18.04.1977
Neðri deild: 66. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3201 í B-deild Alþingistíðinda. (2306)
129. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Frsm. 2. minni hl. (Sigurður Magnússon):
Herra forseti. Afstaða mín til frv. um járnblendiverksmiðju á Grundartanga í Hvalfirði er óbreytt eftir að fjallað hefur verið um málið í iðnn. Nd.
Ég tel að með samningi þessum séu íslendingar að sóa hinni dýrmætu orkuauðlind, raforkunni, á óhægkvæman hátt og taka á sig mjög áhættusamar fjárhagsskuldbindingar um leið og vikist er frá nauðsynlegum skilyrðum mengunar og náttúruvarna.
Ég tel, að hér sé tekin röng stefna í atvinnumálum þjóðarinnar, og vara við því að áfram verði gengið á þeirri braut sem svo mikill vilji er fyrir af hálfu núv. stjórnvalda. Stóriðja, sem byggist á erlendum aðföngum, erlendri tæknikunnáttu og erlendum markaðsyfirráðum, þótt hún sé í meirihlutaeign íslendinga, má ekki hafa forgang í atvinnuþróun landsins, forgang að nýtingu orkuauðlinda þess, þegar við blasa í landinu fjölmargir vannýttir möguleikar þjóðlegs íslensks iðnaðar og fjölmargar óuppfylltar þarfir fyrir raforku.
Ég fullyrði að ef haldið hefði verið áfram framkvæmd þeirra áforma, sem uppi voru í tíð fyrrv. ríkisstj. 1974 um nýtingu orkunnar til innlendra þarfa, væri nú þegar tiltækur markaður fyrir alla raforkuna frá Sigölduvirkjun. Nú stöndum við hins vegar frammi fyrir þeirri einstöku staðreynd, að verið er að taka í notkun aðra stærstu virkjun landsins án þess að markaður fyrir raforku hennar hafi verið undirbúinn, enda er það ekkert launungarmál, sem altalað er meðal þeirra sem starfa í raforkuiðnaðinum, að skipulag og stjórnun raforkuframkvæmda sé með endemum. Og Framsfl., sem stóð, að stefnumörkun fyrri ríkisstj. í raforkumálum, hefur látið teyma sig til þess að skipta um stefnu og standa nú að þessum málum. En núv. hæstv. iðnrh. og raforkumálaráðherra sést ekki fyrir í ákafanum að gera eitthvað og forðast að fara troðnar slóðir í þeirri von að marka ný og merk spor. Þetta ráðleysi hæstv. ráðh. mun svo leiða til stórhækkaðs verðs á raforku til almennings ef ekki á að koma til stórfellds hallarekstrar á raforkuverunum, svo sem hér á landsvirkjunarsvæðinu. Á sama tíma er dregið úr framkvæmdum við samtengingu landsins í eitt raforkusvæði og endurbyggingu dreifikerfisins, þótt vitað sé að þau verkefni séu brýnust á sviði raforkumála, en úr þeim er dregið vegna þess, að hæstv. raforkumálaráðh. átti ekki hlut að því, að marka þá stefnu, heldur fyrirrennari hans í starfi. Í stað þessa er virkjunarframkvæmdum eins og framkvæmdunum við Kröfluvirkjun hraðað þótt slíkt sé ekki tímabært. En það var fyrsta verk hæstv. ráðh. að fresta byggðalínunni svonefndu þótt búið væri að ganga frá öllum þáttum þeirrar framkvæmdar, m. a. öllum nauðsynlegum pöntunum efnis til línubyggingarinnar. Áformum um uppbyggingu hvers kyns nýiðnaðar og raforkuhitun er enn slegið á frest eða drepið á dreif, en í stað þess ráðist í stóriðjuframkvæmdir á Grundartanga sem fyrri stjórnvöld höfðu horfið frá. Stjórnað er þannig og stýrt af glæframennsku og gjörsamlega litið fram hjá sameiginlegum hagsmunum þjóðarinnar.
Þetta ráðleysi verður Alþ. að stöðva. Í stað þess að skjóta enn á frest nauðsynlegum þjóðhagslegum áformum í raforku- og atvinnumálum þarf að hefjast handa um framkvæmdir. Því fjármagni, sem nú á að ráðstafa til verksmiðjunnar á Grundartanga, á að verja til raflínuframkvæmda og uppbyggingar nýiðnaðar í landinu sem vinnur úr íslenskum hráefnum. Þær tollaívilnanir, sem nú á að veita járnblendiverksmiðjunni, á að veita íslenskum iðnaði sem víða berst í bökkum vegna hárra tolla á innfluttum hráefnum til framleiðslu sinnar. Raforkuna á sem sagt að nota til innlendra þarfa, við uppbyggingu þessa nýiðnaðar og útrýmingu olíunotkunar þar sem því verður við komið.
Fullnýta þarf sem fyrst ónýttan markað fyrir raforkuhitun, en sá markaður nemur hundruðum gwst., og spara þannig milljarða króna í olíukostnað, en árleg olíunotkun þjóðarinnar til húshitunar einnar saman er nú um 130 millj. lítra og kostar á innflutningsverði olíu þessa árs um 21/2 milljarð og verðið til íslensks almennings um 4 milljarða. Útrýmingu olíunotkunarinnar er því mikill gjaldeyrissparnaður samfara, auk þess sem hér er um að ræða brýnt hagsmunamál fyrir það fólk sem býr utan hitaveitusvæðanna, því sannað hefur verið með tilraunum að rafhitun húsa er um 50% ódýrari fyrir húseigendur en olíukynding. Þar sem mögulegt er að nota jarðvarma til upphitunar er sjálfsagt að nota hann. Einnig er sjálfsagt að halda áfram rannsóknum og framkvæmdum við jarðvarmaleit, því víst má telja að finna megi virkjanlegan jarðvarma þar sem ekki er vitað um slíkt nú. Slíkt má þó á engan hátt koma í veg fyrir framkvæmdir við rafhitun húsa því henni má koma fyrir með tvennu móti: Annars vegar raforkuhitun þar sem ólíklegt er talið að jarðvarmi finnist og eins með rafhitun vatns á hitakerfi húsa þar sem líkur eru á að jarðvarmi finnist síðar. Slíkar fjárhæðir eru í húfi fyrir þjóðina í sambandi við þetta mál að engar mótbárur duga. Eins þarf að kanna til hlítar nýtingarmöguleika raforkunnar til fiskimjölsþurrkunar í stað olíu, en þau tæknilegu vandamál, sem þar standa enn í vegi, má með öllum líkindum leysa.
Samhliða þessum framkvæmdum þarf að styrkja innlendan iðnað í landinu, svo sem með tækniaðstoð, markaðsrannsóknum, auknum lánveitingun og niðurfellingu tolla á hráefnum. Gera þarf stórhuga iðnþróunaráætlun um uppbyggingu nýiðnaðar sem hagnýtir innlend hráefni og orku landsins. Á þessu sviði bíða þjóðarinnar, eins og ég gat um áðan, mörg verkefni. Sum þessara nýiðnaðarverkefna má ráðast þegar í vegna þess að nægilegar rannsóknir liggja fyrir um hagkvæmni og rekstur, en önnur þarf að undirbúa frekar. Sem nýiðnaðarverkefni má nefna ýmsa úrvinnslu fiskurgangs til lyfjaframleiðslu, steinefnaiðnað úr vikri, gjalli og perlusteini, einkum til þarfa í byggingariðnaði, en úr þessum efnum má vinna hvers konar þilplötur og einangrunarefni og nota þau í stað innfluttra efna, svo sem plasts og trjávöru. Basalt, sem nóg er til af í landinu, má bræða og móta úr því margvíslegar iðnaðarvörur, svo sem rör og hellur með miklum styrkleika, og breyta þannig grjótinu okkar í dýrar útflutningsvörur. Talin hefur verið heppileg stærð slíkra steiniðjuvera er nýttu um 10–20 mw. sem verður að teljast mikil raforkunotkun hjá einstökum fyrirtækjum á íslenskan mælikvarða.
Nefna mætti vinnslu úr ýmsum sjávarefnum, frekari vinnslu landbúnaðarafurða, að ekki sé minnst á stóreflingu fiskvinnsluiðnaðarins sem fyrir er.
Hvers konar tækja- og vélaiðnaður fyrir undirstöðuatvinnuvegina á líka að eiga mikla þróunarmöguleika sé að honum hlúð, svo sem nýsmíði í járniðnaði fyrir sjávarútveg og fiskvinnslu og margvíslegur raftækjaiðnaður fyrir raforkuver og dreifikerfi raforku.
Sementsframleiðslu þarf að auka, en nú eru flutt til landsins árlega um 40 þús. tonn af sementsgjalli fyrir hundruð millj., en mætti framleiða í landinu. Innlenda áburðarframleiðslu þarf einnig að auka og framleiðslu fóðurköggla til skepnueldis. Og við þessa iðnaðaruppbyggingu alla þarf að hafa í huga að nýta verkkunnáttu og tæknikunnáttu þjóðarinnar, en af henni er nóg til í landinu.
Þessum verkefnum, er ég hef hér stuttlega lýst, á þjóðin að snúa sér að og hafna þeirri stefnu, sem núv. iðnrh. er sérstakur áhugamaður um, þ. e. a. s. stórfelldri erlendri stóriðju. Markmið hinna erlendu stóriðjuspekúlanta hafa komið skýrt fram í áætlunum um Integral sem svissneski álhringurinn Alusuisse hefur haft forgöngu um að gera, en í henni er ekki einungis lagt til að erlendir aðilar komi hér upp álbræðslum, heldur gerist þeir aðilar að virkjunarrannsóknum og síðar byggingu orkuvera í landinu. Full ástæða er því til að ætla að stjórnvöld séu nú að endurvekja hin fyrri áform um erlenda stóriðju og þá sérstaklega áliðnað í samvinnu við Alusuisse, — áform sem sett voru fram fyrst á viðreisnarárunum, en náðu þá ekki framgangi nema að litlu leyti vegna mikillar andstöðu landsmanna.
Nauðsyn er á því að þjóðin geri sér grein fyrir þeirri hættu, sem hér er á ferðinni, og dragi lærdóm af þeirri reynslu sem fengist hefur af álverinu í Straumsvík. En það er staðreynd, þótt því sé andmælt af hálfu þeirra er boða erlenda stóriðju, að orkusölusamningarnir við álverið eru einn svívirðilegasti skattpíningarsamningur sem íslensk stjórnvöld hafa gert fyrr og síðar.
