18.04.1977
Neðri deild: 66. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3240 í B-deild Alþingistíðinda. (2310)
129. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Lúðvík Jósepsson:
Hæstv. forseti. Ég kemst ekki hjá því að víkja í upphafi máls míns nokkrum orðum að þeirri merkilegu ræðu sem hv. þm. Þórarinn Þórarinsson, formaður þingflokks Framsfl., lauk hér við að flytja áður en þingfundi var frestað nú fyrir kvöldmat. En ég sé að hv. þm. er nú ekki mættur hér, svo að það er eiginlega heldur ólögulegt. Þá þykir mér ekki síður á skorta að hæstv. ráðh., sem hefur með mál þetta að gera, hæstv. iðnrh., er ekki sjáanlegur í salnum. En það þykir mér í rauninni algert lagmark, þegar slíkt stórmál er á ferðinni eins og það sem hér um ræðir, að a. m. k. sá ráðh., sem hefur með málið að gera, gefi sér tíma til þess að móta hér á fundi og ræða við þm. um málið. En í von um að hæstv. ráðh. sé rétt ókominn get ég þó haldið eitthvað áfram ræðu minni, m. a. með því að víkja nokkuð að þeirri mjög svo athyglisverðu ræðu formanns þingflokks Framsfl., Þórarins Þórarinssonar, sem ég minntist á áðan.
Hér var hv. þm. Þórarinn Þórarinsson að gera grein fyrir afstöðu sinni og síns flokks sem aðaltalsmaður flokksins á Alþ. til eins af allra stærstu málum sem lögð hafa verið fyrir Alþ. á þessu þingi. Hér er sem sagt um það að ræða, hvort íslenska ríkið eigi að ráðast í það að láta koma upp verksmiðju sem yrði ein af þeim stærstu í landinu, ráðast í framkvæmd sem gert er ráð fyrir í grg. frv., sem hér er til umr., að muni kosta 18.4 milljarða kr., og til viðbótar að sjálfsögðu tilheyrir þessum stofnkostnaði um það bil helmingurinn af stofnkostnaði okkar nýjustu virkjunar, Sigölduvirkjunar, því að það er gert ráð fyrir að verksmiðjan verði að taka til sín um það bil helminginn af orkunni frá þessari virkjun.
En hvað var það svo sem hv. þm. Þórarinn Þórarinsson sagði um afstöðu sína og síns flokks til þessa stórmáls? Jú, hann undirstrikaði það, að hann væri hreinskilinn og segði hreint út hvernig astatt væri fyrir sér. Hann sagði varðandi fjárhagshlið málsins, að á þeirri hlið hefði hann ekkert vit, hann vissi ekkert um fjárhagslegan rekstur og hann treysti sér því ekki til að eyða neinum orðum að því hvort hér væri yfirleitt um það að ræða að rétt væri að ráðast í þetta fyrirtæki út frá því sjónarmiði að það gæti verið fjárhagslega þýðingarmikið fyrir þjóðina. En hann játaði hreinskilnislega, að hann hefði ekkert vit á þessari hlið málsins og gæti ekkert um það talað, og taldi sig afar hreinskilinn með því að geta þessa. Þá sagði hann einnig varðandi efnishlið þessa máls, að um það atriði málsins, sem mikið hefði verið rætt um, sem sneri að mengunarvandamáli og vissum hættum í sambandi við verksmiðjuna, þá sagðist hann líka geta endurtekið það enn einu sinni í fullri hreinskilni, að á því hefði hann heldur ekkert vit og gæti ekkert um það sagt. Ja, hvílík hreinskilni! Það er ekki amaleg afstaða hjá heilum stjórnmálaflokki að hafa þessa afstöðu til eins þýðingarmesta máls sem lagt er fyrir Alþ.: varðandi fjárhagshliðina og reksturinn ekkert vit, enga skoðun, varðandi vissar hættur, eins og í sambandi við mengun, ekkert vit, enga skoðun. Ja, það er nú hreinskilni sem um munar að segja frá þessu.
En hv. þm. þóttist þó hafa nokkuð til þess að miða sína afstöðu við og réttlæta afstöðu flokks síns til málsins eigi að síður, þó að svona væri nú ástatt fyrir honum. Og þá kom að því að hann fór að skýra frá því, hver væri afstaða og hver hefði verið afstaða Alþb. til málsins, og var auðvitað að finna alla afstöðu Framsfl. innifalda í þessari afstöðu alþb.-manna.
Þá skýrði hv. þm. m. a. frá því, að honum væri kunnugt um það, að um það leyti sem vinstri stjórnin var að leysast upp eða vorið 1974 mundi afstaða þm. Alþb. til járnblendiverksmiðju hafa verið sú, að 8 af þm. flokksins hefðu verið fylgjandi þeim frv.-drögum, sem þá lágu fyrir, einn þm., sem væri skáld, væri óforbetranlegur í málinu og væri ómögulegt að snúa honum til rétts vegar, og annar þm., sem hann tilgreindi og það var ég, væri að vísu á móti málinu — hefði verið á móti málinu í orði, en líklega mundi ég hafa fylgt því þegar til atkvgr. hefði komið. Og svo gat þessi hv. þm., aðaltalsmaður Framsfl., Þórarinn Þórarinsson, um að það væri svo sem ekki mikið mark hægt að taka á þessari afstöðu skáldsins í Alþb. sem væri svona mikill þvergirðingur vegna þess að hann væri meira skáld en stjórnmálamaður. Ætli það hafi ekki einhverjum dottið í hug eins og mér, að öll þessi frásögn hv. þm. um afstöðu Alþb. benti til þess að hann væri allmiklu meira skáld sjálfur heldur en hann væri stjórnmálamaður, Þórarinn Þórarinsson, að skálda upp slíkar sögur eins og þessar sem hann var hér að greina frá, því að auðvitað veit hann að það er ekki einn einasti stafur fyrir þessu, sem hann var að segja, — ekki einn einasti. Það lá sem sagt alveg skýrt fyrir um rétta leyti, að afstaðan til þess máls, sem hér er verið að ræða um, og einnig í sambandi við Sigölduvirkjun var allt önnur en sú sem hv. þm. var að greina frá.
Hv. þm. Þórarinn Þórarinsson vitnaði m. a. í ummæli Magnúsar Kjartanssonar frá því í janúarmánuði 1974, sem féllu hér í umr. af hans hálfu þegar var verið að ræða um jarðgufuvirkjun við Kröflu eða Námafjall, og taldi að það, sem hann las upp í þeim efnum, hefði sannað það sem hann var að halda hér fram, að þetta hefði verið afstaða Alþb. til Sigölduvirkjunar, að hún væri ætluð beinlínis í sambandi við stóriðju, og það hefði verið stefna Alþb. að koma upp stóriðju á Norðurlandi og Austurlandi. Nú er það svo, að auðvitað er það, sem hv. þm. Þórarinn Þórarinsson sagði í þessum efnum, slitið úr samhengi og túlkar allt annað en hann vildi vera láta. Ef hv. þm. hefði viljað vera sannsögull í þessum efnum, þá hefði hann vel getað greint nánar frá þeim umr. í þessu sama hefti Alþingistíðinda, sem hann var að vitna í, sem fram fóru einmitt um þessi mál, og því sem þar kom m. a. fram hjá hv. alþm. Magnúsi Kjartanssyni sem þá var iðnrh. En í þeim umr., sem liggja fyrir prentaðar og hv. þm. Þórarinn Þórarinsson vitnaði til í þessum efnum, kemur, eins og ég sagði, allt annað fram en hann vildi vera láta. Það kemur skýrt fram í þessum umr., að Magnús Kjartansson tekur það fram, sem auðvitað hafði margsinnis komið fram áður í umr., jafnt á Alþ. og í miklum umr. í blöðum varðandi Sigölduvirkjun, þar segir hann alveg skýrum orðum að það hafi verið mótuð stefna vinstri stjórnarinnar allan tímann að orkan frá Sigölduvirkjun yrði notuð í þágu íslendinga sjálfra og eitt höfuðverkefnið, sem þessi orka ætti að leysa, væri einmitt húsahitunarvandamálið í landinu. Ég gæti lesið upp ýmis af þessum ummælum hv. þm. Ég vísa hins vegar í þessa ræðu, því að hún liggur fyrir.
Hins vegar var rætt um það af einum af þm. Sjálfstfl., Halldóri Blöndal, sem var ekki sem ánægðastur með það, eins og fram kemur í þessum umr., að lagt var fram frv. til heimildar um að virkja Kröflu og leysa á þann hátt orkuvandamál norðlendinga. Þessi hv. þm. Halldór Blöndal var nefnilega á þeirri skoðun að það ætti að leysa þessi mál, orkumál norðlendinga, á annan hátt og það ætti gjarnan að ráðast í tilgreindar stórvirkjanir á Norðurlandi sem ekki kæmu síður til greina en þar vatnsvirkjanir sem nefndar hefðu verið á Suðsurlandi. Umr. þeirra á milli, sem hv. þm. Þórarinn Þórarinsson vitnaði í, snerust, eins og hinar prentuðu ræður bera með sér, fyrst og fremst um afstöðuna til þess, hvað liði því að ráðast í stórvirkjanir á Norðurlandi og Austurlandi í samanburði við ákvarðanir um að ráðast í slíkar framkvæmdir á Suðvesturlandi. Það er mjög augljóst á ummælum Magnúsar Kjartanssonar, að hann er fyrst og fremst að svara því, að vissulega sé það hans skoðun að stórvirkjanir í þessum landshlutum komi ekki síður til greina heldur en hér suðvestanlands. Hann bendir auðvitað á það, að hins vegar sé ljóst að til viðbótar við Sigölduvirkjun og Kröfluvirkjun sé augljóst mál að það þurfi að gera ráð fyrir því í hvað orkan eigi að fara ef eigi að ráðast þá þegar í nýja stórvirkjun. Og þá er það afstaða hans, að vissulega komi orkufrekur iðnaður jafnt til greina á Norðurlandi og Austurlandi eins og hér á Suðvesturlandi.
