13.04.1977
Sameinað þing: 74. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3082 í B-deild Alþingistíðinda. (2250)

179. mál, mengunarvarnir og heilbrigðisgæsla í álverinu í Straumsvík

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Er þingmál þetta kom til umr. voru allfáir hv. alþm. við­staddir er hv. þm. Sigurður Magnússon flutti framsöguræðu sína. Er hann hafði hálflokið flutn­ingi þessarar framsöguræðu, þá var, ef mig minn­ir rétt, aðeins viðstaddur formaður iðnn. Ed., hv. þm. Steingrímur Hermannsson, og ég. Þá vorum við tveir einir í salnum auk hæstv. forseta.

Mál það, sem Sigurður Magnússon reifaði þá ítarlega, var þess háttar að mínu viti að til háborinnar skammar var fyrir Alþ., þ. á m. hv. alþm. sem telja að núverandi hús, sem vér nú stöndum í og sitjum, rúmi ekki sæmd stofnunar­innar. Í framsöguræðu þessa hafði verið lögð geysilega mikil vinna við öflun fræðilegra gagna varðandi mengun frá Straums­víkur­verk­smiðj­unni og málið í grundvallaratriðum þannig vaxið, að mér fannst raunar alveg bráðnauðsynlegt að a. m. k. hæstv. iðnrh. væri viðstaddur umr. og síðan allir aðrir þeir hv. alþm. raunar, sem munu, ef að líkum lætur, í næstu viku fjalla um yfir­vofandi tilurð annarrar stóriðjuverksmiðju sem ætlun ríkisstj. er og að því er mér skilst Alþfl. að verulegu leyti að rísi hér uppi í Hvalfirði. Líkur benda til þess að allur undirbúningur fyrir­hugaðrar málmblendiverksmiðju í Hvalfirði hvað mengunarhliðina snertir sé þess háttar, að hann falli nokkurn veginn að viðhorfum þeirra manna sem létu reisa álverksmiðjuna í Straumsvík án hreinsitækja, — viðhorfum þessara sömu manna til heilsu starfsmanna og til nánasta umhverfis verksmiðjunnar og þess lífs í landinu, sem verð­ur fyrir áhrifum frá verksmiðjunni.

Persónulega er ég þeirrar skoðunar, að það hefði verið þýðingarmikið fyrir þessa hv. þm. að hlýða á ræðu Sigurðar Magnússonar, framsögu­ræðu hans með máli því sem hér er til umr. Enn þá fremur er ég þó þeirrar skoðunar eftir að hafa heyrt það nú fyrir stundu af munni for­seta, að þegar hefur verið sett á dagskrá Nd. álit iðnn. d. varðandi málmblendimálið, áður en iðnn. Ed. hefur verið kvödd saman til þess að fjalla um skýrslu Heilbrigðiseftirlitsins, sem heilbrrn. leggur til grundvallar vinnsluleyfi sem það hefur nú þegar gefið út. Meiri hl. iðnn. Nd. treystir sér sem sagt til þess að mæla með sam­þykkt frv. um samninginn við Elkem og um málmblendiverksmiðjuna án tillits — gersamlega án tilits til þess hvaða álit sérfræðingar hafa á mengunarhættunni frá verksmiðjunni, án þess að hafa kynnt sér nokkur gögn varðandi mengun­arhættu frá fyrirhugaðri verksmiðju. Og ekki nóg með það, að meiri hl. iðnn. Nd. skrifi undir nál. með meðmælum um samþykkt þessa frv., heldur hefur fulltrúum Alþb. í iðnn. beggja d. þingsins verið synjað um að fá skýrslu heilbrigðiseftirlits­ins í hendur til þess að geta kynnt sér þetta mál, beinlínis vegna þess að það er ljóst mál að veit­ing starfsleyfisins frá heilbrrn. brýtur í bága í ýmsum grundvallaratriðum við vilja Heilbrigðis­eftirlits og Náttúruverndarráðs og annarra þeirra manna, sem um það ber að véla hvort slík leyfi skulu leyfð.