Með nál., er ég hef lagt fram í máli þessu, fylgir tafla um orkusölu Landsvirkjunar, og kemur þar fram hver áhrif orkusalan til ÍSALs hefur haft á verðlagningu raforku á landsvirkjunarsvæðinu. Sýnir tafla þessi að þegar stórfellt tap verður á rekstri Landsvirkjunar vegna gífurlegrar rýrnunar á greiðslu ÍSALs til Landsvirkjunar, þá tekur söluverðmæti fyrirtækisins að fylgja verðlagningu í landinu. Fyrirtækið Landsvirkjun á ekki annarra kosta völ en að setja auknar byrðar á innlenda viðskiptamenn sína til að standa undir framleiðslukostnaði sínum. Þessi þróun sést best er borið er saman orkuverð til ÍSALs annars vegar og annarra kaupenda raforku hins vegar. Þannig er orkuverð til ÍSALs 1969 eða í upphafi 68% af orkuverði til annarra kaupenda, en þetta hlutfall fellur síðan niður í 24% 1975. Á því ári kaupir ÍSAL raforku af Landsvirkjun fyrir 490 millj., sem er greiðsla á 1027 gwst., en aðrir kaupendur greiða þá Landsvirkjun 1 milljarð 547 millj. fyrir 787 gwst. 1976 eru gerðar nokkrar lagfæringar á orkuverðinu með nýum samningi, en þrátt fyrir þá leiðréttingu er orkuverðið til ÍSALs á því ári, 1976, ekki nema 32% af orkuverðinu til annarra kaupenda. Ljóst er að miðað við sömu þróun á álverði og verið hefur undanfarin 15 ár mun hlutdeild ÍSALs haldast óbreytt þrátt fyrir verðbótaákvæði hins nýja orkusölusamnings.
Áhrif raforkusölunnar til ÍSALs á orkubúskap íslendinga eru geigvænleg, eins og þetta sýnir, þegar borið er saman orkuverð til auðhringsins og þær miklu fjárfestingar og skuldbindingar sem þjóðin hefur tekið á sig í þessu sambandi, svo sem við uppbyggingu rafveitukerfisins. Þannig kemur fram í upplýsingum frá Sambandi ísl. rafveitna um orkusölu til notenda árið 1975, að heildarsöluverðmæti raforkunnar það ár hafi verið 6 milljarðar 659 millj., þar af greiddi ÍSAL 490 millj. eða 7,4% af heildarsöluverðmætinu.
Þrátt fyrir þessar staðreyndir, sem hér eru rifjaðar upp nú og áður hafa oft verið fram settar, halda menn áfram, eins og hv. þm. Ingólfur Jónsson, að tíunda ágæti álsamningsins, og virðist ekki vera hægt að rökræða þessa hluti við hann. Ég vil segja að víti séu til að varast þau, og samningarnir við ÍSAL eru víti til varnaðar. Ég tel því að þjóð okkar og Alþ. standi hér frammi fyrir raunverulegum valkostum: annars vegar nýtingu raforkunnar til innlendra þarfa til að fullnægja efnahagslegum og félagslegum kröfum fólksins í landinu og svo hins vegar nýtingu raforkunnar í samvinnu við útlendinga við mjög áhættusama framleiðslu sem byggist á erlendum aðföngum. En ég hef haldið því fram að raforkusalan til járnblendiverksmiðjunnar kunni að leiða til orkuskorts og um leið aðgerðaleysis af hálfu stjórnvalda til aukinnar innlendrar orkunýtingar.
Þegar ég segi að stefni í orkuskort hef ég í huga að landið verði tengt í eitt rafveitusvæði, svo sem ákveðið hefur verið, með þeim stofnlínum sem til þess þurfa að koma. Fram hefur komið hjá raforkuyfirvöldum að tæknilega væri hægt að koma þessum línum upp á næstu 3 árum, þ. e. a. s. Austurlínunni svonefndu 1978 og Vestfjarðalínunni 1979, ef fé væri veitt til þessara verkefna. En með þessum línum skapast möguleikar á því að veita umframorku af einu svæði til annars, frá svæðum, sem hafa umframorku, til landshluta, sem búa við orkuskort, svo sem til Vestfjarða, Norðurlands og Austfjarða, og jafnframt að hætta dísilkeyrslu á þessum svæðum til raforkuframleiðslu. Þessar framkvæmdir eru vitaskuld dýrar, eins og komið hefur fram, en þó ódýrar í samanburði við það ráðleysi og bruðl sem núverandi ástand þessara mála býður.
Í nýjustu orkuspám, þar sem gert er ráð fyrir slíkri samtengingu kerfisins, kemur glöggt fram að hin mikla sala á raforku til járnblendiverksmiðjunnar getur leitt til orkuskorts áður en næsta virkjun kemur í gagníð. Er þó í þeirri spá ekki gert ráð fyrir neinum stórátökum í atvinnumálum, eins og gera þyrfti, eða sérstökum nýiðnaðargreinum er nota mikla raforku.
Sérstakt áhyggjuefni hlýtur þetta að veranú þegar mikil óvissa ríkir um framkvæmdirnar við Kröfluvirkjun. Þótt vonast sé til að sá vandi, sem þar er við að fast, reynist yfirstíganlegur, er það algjört ábyrgðarleysi í allri áætlanagerð og orkuspám að gera ráð fyrir að Kröfluvirkjun geti hafið fulla raforkuframleiðslu næstu árin.
Í grg. frá Orkustofnun, sem iðnn. hefur borist, kemur fram að í slíku samtengdu kerfi verði orðinn afl- og orkuskortur þegar 1978 sé ekki gert ráð fyrir neinni framleiðslu frá Kröfluvirkjun, en sé gert ráð fyrir hálfri framleiðslu hennar verður kominn aflskortur 1979 og orkuskortur 1980. Ég held að það megi bæta við að það sé mjög óvarlegt að gera ráð fyrir þó ekki sé nema hálfri framleiðslu hennar á þessu tímabili.
Í þessari grg. Orkustofnunar kemur fram, að kæmi ekki til sala á forgangsorku til járnblendiverksmiðjunnar færist fullnýtingarmörk afls og orku aftur um tvö ár. Samtenging landshlutanna, þetta brýnasta verkefni okkar í raforkumálum, er beinlínis forsenda þess að hægt sé að auka raforkunotkunina til innlendra þarfa.
Raforkumarkaðurinn er til, en hann er vannýttur vegna þess skipulagsleysis sem raforkumál landsins hafa verið í og eru í, en það var fyrst í tíð fyrrv. ríkisstj. sem hafist var handa á þessu sviði.
Um ástand raflínukerfisins eða dreifikerfisins segir orkumálastjóri í áður tilvitnaðri grg., og vitna ég orðrétt til ummæla hans:
„Við vitum að Sigalda ein sér verður ekki í reynd fullnýtt að orku 1978. En mikilvægt er að gera sér grein fyrir því, að ástæðan til þess er ekki sú, að orkuþörfin sé ekki fyrir hendi, heldur sú, að flutnings- og dreifikerfi landsins er ekki í stakk búið til að koma orkunni, sem ekki nýtist frá Sigöldu, til þeirra notenda sem þurfa á henni að halda. Það ríkir m. ö. o. offramboð af orku í einum hluta landsins samtímis orkuskorti í öðrum hlutum þess“.
Þetta var tilvitnun í bréf orkumálastjóra. Orkuþörfin er því til staðar, eins og ég gat um áðan, um það geta menn ekki deilt. Vil ég í því sambandi vekja athygli á að verkfræðideild Landsvirkjunar hefur tilkynnt iðnn. að orkusalan til járnblendiverksmiðjunnar, miðað við 488 gwst., nemi um 630 millj. á ári fyrst í stað, en það samsvarar um það bil sölu á 200 gwst. af forgangsorku á almennan markað eða til rafveitnanna, og þessi markaður er til staðar. Væri þessi seinni kostur tekinn væri tekjutap Landsvirkjunar vegna járnblendiverksmiðjunnar bætt, auk þess sem óráðstafað væri þá um 288 gwst. sem selja mætti við vægu verði til innlendra neytenda sem hagnýtt gætu slíka orku.
Þær aðstæður, sem ég hef hér nú lýst, eru slíkar að með engu móti er hægt að rökstyðja raforkusölu til járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga, og fráleitara reyndar þegar haft er í huga að raforkuna á að selja undir framleiðslukostnaðarverði orkunnar frá Sigöldu, miðað við 10% vexti og 40 ára afskriftartíma. Og ég vil taka það fram, að í þessum útreikningum er ekki heldur tekið tillit til byggingarkostnaðar Hrauneyjafossvirkjunar, svo sem rétt væri að gera.
En verð forgangsorku samkvæmt þessu frv. er ætlað að verði 202 aurar á kwst. fram til ársins 1982, en verð afgangsorku 51 eyrir á kwst. og meðalverð því kr. 1.26 á sama tíma og verð raforku til landsmanna er að meðaltali miklu hærra. Hins vegar ber á það að líta, að þótt verð á forgangsorku sé 202 aurar á kwst. eða 95% af gjaldskráðu verði Landsvirkjunar frá og með áramótunum 1976–1977 verður fyrst og fremst að styðjast við meðalverðið kr. 1.26 á kwst., því vegna hinna ströngu afhendingarskilmála er ráð rangtúlkun að tala um afgangsorku í sambandi við afhendingu raforku til verksmiðjunnar á Grundartanga. En í samningunum um raforkusöluna þangað eru eftirfarandi ákvæði um sölu afgangsorku auk verðákvæðanna:
Ákvæði 5.1: Mesta sala 306 gwst. á ári. Ákvæði 5.2: Meðalsala 244 gwst. á ári á samningstímabilinu. Ákvæði 5.3: Minnsta sala á einu ári 153 gwst. Ákvæði 5.4: Minnsta sala á samfelldu fjögurra ára tímabili 183,5 gwst. á ári.
Þessi ströngu skilyrði, er ég hef hér lesið upp, gefa mjög lítið svigrúm í orkuafhendingu og er því alrangt að tala um ótryggða orku í þessu sambandi eða afgangsorku. Til þess að skjóta rökum undir þennan málflutning minn vil ég vitna til orða orkumálastjóra í grg. þeirri frá Orkustofnun er ég vitnaði til áðan. Þar segir: „að miðað við verðlagningu orkunnar sýnast þessi ákvæði tæplega eiga hér heima. Hér er gerð gæðakrafa sem varla er í samræmi við verð vörunnar. Ákvæði 5.2 á Landsvirkjun út af fyrir sig að geta uppfyllt án vandkvæða og án þess að takmarka verulega sölu á afgangsorku til annarra notenda. eðlilegt er hins vegar að notandi, sem ekki greiðir hærra verð, geti gert slíka gæðakröfu. Ákvæði 5.3 og 5.4 geta hugsanlega leitt til þess, ef þeim er strangt framfylgt, að aðrir kaupendur afgangsorku frá Landsvirkjun verði að sætta sig við meiri sveiflur í orkuafhendingu milli árstíða og milli ára en járnblendiverksmiðjan þarf að gera, enda þótt ákvæðin hafi ekki áhrif á meðaltal orkuafhendingar yfir lengra tíma. Meiri sveiflur í afhendingu má líta á sem rýrnun á gæðum hinnar seldu vöru.“ Og síðar segir í þessari sömu grg.: „Æskilegt væri að losna alveg við ákvæðin 5.2–5.4, enda eru þau ekki í samræmi við verðlagningu afgangsorkunnar.“ Lýkur þar með tilvitnun um þetta atriði í bréf orkumálastjóra og Orkustofnunar.