Hér blandar hv. þm. Þórarinn Þórarinsson því saman í sambandi við afstöðu okkar alþb.-manna, að við höfum auðvitað margsinnis tekið fram að við erum ekki á móti því að íslendingar geti komið sér uppi sinni stóriðju eða rekið orkufrekan iðnað þegar það hentar þeirra búskaparlagi. Við höfum marglýst yfir að við höfum ekki verið á móti því að þjóðin kæmi upp fyrirtæki eins og sementsverksmiðjunni, sem vissulega er stóriðja, áburðarverksmiðjunni, sem vissulega er stóriðja, og einnig að ráðist yrði í nýja áburðarverksmiðju, eins og rætt hefur verið um. Þarna er auðvitað um orkufrekan iðnað eða stóriðju að ræða sem getur með eðlilegum hætti fallið inn í okkar atvinnulíf. Hér er hins vegar reynt af talsmanni Framsfl. að rangtúlka þær umr., sem var vitnað í, því að eins og ég sagði kom það mjög skýrt fram í umr. hjá Magnúsi Kjartanssyni í þessu tilfelli, þar sem hann ræddi um þessi mál sem orkumálaráðh. þá, að hann segir að það hafi af sinni hálfu og ríkisstj. hálfu algeran forgang í sambandi við ráðstöfun á orku frá Sigölduvirkjun að leysa húsahitunarmálin með rafmagnshitun.
Ég hef sagt það hér nokkrum sinnum áður líka, að þegar framsóknarmenn eru að reyna að gera grein fyrir þeirri vandræðaafstöðu sem þeir hafa til Grundartangaverksmiðjunnar, þá eru þeir að reyna að afsaka afstöðu sína nú til málsins með því að segja að þegar ákvörðun var tekin á sínum tíma um að ráðast í Sigölduvirkjun, þá hafi um leið verið tekin ákvörðun um að það yrði að fylgja á eftir stóriðja af þeirri tegund sem við erum nú að deila um. Þetta er auðvitað tilhæfulaust og auðvelt að sanna að þetta er ekki rétt. Það liggur fyrir, eins og ég sagði, það er hægt að lesa það í ótal tilfellum upp úr þingræðum og vitna í bæði samþykktir og yfirlýsingar ríkisstj. frá þessum tíma, að það var ráðist í Sigöldu og tekin erlend lán til hennar á þeim grundvelli að íslendingar væru óbundnir öllum skilyrðum frá útlendingum um það, til hvers þeir ráðstöfuðu orkunni frá þessu orkuveri. Það lá fyrir að meginverkefnið ætti að vera það, fyrir utan að sinna hinni almennu orkuþörf atvinnuveganna í landinu, þá ætti forgangsverkefnið að vera að leysa húsahitunarvandamálið. Þannig stóðu málin, en ekki á þann hátt sem ýmsir framsóknarmenn vilja halda fram nú, að það hafi verið forsenda fyrir Sigölduvirkjun að á eftir fylgdi stóriðja af þeirri tegund sem hér er til umr., enda er það auðvitað fyrir neðan allt velsæmi að reyna að rökstyða afstöðu heils stjórnmálaflokks til slíkra stórframkæmda eins og Grundartangaverksmiðjan er á þennan hátt.
Afstaða Magnúsar Kjartanssonar til þessa máls kemur skýrast fram í því, hvernig hann tók afstöðu á Alþ. þegar frv. Þá fyrir hið fyrra um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði. Magnús Kjartansson greiddi þá atkv. á móti frv. og benti á, að það hefði verið afstaða sín allan tímann að húshitunarvandamálin ættu að hafa forgang. Það er hins vegar rétt, að Magnús Kjartansson sem iðnrh. felist á þá till. frá Landsvirkjun á sínum tíma, sem stóð að Sigölduvirkjun, að skipa sérstaka rannsóknarnefnd um orkufrekan iðnað þar sem formaður landsvirkjunarstjórnar, Jóhannes Nordal, var einnig formaður í þessari nefnd. Þetta var gert á þeim grundvelli að það skyldi kannað, hvort væri svo miklu hagstæðara í sambandi við byggingu Sigöldu að taka allar þrjár vélasamstæðurnar í gang svo að segja í einu, en þær áttu að vera þrjár, 50 mw. hver, að það gæti verið rétt að selja verulegan hluta af þessari orku til orkufreks iðnaðar sem gæti lotið þeim almennu skilyrðum sem ríkisstj. gæti komið sér saman um. Það hefur auðvitað ekkert farið á milli mála að ýmsir helstu forustumenn á vegum Landsvirkjunar og m. a. formaður þeirrar stjórnar, Jóhannes Nordal, hefur um langan tíma haft mjög mótaða afstöðu til erlendrar stóriðju. Hann hefur verið sannkallaður stóriðjumaður allan tímann. Og það er enginn vafi á því, að hann beitti áhrifum sínum í störfum þessarar n. til þess einnig að leita að möguleikum til að koma þessu áhugamáli sínu áleiðis. En það veit ég, að hvorki var tekin ákvörðun um það í ríkisstj., í vinstri stjórninni á sínum tíma, að það skyldi horfið að þessu ráði. Þegar það var rætt þar á þann hátt, að þá lágu orðið fyrir drög að frv. um járnblendiverksmiðju, þá lét ég bóka það í fundargerðarbók ríkisstj. að ég væri þessari framkvæmd algerlega motfallinn. Ég hef skýrt frá þessu nokkrum sinnum á Alþ. og þetta liggur fyrir. Þetta veit auðvitað hv. þm. Þórarinn Þórarinsson mætavel. En hann munar ekkert um það í sínum skáldskap að halda því hér fram, þó að þetta liggi fyrir, að ég hefði eflaust samþykkt frv. ef það hefði komist inn í þingið.
Nei, málið lá þannig fyrir að það var vitað mál allan tímann að á þeim grundvelli, sem þessi drög gerðu ráð fyrir varðandi járnblendiverksmiðjuna, þá var mjög sterk andstaða gegn því í Alþb. En hitt er rétt, að af hálfu Landsvirkjunar, sem að forminu til átti Sigölduvirkjun, var lögð á það mikil áhersla að geta selt orkuna til slíkrar verksmiðju eins og þessarar.
Það, sem hér skiptir máli í þessum efnum, er að það er rangt að það hafi verið ráðist í Sigölduvirkjun á sínum tíma á þeim grundvelli að henni yrði að fylgja stóriðja. Það er rangt, það er auðvelt að sanna það. Framsóknarmenn geta ekki skýrt afstöðu sína til málsins nú í dag á þeim grundvelli. Það er líka auðvelt að sanna það, að iðnrh. í vinstri stjórninni, Magnús Kjartansson, lýsir því yfir í umr. á Alþ. 30. jan. 1974 að það sé af sinni hálfu og ríkisstj. algert forgangsverkefni í sambandi við orkuna frá Sigöldu, til viðbótar við það að þjóna hinum almennu þörfum atvinnulífsins, að leysa húsahitunarvandamálið í landinu. Það var því vitanlega hægt vorið 1914 að taka afstöðu til þessara draga, sem fyrir lágu um járnblendiverksmiðju, á þeim grundvelli sem síðar var gert, hvort menn vildu fremur kjósa að ráðstafa um það bil helmingi orkunnar frá Sigöldu til járnblendiverksmiðju samkv. þessum samningsdrögum, sem fyrir lágu, eða hvort menn vildu ráðstafa orkunni á þann hátt sem vinstri stjórnin hafði margheitið og gert ákveðinn undirbúning að, að nota orkuna til þess að leysa húsahitunarvandamálið. Hið rétta er svo auðvitað það, að þegar frv. endanlega er samþykkt um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði, þar sem gert var ráð fyrir félagsskap við stórfyrirtækið Union Carbide, þá er það samþykkt hér á Alþ. fyrst og fremst með atfylgi Sjálfstfl., sem þá er kominn í ríkisstj., og Framsfl., sem beita sér fyrir því að koma þessu máli í gegn. Sá samningur, sem þá var gerður, og lögin, sem þá voru sett, eru því vitanlega á ábyrgð þessara flokka, og það er í rauninni ekkert annað en lítilmennska að ætla að reyna að réttláta afstöðu sína í þessu máli með því að einhverjir aðrir hafi áður verið búnir að taka af þeim ákvörðunarréttinn. Þeir höfðu fullt frelsi til þess að móta afstöðu sína í málinu og vera á móti frv., eins og Magnús Kjartansson var, þó að hann hafi á sínum tíma staðið að því að nefnd um orkufrekan iðnað væri sett á laggirnar og hún ynni það verk sem hún vann.
Ég vil svo rétt aðeins í framhaldi af þessu minna á það, að Magnús Kjartansson gerði þá grein fyrir afstöðu sinni til frv. um járnblendiverksmiðju, þegar það var hér afgreitt og hann hafði tekið þátt í umr. um málið, þá flutti hann beinlínis till. til þess að vísa málinu frá með rökstuddri dagskrá, þar sem hann rökstuddi fyrst og fremst afstöðu sína með þeim hætti, að það ætti að nota orkuna frá þessu orkuveri umfram það, sem atvinnuvegirnir beinlínis þyrftu, til þess að leysa húsahitunarvandamálið.