Þegar hv. þm. Sigurður Magnússon flutti fram­söguræðu sína fyrir þáltill. í heyranda hljóði sex eyrna, að hv. eyrum forseta meðtöldum, hér í þessum sal, þá óskaði hann eftir því að fá tæki­færi til þess að leggja nokkrar spurningar fyrir hæstv. iðnrh. um grundvallaratriði varðandi mengunina frá álverksmiðjunni í Straumsvík. Hvar hæstv. iðnrh. var þá staddur veit ég ekki annað en það, að hann var ekki hér í húsinu. Ég er þeirrar skoðunar, að vegna þess hvernig staðið var að umfjöllun málsins á þeim degi þegar það var tekið til meðferðar hér í þingsaln­um, þá sé bráðnauðsynlegt að frsm. flytji hér að nýju í viðurvist alþm. þann hluta framsöguræðu sinnar sem mestu máli skiptir, til þess að hann geti gert grein fyrir þessum þýðingarmiklu spurn­ingum, gert grein fyrir þeim og fengið svör við þeim frá hæstv. iðnrh., til þess að hv. alþm. geti, ef þeir vilja, ef þeir mega vera að og ef þeir þora, ef þeir eru menn til, vegna þess á hvern hátt þeir hafa bundist í önnur stóriðju­mál sem hér liggja fyrir, vesalingarnir litlu, — ef þeir þora að hlýða á þessa ræðu, þau rök sem þar voru flutt fram með kröfunni um tafar­lausar ráðstafanir til þess að binda endi á meng­unina frá Straumsvíkurverksmiðjunni, en henni verði lokað ella.

Ég hefði talið ákaflega æskilegt, ef það hefði fengist fram við umr. um þessa þáltill. af hálfu forsvarsmanna Framsfl. sérstaklega, hvort þeir ætla að túlka nýgerða samþykkt miðstjórnar flokksins gegn erlendri stóriðju á þá lund, að ekki komi til greina að þingflokkur Framsfl. samþykki leyfi fyrir þriðja kerskálanum í Straumsvík til Alusuisse. Ég hefði talið það ákaflega æskilegt ef svar við þeirri spurningu hefði getað fengist fram nú þegar, ekki bara vegna þeirrar nauðsynjar að alþm. geti gert sér grein fyrir viðhorfunum til þessa stóriðju­máls, heldur fyrst og fremst til þess að kjós­endur Framsfl. geti gert sér nú þegar nokkra grein fyrir því, að hve miklu leyti þeir eiga að taka mark á samþykktum miðstjórnar í þessu máli. Þetta er þýðingarmikið nú, vegna þess að það hefur komið fram, að vísu með ákaflega loðnu orðalagi og í miklum hugrenningasam­böndum, að hæstv. iðnrh. ætli að veita Alusuisse a. m. k. þriggja og hálfs árs frest til þess að koma upp hreinsitækjum í Straumsvík, a. m. k. þriggja og hálfs árs frest, þrátt fyrir það að upp­lýsingar liggi nú fyrir um að mjög alvarlegrar mengunar frá álverksmiðjunni gætir nú þegar alla leið vestur á Mýrar, að maður tali ekki um Álftanessvæðið, og að flúormagn langt yfir hættu­mörk hefur fundist í barrtrjám og öðrum við­kvæmum gróðri undir Esjurótum. Enn fremur er ákaflega mikil þörf að fá nú upplýsingar um hver afstaða Framsfl. ætlar að verða til þriðja kerskálamálsins í Straumsvík, vegna þess að hæstv. iðnrh. hefur látið það uppi, — að vísu var það aðeins 10 dögum eftir að hann hafði lýst því yfir í Ed. að rangt væri að þriðji kerskálinn í Straumsvík væri forsenda fyrir fyrirhugaðri Hrauneyjafossvirkjun, — 10 dögum síðar lét hann það uppi mjög skorinort að viðræður við Alu­suisse um þriðja kerskálann í Straumsvík væru nú á döfinni.