En ég vil segja, að það verður að taka fullt mark á þessum orðum og viðurkenna það, að umrædd skilyrði eru svo ströng að skilgreiningin afgangsorka á hér ekki við. Tímabundið getur þetta verið rétt, en í samningum um orkuafhendingu til næstu 20 ára við aðstæður, sem enginn sér fyrir, getur þetta ekki staðist.
Ég vil svo bæta því við í sambandi við þennan raforkusölusamning, að þótt fallist sé á þær forsendur verðlagningar, sem þar er gert ráð fyrir til verksmiðjunnar á Grundartanga, og þar með þá skilgreiningu, sem Landsvirkjun hefur sett fram í sambandi við orkuafhendinguna og orkusöluna yfirleitt, þrátt fyrir það og séu þessi mál skoðuð frá því sjónarhorni, þá kemur í ljós að hreinn hagnaður Landsvirkjunar af þessari orkusölu er að mati Landsvirkjunar á 20 ára tímabili einungis 2 milljarðar eða 100 millj. kr. á ári, og er þá í öllu fylgt þeirra skilgreiningu. Ég tel því, þegar litið er til hinna fjölmörgu nýtingarþarfa raforkunnar fyrir fólkið í landinu, sem ég hef vakið athygli á fyrr í ræðu minni, að það sé ráðleysi að ráðstafa raforkunni eins og samningurinn gerir ráð fyrir, þrátt fyrir það að fyrirtækið sé að meiri hl. í eign íslendinga og þrátt fyrir það að nokkur trygging sé fyrir því að verið fáist bætt með þeim verðbótasamningum sem gert er ráð fyrir í samningnum. Íslenska þjóðin hefur einfaldlega ekki efni á því að ráðstafa orku sinni með þessum hætti.
Ég ætla þá að þessu sinni ekki að hafa fleiri orð um þennan þátt málsins, þ. e. a. s. raforkusöluna og nýtingu raforkunnar við okkar íslensku aðstæður, og vitna þar til minnar fyrri ræðu. Þar fjallaði ég nokkuð um þetta, eins og þm. e. t. v. muna. Og ætla ég þá að víkja aðeins á eftir að rekstrarafkomu þessa fyrirtækis. Það skiptir vitaskuld miklu máli hvernig að þeim málum er staðið.
Ég vil segja að það er mikil ástæða til þess að efast um arðsemi járnblendiverksmiðjunnar, sem stafar af því hve verð á kísiljárni er það verði stáls, en stálframleiðslan á nú í miklum erfiðleikum bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu, en það er á Evrópumarkaðinn sem selja á framleiðslu verksmiðjunnar. Þannig hefur verð á stáli lækkað um 151/2% á s. l. ári eða úr 348 dollurum í 294. Þessu ástandi stálmarkaðarins er nokkuð lýst í fjármálaritinu Economist 12. febr. s. l., en þar segir að stálframleiðsla í Evrópu og í Bandaríkjunum eigi nú í vaxandi erfiðleikum vegna aukinna umsvifa, einkum japana og reyndar annarra landa, svo sem þriðja heims landanna. Samkv. greininni stafar framleiðsluaukning japana m. a. af því, að tækni þeirra við stálframleiðslu hefur þróast mjög ört, sem sest á því að fyrir 20 árum voru japanir 69 stundir að framleiða hvert tonn af stáli, en eru í dag tæpar 9 stundir að því. á sama tímabili, 20 ara tímabili, hafa evrópumenn alls aukið afköst sín í stáliðnaðinum úr 36 stundum á tonn í 15–25 stundir og bandaríkjamenn úr 15 stundum í 11. Fyrir um 20 árum framleiddu japanir 9.4 megatonn af stáli af um 270 megatonna heimsframleiðslu, en framleiða nú 119 megatonn af 680 megatonna heimsframleiðslu, og hefur hlutdeild þeirra aukist úr 31/2% í 171/2% á þessu umrædda tímabili. Ýmis lönd þriðja heimsins hafa líka rutt sér til rúms í stáliðnaðinum, svo sem Brasilía, Venesúela, Íran, Egyptaland og fleiri lönd, en gert er ráð fyrir að þessi lönd ráði yfir um 10% af stálframleiðslunni strax 1980, til samanburðar við framleiðslu þeirra 1964 sem var um 1% heimsframleiðslunnar.
Erfiðleikar stálvinnslunnar í Evrópu eru afleiðing þessarar þróunar m. a., og verður ekki annað séð en þetta erfiðleikatímabil sé varanlegt, en stálvinnsluver í Evrópu eru nú rekin langt undir fullum afköstum, í Þýskalandi t. d. á um 60% af afkastagetu, og fjölmörg fyrirtæki í Frakklandi, Belgíu, Bretlandi og víðar búast við gjaldþroti. Segir í áðurnefndri grein, að hugmyndir séu uppi um þjóðnýtingu þessarar framleiðslu víða í Evrópu og væntanlegar séu aðgerðir í tollamálum til að reyna að verja þessa framleiðslu frekari aföllum.
Svipaðar greinar um ástand stálmarkaðarins má finna í ýmsum öðrum erlendum blöðum. Þannig kemur fram t. d. í grein í blaðinu Le monde diplomatique frá því í des. s.l., að stálmarkaðurinn í Efnahagsbandalagslöndunum eigi í miklum erfiðleikum og af þeim sökum hafi 25 þús. manns misst vinnu sína við þennan iðnað í EBE-löndunum einum saman á tímabilinu frá því í júlí 1975 þar til í júní 1976. Og í Metal Bulletin segir að lagerpláss kísiljárnframleiðenda í Noregi séu orðin full eða að fyllast vegna lélegrar markaðsþróunar kísiljárns.
Það er rétt að vekja athygli á þessu ástandi stálmarkaðarins, sérstaklega vegna þess að það er stefnt að því í sambandi við framleiðslu verksmiðjunnar á Grundartanga að selja á þennan markað. Þegar fer megnið af sölu Fesils, sölusambandsins sem kemur til með að selja framleiðslu Grundartangaverksmiðjunnar, á þennan Evrópumarkað, um það bil 70% af sölu þess, og afgangur framleiðslunnar fer síðan til Japans. Og það, sem kannske gerir málið enn stærra, er það að áætlanir eru um það hjá Elkem og Fesil að 1985 muni 90% af sölunni fara til þessara Evrópulanda eða 320 þús. tonn, en aðeins 30 þús. tonn á Japansmarkaðinum.
Það er spurning hvort það hafi e. t. v. verið þessar ástæður stálmarkaðarins í Evrópu sem urðu þess valdandi, að Union Carbide kaus að draga sig út úr samvinnunni við íslendinga um byggingu verksmiðjunnar og greiða 850 millj. í skaðabætur til íslenska ríkisins til þess að vera laust allra mála.
Um þátt Union Carbide í þessu máli segir í frv., þar sem gerð er grein fyrir aðdraganda málsins, og les ég það orðrétt:
„Í okt. 1975 var gert hlé á viðræðum um lánsfjármálin, jafnframt því sem fulltrúar Union Carbide létu í ljós um þær mundir verulegar áhyggjur yfir framvindumöguleikum fyrirtækisins í náinni framtíð. Á árinu 1975 varð verulegur samdráttur á markaði fyrir kísiljárn, og töldu fulltrúarnir hugsanlegt að vöxtur eftirspurnar yrði hægari en fyrr hafði verið ætlað, jafnframt því sem fjölgun eða endurnýjun kísiljárnverksmiðja gæti orðið meiri næstu árin en fyrri kannanir hefðu bent til. Einnig töldu þeir líkur á hækkandi byggingarkostnaði. Með hliðsjón af þessu var tekin um það sameiginleg ákvörðun á stjórnarfundi í Járnblendifélaginu í nóv. 1975 að takmarka frekari fjárskuldbindingar félagsins þar til búið væri að endurskoða áætlanir um stofn- og rekstrarkostnað félagsins og gera nýja markaðsathugun. var og ákveðið að fresta framkvæmdum við bygginguna að svo stöddu og neyta heimilda til þess í gerðum verksamningum.
Snemma árs 1976 lágu fyrir ýmsar niðurstöður af þeim athugunum sem stjórnin hafði ákveðið, og töldu fulltrúar Union Carbide þær staðfesta áhyggjur sínar fremur en hitt. Kváðust þeir reiðubúnir til að standa við allar skuldbindingar sínar samkv. gerðum samningi, en hins vegar væri útlit fyrir að ekki mundi takast að koma verksmiðjunni upp án frekari skuldbindinga af hálfu beggja aðila. Teldu þeir vafasamt að ganga til slíks vegna þess, að líkur væru til lakari afkomu fyrirtækisins en við hefði verið búist, og kæmi allt eins til greina að leggja það á hilluna að svo stöddu.
Það er rétt að það komi fram hér, að ég hef óskað eftir því á Alþingi án árangurs að fá afhentar allar þær upplýsingar sem um getur í ofangreindri tilvitnun svo sem þær nýju markaðsathuganir sem gerðar voru og staðfestu áhyggjur Union Carbide um óhagkvæmni verksmiðjunnar. Ég hef bæði óskað eftir þessum gögnum í iðnn. Nd. og einnig hér við 1. umr. málsins beinlínis af iðnrh.
Ég sé nú, að iðnrh. hefur farið úr salnum, hefur ekki haft þolinmæði til að hlusta á þessa ræðu, og ég óska eftir því við forseta að hann verði beðinn um að koma hér í salinn, m. a. til þess að hlusta á þessa ósk mína, og ætla ég að bíða með frekari málflutning þar til hann hefur komið hér inn í salinn. — Já, ég sé að iðnrh. er kominn aftur í salinn þannig að ég get haldið áfram málflutningi mínum.
Ég var kominn þar í ræðu minni sem ég gat um það, að ég hefði ítrekað óskað eftir því að fá þær áætlanir, m. a. um nýjar markaðsathuganir, sem stjórn Járnblendifélagsins í samvinnu við Union Carbide lét gera á sínum tíma, en þessar áætlanir staðfestu áhyggjur hinna bandarísku aðila um óhagkvæmni verksmiðjunnar uppi á Grundartanga og þess vegna vekur það mikla furðu að þessi plögg skuli ekki fást afhent. Ég óska eftir því og ítreka þá ósk mína við iðnrh. að þessi plögg verði dregin fram í dagsljósið.
