18.04.1977
Efri deild: 57. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3199 í B-deild Alþingistíðinda. (2297)

219. mál, hlutafélög

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra for­seti. Það er rétt, eins og hv. þm. Halldór Ásgríms­son benti á, að það er ekki hægt að segja að það séu beinlínis glögg ákvæði í frv. varðandi hlutafélagaskrána, hver skuli hana halda, af því að það er, eins og hann sagði, lagt á vald ráðh. að setja nánari reglur um það.

Það var svo og mun hafa verið þannig í þessum norrænu lögum og var raunar hugað að því hér líka að setja ný lög um firmaskráningu, og hefur nú reyndar verið gert uppkast að lögum um það efni, frv. um það efni, og í því frv. var gert ráð fyrir einni firmaskrá fyrir landið allt og þá embætti firmaskrástjóra.

Þetta mundi að sjálfsögðu þýða nýja stofnun, sem getur verið þarfleg stofnun ef hún væri sett á stofn. Ef það er vilji hv. Alþ. að koma því á, þá tel ég sjálfgefið að hlutafélagaskráningin verði í höndum þessa firmaskrárstjóra. En eins og þetta er, þá er ekki löggjöf um það efni fyrir hendi, og hefur verið gert ráð fyrir að viðskrh. setti reglur um hvert fyrirkomulag skyldi vera á skráningunni. Þá yrði það sennilega að vera þannig, að það yrði deild eða starfsmaður í rn. sem sæi um þessa skráningu. Það má sjálfsagt sitt hvað að því finna. Ég held að það verði viðaminna og kosti minna en að setja upp sérstakt embætti og þá sérstöku stofnun, sem gert var ráð fyrir, firmaskrárstofnun.

Hitt er svo auðvitað, að það geta verið skiptar skoðanir um hversu mjög eigi að draga þetta saman á einn stað. Því fylgja vissir annmarkar, en hins vegar augljósir kostir, að á einum stað séu tiltækar upplýsingar um þetta efni, og með þeim hætti tryggt meira samræmi í framkvæmd að þessu leyti til heldur en átt hefur sér stað hér að undanförnu, þar sem skrásetning félag­anna og raunar firmaskráning almennt er á eins mörgum höndum og menn vita.

Ég vildi aðeins láta þetta koma fram í tilefni þess sem hv. síðasti ræðumaður sagði, en þakka honum að öðru leyti fyrir góðar undirtektir. Ég endurtek líka það sem ég áður sagði í minni framsöguræðu, að mér er ljóst að það er ekki hægt að gera ráð fyrir því að hv. dm. hafi getað á þessum stutta tíma sett sig fyllilega inn í efni þessa viðamikla frv.