Eins og þetta mál er allt saman í pottinn búið er fráleitt fyrir okkur að taka til umr. frv. það, sem nú er boðað að leggja eigi fram í Nd. Alþ. á morgun frá n., án þess að hafa áður rætt til hlítar þau mál sem varða stórhættulega mengun frá stóriðju sem við höfum þegar í landinu. Það má vel vera að afstaða hv. alþm. til þessa atrið­is, sem lýtur að mengun og stóriðju, sé mjög misjöfn, allt frá því að vera gersamlega sama og upp í það, eins og ég þykist verða var við hjá ýmsum hv. stuðningsmönnum stjórnarinnar, að þeim sé ekki sama, en þeir styðji þessar stór­iðjuframkvæmdir og beri blak af stóriðjufurstum ríkisstj. gegn samvisku sinni, gegn betri vitund, eins og sumir þeirra segja: Vitaskuld erum við á móti málmblendiverksmiðjunni í Hvalfirði, en við verðum bara að gera þetta vegna rafmagns­málanna, vegna Landsvirkjunar, — segjandi þá raunverulega sem svo: Landsvirkjun verður að koma rafmagninu sínu í sölu. Hún verður að gera það hvað sem hún fær borgað fyrir það, og það verður þá bara að hafa það hverjar afleiðing­arnar verða. — Sams konar afstöðu heyrir maður hjá ýmsum hv. þm. ríkisstj., þegar rætt er um ál­verksmiðjuna í Straumsvík: Þetta er alveg hræði­legt, þetta er alveg hræðilegt slys. Það er ótta­legt til þess að vita að þessi verksmiðja skuli spúa eitri yfir þetta svæði þéttbýlisins við Faxa­flóa, að fólkið, yfir 100 þús. manns, sem byggir þetta svæði sem liggur undir menguninni, skuli þurfa að taka á sig þennan óþverra fyrir erlent auðfélag og ekkert skuli vera hægt við þessu að gera. Þetta er alveg skelfilegt. En hvað eigum við að gera í þessu máli? Við verðum að styðja ríkisstj. okkar, við verðum að styðja við bakið á iðnrh. okkar, og ekki megum við bregðast honum Jóhannesi okkar. En það er skelfilegt til þess arna að vita. — Og svo eru náttúrlega þessir menn, sem ég vék að áðan, sem er alveg sama. Mönnum var sama strax í upphafi, þegar verksmiðjunni var komið upp, og er sama enn, eins og hv. þm. Benedikt Gröndal, sem orðaði það svo við umr. hér á Alþ. fyrir skemmstu að hann þekkti ekki einn einasta þm. sem óskaði þess að við hefðum ekki álverksmiðjuna í Straumsvík.

Ég endurtek það, að ég er þeirrar skoðunar að við verðum að fjalla mjög ítarlega um reynslu okkar af menguninni frá álverinu í Straumsvík — mjög ítarlega — áður en Alþingi tekur að fjalla um tilurð annarrar verksmiðju sem reisa á samkv. leiðbeiningum nær sömu sérfræðinganna sem stóðu að álverinu í Straumsvík á sínum tíma, samkv. ráðleggingum sömu hagfræðinganna og sömu verkfræðinganna og sömu bankastjóranna sem leggja nú hvað fastast að okkur að heimila Ausuisse að koma upp þriðja kerskálanum þarna suður frá áður en búið er að koma upp mengun­arvörnum á þessu svæði. Ég tel fráleitt að Alþ. skuli ekki krefjast ítarlegrar rannsóknar óháðra sérfræðinga á menguninni frá álverinu í Straums­vík áður en léð er máls á því, hvað þá að ræða um aðra stóriðjuverksmiðju á þessu svæði.