Af þeim upplýsingum um markaðsmál, sem ég hef hér lesið, má ráða að útlit sé fyrir að verð á kísiljárni verði lágt á næstu árum, en mikið verðfall varð á þessari vöru á árinu 1976, eins og þegar hefur komið fram. Og í viðræðum Við iðnn. Nd. hefur Jón Sigurðsson forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar sagt, að miðað við verðlag ársins 1976 hefði járnblendiverksmiðjan ekki borið sig, og undirstrikar þá staðreynd að fyrirtækið er áhættufyrirtæki. Að minni ósk hefur Þjóðhagsstofnun reiknað út arðsemi verksmiðjunnar miðað við rekstur á árinu 1976 og læt ég þá útreikninga fylgja nál., sem lagt hefur verið fram, sem fskj., en niðurstöður þeirra átreikninga eru þær, að miðað við verðlag á kísiljárni á því ári og áætlaðan rekstrarkostnað verksmiðjunnar hefði beint tap á rekstrinum orðið á því ári 22 millj. norskra kr. eða um 800 millj. ísl. kr.
Arðsemisáætlun sú, sem hins vegar er stuðst við í samningnum um Verksmiðjuna, er byggð á spám Elkems um verðlagningu kísiljárnsverðs 1978, og er full ástæða til þess að draga frá arðsemisáætlun og þær verðlagsforsendur, sem hún miðar við, mjög í efa þegar litið er til fenginnar reynslu og þeirrar markaðsþróunar sem spáð er í stáliðnaði. Og þó að Þjóðhagsstofnun gefi upp tiltölulega jákvætt álit á arðsemisútreikningum verksmiðjunnar vil ég vekja athygli á því, að hún gerði það líka með bréfi dags. 10. mars 1915 er málið var þá til afgreiðslu hér á Alþ. Þá taldi Þjóðhagsstofnunin eftir þeim upplýsingum, er hún hafði tiltækar og voru einkum frá Elkem, að markaðsþróun kísiljárnsverðs yrði hægfara, en þó jákvæð og upp á við, einkum vegna vaxandi eftirspurnar. Þrátt fyrir þetta gerist það nokkrum mánuðum síðar en bréfið er skrifað, eða strax í ársbyrjun 1976, að verðlag á kísiljárni snarfellur með þeim afleiðingum, er ég hef hér bent á. Þannig held ég að það sé full ástæða til þess að taka athugun Þóðhagsstofnunar á þessu máli með miklum fyrirvara, sérstaklega vegna þess að það er ljóst af öllum upplýsingum þessa máls, að Þjóðhagsstofnun hefur ekki þá möguleika sem virðist þurfa til þess að kanna rétta mál sjálfstætt, en byggir athuganir sínar og umsagnir á upplýsingum þeirra erlendu aðila sem verið er að semja við.
En það er ekki nóg með að rekstraráætlanir járnblendiverksmiðjunnar séu byggðar á loftköstulum hvað varðar sölu á afurðum hennar. Hráefnakostnaður er greinilega mjög vanreiknaður. Þannig er það deginum ljósara, að jafnvel þótt við tækjum mark á spám Elkems um skilaverð kísiljárns, en gengjum út frá réttum hráefnakostnaði, blasir eigi að síður við stórkostlegur halli á rekstri verksmiðjunnar, og vil ég nú rökstyðja þetta nokkru frekar máli mínu til stuðnings.
Í rekstraryfirliti, sem Þjóðhagsstofnun hefur gert á grundvelli verðlagsins 1976, er hráefnakostnaður 43% af sölutekjum og lætur nærri að það sé meðaltalshlutfall hráefnakostnaðar ef litið er aftur til langs tímabils í þessum iðnaði. Í rekstraryfirliti, sem hins vegar er gert fyrir árið 1985 miðað við verðlag ársins 1978 og Járnblendifélagið vill nota sem mælikvarða á arðsemi verksmiðjunnar, enda byggt á spám Elkems, er hráefnakostnaður hins vegar einungis 34% af sölutekjum. Verður að telja að hér sé mjög óvarlega áætlað um hráefnakostnað, og meðan engin rök eru færð fyrir slíkum útreikningum verður að álykta að hér sé með reikningskúnstum.
Verið að búa til æskilegan rekstrargrundvöll fyrir verksmiðjuna, einkum þar sem vitað er að verð á hráefnum hefur undanfarin ár hækkað heldur meira en markaðsverð kísiljárns og almennt er því spáð að hráefnaverð muni hækka hlutfallslega meira en fullunnar vörur. Þannig er það skoðun vistfræðinga að verð á óendurnýjanlegum auðlindum muni fara sífellt hækkandi, auk þess sem vaxandi kröfur þriðja heims ríkjanna, hráefnislandanna svonefndu, um sjálfsagða efnahagslega endurreisn í kjölfar stjórnarfarslegs sjálfstæðis þeirra muni leiða til hækkandi verðs á slíkum hráefnum.
Áætlun þessi er því villandi og röng og furða ég mig á því, að Þjóðhagsstofnun skuli ekki gera athugasemdir við þennan þátt hennar, en í umsögn Þjóðhagsstofnunar, þar sem fjallað er um áætlaðan hráefnakostnað, segir orðrétt: „Hvað hráefnis- og vinnulaunakostnað áhrærir er þessi áætlun reist á raunverulegum kostnaðartölum einnar verksmiðju, Elkem í Noregi, og tiltölulega vel þekktum einingarverðum á helstu hráefnisliðum, þ. e. a. s. kvartsi, kolum og koksi.“
Þannig er þessi umsögn. En hefði ekki verið ástæða til þess í svo stóru máli að gera vísindalegri athuganir og kanna t. d. vísitölur í Noregi yfir þessi væntanlegu hráefni járnblendiverksmiðjunnar, frekar en að taka gildar tölur frá Elkem um rekstur einnar verksmiðju þar? En staðreynd er, ef heildsöluvísitölur þessara hráefna í Noregi eru skoðaðar, að hráefnaverð er hér áætlað allt of lagt, eins og fyrr sagði. Í stað þess að áætla hráefnakostnaðinn 34% af sölutekjum væri nær að áætla hann 44% af sölutekjum, en hlutfallið 44% hefði orðið meðaltal hráefniskostnaðar kísiljárnverksmiðju eins og járnblendiverksmiðjunnar í hlutfalli af sölutekjum ef miðað er við verðlag aranna 1971–1976.
Ef við leiðréttum nú þessar augljósu reikningsskekkjur þeirra, sem akafast tala fyrir verksmiðjunni á Grundartanga, og göngum út frá eðlilegum hráefniskostnaði, hver verður þá arðsemi verksmiðjunnar? Lítum yfir rekstraryfirlitið, sem byggt er á rekstri árið 1985 og verðlagi ársins 1978, áætlunina sem Járnblendifélagið vill nota sem mælikvarða á arðsemi verksmiðjunnar. Þessi áætlun gerir ráð fyrir 7 millj. norskra kr. í hagnað. Ef hráefniskostnaðurinn er leiðréttur til þess sem eðlilegast hlýtur að teljast miðað við reynslu síðustu 6 ára, þá er hagnaðurinn horfinn og niðurstaða rekstraryfirlits er orðin neikvæð um 10 millj. norskra kr. eða um það bil 360 millj. ísl. kr. Til þess að þetta glæfrafyrirtæki á Grundartanga geti borið sig og komið út með hallalausan rekstur miðað við söluverðsforsendur Járnblendifélagsins og Elkems má verð á hráefnum ekki vera hærra en 38% sem hlutfall af sölutekjum eða 6% lægra en meðaltal síðustu 6 ára.
Allt er því gert til þess að gera þetta fyrirtæki girnilegt í augum íslendinga. Gerðar eru spár um stórhækkað söluverð á kísiljárni þrátt fyrir svart útlit í markaðsmálum og útreikningarnir síðan kórónaðir með því að lækka hráefniskostnað stórlega frá því sem eðlilegt getur talist í slíkum iðnaði. Reikningskúnstir sem þessar geta menn viðhaft séu þeir að leika sér, en ekki ef þeir vilja í alvöru láta taka mark á sér.
Með nál. mínu í þessu máli fylgja töflur yfir þróun norskrar heildsöluvísitölu yfir kol og koks, járn og málma ásamt töflu, er sýnir hreyfingu á markaðverði kísiljárns, til þess að undirstrika þennan málflutning minn. Ég læt einnig fylgja þar töflu er sýnir hlutdeild hráefniskostnaðar í framleiðslu hugsanlegrar járnblendiverksmiðju miðað við verðlag á árunum 1971–1976. En niðurstaða mín er sú, hvað viðkemur arðsemi þessa fyrirtækis, eins og ég gat um áðan, að þetta sé áhættusamt glæfrafyrirtæki eins og ástandi mála á markaðnum er nú háttað, og áhætta okkar íslendinga er vitaskuld alt önnur og miklu meiri en hins norska aðila því hann hefur þegar margvíslegra hagsmuna að gæta á kísiljárnsmarkaðnum. Hann er knúinn til þess vegna baráttu sinnar um yfirráðin á Evrópumarkaðnum að halda framleiðslu sinni áfram og reisa nýjar verksmiðjur í stað þeirra gömlu sem gengið hafa úr sér, auk þess sem hann tekur gróðann af sölu tækniþekkingar, af sölu tæknibúnaðar og bræðsluofna og sölu á hráefnum sem ætlunin er að kaupa í Norður-Noregi þar sem Elkem á námur. Einnig ber að hafa það í huga að Elkem er eignaraðili í stáliðjuverum í Evrópu og hefur þannig margslunginna hagsmuna að gæta.
