnvel þó að svo færi að samþ. væri að gera hingið að einni deild mætti sameina þessa sali með þeim árangri að þingið gæti vel haldið fundi sína hér áfram. Hitt er það, að við þurfum að fá bætta aðstöðu að ýmsu leyti fyrir nefndarfundi og þm. þurfa að fá bætta starfsað­stöðu, og inn á þá braut hefur verið farið með því að tryggja þm. skrifstofuhúsnæði hér á næstu grösum, eins og hæstv. forseti Sþ. minntist á. Ég tel að hann hafi unnið mjög gott verk þegar hann átti sinn meginþátt í því að Þórshamar var keyptur. Ég hygg að við eigum að halda áfram að leysa mál þm. á þann hátt að þeir geti hér í grennd við þinghúsið haft sæmilega starfsað­stöðu til að vinna að sínum málum og til að taka á móti því fólki sem vill heimsækja þá.

Ég held að í náinni framtíð eigum við að leggja fyrst og fremst áherslu á það verkefni í samhandi við Alþ., en fara okkur hægt í því að ákveða nýja þinghúsbyggingu því að eins og ég sagði áðan eru það ótalmörg verkefni, sem bíða, sem eru ekkert síður nauðsynleg heldur en ný þinghúsbygging og þjóðin leggur sennilega enn þá meiri áherslu á og mundi e t. v. telja ekki rétt ráðið að alþm. létu það ganga fyrir að byggja eitthvert stórhýsi yfir sig á meðan fjölda­mörg nauðsynleg verkefni bíða óleyst sem að margra dómi eru meira aðkallandi. Ég nefndi áðan t. d. elliheimili og sjúkrahús, skóla og barna­heimili og annað þess háttar sem dæmi um þetta. En ég vil til viðbótar nefna eitt stórt verkefni sem Alþ. var raunverulega búið að lofa að leysa, en hefur ekki sinnt nægilega enn þá, en það er bygging þjóðarbókhlöðu. Ég held að í menningar­málum þjóðarinnar sé ekkert verkefni meira að­kallandi heldur en að koma hér upp nýrri full­kominni þjóðarbókhlöðu, sameina þau söfn, sem fyrir eru, og skapa fræðimönnum og öðrum þeim, sem á safni þurfa að halda vegna t. d. sér­greina sinna, aðstöðu til að geta sótt þangað þá menntun sem söfn veita.

Þessum hugleiðingum mínum fannst mér rétt að koma á framfæri vegna þess að ég mun á sínum tíma hafa verið einn mesti hvatamaður nýrrar þinghúsbyggingar, en mér finnst við nán­ari athugun að við eigum að íhuga þetta mál vel áður en ákvarðanir eru teknar um það.