En það, sem ég hef sagt hér í tilefni af ræðu hv. þm. Þórarins Þórarinssonar er, eins og ég sagði, fyrst og fremst táknrænt hvernig þeir framsóknarmenn bregðast við þessu máli nú, hvernig þeir rökstyðja afstöðu sína til málsins. Ég hygg að þeir hafi gert sér grein fyrir því, að almennt séð í þeirra flokki er þessi afstaða flokksins til verksmiðjunnar á Grundartanga illa séð. Það er sennilega mikill meiri hl. af áhrifamönnum í Framsfl. á móti þessari verksmiðju og enn meira á móti henni í dag en þeir voru fyrir tveimur árum, þegar fyrra frv. v ár hér á ferðinni. Og ég dreg ekki í efa að mikill meiri hluti af fylgjendum Framsfl. í landinu er andvígur þessari verksmiðju og vildi vera laus við hana. Það er líka alltaf að koma hér betur og betur í ljós, að eftir því sem þetta mál er rætt lengur á Alþ. og eftir því sem það kemur oftar fyrir Alþ., þá eru fleiri og fleiri þm. að snúast gegn þessu máli. Allan tímann hefur hv. þm. Framsfl., Páll Pétursson, verið andstæðingur þessa máls, og nú fer ekkert á milli mála að hv. þm. Ingvar Gíslason gefur hér út nál. líka gegn þessu frv., hann leggur til, að frv. verði fellt. Ýmsir þm. í hópi Sjálfstfl. eru heldur betur farnir að hristast líka. Hv. hm. Lárus Jónsson talaði að mínum dómi mjög skysamlega um málið nú, því að hann hafði sérstaklega kynnt sér þann þátt málsins sem sneri að rekstrarafkomunni, og þegar hann hafði aðeins krufið þennan þátt, þá sá hann að það kom þar allt út með bullandi tapi og hér var um mjög óæskilega framkvæmd að ræða. Hann vill því ekki fylgja málinu vegna þessarar afstöðu. Við eigum eftir að sjá afstöðu fleiri þm. Ég trúi því satt að segja að þeir eigi eftir að koma fram enn þá nokkrir úr hópi sjálfstæðismanna og kannske framsóknarmanna líka sem verða á móti þessu máli. Ef við værum svo heppnir að við fengjum það enn einu sinni inn í þingið, sem sagt eftir að menn eru búnir að gera þá vitleysu að samþykkja þetta í annað sinn, og þessi Union Carbide í Noregi, semnú er aðili, hefði gefist upp og málið yrði því að koma hér fyrir enn einu sinni, þá líklega fengjum við meiri hluta fyrir því að fella málið. En hitt er svo auðvitað mjög athyglisvert, að sjá þá framsóknarmenn sem taka hér þátt í afgreiðslu þessa máls. Þeir eru ekki aðeins orðnir dauðhræddir. Þeir treysta sér ekki með nokkru móti að flytja sitt mál hér á efnislegum grundvelli, reyna að færa einhver rök að því af hverju sé rétt að ráðast í þessa framkvæmd. Þeir bregðast við á þann hátt sem aðaltalsmaður þeirra hér hefur gert, Þórarinn Þórarinsson, að þeir segja: Ja, Ég er hreinskilinn, ég hef ekkert vit á fjárhagshliðinni, ég er hreinskilinn, ég hef ekkert vit á mengunarmálinu. En Magnús Kjartansson skipaði einu sinni n. Alþb. hefði líklega samþykkt þetta, sérstaklega ef það hefði fengið að vera í ríkisstj. Af því erum við framsóknarmenn með málinu. — En sá málflutningur!
En hvað um það, það er auðvitað alveg augljóst að afstaða þeirra framsóknarmanna er þessi sem hún er vegna þess, að þeir hafa látið undan þeim þrýstingi sem er fyrir hendi í þeirra eigin flokki, hjá stóriðjumönnum þar, og þeir hafa látið undan þrýstingi frá vissum öflum í Sjálfstfl., en svo standa þeir þannig að málinu eins og oft áður, að þeir þora ekki frammi fyrir sínum kjósendum að kannast við eigin afstöðu til málsins. Þeir ætla að ganga út í kjördæmin, þegar næst verður kosið, og segja: Ekki vorum við nú í rauninni með Grundartangaverksmiðjunni. Þetta var allt Alþb. að kenna. — En ég hygg að þeir sleppi ekki þannig út úr málinu, þeir verði dregnir til dóms fyrir þessa afstöðu sína.
Nú hafði mér þó ekki dottið í hug í sambandi við það, sem ég ætlaði hér að segja um málið, að gera þessa afstöðu þeirra framsóknarmanna að neinu aðalatriði í mínum málflutningi. Ég tel þrætu við þá um þetta vera ómerkilega og sérstaklega þýðingarlaust að vera að þræta við þá hér um þetta og það eigi ekki að tala við þá um þessa afstöðu þeirra og framkomu þeirra í þessu máli nema á almennum kjósendafundum. Þar á að tala við þá og þar verður talað við þá um þetta mál. Þeir eru búnir að binda sig hér að greiða atkv. líklega flestir á þann hátt sem formaður þeirra þingflokks hefur hér gert grein fyrir.
En hvernig liggur svo þetta stórmál fyrir okkur nú í dag þegar við virðum það nánar fyrir okkur? Við 1. umr. málsins ræddi ég í allítarlegu máli um einn þátt málsins sérstaklega. Það var sá þátturinn sem sneri að því, hvort það gæti verið að það væri rétt hjá okkur að ráðast í Þessa framkvæmd, í byggingu þessarar verksmiðju, vegna þess að það væri hagkvæmt að selja raforku til verksmiðjunnar á þeim grundvelli sem um hefði verið samið. Ég ræddi þennan þátt málsins í allítarlegu máli, og ég á eflaust eftir að koma eitthvað nánar að þessum þætti. En ég vil aðeins segja það nú, af því að ég ætla að láta það mæta afgangi að ræða um þennan þátt núna því að ég tel að ég hafi fullrætt hann áður, að svörin, sem menn hafa fengið hér við því sem fram kom varðandi orkusölusamninginn, eru ljótu svörin. Í rauninni hefur ekkert frambærilegt komið fram í þessum umr. frá talsmönnum verksmiðjumálsins til réttlætingar því að það væri hagstætt fyrir okkur að ráðstafa um það bil helmingi orkunnar frá Sigöldu til þessarar verksmiðju. Þvert á móti stendur hitt allt eftir, sem sagt hefur verið og bent hefur verið áa, að það bendir allt á það að við munum hafa halla, beinan halla, af þeim viðskiptum að láta raforkuna í svona ríkum mæli á svo lágu verði og með þeim kjörum sem gert er ráð fyrir í þessum samningum. Það liggur t. d. nú fyrir og getur enginn maður um það þrætt, meira að segja nú hafa menn orðið hér plögg í höndunum frá þeim járnblendiverksmiðjumönnum sjálfum, þar sem þeir jata að hér sé verið að selja raforku samkv. þeim samningi, sem fyrir liggur, á helmingi lægra verði en raforkan er seld til svona verksmiðja annars staðar, t. d. í Noregi. Þetta viðurkenna þeir sjálfir. Það þýðir því ekki að þvæla þetta mál öllu lengur þannig að hér sé verið að selja raforkuna á einhverju hagstæðu verði. — Nú sé ég að hv. formaður þingflokks Framsfl. er kominn. Hann er sloppinn við alla skammaræðuna sem ég var með, og ég skil mætavel að hann hafi viljað sleppa við þetta. En hann kannske hlustar þá á eitthvað annað, sem sagt er, heldur en það sem beinlínis er beint til hans.
Í sambandi við raforkuverðið vil ég aðeins draga það framnú strax, að ég hef hér í höndunum bréf frá Járnblendifélaginu sjálfu, frá íslenska járnblendifélaginu hf., dags. 31. jan. á þessu ári. Þar segja þeir m. a., þegar þeir fara að berjast í því að reyna að færa einhverjar líkur fyrir því að petta geti draslast í gegn án mikils taprekstrar og vegna þess að þeir hafi ýmislegt hagstætt af því, þá eru þeir að reyna að verja það sem ég ætla mér að eyða mínu meginmáli hér í að ræða svolítið um, rekstrargrundvöllinn. Þá komast þeir m. a. svona að orði í sambandi við rafmagnsverðið í þessu bréfi:
„Þegar samkeppnisaðstaða járnblendiverksmiðjunnar að Grundartanga er metin verður að hafa það hugfast, að hún nýtur álíka hagstæðs orkuverðs og t. d. eldri norskar verksmiðjur og verulega hagstæðara orkuverðs en flestar nýjar verksmiðjur a. m. k. á norðurhveli jarðar njóta.“
Það er ekkert annað. Það er hér verið að láta rafmagnið í té, og það á að vera ein aðalskýringin á því, að væntanlega muni hún draslast í gegnum þetta rekstrarlega séð, að hún eigi að fá rafmagnið á því verði sem gömlu verksmiðjurnar í Noregi búa við eftir eldgömlum samningum, þar sem raforkuverðið til þeirra, eins og ég las upp úr norskum heimildum við 1. umr., þar sem verðið til þeirra verksmiðja er nefnt af norðmönnum sjálfum sem fjarstæðukennt verð. Við ætlum að selja þessari nýju verksmiðju raforkuna á því verði sem norðmenn kalla fjarstæðukennt verð, 3–4 norska aura kwst. eða nánar tiltekið 3.5, þegar þeir eru sjálfir búnir að setja sem lágmarksverð hjá sér ekki 3.5, heldur 6.62 aura norska. Það er því vitanlega alveg óhrekjanlegt, að raforkusalan er á þeim grundvelli að við ætlum að láta þá fá orkuna hér á hálfvirði, enda fer það svo, að Orkustofnunin sjálf segir í því bréfi, sem birt er hér með nál. sem hér liggja fyrir, að hún telji að skilyrði, sem séu í þessum orkusölusamningi, séu alveg fráleit, þau fái ekki staðist miðað við þær skyldur sem þarna er um að ræða, verðið langt undir því sem rétt er. Í þessu bréfi frá Orkustofnun segir líka að þeir telji að framleiðslukostnaðarverð á raforku frá Sigöldu sé eins og verðið er á forgangsorku í þessum samningi, þegar reiknað sé með 40 ára starfstíma orkuversins og 10% vöxtum. En við eigum ekki að fá þetta framleiðslukostnaðarverð fyrir þá orku, sem við látum til verksmiðjunnar, heldur helmingi lægra, af því að hún fær helminginn af orkunni undir svonefndu afgangsorkuheiti.