Og ætla ég þá að hverfa frá þessari arðsemisathugun allri saman og víkja að öðrum þætti þessa máls sem eru mengunarmálin. Ég gat þess við 1. umr. málsins að full ástæða væri til að kanna hvaða áhrif hinn sérstaki tæknisamningur Járnblendifélagsins við tæknideild Elkems kynni að hafa, svo sem við val hreinsitækja. Nú hefur það verið staðfest að tæknideild Elkem, sem fær einokunaraðstöðu við val og smíði ýmiss tæknibúnaðar, m. a. hreinsitækja, telur sig ekki geta smíðað hreinsitæki sem hreinsi meira en 95% af útblæstri verksmiðjunnar og hún hefur ekki yfir að ráða þeirri tæknikunnáttu sem gerir kleift að endurvinna úrgang verksmiðjunnar. Union Carbide, sem upphaflega var rætt við um samstarf við byggingu verksmiðjunnar, hafði hins vegar yfir að ráða tækni til þess að hreinsa útblásturinn um 99% og tækni til að endurvinna úrgang verksmiðjunnar. Allar umr. um mengunarþátt Verksmiðjunnar og veitingu starfsleyfis í upphafi voru því miðaðar við tæknikunnáttu hins bandaríska aðila, en með tilkomu Elkems má segja, að viðhorfin hafi mikið breyst og séu allt önnur. Um þennan þátt málsins segir í skýrslu Heilbrigðiseftirlits ríkisins, sem fylgir umsögn þeirra um gerð starfsleyfis, með leyfi forseta:
„Á fyrri hluta ársins 1975 fjallaði Heilbrigðiseftirlit ríkisins um starfsleyfisumsókn fyrir hlið stæða verksmiðju er byggð skyldi og rekin í samvinnu við bandaríska fyrirtækið Union Carbide. Niðurstaða Heilbrigðiseftirlits ríkisins varð þá sú, að unnt væi að reisa slíka verksmiðju án þess að fyrirsjáanlegt væi, að rekstur hennar hefði í för með sér verulega mengun umhverfis, og á þann hátt, að heilbrigði og öryggi starfsfólksins væri nægjanlega tryggt. Forsendur þessarar niðurstöðu voru þær, að beitt yrði nýjustu og fullkomnustu tækni til varnar mengunar á ytra jafnt sem innra umhverfi og að til grundvallar starfsleyfis yrðu lagðir staðlar bandarísku umhverfismálastofnunarinnar EPA fyrir hreinsun útblásturslofts sem lagðir höfðu verið fram í tillöguformi haustið 1974 og almennt var álitið að lögfestir yrðu þar í landi. Upplýsingar þær sem fylgdu áðurnefndri starfsleyfisumsókn Íslenska járnblendifélagsins, dags. 7. sept. 1976, leiddu hins vegar í ljós ýmsar breytingar frá þeim áætlunum, sem gerðar voru í samvinnu við bandaríska fyrirtækið. Tók Heilbrigðiseftirlit ríkisins þá afstöðu, að við afgreiðslu umsóknarinnar væri nauðsynlegt að vinna málið frá grunni á ný, m. a. af eftirtöldum ástæðum:
1. Framleiðslutækni norska fyrirtækisins er að nokkru leyti frábrugðin þeirri framleiðslutækni Union Garbide sem áður var lögð til grundvallar.
2. Á þeim tíma, sem liðinn er frá afgreiðslu fyrri till., hefur ýmislegt gerst í umhverfismálefnum slíkra verksmiðja í helstu framleiðslulöndum, m. a. hafa verið settar nýjar reglur um megunarvarnir og fram hafa komið margþættar kröfur um bættar aðstæður á vinnustað.
3. Í umsókn fyrirtækisins er eindregið óskað eftir því, að starfsleyfi verksmiðjunnar byggi á reglum norskra yfirvalda um mengunarvarnir við slíkar verksmiðjur þar í landi sem nýlega hafa verið settar. Reglur þessar eru að verulegu leyti frábrugðnar áðurnefndum till. bandarísku umhverfisverndunarstofnunarinnar og gera ekki jafnstrangar kröfur til hreinsunar rykmengaðs útblásturslofts frá slíkum verksmiðjum.“
En það var vegna þessarar kröfu, sem hér er lýst, um leyfi til verksmiðjunnar til framleiðslu í bilanatilfellum allt að 14 sólarhringa á ári eða um 4% af rekstrartíma hvers árs, sem staðið hefur í þófi nú um nokkurra mánaða skeið að afgreiða starfsleyfi til verksmiðjunnar. Þetta er á allra vitorði sem fylgst hafa með gangi málsins, og niðurstaðan liggur nú fyrir. Till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins hefur í ýmsum atriðum verið hafnað og kröfum Járnblendifélagsins og Elkems fullnægt með ómarkvissu orðalagi um rekstur í ýmsum atriðum.
Ég gat þess í nál. mínu að ekki hefði gefist tími til þess, áður en því var skilað til prentunar, að kanna rækilega hvernig till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins hefðu verið meðhöndlaðar af rn. En vegna þess að veittur var frestur á umr. málsins hér í d. hef ég haft tækifæri til að bera till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins í einstökum atriðum saman við endanlega gerð starfsleyfis, og því miður verður það að segjast hér, að í mörgum atriðum hefur verið dregið úr þeim skilyrðum, sem Heilbrigðiseftirlit ríkisins setti fram, og ég tel mér skylt að greina frá þessum veigamestu breyt. Hér í d., einkum eftir að hæstv heilbrrh. hefur ranglega skýrt Alþ. frá því að till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins hafi einungis verið breytt í tveimur atriðum. Aðrar breyt. hafi fyrst og fremst verið önnur uppröðun og framsetning tillagnanna.
Veigamestu breyt. frá till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins eru þær, að gefið er leyfi fyrir rekstri tveggja ofna nú þegar þrátt fyrir andstöðu Heilbrigðiseftirlits ríkisins, fyrirtækinu er raunverulega leyfður rekstur verksmiðjunnar í bilanatilfellum, mengunarmörkum er breytt og þau eru gerið rýmri í sumum atriðum en almennt þekkist í slíkum iðnaði í öðrum löndum, felldar eru burt eða dregið er úr kröfum um efnagreiningu á hráefnum og úrgangi verksmiðjunnar, sem er ein höfuðforsenda raunhæfs mengunareftirlits, dregið er úr kröfum um hönnun mannvirkja, svo sem reykháfa, millilofta í verksmiðju og innra kælikerfis verksmiðjunnar, felldar eru niður kröfur um sérstakan hreinsibúnað við flutning, mölun og pökkun hráefna og við málmsteypu, en á þessum stöðum í verksmiðjurekstrinum er talin sérstök hætta af rykmengun. Auk þessa er víða dregið almennt úr valdi og rétti Heilbrigðiseftirlits ríkisins til afskipta af framleiðslunni og fyrirkomulagi mengunarvarna, En til glöggvunar alþm. vil ég fara yfir þessar breyt. og bera saman annars vegar till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins og samsvarandi ákvæði í starfsleyfinu, og mun ég í þessum orðum mínum oft vitna orðrétt til þessara till. með leyfi forseta.
Ákvæði 1.1. í starfsleyfinu fjallar um að veitt sé leyfi fyrir framleiðslu í tveimur ofnum í stað eins, en í athugasemdum sínum um ákvæði 1. segir Heilbrigðiseftirlit ríkisins m. a.:
„Mjög ör þróun hefur átt sér stað í gerð búnaðar til mengunarvarna við slíkar verksmiðjur. Enn fremur er í gangi endurskoðun á málefnum slíkra verksmiðja hjá yfirvöldum í nágrannalöndunum. Heilbrigðiseftirlit ríkisins telur því ekki rétt, að fjallað verði um veitingu starfsleyfis fyrir síðari ofninn fyrr en fyrirtækið óskar að hefja byggingu hans“.
Í ákvæði 2.2. í starfsleyfinu, þar sem fjallað er um gerð hreinsibúnaðar, segir:
„Afkastageta búnaðarins og hógvær skipting skal við það miðuð að hreinsihæfni haldist óskert þó eitt hólf sé tekið úr notkun til viðhalds og eftirlits“.
Í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins er hins vegar gert ráð fyrir því að afkastageta og hreinsihæfni haldist óskert þótt tvö hólf séu tekin úr notkun. En í athugasemdum sínum með þessu atriði segir Heilbrigðiseftirlit ríkisins m. a.:
„Pokahús verksmiðjunnar á Grundartanga mun verða af svonefndri yfirþrýstingsgerð. Mun það verða hólfað niður í a. m. k. tólf hólf, og er þess krafist að við hönnum þess verði við það miðað að hreinsigeta haldist óskert þótt lokað sé tveimur hólfum samtímis til viðhalds og eftirlits.“ Og annars staðar, þar sem fjallað er um hönnun slíkra pokahúsa, segir: „Mikilvægt er, að afkastageta pokahúsanna sé nægilega mikil þannig að þau anni öllu loftmagni sem til þeirra berst þótt taka þurfi hólf úr sambandi vegna viðhalds og eftirlits.“
Hér hafa kröfur Heilbrigðiseftirlitsins sem sagt verið skornar niður að hálfu leyti.
Í ákvæði 2.3, í starfsleyfinu segir:
„Áður en til rekstrar verksmiðjunnar kemur skal fyrirtækið gera ætlun um viðhald og eftirlit með tæknibúnaði, varahlutabirgðum, aðgerðir í bilanatilfellum og aðra þætti er varða rekstraröryggi hreinsibúnaðar. Skal hún lögð fyrir Heilbrigðiseftirlit ríkisins til kynningar.“
Hér er gerð sú meginbreyting frá till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins, að umrædda áætlun bar að leggja fram til samþykktar hjá Heilbrigðiseftirliti ríkisins. Og um mikilvægi rekstraröryggis hreinsibúnaðar segir svo í aths. Heilbrigðiseftirlits ríkisins um þetta ákvæði 2.3:
„Reynslan af rekstri hreinsibúnaðar við erlendar verksmiðjur hefur leitt í ljós að rekstraröryggi hreinsibúnaður ræður oft meiru um það heildarrykmagn, sem út í andrúmsloftið er hleypt, en hreinsihæfni búnaðarins sjálfs.“
Um ákvæði 2.5, en í því er fjallað um aðgerðir í bilanatilfellum á hreinsibúnaði, segir í starfsleyfinu:
„Verði af óviðráðanlegum eða ófyrirséðum orsökum ekki unnt að flytja til hreinsibúnaðar allt rykmengað loft sem um ræðir í ákvæðum 2.1, skulu þegar í stað hafnar nauðsynlegar lagfæringar í samræmi við áætlun þá sem gerð skal samkv. ákvæðum 2.3. 2. málslið. Reynist fyrirtækinu ekki unnt að ljúka nauðsynlegum lagfæringum til uppfyllingar ákvæðis 2.1 innan þriggja klukkustunda frá því er umrætt ástand skapaðist, skal bilunin tilkynnt Heilbrigðiseftirliti ríkisins sem fylgist með framkvæmd úrbóta og leggur fyrir ráðh. í samráði við landlækni hvort ástæða geti verið til sérstakra aðgerða vegna bilunarinnar. Fyrirtækinu er heimilt að halda áfram rekstri verksmiðjunnar meðan viðgerð stendur yfir og bilun stafar ekki af ófullnægjandi viðhaldi búnaðarins og unnið er að úrbótum af fullum hraða, enda sé ekki ástæa til að ætla að reksturinn valdi tjóni á heilsu starfsmanna verksmiðjunnar eða íbúa í grennd eða spjöllum á umhverfi. Að öðrum kosti getur ráðh. mælt svo fyrir að rafstraumur til ofns verði rofinn og rekstur hans stöðvaður þar til úrbótum er lokið“
