29.10.1976
Sameinað þing: 12. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 363 í B-deild Alþingistíðinda. (227)
28. mál, samkomulag um veiðar breskra togara
Lúðvík Jósepsson:
Herra forseti. Þetta skal verða aðeins stutt aths., en það voru nokkur atriði í ræðu hv. 4. þm. Austurl., Tómasar Árnasonar; sem gáfu mér tilefni til þess að bæta hér við nokkrum orðum.
Hann ræddi í sínu máli nokkuð um það hvað raunverulega fælist varðandi viðurkenningu í samkomulaginu frá Osló. Það var ljóst að hann telur að þar sé um raunverulega viðurkenningu breta að ræða á okkar 200 mílna fiskveiðilandhelgi, en tók þó fram nákvæmlega sama og ég hef verið að segja allan tímann, að hér er ekki um formlega viðurkenningu að ræða. Það var fyrst og fremst þetta atriði sem kom fram í ræðu hv. þm.: hann viðurkennir að hér er ekki um formlega viðurkenningu að ræða. Ég hafði sagt í mínum málflutningi að það, sem lægi fyrir, væri að þeir, sem samninginn gerðu af okkar hálfu, hafa túlkað samninginn þannig að hann jafngilti viðurkenningu. En bretar hafa ekki gert það. Frá þeirra hálfu hefur það ekki komið fram að þeir túlkuðu samninginn á þá lund, heldur að þeir þyrftu að gera annan samning við okkur í framhaldi af þessum samningi þegar honum lyki. Það hefur verið þeirra meginafstaða allan tímann.
Ég vil líka taka það skýrt fram, að ég hef aldrei haldið því fram að það samkomulag, sem gert var í Osló, sé einhver sönnun um það að bretar viðurkenni ekki eða þeir séu ekki skuldbundnir á neinn hátt í sambandi við ákvæði samningsins. Mér er það alveg ljóst að í samningnum kemur það fram, að þeir skuldbinda sig til þess að stunda hér ekki veiðar — eða það er nú sagt á hinn veginn, að þeir stundi hér veiðar á þeim svæðum innan okkar fiskveiðilandhelgi sem íslendingar kunna að veita samning um. Auðvitað er í þessu ákveðið gildi fyrir okkur. En það er rangt að halda því fram að hér liggi fyrir og samningurinn hafi verið gerður til þess að fá fullnaðarviðurkenningu breta, eins og hér hefur verið orðað, í sambandi við okkar 200 mílna fiskveiðilandhelgi. Það kom fram í máli hv. 4, þm. Austurl., Tómasar Árnasonar, og hefur reyndar komið fram hjá fleirum, að hann sagði eitthvað á þá leið, að nú nýlega tilkynntu bretar að þeir ætluðu sér að færa út í 200 mílur og hann teldi að þar væri um tilkynningu að ræða sem raunverulega gæfi stimpil á okkar 200 mílna fiskveiðilandhelgi, þ.e.a.s. viðurkenningu frá hálfu breta á okkar 200 mílna fiskveiðilandhelgi. Þetta er einmitt það sem ég og fleiri höfum verið að segja. Sannleikur málsins er sá, að sú breytta stefna, sem bretar urðu að taka upp og voru að taka upp um það leyti sem samkomulagið í Osló var gert, sú breytta opinbera stefna, sem þeir þá voru nauðbeygðir til að taka upp og tóku upp, fól í sér viðurkenningu á 200 mílna landhelgisstefnunni almennt og hún fól í sér þá viðurkenningu, sem við höfðum verið að berjast við að fá allan tímann, og gerbreytti okkar stöðu. En það var ekki samkomulagið í Osló út af fyrir sig, sem þar var undirskrifað, sem veitti okkur þessa viðurkenningu. Það er mesti misskilningur. Það var ekki samkomulagið í Osló sem orsakaði það að bretar breyttu um stefnu í málinu. Það var komið fram löngu áður, að þeir voru og urðu að taka upp þessa stefnu, og það hefði gerst hvort sem þetta samkomulag var gert eða ekki. En hitt var líka ljóst, að þegar bretar voru farnir að tilkynna um að þeir yrðu að færa út í 200 mílur, þá var ekkert þægilegt fyrir þá að halda áfram þeirri formlegu deilu sem þeir stóðu í við okkur, og þar varð að verða breyting á, eins og utanrrh. þeirra sagði. Það var ekki um annað að gera hjá þeim, eins og komið var, þeir urðu að gera breytingu á. Það er sem sagt ekkert um það að villast, eins og hér var sagt, að sterkasta viðurkenning breta er fólgin í þeirri breyttu stefnu sem þeir hafa tekið upp varðandi 200 mílna deiluna.