Ég sagði að ég ætlaði fyrst að verja nokkru af mínum ræðutíma í það, áður en ég kem raunverulega að orkusölunni, að ræða nokkru nánar um rekstrargrundvöll verksmiðjunnar, þennan rekstrargrundvöll sem talsmaður Framsfl., Þórarinn Þórarinsson, afgreiddi á svona léttilegan hátt, að hann hefði ekkert vit á honum og af því þyrfti hann ekki að hafa þar neina afstöðu. Ég tel fyrir mitt leyti, eins og kom fram í máli hv. þm. Lárusar Jónssonar, að það sé blátt áfram skylda alþm. að reyna að gera sér grein fyrir því varðandi fyrirtæki, sem við erum að ráðast í og verja stórum fjármunum til, hvort það séu einhverjar líkur til þess að fyrirtækið fái í rauninni staðist, hvort það geti borgað sig eða hvort við séum að leggja hér þá bagga á íslenska ríkið að við þurfum að borga með þessum rekstri um langt árabil. Hv. þm. Lárus Jónsson komst að þeirri niðurstöðu, að það væri alveg augljóst að um alllangan tíma yrðum við að borga með þessum rekstri rekstrarlega séð. Það var alveg fyrir utan raforkudæmið.
En hvað er það svo meira sem fyrir liggur hjá okkur varðandi rekstrarmöguleika þessarar verksmiðju? Jú, það hefur verið lögð fram rekstraráætlun og stofnkostnaðaraætlun, hvað hún muni kosta mikið og hvernig eigi að skipta þessum stofnkostnaði, og síðan hefur verið gerð rekstraráætlun. Nú er það svo merkilegt í sambandi við stofnkostnaðaráætlun, að það liggur fyrir — og taki menn vel eftir — að meginstofnlánið, sem fengið hefur verið loforð fyrir, formlegt loforð frá Norræna fjárfestingarbankanum, það liggur alls ekki fyrir hvaða vaxtakjör eða lánskjör eiga að vera á þessu láni. Það er skýrt tekið fram að lánskjör verði ákveðin þegar það liggi endanlega fyrir í hvaða gjaldeyri þetta lán verði endanlega veitt, af því að það megi jafnvel búast við því að það verði tekið að láni af Norræna fjárfestingabankanum á mörgum stöðum. Það er því ekki enn búið að semja um lánskjörin á aðalstofnláninu. En hvað um það, menn geta gefið sér þar eins og fyrri daginn við þessa útreikninga ýmsar tölur, og það hefur verið gerð rekstrarkostnaðaráætlun. Og hér hefur verið dregið fram í þessum umr., að fengin hafi verið staðfesting á því hjá Þjóðhagsstofnun, að sé gengið út frá rekstraráætluninni eins og hún er sett upp af aðilum málsins sjálfum, en lagt til grundvallar ráð verðlag sem var alveg öruggt og lá óumdeilanlega fyrir á s.l. ári, árinu 1976, þ. e. a. s. framleiðslan hefði verið seld á því verði sem þá var skráð á þessari framleiðsluvöru og hráefnisverðið einnig sett inn í dæmið á þeim grundvelli sem þeir járnblendimenn hafa tekið inn í sína áætlun, þá er staðfest að það hefði orðið yfir 800 millj. kr. rekstrartap á verksmiðjunni á þessum grundvelli miðað við s.l. ár. Þessu er ekki mótmælt, enda þýðir vitnalega ekkert að neita því að tvisvar sinnum tveir séu fjórir, það þýðir ekkert að lemja höfðinu þannig við steininn. Þetta liggur alveg augljóst fyrir í þeirra eigin útreikningum. Samt sem áður er gert ráð fyrir því í þeirri rekstraráætlun, sem lögð er fram, að allt geti þetta farið batnandi með árunum, með því að menn gefa sér það fyrir fram að framleiðsluvaran muni hækka mjög verulega í verði á næstu tveimur árum fyrst og fremst og síðan um 4% á ári eftir að framleiðslan er komin í fullan gang. Auðvitað sjá allir, sem eitthvað eru vanir rekstri, að þetta eru vægast sagt veikar forsendur. Það er hæpið að ráðast í stórframkvæmdir og mikinn rekstur sem byggður er á grundvelli eins og þessum, að treysta bara á að þarna verði um verulegar verðhækkanir að ræða.
Þá er einnig bent á það, að svo undarlega sé að þessu staðið í áætlunargerðinni hjá þeim járnblendimönnum, að þeir reikna með hækkun á verði á framleiðsluvöru verksmiðjunnar, en þeir reikna ekki með sams konar hækkun á því hráefni sem verksmiðjan þarf að kaupa og vinna úr. Það liggur alveg augljóst fyrir að þegar verksmiðjan á samkv. þeim áætlunum, sem fyrir liggja, að fara að skila hagnaði, þá er gert ráð fyrir því að hráefnið, sem hún þarf á að halda, sé miklu minna hlutfall af heildarframleiðsluverðmætinu en það hefur verið um margra ára skeið. Á það hefur verið bent, að ef menn reiknuðu með því að þessi stóri liður í framleiðslukostnaðinum, sem er aðkeypt hráefni, yrði áfram jafnhátt hlutfall af heildarframleiðsluverðmæti verksmiðjunnar og hann hefur verið á undanförnum 6 árum að meðaltali, þá er bullandi tap á verksmiðjunni.
Það kemur eflaust í ljós þegar betur er að gáð, að hv. þm. og talsmaður Framsfl., Þórarinn Þórarinsson, er hyggnari en menn halda í fyrstu, að reyna að losa sig út úr þeim vanda að reyna að rökstyðja, að það sé rétt að fara út í þessa framkvæmd, einfaldlega með því að hann hafi ekkert vit á málinu. Það losar hann úr öllum vanda. Hann þarf ekki að svara nokkrum sköpuðum hlut varðandi atriði eins og þetta á þennan hátt, að halda því aðeins fram að hann hafi ekkert vit á málinu.
Nú er einnig þess að geta, að rekstraráætlanir þessa fyrirtækis eru byggðar á þeim útreikningum að það er gert ráð fyrir að tveir 30 mw. ofnar eigi að afkasta toppframleiðslumöguleika miðað við fyrri upplýsingar, sem legið höfðu fyrir frá Union Carbide á sínum tíma, þ. e. a. s. að hvor ofn fyrir sig með stanslausri vinnslu allt árið gæti framleitt 25 þús. tonn af kísiljárni, eða að heildarframleiðslan gæti orðið 50 þús. tonn. Hins vegar er upplýst í þeim gögnum sem liggja fyrir, að hinn norski samstarfsaðili treystir sér ekki til þess að ábyrgjast að það sé hægt að selja alla þessa framleiðslu þó að hún lægi nú fyrir. Hann veitir nokkra tryggingu fyrir sölu sem nemur 80% af framleiðslunni á tilteknu árabili, en síðan fellir hann alveg niður skyldu sína á því að tryggja að varan seljist.
Nú er auðvitað enginn vafi á því, að allir þeir, sem gera rekstraráætlanir af nokkurri varkárni um mikilvægan rekstur, hefðu í tilfellum eins og þessu reiknað með nokkru minni ársframleiðslu hjá verksmiðjunni en því sem er algert hámark miðað við stanslausan rekstur ofnanna, Á þetta hefur verið bent af verkfræðingum og rekstraraðilum sem hafa farið yfir þessar áætlanir, að hefði t. d. það verið sett inn í rekstraráætlunina að gera ráð fyrir því að framleiðslan yrði ekki nema 80% eða 90% af hámarki, þá er líka grundvöllurinn hruninn undan öllu saman, þá stenst reksturinn ekki miðað við þær áætlanir sem liggja fyrir. En sem sagt, mönnum er sagt hér á hv. Alþ. að þeir eigi kost á því að ráðast í verksmiðjurekstur á þessum grundvelli, þessum veika fjárhagsgrundvelli, að öll framleiðslan seljist alltaf á síhækkandi verði án þess að hið þýðingarmikla hráefni til vinnslunnar hækki að sama skapi á móti, ekki gert ráð fyrir neinum aföllum á rennan hátt. Auðvitað er alger fávitaskapur að samrykkja rekstraráætlanir á þessum grundvelli.
Ég hef ekki kynnt mér mikið þær áætlanir sem lágu til grundvallar rekstri þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum, en ég trúi því varla að þær áætlanir hafi verið öllu vitlausari en þessar eða ógætilegri. Ég tel nokkurn veginn alveg augljóst mál að með þessum rekstri er stefnt í hallarekstur, nema einhver sérstök heppni verði með.