Þannig hljóðar þessi skilgreining. En í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins eru hins vegar sett ákveðin tímamörk sem rekstur má fara fram í bilanatilfellum hreinsibúnaðar áður en straumur er rofinn. Er þar gerður greinarmunur á ofni og aftöppunarstöð. Þannig á samkv. till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins að rjúfa straum og stöðva framleiðslu eftir eina klukkustund ef bilun er í hreinsitækjum hjá ofni, en innan tveggja sólarhringa ef um er að ræða bilun í tæknibúnaði eða tækjabúnaði hjá aftöppunarstöð. Um þetta ákvæði segir í aths. till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins:
„Ákvæði 2.2 og 2.3 eru fram sett með það fyrir augum að rekstraröryggi hreinsibúnaðar verði sem best tryggt. Ófyrirséðar rekstrartruflanir og bilanir eru hins vegar óhjákvæmilegar. Með ákvæði þessu er þess krafist í meginatriðum að rekstur ofns verksmiðjunnar verði stöðvaður ef meiri háttar bilanir verða og ekki reynist unnt að hreinsa allt loftmagnið frá ofni verksmiðjunnar. Rekstur verksmiðjunnar án hreinsibúnaðar hefði í för með sér að miklu magni mjög fíngerðs ryks, sem verulega dregur úr skyggni, yrði hleypt út í andrúmsloftið. Staðsetning verksmiðjunnar er þannig háttað að rykmengun yrði mjög áberandi, séð frá mestöllu höfuðborgarsvæðinu, einkum í norð- og norðaustlægum vindáttum sem eru ríkjandi við Hvalfjörð. Rykmengað loft gæti einnig borist til Akraness í slíkum tilvikum. Lagt er til að rýmri ákvæði verði sett um aftöppunarstöð með tilliti til þess að í slíkum tilvikum berst margfalt minna rykmagn út í andrumsloftið en vegna bilana í ofni.“
Í ákvæði 2.6 í starfsleyfinu er fjallað um hönnun reykháfa. Þar segir:
„Hæð reykháfa fyrir óhreinsað loft, sem hleypt er út innan ramma ákvæða 2.5 skal vera minnst 42 m yfir gólfi ofnhúss.“
Í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins segir hins vegar:
„Hæð reykháfa fyrir óhreinsað loft, sem hleypt er út innan ramma ákvæða 2.5, skal vera minnst 50 m yfir gólfi ofnhúss. Hönnun reykháfa skal vera með þeim hætti að tryggt sé að reyknum slái ekki niður á verksmiðjusvæðið eða í næsta nágrenni þess.“ Síðar í aths. um þessa gr. segir Heilbrigðiseftirlit ríkisins: „Reykháfshæð er miðuð við það sem tíðkast hefur í slíkum Verksmiðjum fram til þessa.“
Úr ákvæði 2.7 í starfsleyfi er gersamlega sleppt einni mgr. úr þeim till., sem Heilbrigðiseftirlit ríkisins gerði. Sú mgr., sem þarna er sleppt, hljóðaði svo í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins:
„Fyrirtækið skal láta framkvæma nákvæmar efnagreiningar og aðrar nauðsynlegar athuganir á hráefnum og úrgangi frá verksmiðjunni þegar Heilbrigðiseftirlit ríkisins að höfðu samráði við náttúruverndarráð telur slíkt nauðsynlegt, sbr. einnig gr. 2.16.“
Aths. Heilbrigðiseftirlits ríkisins um þetta orðalag ákvæðisins segir:
„Forsendur þess, að fallist er á losun úrgangs á þurru landi, eru þær, að ítarlegar forrannsóknir verði gerðar á grunnvatnsrennsli þeirra svæða, sem til greina koma að losunarstaðir verði valdir í, í fullu samráði við viðkomandi heilbrigðisnefnd, Heilbrigðiseftirlit ríkisins og Náttúruverndarráð. En forsenda þess er að framkvæmdar verði nauðsynlegar efnagreiningar á úrgangi og að aðstæður séu þannig við losunarstað að fylgjast megi nákvæmlega með hugsanlegum mengunaráhrifum.“
Ég tel að þessi úrfelling á till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins sé mjög hættuleg.
Í þessu umrædda ákvæði 2.7 er einnig önnur breyting. Í því ákvæði var fjallað um meðhöndlun úrgangs. Í starfsleyfinu segir um þetta:
„Allt það ryk, sem ekki verður nýtt á þann hátt sem Heilbrigðiseftirlit samþykkir, skal kögglað áður en til losunar kemur eða með farið á annan viðurkenndan hátt.“ Hér hefur sem sagt verið skotið inn orðalaginu: „eða með farið á annan viðurkenndan hátt“, án þess að það sé nokkuð skilgreint hvaða aðilar eigi að viðurkenna meðhöndlun þessara úrgangsefna.
Í ákvæði 2.10 í starfsleyfinu er fjallað um efnainnihald hráefna. Í starfsleyfinu segir: „Miðað við ársmeðaltal skal magn brennisteins í kolum og koksi vera minna en 2% af heildarmagni þessara hráefna, en enginn skipsfarmur skal innihalda meira en 2.5%. Fyrirtækið. skal láta Heilbrigðiseftirliti ríkisins í té upplýsingar um brennisteinsinnihald hvers kola- og koksfarms.“
Í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins segir hins vegar um þetta ákvæði — og sest best að þar hefur verið gerð veigamikil breyting:
„Miðað við ársmeðaltal skal magn brennisteins í kolum og koksi vera minna en 1.5% af heildarmagni þessara hráefna, en enginn skipsfarmur skal innihalda meira en 2%. Fyrirtækið skal sjá um og kosta nauðsynlegar mælingar á brennisteinsinnihaldi hvers hráefnafarms í samráði við Heilbrigðiseftirlit ríkisins. Mælingar skulu framkvæmdar af aðilum sem Heilbrigðiseftirlit ríkisins samþykkir, og skulu niðurstöður sendar stofnuninni jafnóðum og þær liggja fyrir ásamt afriti af farmskrá fyrir viðkomandi ferð skips þess er um ræðir.“
Hvað segir Heilbrigðiseftirlit ríkisins um þetta ákvæði sem svo mikið hefur verið breytt? Í aths. segir það:
„Eins og fram kemur í grein 2.3 er magn ýmissa varhugaverðra mengunarefna í útblásturslofti fyrst og fremst það magni slíkra efna í hráefnum þeim sem notuð eru á hverjum tíma. Ákvæði þau, sem lagt er til að gildi um brennisteinsinnihald kola og koks, eru þau sömu og samkomulag var um að gilda skyldu um verksmiðjuna þegar bygging hennar var fyrirhuguð í samvinnu við bandaríska fyrirtækið Union Garbide.“
Hér má sem sagt hlutfall hættulegra eiturefna í hráefnum vera helmingi meira en till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins gera ráð fyrir og gert hafði verið ráð fyrir við gerð málsins á sínum tíma, vegna þess vitaskuld að Elkem fer fram á þetta. En það kemur fram í frv. að það á að nota hráefni úr námum þess í Norður-Noregi og það hráefni er væntanlega með þessu magni brennisteinsefna, og því er forsenda þess, að Elkem geti þarna hagnast á sölu þess til verksmiðjunnar, að starfsleyfið sé miðað við þetta tiltekna hráefni.
Ég held að í þessari breytingu ásamt þeirri, sem ég gat um áðan, að tala ekki skýrt um efnainnihald rannsóknar áður en úrgangi er dreift frá verksmiðjunni, þegar þetta tvennt fer saman, sé um mjög alvarlegt frávik að ræða frá till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins.
Í sambandi við ákvæði 2.13 hefur í starfsleyfinu verið felld úr fyrsta setning þessa ákvæðis í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins, en hún var svofelld: „Innra kælikerfi verksmiðjunnar skal vera lokuð hringrás.“ Þarna er sem sagt hönnunaratriðum verksmiðjunar breytt til að þóknast hinum erlenda aðila, en petta er mjög mikilvægt atriði til þess að forðast mengunarhættu frá verksmiðjunni.
Ákvæði 2.17 í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins er alveg fellt út, gersamlega fellt út, en þetta ákvæði hljóðaði svo:
„Bendi líkur til þess að verksmiðjureksturinn hafi í för með sér neikvæð áhrif á umhverfið getur Heilbrigðiseftirlit ríkisins að höfðu samráði við Náttúruverndarráð eða aðra umsagnaraðila krafist þess að stjórn fyrirtækisins láti framkvæma nauðsynlegar rannsóknir á þeim umhverfisáhrifum sem um ræðir. Slíkar rannsóknir skulu gerðar í fullu samráði við Heilbrigðiseftirlit ríkisins og Náttúruverndarráð og framkvæmdar af þeim sem þessar stofnanir samþykkja.“
Ég held að það hljóti að vekja furðu allra, sem þetta mál skoða, að ákvæði eins og þetta skuli vera fellt út úr till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins, svo sjálfsagt sem það er.
Ákvæði 3.1 fjallar um staði þar sem sérstök mengunarhætta er, m. a. um flutning, mölun, sigtun og pökkun kísiljárns og um málmsteypu. Í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins er gert ráð fyrir sérstökum hreinsibúnaði við þessa staði í verksmiðjunni. En í starfsleyfinu hafa þau atriði verið felld út úr ákvæði 3.1 Og um nauðsyn þess að hafa þarna sérstakan hreinsibúnað segir í aths. við till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins: „Liður b fjallar um flutning, sigtun og pökkun kísiljárns. við þennan lið framleiðslunnar myndast mikið ryk sem samanstendur af frumefnum, járni og kísil, en grunur leikur á, þótt ekki sé örugglega vitað, að í rykinu geti leynst tridymit sem er ein hættulegasta tegund kísildíoxíðs með tilliti til lungnasjúkdómsins silikosis. Öll þessi starfsemi skal aðgreind og skilin frá annarri starfsemi að svo miklu leyti sem tæknilega er framkvæmanlegt og rykmengað loft hreinsað í hreinsibúnaði. Eiturlofttegundirnar fosfín og arsin geta myndast komist óeðlilegur raki að kísiljárni.“ Ég held að það fari ekki á milli mála við lestur þessara aths., að hér er um mjög hættulegan mengunarstað að ræða. Og mér er spurn: Hvers vegna er í starfsleyfinu þarna fellt út það skilyrði að á þessum stöðum sé komið fyrir sérstökum hreinsibúnaði.
Í ákvæði 3.2 er fjallað um hönnun mannvirkja með tilliti til þess, að loftræsting og vinnuaðstaða fullnægi mengunarvörnum á vinnustöðum. Í starfsleyfinu er ekki lengur að finna setningu sem var í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins um gerð milli lofta í byggingunni, en hún var svo hljóðandi:
„Þannig skulu loft milli hæða vera þétt, en ekki með loftristum.“
Hér er sem sagt á öðrum stað, ég gat um það aðan um ærð reykháfa, felldar út úr till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins kröfur um að loft á milli hæða í verksmiðjunni séu þétt, en ekki ristagólf, og maður spyr: Hvers vegna er þetta fellt út? Það er vegna þess að það er búið að ákveða hvers konar hús á að byggja, Elkem er búið að hanna þetta hús, og þeir gera þar ráð fyrir sinni tækni, því sem þeir eru vanir, og undir það verða íslenskir aðilar, m. a. heilbrrn. að beygja sig.
