14.04.1977
Neðri deild: 65. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3116 í B-deild Alþingistíðinda. (2278)

Umræður utan dagskrár

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Það má segja að þessi krafa um að taka þetta mál út af dagskrá sé að nokkru leyti óeðlileg, því að sumir ræðumanna hafa farið að ræða efn­islega um málið áður en endanlega hefur verið frá því gengið hvort málið kemur til umr. hér eða ekki.

Ég tel rétt að það komi fram hér áður en þess­um löngu umr. um þingsköp lýkur, að umsögn Heilbrigðiseftirlits ríkisins til heilbrrh. varð­andi starfsleyfi til Járnblendifélagsins hefur, eins og aðrar umsagnir og vandasöm mál, verið til meðferðar í rn. frá því að Heilbrigðiseftirlitið gekk frá henni. Um málið hafa fjallað þar deild­arstjóri í rn., lögfræðingur, sem hefur farið yfir það mjög vandlega. Það hafa verið haldnir sam­eiginlegir fundir, bæði með mér, ráðuneytisstjóra rn., lögfræðingnum og forsvarsmönnum Heil­brigðiseftirlits ríkisins. Í flestum greinum er far­ið eftir till. Heilbrigðiseftirlitsins. Hins vegar er töluvert önnur uppsetning sem á sér stað í starfs­leyfinu en í umsögn Heilbrigðiseftirlitsins. Það eru gerðar till. af lögfræðingi rn. í sambandi við þær breytingar allar. Það má segja að höfuð­hreytingin frá því, sem Heilbrigðiseftirlit ríkis­ins leggur til, og til þess, sem er í starfsleyfinu, sé sú, að Heilbrigðiseftirlit ríkisins mælti aðeins með einum ofni í staðinn fyrir að umsóknin var um tvo ofna. Það kom auðvitað ekki til greina að afgreiða málið á þennan hátt. Á bak við þessa umsögn Heilbrigðiseftirlitsins eða álit þess var það, að ef langur tími liði frá því að fyrri ofn­inn væri tekinn í notkun, þá gætu tæknifram­farir orðið miklar í mengunarvörnum. Því var þetta sjónarmið þeirra eðlilegt hvað þetta snert­ir. Hins vegar töldu bæði lögfræðingur og ráðu­neytisstjóri og ég féllst fúslega á að það bæri auðvitað að veita annaðhvort leyfi fyrir báðum ofnunum eða synja um starfsleyfið. Við tókum aftur upp annað ákvæði í sambandi við síðari ofninn, að hann yrði kominn í notkun innan 24 mánaða frá því að fyrri ofninn væri tekinn í notkun. Þar með settum við fyrir þann leka, ef miklar breytingar hefðu orðið á mengunarvörn­um, og urðum við beiðni Járnblendifélagsins hvað þetta snertir. Þetta tel ég fyllilega eðlilegt að gera og um það vorum við allir, sem um þetta mál fjölluðum í rn., algerlega sammála.

Hitt atriðið var það sem hv. 3. þm. Reykv. las hér upp áðan, sem er töluverð breyting gerð frá upprunalegum till. Heilbrigðiseftirlitsins, enda kom það, sem þar er sett fram, ekki til greina og hefði enginn sætt sig við það. Ekki hefði þurft að spyrja norsku aðilana um það, heldur hefði verið nóg að spyrja íslensku aðilana hvort þeir sættu sig við, ef hreinsibúnaður bilaði, að þá skyldi verksmiðjan stöðvuð innan eins klukku­tíma. Þó að starfsmenn Heilbrigðiseftirlitsins færu upp í bifreið um leið og hreinsibúnaður bilaði, þá eru þeir varla komnir á þessum klukku­tíma upp í verksmiðju. Nú er talið að þegar bilanir í hreinsibúnaði í verksmiðjum sem þess­um eigi sér stað taki í flestum tilfellum einn og hálfan til tvo og hálfan tíma að gera við hreinsi­búnaðinn. Hins vegar geta komið fyrir mun al­varlegri bilanir. Undir það er sett með þessum ákvæðum. Ég hygg að það hefði verið um tómt mál að tala að hafa þetta ákvæði með þessum hætti, og ég býst ekki við að annar verksmiðju­rekstur, sem fyrir er í landinu, og þá ekki endi­lega álverksmiðjan frekar en áburðarverksmiðja eða sementsverksmiðja, mundi sætta sig við það, að ef hreinsibúnaður bilaði, þá þyrfti að stöðva alla framleiðslu og alla vinnu eftir einn klukku­tíma. Þetta eru ákvæði, sem eru ekki fram­kvæmd í þeim löndum sem við þekkjum til og höfum kynnt okkur í þessum efnum.

Það, sem mestu máli skiptir, er að það hefur verið vandað mjög til þessa starfsleyfis og farið eftir því sem er í gildi sérstaklega í Noregi og í Bandaríkjunum. Hins vegar er Járnblendifélaginu skylt að hlíta í hvívetna íslenskum reglum sem eru fyrir hendi eða kunna að verða settar. Þetta er það sem skiptir höfuðmáli í þessu öllu saman.

Ég tel ekki óeðlilegt að Heilbrigðiseftirlitið setji fram sínar ströngustu kröfur til síns rn., sem það heyrir undir, og síðan væru þessar kröfur ræddar og hvað væri skynsamlegt að ganga langt, en halda þó mjög ströngum ákvæðum. Mér er fyllilega kunnugt um það, að hinn norski aðili er langt frá því að vera ánægður með þetta starfsleyfi og telur að það sé allt of strangt í mörgum veigamiklum atriðum. Vissulega var ágreiningur og kröfur sem fram komu, bæði við rn. og við mig, sem við höfum ekki gengið að, og þær margar.

Ég vil út af þessari skýrslu Heilbrigðiseftir­lits ríkisins taka fram, að forstöðumaður eftir­litsins sendi þessi tvö eintök að beiðni rn. og var tekið fram að þó að það væri sent for­mönnum iðnn., þá var auðvitað jafnsjálfsagt og eðlilegt að allir alþm. hefðu aðgang að þessari skýrslu. En hún var ekki framleidd í stóru upp­lagi, heldur aðeins fyrir þessa aðila sem fjöll­uðu um starfsleyfið. Og það eru auðvitað mörg fleiri gögn sem fyrir liggja í þessum efnum, upp­köst að starfsleyfi, ein tvö eða þrjú, sem starfs­menn rn. gerðu. Það hefur ekki tíðkast að leggja fyrir Alþ. öll drög og öll bréf sem fara á milli stjórnvalda í þessum efnum, heldur auðvitað fyrst og fremst það bréf sem mestu máli skiptir og öllu máli skiptir, sjálft starfsleyfið. Það starfsleyfi er sent einnig iðnn. og auðvitað Járn­blendifélaginu og er 17 síður. Það liggur auð­vitað fyrir að hver þm., sem þess óskar, getur fengið að sjá það eða óskað eftir að það verði ljósritað. Sömuleiðis sé ég enga ástæðu til þess að halda neinu dauðahaldi í það, að menn megi ekki tala um þessa skýrslu Heilbrigðiseftirlits­ins til rn. eða til ráðh. eftir vild og eftir því sem menn hafa ánægju og vilja til.