Það liggur líka fyrir að það er auðvitað engin tilviljun að þetta ameríska stórfyrirtæki, Union Carbide, sem var mest rætt um í þessum efnum fyrir tveimur árum, eitt það stærsta í þessari framleiðslugrein í heimnium, sem þeir járnblendimenn áttu ekki nógu stór orð til að hæla hér á sínum tíma fyrir framsýni og visku varðandi þennan rekstur, það hefur fengið það út úr athugunum sínum á þessu dæmi að það t. d. borgaði sig fyrir það að borga 850 millj. kr. til þess að vera laust út úr þessum samningi. Það vildi ekki halda áfram. Það vildi heldur fórna fé til þess að vera laust.
Nei, það er athyglisvert í þessum efnum hvernig ýmsir hv. alþm. taka á slíkum stórmálum eins og því sem hér er um að ræða. Annaðhvort trúa menn öllu sem fyrir þá er lagt, fást ekki til þess að beita eigin dómgreind að neinu leyti og láta þannig auðvitað hafa sig að hálfgerðum fíflum æ ofan í æ, eða þá að þeir halda að sé um að ræða eitthvað sem heitir stóriðja, einhvern rekstur sem stóru þjóðirnar hafa haft með að gera, þá halda þeir að þar hljóti að liggja gróði, án þess að nenna að athuga það að nokkru leyti. Við munum vel eftir því, að á sínum tíma, þegar var verið að rökstyðja það að sem þá ætti við Swiss Aluminium um álbræðsluna í Straumsvík, þá voru hér haldnar miklar ræður um að við íslendingar yrðum að fá eitthvert öryggi í okkar efnahagsmál, eitthvað sem hægt væri að treysta á, ekki þennan blessaða fisk, þennan landbúnað og þennan íslenska iðnað okkar sem oft skilaði taprekstri, það þyrfti að koma hér eitthvað sem væri hægt að treysta á.
Hver hefur svo reynslan verið? Hún varð heldur dapurleg, reynslan hjá okkur, þegar við fórum á s.l. ári eða fyrir rétt rúmlega ári að gera upp við þetta álfélag skattinn sem það átti að greiða eftir samningunum sem gerðir voru. Þar var auðvitað samið um að álverið ætti að borga tiltekinn skatt, ákveðið framleiðslugjald, og það voru auðvitað sett ýmis ákvæði um þessa skattgreiðslu, m. a. um það, að ef reksturinn skilaði ekki góðum hagnaði, þá átti ekki heldur að borga skatt, þá átti þetta að færast til baka. En okkar samningamönnum, sem sömdu um þetta, datt ekki í hug slík fjarstæða eins og það gæti nokkurn tíma komið út úr sjálfum álrekstrinum að þar færi eitthvað niður, að þar yrði eitthvert tap. Þeir reiknuðu einvörðungu með því að skatturinn gæti farið upp á við og voru búnir líka að reikna út býsna myndarlega skattafúlgu langt fram í tímann sem við hefðum úr að spila í þessum efnum. En svo þegar skattadæmið var gert upp eftir orðanna hljóðan og eftir reikningum verksmiðjunnar og afkomunni hjá verksmiðjunni í Straumsvík eftir sjö ára rekstur, þá komu þeir álmenn og sögðu við okkur: Ja, við eigum nú inni á skattreikningnum heldur hærri upphæð en við höfum borgað ykkur á þessum sjö árum í framleiðslugjald. Við eigum inni heldur hærri upphæð. — Og þannig var dæmið rétt gert upp. Að vísu stöfuðu þessi undur, að þeir skyldu nú eiga meira inni en þeir höfðu borgað, að nokkru leyti af því að þeir höfðu tryggt sér gengisgróða af innistæðunni sem þeir orðið áttu inni þar sem þeir höfðu borgað of mikið. En hið raunverulega var það, þó að við hefðum tekið gengisbreytingar algerlega út úr þessu dæmi, þá var greiðsla á skatti eða framleiðslugjaldi frá þessu stórfyrirtæki nauðalítil og sagði í rauninni ekkert allan þennan tíma, vegna þess að þessi staðfasti rekstur, þessi líka trausti rekstur sem ekki tapaði eins og íslenskur iðnaður, hafði verið gerður upp ár eftir ár með bullandi rekstrartapi samkv. reikningum fyrirtækisins. Það kom þá sem sagt í ljós að verð á áli gat líka fallið engu síður en verð á fiskblokk. Og það liggur nú fyrir okkur að hefðum við íslendingar t. d. staðið að rekstri álversins á þeim tíma þegar verðfall álsins varð hvað mest, þá hefðum við, ekki stærri bógar en við erum íslendingar, orðið að loka verksmiðjunni. Við hefðum ekki getað haldið áfram að framIeiða án þess að selja jafnlengi og auðfyrirtækið Swiss Aluminium gat með þeirri samtryggingu sem auðhringarnir höfðu sín á milli. Þeir drógu að vísu úr framleiðslukraftinum og söfnuðu hér upp miklum birgðum. En við hefðum ekki getað gert þetta og við gerum þetta ekki í almennum rekstri hjá okkur, þar verðum við heldur að leggja upp laupana.
Reynslan af þessu á vitanlega að hafa kennt okkur að það er hrein goðsögn að vera að tala um að erlend stóriðja sé ekki það vissum verðlagssveiflum í heiminum og vissum áhættum í fjárhagslegum rekstri, engu síður en okkar matvælaframleiðsla, og auðvitað eigum við að reyna að hyggja að því, eftir því sem við getum, að við séum ekki að láta draga okkur inn í rekstur af þessu tagi nema það séu þá sterk rök fyrir því að reksturinn verði okkur hagkvæmur.
Í sambandi við rekstur á þessari verksmiðju á Grundartanga, sem ráðgerður er, hefur mönnum farið svipað í umr. um þetta eins og varðandi álverið, að þeir hafa verið með hinar mestu blekkingartölur varðandi þýðingu þessa rekstrar í okkar þjóðarbúskap. Menn leika sér gjarnan að því að taka brúttóframleiðsluverðmæti verksmiðjunnar og finna út hvað það sé mikil fjárhæð borið saman við okkar útflutning. Auðvitað er slíkur samanburður hrein fjarstæða. Framleiðsla af því tagi, sem á sér stað í Straumsvík og er ráðgerð uppi á Grundartanga, byggist á úrvinnslu úr innfluttum hráefnum og þarf því að nota frá 1/3 upp í 40% af brúttó-framleiðsluverðmætinu til þess að greiða fyrir innflutt hráefni. Sannleikurinn er líka sá, að ef tekin er sú rekstraráætlun sem liggur fyrir varðandi járnblendiverksmiðjuna í Hvalfirði, sé sú rekstraráætlun tekin og athugað nánar hvað hún getur haft mikla þýðingu í okkar efnahagslífi þegar rétt er á málið litið, hvað er það sem þá kemur út úr dæminu? Þá kemur það út úr dæminu að raunverulega skili þessi verksmiðja ekki gjaldeyrislega séð í okkar þjóðarbú, a. m. k. um mjög langan tíma, öðru en sem nemur hinum raunverulegu launagreiðslum hjá fyrirtækinu, beinum og óbeinum. Það er líka rangt að taka inn í þetta dæmi raforkusöluna, því að í besta falli borga þær tekjur, sem við eigum að fá í aðra hönd fyrir afhenta raforku til verksmiðjunnar, til með að standa undir þeim útgjöldum sem við verðum að hafa af því raforkuveri sem við ætlum að ráðstafa að hálfu leyti til þessarar verksmiðju. Þar verður ekki um neinn ábata að ræða. Og auðvita eru tölur eins og hráefniskostnaður og eins og ég sagði raforka, hafnargjöldin, því að við verðum að byggja sérstaka höfn sem þau þjónustugjöld verða að renna til, tækniþjónustan sem þessir aðilar leggja fram, vextirnir af kapítalinu og afskriftirnar, eyðslan sjálf, ekkert af þessu færir raunverulegan pening í okkar þjóðarbú. Það, sem eftir stendur, er vinnulaunagreiðslan, bein og óbein, og hugsanlegur hagnaður eða hugsanlegt tap dregið frá vinnulaunagreiðslunum. Eftir því hvað djarftækir menn eru í áætlanagerðinni með framleiðslumagnið, þá kemur í ljós að launagreiðslur allar geti, sé reiknað t. d. með 80% framleiðslumagni, orðið í kringum 684 millj. kr., en sé hins vegar reiknað með meira framleiðslumagni og eins og gert er í þessari áætlun, þá geta launin farið í kringum 800–900 millj. kr.
Auðvitað er hér, þegar málið er skoðað nánar, um tiltölulega mjög þýðingarlítinn rekstur að ræða efnahagslega séð fyrir okkar efnahagskerfi — mjög þýðingarlítinn. Ég nefni aðeins sem dæmi að loðnuverksmiðja, sem mér er vel kunnugt um og starfaði núna í 21/2 mánuð, framleiddi útflutningsvörur á rúmlega 21/2 mánuði fyrir rúmlega 1000 millj. kr., fyrir rúmlega einn milljarð, og hún þurfti ekki að kaupa hráefnið fyrir erlendan gjaldeyri og flytja það inn sem nam þriðja parti af þessu. Hún þurfti auðvitað, þessi verksmiðja, það er rétt, að standa undir þeim erlenda kostnaði sem liggur í vélabúnaði og vissum tækjum verksmiðjunnar og olíum til brennslunnar og öðru þess háttar. En hún þurfti ekki að kaupa hráefni sem nam 30% af þessu útflutningsverði. Það var innlent, það var nýting á okkar auðlind. Milljarðurinn, sem kom út úr 21/2 mánaðar rekstri þessarar verksmiðju í þjóðarbúið, sem verksmiðjan stóð vitanlega ekki ein algerlega að, heldur ákveðinn skipafloti líka, þessi rekstur hefur þessa þýðingu í okkar þjóðarbúskap, miklum mun meiri þýðingu, þegar við værum að tala um reksturinn yfir allt árið, heldur en raunverulega svona verksmiðja hefur í sjálfu sér.