Í ákvæði 3.3 er fjallað um þau mörk sem setja skuli um rykmengun á vinnustað. Er miðað við meðalgildi mælinga fyrir 8 stunda vinnudag eða vakt og 40 stunda vinnuviku. Gefnar eru upp jöfnur um útreikninga á styrkleikamörkum, annars vegar til að finna neðri mörk og svo efri mörk. Í starfsleyfinu eru neðri mörk ákveðin mest 3.5, en efri mörkin eru ákveðin 5. Segir síðan um þetta í starfsleyfinu:
„Félaginu er skylt að halda Sr (styrkleikamörk ryks í mg/m3) undir neðri mörkum. Fari Sr hins vegar yfir neðri mörk, en ekki þau efri, skal félagið í samráði við lækni þess ganga úr skugga um þörf aðgerða til endurbóta, svo sem með því að draga úr styrkleikanum eða með því að takmarka þann tíma sem starfsmenn þurfa að vinna við slík skilyrði. Fari Sr yfir efri mörk ber félaginu að gera nauðsynlegar varúðarraðstafanir.“
En hverjar voru kröfur Heilbrigðiseftirlits ríkisins um þessi styrkleikamörk? Í þeim till. er aðeins getið um ein mörk — ekki efri og neðri mörk, heldur aðeins ein mörk, og er lagt til að þau séu 2.5 mg að styrkleika á hvern rúmmetra. Í aths. Heilbrigðiseftirlits ríkisins segir um þetta:
„Í lið a er sá staðall eða áhættumörk, sem Heilbrigðiseftirlit ríkisins leggur til að gilda skuli á Íslandi fyrir leyfilegt magn af kristölluðu kísildíoxíði í „respirable“ ryki, og hefur þá verið stuðst við svipaða staðla í öðrum löndum sem í gildi eru eða lagt hefur verið til að teknir verði upp.“
Hér er sem sagt þessum till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins, sem eru byggðar á margra mánaða athugun þess og viðræðum og kynningu á þessu í öðrum löndum, verulega mikið breytt. Styrkleikamarkið er aukið um helming, úr 2.5 í 5, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir það fólk sem á eftir að vinna þarna.
Í ákvæði 3.4 er fjallað um notkun asbests. Um þetta segir m. a. í starfsleyfinu:
„Hæsti leyfilegur fjöldi asbestþráða í andrúmslofti á vinnustað skal vera 2 þræðir/em3.“
En hvað segir Heilbrigðiseftirlit ríkisins um þetta í sínum till?
„Hæsti leyfilegur fjöldi asbestþráða í andrúmslofti á vinnustað skal vera 1 þráður/cm3“.
Þarna er þessu breytt um helming, það mega vera tveir þræðir í stað eins. Og í aths. um þennan þátt málsins segir Heilbrigðiseftirlit ríkisins:
„Asbest er samheiti á þráðlaga steinefnum sem algeng eru í náttúrunni, en best þekkt hér á landi er notkun asbests til einangrunar. Við járnblendiverksmiðjur eins og önnur fyrirtæki af svipaðri stærðargráðu og gerð er þörf fyrir notkun einangrunarefna mikil, og þar sem engar reglur eru í gildi um notkun asbests hér á landi, svo og hitt, að hin síðari ár hefur mönnum orðið ljóst að mikil og alvarleg heilsufarsleg hætta getur verið samfara notkun asbestsefna, þykir rétt að hafa í starfsleyfistill. fyrir verksmiðjuna reglur um notkun þessara efna og eru þær reglur í megindráttum sniðnar eftir gildandi reglum á Norðurlöndum.
Talið er að asbestryk geti á lengri tíma orsakað eftirtalda sjúkdóma:
1. Asbestos, sem er lungnasjúkdómur sem einkennist af bandvefsmyndun í lungum og líkist að því leyti silikosis.
2. Lungnakrabbamein.
3. Lífhimnukrabbamein og brjósthimnukrabbamein.
4. Kalkanir í brjóst- og lífhimnu.“
Hún er mikil ábyrgð þeirra stjórnmálamanna sem ætla að hafa vit fyrir Heilbrigðiseftirliti ríkisins í þessu máli.
Í ákvæði 3.5 er m. a. ákveðinn leyfilegur styrkur arsínvetnis í andrúmslofti á vinnustað, og eru mörkin miðuð við meðalgildi fyrir 8 stunda vinnudag eða vakt. Í starfsleyfinu eru þessi mörk ákveðin 0.05 ppm. eða 0.2 mg/m3. í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins er hins vegar lagt til að morkin séu 0.01 ppm. eða 0.05 m.g/m3. Hér er sem sagt enn einu sinni á enn öðrum stað og við önnur eiturefni verulega rýmkað um þau skaðleysismörk sem Heilbrigðiseftirlit ríkisins setur. Um þessar reglur segir Heilbrigðiseftirlitið í aths. með till. sínum:
„Í húsakynnum, þar sem kísiljárn er til staðar, getur arsin og fosfin myndast komist óhóflegur raki að kísiljárninu. Þau mörk, sem hér eru sett sem hættumörk, eru þau sömu og í gildi eru í öðrum löndum.“
„Í ákvæði 3.9 er fjallað um hreinsun á vinnustað. Í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins er sagt: „Ryk, sem sest til á vinnustöðum, skal hreinsað reglulega og eins oft og þurfa þykir að mati heilbrigðisyfirvalda. Rykhreinsun skal framkvæmd með ryksugubúnaði sem Heilbrigðiseftirlit ríkisins samþykkir. Rykhreinsun skal ekki framkvæmd með sópun, loftblæstri eða öðrum aðferðum sem valdið getarykmengun andrumslofts á vinnustöðum.“
Þetta eru till. Heilbrigðiseftirlitsins. Hins vegar segir í endanlegri gerð starfsleyfisins um þetta ákvæði: „Vinnustaðir skulu hreinsaðir reglulega og eins oft og þurfa þykir. Hreinsun skal framkvæmd með ryksugubúnaði og á annan viðunandi hátt.“ Þessi orð eru býsna oft notuð á viðunandi hátt, án þess að nánar sé skilgreint. „Þurfi hreinsun að fara fram með sópun eða öðrum aðferðum sem valdið geta rykmengun, skal það gert þannig að sem minnst óþægindi hljótist af.“
Hér hefur sem sagt verið dregið úr skilyrðum. Og ég minnist þess nýlega, einmitt eftir fréttir af fundi starfsmanna álversins með fréttamönnum nú nýverið, að þá var þetta ein af meginkröfum þeirra, að það væri hætt að nota sópa til að þrífa, heldur væri það ryksuguaðferð alveg skilyrðislaust sem væri notuð. Hér er gert ráð fyrir því í till. Heilbrigðiseftirlitsins, en gefin heimild til gömlu aðferðarinnar samkv. starfsleyfistillögunum.
Einnig eru gerðar fjölmargar breytingar við ýmis ákvæði till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins sem virðast kannske við fyrstu athugun skipta litlu máli, en eru í reynd mjög alvarlegar og miða allar að því að rýra rétt stofnunarinnar til afskipta af rekstri og mengunarvornum verksmiðjunnar, auk þess sem víða er fellt út úr till. orðalag sem leggur fjárhagslegar skuldbindingar á fyrirtækið í sambandi við mengunarrannsóknir. En sem kunnugt er þykja það góðar venjur í stóriðnaði í öðrum löndum að skylda fyrirtækin sjálf til að greiða kostnað af slíkum rannsóknum.
Ég held satt að segja að aðbúnaður Heilbrigðiseftirlits ríkisins hvað varðar fjármál, mannahald og tækjabúnað til rannsóknarstarfa sé ekki svo beysinn að það sé ástæða til þess að hlífa Járnblendifélaginu við að greiða sjálft allan eðlilegan kostnað við mengunarrannsóknir. En ég ætla að nefna nokkur dæmi af þessu tagi, þar sem fært er til orðalag eða fellt út og bætt inn eftir aðstæðum — ákvæði sem miða að því að rýra rétt Heilbrigðiseftirlits ríkisins. Þannig hefur verið fellt út úr ákvæði 2.4 orðalagið „á eigin kostnað“ þegar rætt er um skyldur verksmiðjunnar við að láta fara fram mælingu á hæfni hreinsibúnaðar 6 mánuðum eftir að starfræksla verksmiðjunnar er hafin. Ég get á engan hátt skilið hvers vegna þetta ákvæði er fellt út. ákvæði 2.3, þar sem fjallað er um hæfni mælibúnaðar sem skráir upplýsingar um ástand útblástursloftsins hverju sinni, hefur verið fellt út að mælibúnaður þessi skuli samþykktur og metinn af Heilbrigðiseftirliti ríkisins. Fellt hefur verið úr ákvæði 2.11, þar sem fjallað er um almennt frárennsli frá Verksmiðjunni, að leitað skuli samþykkis Heilbrigðiseftirlits ríkisins um fyrirkomulag og gerð þess búnaðar. Og í ákvæði 3.5, þar sem fjallað er um geymslu kísiljárns og fyrirskipað að komið skuli í veg fyrir að það komist í snertingu við óhóflegan raka, hefur verið bætt við orðunum: „eftir því sem við verður komið“. Eins og fram kom áðan í upplestri mínum er þetta einmitt mjög varhugavert atriði, að kísiljárnið komist í samband við raka, því að þá leysist þar úr læðingi eiturefni sem eru hættuleg mönnum.
Ýmsar breytingar aðrar þessu líkar mætti nefna, svo sem í 3.10 og 3.13, en þar er fellt út að fylgt skuli sérstökum reglum sem í gildi séu á Norðurlöndunum, en Heilbrigðiseftirlit ríkisins segir að þetta orðalag sé notað um þau atriði þar sem skorti á að settar hafi verið reglur eða lög á Íslandi um þau atriði og því ekki hægt að ætlast til þess af hálfu Heilbrigðiseftirlits ríkisins að fylgt væri þeim reglum sem strangastar væru á Norðurlöndum. Öllum þessum atriðum, þar sem vitnað er til slíkra reglna, hefur verið kippt út og ekkert sett í staðinn.
Þau ákvæði, sem ég hef hér fjallað um eða talið upp, fjalla um mengunarvarnir við verksmiðjuna, bæði ytra sem innra umhverfi hennar. En í starfsleyfinu er einnig kafli með ákvæðum um heilbrigðisþjónustu og slysavarnir og er hann í aðalatriðum samhljóða till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins, en þó ekki jafnítarlegur og nákvæmur. Einnig er í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins kafli um heilbrigðis- og öryggismálafulltrúa starfsliðs, en honum er alveg sleppt í starfsleyfinu. Á hinn bóginn er vitnað til gildandi laga um það efni, þ. e. a. s. um samstarfsnefndir atvinnurekenda og verkafólks. Eins er kafli í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins þar sem fjallað er um skyldu fyrirtækisins í mengunar-, heilbrigðis- og öryggismálum á byggingartíma og er þeim kafla alveg sleppt án nokkurra skýringa.
