14.04.1977
Neðri deild: 65. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3120 í B-deild Alþingistíðinda. (2280)

Umræður utan dagskrár

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Ég vil hefja mál mitt á því að þakka hæstv. heilbrrh. fyrir að hann hefur leyft að sú skýrsla, sem hér hefur mest verið rædd, verði gerð opinber þannig að allir þm. hafi aðgang að henni og geti notað hana í sambandi við meðferð þessa máls. Ég hef að vísu litið þannig á, að eftir að það lá fyrir að starfsleyfi væri fengið og fullnægt öllum þeim meginskilyrðum sem heilbrrn. hefði sett, þá hafi þessi skýrsla ekki lengur neina meginþýðingu. En eigi að síður er gott að menn geti kynnt sér sögulega hvernig gangur þessa máls hefur verið og það ættu menn að geta séð með því að lesa þessa skýrslu. Annars hygg ég að hún sé nokkuð fræðileg og það séu nokkrir þm. — og ég verð að játa að ég er í þeim hópi — sem hafa ekki nægilega fræðilega þekkingu til þess að geta dæmt um ýmis þau atriði sem þar eru.

En ástæðan til þess, að ég kvaddi mér hljóðs, var sú, að ég dróst inn í þessar umr. í sam­bandi við það að því var haldið fram að ekki hefði verið unnið að öllu leyti vel í hv. iðnn. Ég verð að líta svo á að það sé ekki rétt, því að menn þekkja líka formann iðnn. að því, að þar sem hann hefur verkstjórn með höndum er sæmilega unnið, og ég held að það hafi verið gert í þessari n. Ég held að í raun og veru hafi þetta mál verið til meðferðar í n. tvívegis. Það byrjaði þannig að formaður n. fór að halda fundi áður en málið var komið til 2. umr. og komið til n. og ætlaði að flýta þannig fyrir málinu, og við héldum marga fundi á því stigi, þangað til fulltrúi Alþb. uppgötvaði að þetta væri ekki réttmæt aðferð, það ætti ekki að taka málið til meðferðar fyrr en það raunverulega kom til n. Það varð til þess — ég var því miður fjarver­andi þá — að málið var alveg tekið upp að nýju og sömu menn yfirheyrðir aftur sem bú­ið var að yfirheyra einu sinni áður, þannig að ég held að hv. formaður iðnn. verði ekki ásakað­ur fyrir að það hafi ekki verið nægilega unnið í n. að þessu máli.

Sannleikurinn var líka sá, að raunverulega hafi öllum meginstörfum n. í sambandi við þetta mál verið lokið snemma í febr., en hins vegar stóð eitt eftir, og það var það að starfsleyfi var ekki fengið fyrir verksmiðjunni, ekki samþykki heilbrrn. Við í meiri hl. vorum tilbúnir til þess strax þá að ganga frá nál. þegar þetta starfs­leyfi lægi fyrir. Það dróst hins vegar í nokkrar vikur, en seint í mars var svo komið, eftir því sem formaður n. tjáði mér og aðrir, sem fylgd­ust með þessu máli, að það mundi verða gengið frá starfsleyfi um mánaðamótin mars-apríl og þá væri búið að fullnægja öllum þeim megin­atriðum sem heilbrrn. hefði sett fyrir starfs­leyfinu. Það var líklegt, þegar þingi var frestað, að ég mundi ekki vera í bænum í páskavikunni og ekki alveg öruggt hvort ég mætti hér á fyrsta eða öðrum degi þingsins þegar það kæmi saman aftur. Formaður n. lagði hins vegar áherslu á að við gengjum frá nál. meiri hl., þar sem starfsleyfi væri raunverulega fengið. Niðurstaðan var þess vegna sú að við gengum frá nál., en það var með því fororði frá minni hálfu og ég hygg allra þeirra, sem undirrituðu nál. meiri hl. að það yrði ekki lagt fram á Alþ. fyrr en búið væri að ganga formlega frá starfsleyfinu, enda er þetta beinlínis tekið fram í nál. þar sem segir á þessa leið:

„Með ýmsum skilyrðum, sem heilbrrn. hefur sett fyrir starfsleyfi til handa járnblendiverk­smiðjunni, ætti að vera fengin trygging fyrir því að ströngum reglum um mengunarvarnir innan og utan verksmiðjunnar verði fylgt.“

Ef ekki hefði fengist fullnæging á þessum skilyrðum og starfsleyfi, þá hefði þetta nál. aldrei verið lagt fram. Ég var fjarverandi þegar það var lagt fram, en formaður n. hefur full­komlega efnt það loforð við mig að leggja nál. ekki fram á Alþ. fyrr en starfsleyfi væri feng­ið. Formlega hygg ég að hafi verið gengið frá starfsleyfinu 5. eða 6. apríl, en nál. ekki lagt fram á A1þ. fyrr en í gær, þannig að við þetta hefur verið staðið.

Ég var búinn að kynna mér nokkuð þau atriði. sem heilbrrn. hafði sett fyrir starfsleyfinu. Ég skal hins vegar játa það, að þekking mín er takmörkuð í efnum, sem lúta að jafnströngum mengunarvörnum og hér er um að ræða. Ég verð þess vegna að treysta á það sem fróðir menn segja um þau efni. Og ég taldi, eftir því sem ég best gat séð, að ef þeim skilyrðum yrði fullnægt, sem lá fyrir að heilbrrn. mundi setja og hefur nú verið fullnægt, þá væri forsvaranlegt að sam­hykkja þetta frv. hvað þá hlið málsins snerti.

Ég hygg að ég hafi með þessu gefið nægilega skýringu á afstöðu minni til málsins eða til vinnubragða í sambandi við málið. En ég vil aðeins einu sinni endurtaka það, að þó að megi deila kannske á formann iðnn. fyrir ýmislegt eins og okkur aðra, þá verður aldrei deilt á hann fyrir það að hann hafi ekki nógu traust vinnubrögð þar sem hann fer með verkstjórn.