Það er því ein blekkingin, sem hér hefur verið haldið fram í þessu máli, að rekstur verksmiðju af þessu tagi þýði að það sé verið að skjóta einhverjum traustum stöðum undir efnahagslíf þjóðarinnar. Það eru þvert á móti, eins og ég hef rakið hér, miklu meiri líkur á því að við getum haft verulegan hallarekstur af þessari verksmiðju, a. m. k. um talsvert arabil, og verðum að borga með henni, og við hefðum átt að ráðstafa okkar fjármunum, sem við leggjum óhjákvæmilega og alveg beint í þetta fyrirtæki, á allt annan veg. Hér hefur verið á það bent, að samkv, þeim samningsdrögum, sem fyrir liggja, og frv. verður íslenska ríkið að leggja fram í beinu hlutafé eða öðrum framlögðum verðmætum, sem íslenska ríkið verður að kaupa, og í algerum áhættulánum, sem jafngilda beinu framlagi, við verðum að leggja fram í kringum 31/2 milljarð áður en verksmiðjan er komin í gang. Það hefði sitthvað mátt gera fyrr með þessa fjárhæð sem hefði skilað sínu í okkar þjóðarbú.
En það er ekki aðeins að þessi rekstur allur sé svona hæpinn, eins og ég hef hér verið að gera grein fyrir, heldur það, að þessar tiltölulega ljótu áætlanir, sem eru svona óábyggilegar, sem hér liggja fyrir, eru líka byggðar upp á því að það er verið að ætla þessari verksmiðju, þessum rekstri allt önnur rekstrarkjör en okkar atvinnuvegir eiga almennt við að búa. Í frv. er t. d. tekið fram að ein af skyldum íslenska ríkisins, — það er ekki einu sinni skylda þessa járnblendifélags sjálfs, það er skylda íslenska ríkisins, — er að kaupa land undir verksmiðjuna og hafa það a. m. k. svo stórt að það sé hægt að tvöfalda hana síðar. Það er líka skylda á ríkinu að leggja veg að verksmiðjunni. Það gerir ríkið ekki í sambandi við venjuleg íslensk atvinnufyrirtæki. Það er tekið hér einnig fram í 3. gr. frv. að ríkið eigi að byggja sérstaklega höfn fyrir þessa verksmiðju, leggja fram í höfnina sem beinan styrk 75% af stofnverði hafnarinnar og lána hin 25%. Þetta gerir vitanlega íslenska ríkið ekki við einstök fyrirtæki á vegum landsmanna sjálfra, því fer víðs fjarri. Þá er tekið fram í 3. gr. frv. að fyrirtækið eigi ekki að þurfa að borga stimpilgjöld eða þinglýsingargjöld í sambandi við sinn stofnkostnað. Íslensk fyrirtæki, sem eru stofnuð, verða að borga þetta. Þau verða öll að borga þessi gjöld. Hér er um býsna háar upphæðir að ræða. Þá er einnig tekið fram í 9. gr. frv. að verksmiðjan verði byggð við þær aðstæður að ekki þurfi að greiða tolla eða önnur aðflutningsgjöld, söluskatt af vörum, ekki einu sinni af tækjum sem notuð eru í sambandi við byggingarframkvæmdirnar. En þegar ráðist er hins vegar í það að koma upp íslenskum fyrirtækjum, t. d. þeir sem ráðast í það að byggja eða stækka loðnuverksmiðju, þeir verða að borga aðflutningsgjöld í talsverðum mæli af vélum og tækjum til verksmiðjunnar og að sjálfsögðu full gjöld af öllum þeim tækjum og áhöldum sem þeir þurfa að nota í sambandi við sínar byggingarframkvæmdir.
Hér er gert stórkostlega upp á milli almennra íslenskra atvinnufyrirtækja og þessa fyrirtækis sem á að reka hér í sameign með útlendingum. Þetta er auðvitað stórhættulegur leikur, og það er enginn vafi á því að þetta fær ekki staðist til lengdar. Það eru þegar komnar fram kröfur um það frá innlendum iðnaði, hann gerir kröfu um að fá að njóta fríðinda af þessu tagi líka. Hann vill fá raforkuna á svipuðu verði, a. m. k. miðað við nýtingartíma, eins og þessi verksmiðja á að fá, hann vill njóta sömu tolla- og skattafríðinda og hann vill láta ríkið leggja sér hluti í margvíslegum verðmætum eins og gert er ráð fyrir í þessu frv. að þetta fyrirtæki eigi að njóta. Og þegar kröfur íslensks iðnaðar verða komnar fram með fullri alvöru um þetta atriði, þá auðvitað sannfærast menn um að þetta fær ekki staðist, þetta er ekki hægt. Þessi atvinnurekstur allur verður að taka sinn þátt í því að standa undir íslenska þjóðarbúinu, hann verður að borga sinn hluta af hinum almenna rekstri.
Það hefur nokkuð verið bent á það í þessum umr. einnig, að það liggja fyrir ýmsar upplýsingar um býsna skuggalegar horfur í markaðsmálum verksmiðju af þessu tagi. Enginn efast nú um að slíkt ástand gekk yfir framleiðslu af þessu taginu fyrir stuttu. Ég veit að allir hv. alþm. hafa fengið upplýsingar sem var dreift á borð okkar þm. og teknar hafa verið saman af aðilum sem hafa haft áhuga á því að reyna að gera Alþ. nokkra grein fyrir hvernig þessar áætlanir væru raunverulega byggðar upp. Þeir hafa m. a. dregið fram vissar upplýsingar sem komið hafa fram í erlendum þekktum tímaritum alveg nýlega um markaðsmál á kísiljárni. Í þessum upplýsingum segir m. a. að 12. febr. hafi staðið í viðskiptatímaritinu The Economist, sem gefið er út í London, þetta m. a.:
„Það er fyrirsjáanlegt að hin mikla kreppa stálmarkaðarins heldur áfram. Pantanir minnka að magni til og þeim fer einnig fækkandi. Verksmiðjur eru reknar langt undir afkastagetu. Undirboð valda truflunum á mörkuðum. Uppsögnum verkamanna í stálverum fer sífellt fjölgandi. Fjöldi stálfyrirtækja rambar á barmi gjaldþrots sem vart getur annað bjargað en þjóðnýting.“
Það hefur einhvern tíma þótt upplýsingar hér á hv. Alþ. þegar tímarit eins og það, sem hér er um að ræða, skýrir frá málum á þennan hátt, að það hefði ekki verið full ástæða til að gefa þessu gaum, sérstaklega þegar hægt er að benda á það að miklu fleiri tímarit erlend, sem fjalla um þessi mál, skrifa um þau mjög í sama dúr og hér er um nýjar upplýsingar að ræða og allítarlegar röksemdir sem þessu fylgja, hvernig þessu standi, og það hefur ekki verið reynt hér á hv. Alþ. að hrekja það á neinn hátt að þessar upplýsingar liggi fyrir og sé líklegt að hér sé rétt farið með staðreyndir. En það er engu líkara en hæstv. ríkisstj. og þeim meiri hl. Hér á Alþ., sem hún styðst við, sé alveg sama um allar svona upplýsingar. Þeir afgreiða málið bara á þennan létta hátt, að segja eins og hér var sagt, — það var víst formaður þingflokks Framsfl., hv. þm. Þórarinn Þórarinsson, sem bætti þeirri speki við til viðbótar við annað sem hann setti hér fram, að það væri svona með allan rekstur, hann gengi upp og niður, hann tapaði og hann græddi, og það yrði bara að taka því. Eftir þessari kenningu skiptir engu máli að vera að huga að þessum efnum, við getum farið út í hvað sem er, það fer upp eða það fer niður, og það þarf ekkert að vera að brjóta heilann neitt um það. Sem sagt, þegar menn vita að það lítur illa út í þessum efnum, þetta er mjög hæpið, þá er það afgreitt á einhvern hátt af þessu tagi.
Nei, það er auðvitað augljóst mál að hér er ekki um glæsilegan rekstur að ræða skoðað frá almennu rekstrarsjónarmiði. En ráð er reyndar einn þáttur í málinu eftir, eins og þetta enska tímarit bendir á, að þegar fyrirtækin fara að loka og segja upp og fara á hausinn, þá er þó alltaf til ein leið, það er bara að þjóðnýta heila dótið. Og þá er nú fyrst og fremst komið að Sjálfstfl., þá er nú hans hlutverk komið upp í málinu. Það er bara að þjóðnýta dótið. Ef þeir gefast upp, þessir Elkem-menn, þá tökum við bara að okkur að reka þetta og þjóðnýtum það og skrifum svo nokkra leiðara í Moggann, svona nokkrar vikur í röð, að það verði að hætta þessari helvítis þjóðnýtingu á öllum sviðum og efla einstaklingsframtakið. — Þetta er kannske hugsunin í málinu, þetta er kannske draumurinn hjá hv. 1. þm. Suðurl., formanni iðnn. Nd., sem hér talaði fyrir þessu máli, Ingólfi Jónssyni, að hann sé að reyna að gera ríkisgeirann enn þá stærri en hann er svo að menn geti þá skrifað enn þá betur um þennan stóra ríkisgeira.