Ég hef nú rakið nokkuð helstu breytingarnar sem heilbr.- og trmrn. hefur gert á till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins um starfsleyfi Grundartangaverksmiðjunnar, og svo sem þm. hafa heyrt eru þær mjög margar og afdrifaríkar, þótt hæstv. heilbrmrh. virðist ekki hafa verið kunnugt um nema tvær þeirra. Ég hef leitast við að skýra sem nákvæmast frá þessum breytingum á till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins, sérstaklega vegna þess að þeir aðilar, sem ábyrgð bera á endanlegri gerð starfsleyfisins, óttuðust að till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins yrðu misnotaðar hér á Alþ., þeim yrði kippt úr samhengi, en þetta kom fram í umr. um málsmeðferð þessa máls í d. fyrir nokkru. En að sögn hv. formanns iðnn. Nd. var þetta ástæða þess, að þessar till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins voru merktar í upphafi sem trúnaðarmál. Eftir að hafa kynnt mér meðhöndlun þessara till. í heilbrrn. ætla ég að aðrar ástæður hafi legið á bak við þær óskir að till. yrðu ekki ræddar hér á Alþ.
Augljóst er af gerð starfsleyfisins að hinn erlendi samstarfsaðili hefur kúgað hæstv. heilbrrh. til að beygja sig fyrir kröfum um alvarlegar og verulegar tilslakanir í mengunarvörnum. Og síðan leyfa þm. sér, eins og hv. þm. Ingólfur Jónsson, að segja að hér sé fylgt till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins og Náttúruverndarráðs og þessir aðilar hafi gefið jákvæða umsögn. Reyndar er það ekki einungis þessi hv. þm. sem meðhöndlar nú málið á þennan hátt. Meirihlutaálit þeirra, sem að því standa, hefst með því að telja upp alla þá aðila, sem komu á fund n., og síðan klykkt út með því að umsagnir þessara aðila hafi verið jákvæðar. Ég veit ekki, hvað veldur að menn ganga á þennan hátt frá nál. Þarna er vitnað t. d. í Náttúruverndarráð sem kom á fund n. Þeir menn hafa miklar áhyggjur, sérstaklega um meðferð úrgangsefna frá verksmiðjunni — miklar áhyggjur, og eins af því að rykhreinsun sé ekki nægileg. Síðan kóróna meirihlutaaðilarnir þetta nál. sitt með því að vitna í gamla umsögn Náttúruverndarráðs sem það gaf þegar málið var til afgreiðslu síðast á Alþ., 1975. Það er vitnað í þá umsögn, að hún hafi verið jákvæð. Eins og fram kemur í öllu málinu voru þá allt aðrar aðstæður uppi. M. a. átti að endurvinna þennan úrgang sem Náttúruverndarráð hefur miklar áhyggjur af.
Þarna er Heilbrigðiseftirlit ríkisins talið upp. Þessir aðilar komu á fund n. Og hvað gerðu þeir þar? Jú, þeir gerðu grein fyrir till. sínum sem ég hef hér rakið. Forsenda þess, að þeir séu jákvæðir í málinu, að svo miklu leyti sem þeir eru spurðir um það, sinn þátt málsins, — sú forsenda, að þeir séu jákvæðir í málinu, er að farið sé að till. þeirra. Þeim hefur öllum meira og minna verið rangsnúið. Síðan segir í nál. að þeir hafi gefið jákvæða umsögn. Þeir gáfu aldrei neina umsögn til n. Eina umsögn þeirra, sem liggur fyrir, er umsögnin sem þeir sendu heilbrrn., og á þeirri umsögn átti að byggja gerð starfsleyfis. Þeir hafa enga umsögn gefið n. Og það eru taldir upp fleiri aðilar þarna, eins og t. d. Orkustofnun, og ég vitna til bréfa þeirrar stofnunar, en hún hefur margt við raforkusamninginn að athuga.
Ég ætla ekki að segja þau orð um þá meðferð, sem kemur fram í þessu nál., sem mér finnst hæfa. Ég hef verið víttur fyrir það hér á Alþ. að bera það á einn hv. þm. að hann notaði lygina. Ég ætla ekki að viðhafa það aftur. En ég segi það og ég segi það satt, að það er ekki sama hvernig sannleikurinn er meðhöndlaður hér í þingsölum, og þetta nál. er vitaskuld hneyksli fyrir þá sem að því standa. Og það er vissulega lærdómsríkt eftir að hafa skoðað afgreiðslu þessa máls að kynnast viðhorfum einstakra þm. til nauðsynlegrar athugunar á þessum þætti málsins, svo sem viðhorfum formanns þingflokks Framsfl., hv. þm. Þórarins Þórarinssonar, sem skákar í því skjólinu að hann hafi ekkert vit á mengunarvörnum, eins og hann orðaði það í þingræðu um daginn, — hann hafi ekkert vit á mengunarvörnum í stóriðjuverum. Hvers vegna las hann ekki till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins? Ég á nú eiginlega ekki orð til þess að afgreiða þetta eins og vera þyrfti hér í ræðustól. Það getur verið, að einhverjir aðrir þm. geri það hér á eftir, en ég held að það hefði verið skylda formanns þingflokks Framsfl., ef hann hafði ekki vit á því að lesa till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins, að fá einhvern annan í þingflokknum til að gera það. Eða eru þeir kannske allir með sama markinu brenndir? Nei, svona geta hv. þm. ekki leyft sér að afgreiða alvarleg mál.
Ekki er nú þáttur Alþfl. rismeiri í þessu máli. Formaður hans, hv. þm. Benedikt Gröndal, var einn þeirra sem sáu ekki ástæðu til þess að kynna sér nákvæmlega till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins og þá ekki að kynna sér hvernig þær hefðu verið meðhöndlaðar. Þessi mikli alþýðuleiðtogi hefur margsinnis í vetur talað hér fyrir hugmyndum sínum um bættan aðbúnað verkafólks á vinnustöðum, og hann hefur þá ekki verið spar á stóru orðin um einlægan vilja sinn og flokksmanna sinna í þessum efnum. Það sest hins vegar best hver hugur fylgir máli nú þegar raunverulega reynir á röggsemi þm. og árvekni. Þá liggur hann flatur fyrir hagsmunum og kröfum hins erlenda auðhrings og hundsar till. íslenskra heilbrigðisverndarmanna. Þótt hann hafi þannig haft hátt um vilja sinn í vinnuverndarmálum hér á þinginu í vetur, þá hefur hann fallið á fyrsta prófinu og er lítil sæmd að.
Af því, sem hér hefur verið rakið að framan, má ljóst vera að enn einu sinni er það ætlun stjórnvalda að sniðganga till. íslenskra heilbrigðisaðila í veigamiklum atriðum um fyrirkomulag mengunarvarna í stóriðju, þrátt fyrir þá reynslu sem fengist hefur í álverinu í Straumsvík og í kísiliðjunni í Mývatnssveit. Og ég legg áherslu á í þessu sambandi, að nú er Alþ. í fyrsta skipti og heilbrrn. að veita starfsleyfi til stóriðju þar sem kostur er á að fjalla um einstök ákvæði starfsleyfis, gera kröfur til hönnunar mannvirkja og fyrirkomulags tækja og gerð hreinsitækja og uppfylla aðrar kröfur Heilbrigðiseftirlits ríkisins og Náttúruverndarráðs áður en ákvörðun er tekin um byggingarframkvæmdir. Hér er því á vissan hátt verið að marka stefnu sem kann að verða notuð í framtíðinni við gerð slíkra starfsleyfa og er því miklu brýnna en ella að vel takist til.
Ég mun fara að ljúka máli mínu. Ég hef rakið þá helstu þætti sem taka verður tillit til við afgreiðslu frv. um járnblendiverksmiðju hér á Alþ. Meginniðurstaða mín af því er þessi:
1) Járnblendiverksmiðjan er óæskilegur orkukaupandi í samanburði við þá nýtingarmöguleika raforkunnar sem þjóðarinnar bíða hvarvetna sé rétt haldið á framkvæmdum í raforkumálum og sé unnið að uppbyggingu þeirra fjölmörgu nýiðnaðarverkefna sem við blasa í landinu.
2) Arðsemi verksmiðjunnar er mjög vafasöm og óörugg vegna lags markaðsverðs á kísiljárni og útlit er fyrir að bætt markaðsskilyrði séu ekki á næstunni vegna erfiðleika á stálmarkaði, einkum í Evrópu. Fyrirtækið er því áhættufyrirtæki, eins og forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar hefur réttilega nefnt það.
3) Einokunaraðstaða Elkems, bæði á hráefnamarkaði, á sviði tækniþekkingar og á sölumarkaði framleiðsluvörunnar, er hættuleg eðlilegri samvinnu þess og íslendinga.
4) Þeim þætti málsins, sem ég hef hér rakið býsna ítarlega, mengunarmálunum, þ. e. a. s. hvort tveggja endurvinnslu úrgangs og reykhreinsunar, er komið svo fyrir að veruleg mengunarhætta stafar af og allt öðruvísi en upphaflega var ráðgert, þegar þetta mál var fyrst á dagskrá, og allt öðruvísi en nauðsynlegt getur talist svo að ýtrasta öryggis sé gætt, enda uppfylla ákvæði starfsleyfis ekki ströngustu óskir Heilbrigðiseftirlits ríkisins og Náttúruverndarráðs.
Ég tel því að alþm. ættu að hafna till. meiri hl. iðnn. þessarar d. um afgreiðslu frv. Alþ. ber á hinn bóginn að hefja mótun stórhuga iðnþróunarstefnu með þau markmið að nýta betur hráefni undirstöðuatvinnuvega þjóðarinnar, sjávarútvegs og landbúnaðar, og hefja framkvæmdir við uppbyggingu nýiðnaðar sem vinni dýrar framleiðsluvörur úr ýmsum þeim hráefnum sem land okkar á, en þegar eru til ýmsar áætlanir um hagkvæmni slíkrar iðju. Við uppbyggingu iðnaðar verði lögð sérstök áhersla á nýtingu þeirrar tækniþekkingar og verkþekkingar sem landsmenn hafa yfir að ráða og hefur þroskast við íslenskar aðstæður og atvinnuhætti, svo sem þekking á sjósókn og fiskvinnslu, raforkuframleiðslu og gufunýtingu, svo að eitthvað sé nefnt.
Í samræmi við þessar niðurstöður athugana minna á frv. er till. mín sú, að málið verði afgreitt með svofelldri rökstuddri dagskrá:
„Þar sem augljós hagkvæmni og félagslegar og efnahagslegar aðstæður í landinu gera nauðsynlegt, að íslendingar hefji nú þegar markvisst hagnýtingu innlendra orkugjafa, fjármagns og vinnuafls til að takmarka sem mest olíunotkun, svo sem með rafhitun húsa og nýtingu rafmagns til uppbyggingar nýrra iðngreina, telur d. engan grundvöll til orkufreks stóriðnaðar, er byggir á erlendum aðföngum, og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.“