Ég vil að það komi skýrt fram, að túlkun mín á samkomulaginu, sem gert var í Osló, er ekki sú sem mátti kannske skilja á því sem hv. þm. Tómas Árnason sagði, að ég vildi fría breta eitthvað undan þeim skyldum sem á þeim hvíla í kjölfar samkomulagsins í Osló, síður en svo. Ég bara benti á það, að í þessu samkomulagi felst ekki sú formlega viðurkenning sem ríkisstj., okkar hefur verið að hamra á og réttlætt samninginn með, að hún hafi náð þessari formlegu viðurkenningu, vegna þess að það viðurkenna bretar ekki. Og það verða allir að viðurkenna, eins og hv. þm. Tómas Árnason gerði, að um formlega viðurkenningu er hér ekki að ræða.
Það, sem menn leggja áherslu á í þessum efnum, er það orðalag sem er að finna í 10. gr. samkomulagsins, sem er óneitanlega heldur andkannalegt í sambandi við viðurkenningu, þar sem segir að bresk skip muni aðeins stunda veiðar á því svæði sem greint er í hinni íslensku reglugerð frá 15. júlí 1975 í samræmi við það sem samþykkt kann að verða af Íslands hálfu. M.ö.o.: ef þetta á að þýða viðurkenningu, þá felst í þessu líka ábending um það, að þeir muni veiða þarna áfram eftir samkomulagi sem íslendingar kunna að samþykkja. Og það er einmitt verið að ganga eftir þessu. Þetta er sú afstaða sem bretarnir hafa hangið á og hanga á enn.
En hitt vakti líka athygli mína í málflutningi hv. þm. Tómasar Árnasonar, að frá hans hálfu kom enn ekkert um það atriði þessa máls sem skiptir þó öllu máli, hver afstaða okkar á að vera varðandi efnisatriði málsins eftir 1. des. Ég álít að þarna hefði þurft að koma fram, ekki síst hjá þeim sem telja að hinn endanlegi snúningspunktur í málinu hafi orðið 1, júní í Osló, að þeir segðu, miðað við allar aðstæður nú, að um frekari samninga keti ekki verið að ræða eins og málin standa nú, af því að við vitum mætavel að það er ekki hægt að bjóða okkur þennan gagnkvæmisrétt, sem annars gæti komið til greina og ég hef fyrir mitt leyti viðurkennt. Mér dettur ekki í hug að neita því, að þeir tímar geta komið að við semjum við aðrar þjóðir um gagnkvæmisrétt. Þeir geta komið, en þeir eru bara ekki nú. Ég viðurkenni það líka, sem er fullkomlega rétt, sem kom fram hjá hv. þm. Tómasi Árnasyni, að það er rétt, að það er grundvallaratriði í sambandi við þau væntanlegu alþjóðaréttarákvæði sem fjallað hefur verið um, að komi upp sú staða að við og aðrir, sem höfum helgað okkur 200 mílur, höfum á okkar svæði meira fiskmagn en við getum komist yfir að nýta, en viðurkennt er þó að ætti að vera leyfilegt að taka, þá er gert ráð fyrir því að við gefum öðrum þjóðum einnig kost á því að veiða slíkt með samningum. Það hefur aldrei verið nein deila um þetta. En spurningin er nú, af því að ég held að það sé ekki efast um að staðan hjá okkur er sú, að við getum ekkert látið af þeim afla sem er verið að sækjast eftir, við um veiðar breskra togara. 366 getum ekkert af honum látið nema þá við tökum það af okkur sjálfum, — af því eigi stefnan líka að vera skýr og við eigum að setja við breta að við getum ekki samið um neins konar framlengingu þeim til handa eftir 1. des.
Ég skal svo ekki lengja þessar umr. frekar.