Nei, ég held að það sé enginn vafi á því, að allir þeir, sem fást til þess í raun og veru að líta á þetta mál efnislega, reyna sem sagt að gera greinarmun á því, hvort hér geti verið um ábatasaman rekstur að ræða, rekstur sem þjónar okkar hagsmunum, sem er hagstæður fyrir okkur, hvort heldur er varðandi sölu á raforku eða almennt rekstrarlega séð, hvort þetta muni styrkja okkar efnahagskerfi eða ekki, þá komist menn að þeirri niðurstöðu að þetta sé síður en svo glæsilegt fyrirtæki.
Það væri svo gaman að spyrja sjálfstæðismenn um það, hvort þeir séu hrifnir af þessari stefnu, rekstri af þessu tagi, sem íslenska ríkið á rúman helming í í félagi við útlendinga, hvort þeir væru hrifnir af því rekstrarformi að svona rekstur ætti að njóta sérstakra vildarkjara og sérstakra fríðinda umfram hinn almenna rekstur sem einstaklingsframtakið í landinu m. a. hefur með höndum. Er það stefna Sjálfstfl.? Eru þeir ánægðir með þetta form, ætla þeir að halda þessu áfram?
Mér sýnist að það sé nú ekki hægt, þó að ég sé nú þegar búinn að tala hér nokkuð lengi, þá sé ekki hægt að víkja sér undan því að ræða hér nokkuð þær upplýsingar sem hér hafa komið fram varðandi þann þátt þessa máls sem sérstaklega snýr að mengunarhættu og mengunarvörnum.
Það er rétt, sem hér hefur verið sagt, að við höfum í rauninni vitað það öll hér á Alþ. að þetta mál lá jafnlengi og raun varð á hjá hv. iðnn. þessarar d., eða í rúmlega 21/2 mánuð, vegna þess að deilt var um ráð í sambandi við starfsleyfi fyrir verksmiðjuna hvaða reglur ættu að gilda í rekstri hennar til þess að forða frá mengun.
Það gerðist nefnilega að Heilbrigðiseftirlit ríkisins sendi frá sér ítarlega grg. í heilli bók 10. jan. þar sem það setti fram kröfur sínar um mengunarvarnir í þessari verksmiðju. Menn voru farnir að tala um það hér á Alþ. sín á milli hvort þetta ætlaði að fara eins og í sambandi við Union Carbide, hvort þetta færi allt um koll á leiðinni, hvort ríkisstj. kæmi málinu ekki í gegn, hvort hún fengi í rauninni ekkert starfsleyfi fyrir þessa verksmiðju vegna ágreinings um þessi skilyrði.
Svo kom að því að hæstv. heilbrh. Matthías Bjarnason, veitti verksmiðjunni starfsleyfi með þar til greindum mörgum skilyrðum. Það hefðu vitanlega verið eðlileg vinnubrögð hér á hv. Alþ. að sú n., sem hafði með málið að gera til athugunar og fjallaði um það í 21/2 mánuð, hefði gert hér ítarlega grein fyrir því í sínu máli á hverju stóð raunverulega allan þennan tíma, hvaða kröfur voru settar fram um öll þýðingarmestu atriðin frá hálfu Heilbrigðiseftirlitsins og hvernig þessi átök enduðu í sambandi við veitingu starfsleyfisins, í hvaða efnum var vikið frá þeim kröfum sem settar voru fram af hálfu Heilbrigðiseftirlitsins.
En hvernig stóð hv. iðnn. þessarar d. að þessu verki? Hún gerði enga grein fyrir þessu. Hún sagðist aðeins hafa talað við þessa menn og gaf í skyn, að þetta væri allt í lagi, og sagði á svipaðan hátt og formaður n., hv. 1. þm. Suðurl., Ingólfur Jónsson, sagði þegar við vorum að samþykkja fyrir rúmu ári heimild til álverksmiðjunnar um stækkun þar sem nam 20 mw. orkusölu til þeirra, að það væri óþarfi að setja þar nokkur viðbótarskilyrði, það væru allir sammála um að þarna yrði komið sem allra fyrst upp góðum hreinsitækjum og öruggum búnaði. Það er sem sagt þetta almenna sem auðvitað er nú komið í ljós að ekkert er að marka, ekkert hefur verið farið eftir í þessu tilfelli. Það, sem skiptir auðvitað máli, er hvaða skilyrði eru sett fyrir byggingu verksmiðjunnar og fyrir rekstri hennar. Eru skilyrðin þannig að það sé líklegt að þau haldi?
En hv. iðnn., sem átti að gera d. grein fyrir málinu og þá ekki síst þessum þætti sem hafði staðið svona lengi á, hún brast skyldu sinni varðandi þetta atriði og ætlaði í rauninni að láta hlaupa alveg yfir þennan þátt. En sem betur fer er búið að gera hér grein fyrir því í ræðu hv. frsm. 2. minni hl. n., Sigurðar Magnússonar, þá er búið að gera hér allítarlega grein fyrir því, hvaða kröfur um mengunarvarnir Heilbrigðiseftirlit ríkisins setti fram í þessu plaggi sínu frá 10. jan. og að hvaða leyti hefur verið vikið frá þeim kröfum í þeim málum sem einhverju varða í sambandi við mengunarvarnir. Ég ætla að víkja að nokkrum af þessum atriðum svolítið nánar.
Ég hef ekki fengið þetta í mínar hendur skriflega enn þá, en ég skrifaði það þegar frá þessu var sagt hér í ræðu. Ég tel, eins og ég sagði áðan, að það hefði átt hreinlega að prenta í nál. meginatriðin í skilyrðum frá Heilbrigðiseftirlitinu og einnig þar við hliðina á til glöggvunar fyrir þm. að hvaða leyti var vikið frá þessum meginskilyrðum í sambandi við starfsleyfið. Þá hefðu þm. getað myndað sér skoðanir á því, hvort hér væri rétt að málum staðið eða ekki.
Í þessum upplýsingum hefur það m. a. komið fram, að Heilbrigðiseftirlitið vildi hafa þann hátt á að veita nú starfsleyfi fyrir einum bræðsluofni, en ekki tveimur, vegna þess að það á að setja upp einn bræðsluofn í verksmiðjunni fyrst, og það kemur fram í grg., sem fylgir með frv., að meira segja gerð síðari ofnsins er ekki fullákveðin enn. Það getur komið til mála að hann verði hafður stærri og eins og þar segir, að menn eigi eftir að notfæra sér nýja reynslu í sambandi við gerð þess ofns. Ég verð að segja það, að mér finnst þessi afstaða Heilbrigðiseftirlitsins fullkomlega eðlileg. Það er eðlilegt að miða starfsleyfið við þann eina ofn sem á að kaupa og er ákveðinn og er hægt að taka afstöðu til. Til hins á vitanlega að taka afstöðu síðar, þegar málin liggja þannig fyrir að menn vita hvernig ofninn á að vera í öllum greinum. Frá þessum óskum Heilbrigðiseftirlitsins er vikið. Það er ákveðið að gefa verksmiðjunni nú í upphafi starfsleyfi fyrir tveimur ofnum. En segja má að þetta sé ekki það sem skiptir hér algjörlega sköpum, þó ég telji að sú vinnuaðferð, sem Heilbrigðiseftirlitið lagði til, hefði verið eðlilegri.
Þá hefur einnig komið hér fram, að aðalágreiningurinn hafi í rauninni staðið á milli Heilbrigðiseftirlitsins og þeirra járnblendimanna um það, hvernig með skyldi fara mengunarvarnir í verksmiðjunni þegar það kæmi upp að hreinsitæki biluðu eða færu úr sambandi um lengri eða skemmri tíma. Kröfur Heilbrigðiseftirlitsins voru þær, að ef þessi bilun yrði inni í vinnusalnum og gæti haft áhrif á loftið þar, þá skyldi rofið rafmagn til verksmiðjunnar eftir einn klukkutíma frá því að bilun átti sér stað hafi ekki tekist að gera við bilunina. Þarna átti ekkert að fara á milli mála, að það átti ekki að gera ráð fyrir því að mengunin fengi að breiðast þarna út innan um starfsfólk verksmiðjunnar. Það átti að rjúfa rafmagnið til verksmiðjunnar og stöðva reksturinn. En þetta vildu hinir norsku samstarfsmenn íslensku ríkisins ekki fallast á. Þeir vildu hafa þetta á annan veg. Þeir vildu fá leyfi til þess að halda áfram rekstri þó um bilun væri að ræða í hreinsitækjum. Síðan varð niðurstaðan sú, eftir því sem hér hefur verið skýrt fra, að verksmiðjan megi ganga allt upp í það að vera í 14 sólarhringa á ári spúandi reyk sínum óhreinsuðum út og einnig um vinnusvæðið, án þess að komi til stöðvunar af þessum ástæðum. Síðan er búið þannig um hnútana, að hafi ekki tekist innan þriggja klukkustunda að gera við þessa bilun, þá á að tilkynna þetta heilbrmrh. og hann hefur samband við landlækni og síðar er sagt að þá geti ráðh. látið stöðva reksturinn. Auðvitað sjá allir að á þessu er gífurlega mikill munur. Í öðru tilfellinu er fortakslaust gengið út frá því að verksmiðjan hefur ekki rekstrarleyfi, á ekki að vinna nema hún geti uppfyllt sínar kröfur um mengunarvarnir. En í hinu tilfellinu er allt galopið. Það þýðir lítið að segja að ráðh. geti auðvitað látið stöðva vinnsluna, en hann getur líka látið allt ganga.
Auðvitað höfum við alltaf vitað að Alþ. getur sett sínar reglur. En það getur líka látið vera að setja reglurnar, eins og það hefur gert.
Það fer ekkert á milli mála hvað þeir hugsa sér, þeir járnblendimenn, í þessum efnum. Í Morgunblaðinu, rétt eftir að þetta leyfi hafði verið veitt, er haft eftir einum forstöðumanni Járnblendifélagsins, Jóni Steingrímssyni, í sambandi við þetta leyfi, þá er það undir fyrirsögninni: Leyfið er þröngt, en þó viðunandi. Og svo segir m. a. í þessari klausu eða haft eftir þessum forstöðumanni orðrétt: „Okkur eru að vísu settar þröngar skorður og e. t. v. fullþröngar í sumum atriðum, en við töldum heppilegast að fá starfsleyfi sem þannig væri frá gengið að við þyrftum aldrei á undanþágu að halda.“ Það var einmitt það, þeir þyrftu aldrei á undanþágu að halda, en þeir reikna nú með því að þurfa á undanþágu að halda.
Þarna lá hundurinn grafinn. Auðvitað fer það ekkert á milli mála, að það sem þarna er strax verið að koma fram með fyrirvara um, þar þarf að fá undanþágu frá reglunum. Það á að standa þannig að málum að það sé hægt í gegnum ráðh. að sleppa verksmiðjunni við að fullnægja þeim skyldum sem til var ætlast.
Hér var skýrt frá mörgum öðrum atriðum sem snerta þessi mengunarmál og þau skilyrði, sem Heilbrigðiseftirlit ríkisins hafði sett fram, en vikið var frá. Það var t. d. mjög athyglisvert eitt atriði sem þarna kom fram, sem snerti svonefnt rekstraröryggi í hreinsibúnaðartækjum, hvernig þetta rekstraröryggi ætti að vera til þess að talið væri að útbúnaður sá, sem treyst væri á, væri fullnægjandi. Í kröfum Heilbrigðiseftirlitsins sagði að félagið væri skyldugt að senda inn upplýsingar til Heilbrigðiseftirlitsins og leita samþykktar þess fyrir þessum öryggisbúnaði. Þetta var strikað út og sagt að greinargerð þess skyldi send Heilbrigðiseftirlitinu til skoðunar.
Þarna er auðvitað alveg augljóslega um grundvallarbreytingu að ræða. Annars vegar er gert ráð fyrir því að senda eitthvað til álits eða skoðunar. Eftir er allt þrasið við að sjá um að menn standi við það sem til er ætlast. En upphaflegu kröfurnar voru vitanlega allt annars eðlis og gerðu ráð fyrir raunverulegu öryggi.
Þá þótti mér líka það býsna sláandi varðandi skilyrði, sem Heilbrigðiseftirlitið hafði sett fram, um að það skyldi ekki leyfilegt að nota þar ýmis hráefni með meira eiturinnihaldi en í tilteknu hlutfalli. Það þurfti að breyta þessu hlutfalli og hækka þetta um helming, leyfa helmingi meira eiturinnihald í hráefnum, sem mátti nota við framleiðsluna, heldur en Heilbrigðiseftirlitið hafði gert skriflegar kröfur um. Auðvitað er þarna líka verið að víkja frá þessum öryggisreglum í þýðingarmiklum atriðum. Það er verið að slaka til.
Ég hirði nú ekki um að telja upp öll þessi atriði, en þau voru miklu fleiri en þau sem ég hef minnst hér á, atriði sem á þennan hátt var breytt frá kröfum Heilbrigðiseftirlitsins, allt á einn veg, til þess að slaka á þessu eftirliti. Og þetta er gert þó að um það sé að ræða að þessi norski aðili, sem hér er samið við, gefi út strax í byrjun að hann telji sig ekki ráða yfir tækni í sambandi við mengunarvarnir sem tryggi meiri hreinsun en sem nemur 95% þegar best lætur, á sama tíma sem áður var gengið út frá því, miðað við það sem upp hafði verið gefið hjá Union Carbide, að þeir gætu hreinsað þessi úrgangsefni sem næmi 99%.
Það er sem sagt alveg ótvírætt reiknað með því nú að hafa miklu slakari hátt á í sambandi við mengunarvarnir. Það er vikið frá þýðingarmiklum kröfum, sem Heilbrigðiseftirlitið setti fram, og til þess, sem er að finna í starfsleyfinu. Svo koma hér einstakir hv. þm. sem tala sérstaklega fyrir þessu máli, eins og hv. formaður þingfl. Framsfl., og tala um það, að meðan Heilbrigðiseftirlitið mótmæli ekki, hann sem sagt sætti sig við þetta allt saman, að hafa þetta svona, á meðan Heilbrigðiseftirlitið mótmæli því ekki að starfsleyfið verði veitt á þessum grundvelli. Auðvitað vita allir hv. alþm. að þessi mál liggja ekki svona fyrir. Eftirlitsstofnun eins og Heilbrigðiseftirlit ríkisins setur fram kröfur varðandi mál eins og þetta. En hafi heilbrrn., sem er yfir þessu Heilbrigðiseftirliti, fallist á vægari kröfur, kannske ekki afleitar reglur, en á vægari kröfur, þá er vitanlega engin von til þess að undirstofnunin rjúki fram á sviðið og mótmæli því sem rn. sjálft hefur gert. Þannig gerast hlutirnir ekki hjá okkur. Það er því alveg gagnslaus afsökun að ætla að afsaka það, að þannig er staðið að þessum málum sem hér hefur verið gerð grein fyrir. Auðvitað er það verk okkar þm. í þessu tilfelli, að við eigum að leggja okkar mat á það, hvort hér hafi verið réttilega að málum staðið, hvort okkur sýnist þær kröfur, sem voru settar fram af Heilbrigðiseftirlitinu, hafa verið eðlilegar eða óeðlilegar. En í mörgum greinum, þar sem Heilbrigðiseftirlitið tekur fram í sambandi við sínar kröfur að þar sé það að fara fram á nákvæmlega sama stöðul og gildi annars staðar á Norðurlöndum, þar var einnig breytt til eða ákvæði strikuð út.
Það er því vitanlega ekki rétt, sem hér hefur verið sagt, að það hafi verið farið í öllum meginatriðum eftir kröfum Heilbrigðiseftirlitsins varðandi mengunarvarnir. Það hefur hreinlega verið vikið frá kröfum Heilbrigðiseftirlitsins, sem liggja fyrir skriflega, það hefur verið vikið frá þeim í þýðingarmiklum atriðum.
Hér hefur einnig verið á það bent, að það er vissulega þýðingarmikið atriði í þessum efnum, að hér er um það að ræða að settar eru reglur í fyrsta skipti eftir nýrri almennri reglugerð sem Heilbrigðiseftirlitið starfar eftir varðandi mengunarmál. Hér er því verið að skapa fordæmi. Hér er verið að leggja þær línur sem má búast við að verði farið eftir um langan tíma. Því álít ég að þegar svona stendur á, þá hafi verið rangt að víkja í nokkru atriði frá kröfum Heilbrigðiseftirlitsins, við hefðum átt að reyna að halda okkur við ítrustu varúðarreglur í þessum efnum sem þarna komu fram.
Það er hins vegar ljóst að hinn erlendi aðili, Elkem-Spigerverket, hefur sagt nei, hann hefði ekki viljað halda áfram ef hann hefði ekki komið sínu máli fram, og þá hefði líklega liðið yfir hæstv. ríkisstj., ef hún hefði staðið frammi fyrir því enn á ný að fá ekki þetta sitt hjartans mál fram.
En í sambandi við þetta, einmitt þessar reglur, sem þarna hafa verið ákveðnar nú varðandi starfsleyfi þessarar verksmiðju, og einnig önnur atriði, sem hér er vikið frá hinum almennu reglum sem varða íslensk fyrirtæki, þá finnst mér nauðsynlegt að það komi hér skýrt fram, og ég vona að fréttamiðlar finni ástæðu til að segja frá því án þess að draga þar nokkuð undan, að það hafi komið fram á Alþ. í sambandi við afgreiðslu þessa máls að það mun verða barist fyrir því eftir löglegum leiðum hér á Alþ. á komandi árum að breyta þessum reglum, því til þess höfum við lagalegan rétt. Þeir hjá Elkem-Spigerverket í Noregi skulu reikna með því. Það kemur alveg skýrt fram við afgreiðslu þessa máls að hér eru ýmsir fulltrúar á Alþ. sem strengja þess heit, að þeir muni beita sér fyrir að þessum ákvæðum, bæði varðandi mengunarreglur, sérréttindi varðandi rekstur og önnur atriði, muni verða breytt. Þeir hjá Elkem-Spigerverket geta ekki treyst á það að þetta haldi á þann hátt sem gerði í sambandi við samninginn við Swiss Aluminium. Þeir hjá Swiss Aluminium gerðu samning á þeim grundvelli að það væri ekki hægt að breyta vissum undirstöðuatriðum þess samnings með nýjum lögum á Alþ. En vonandi verður þessum reglum breytt strax eftir næstu kosningar. Við skulum vona t. d. að það verði þá búið að koma svo miklu viti inn í kollinn á þeim framsóknarmönnum, sem segjast ekkert vita í dag, að þeir samþykki a. m. k. fyrir stjórnarstóla að breyta þessum ákvæðum, þannig að þeir í Noregi skuli ekki treysta á að þeir fái hér undanþágur eftir vild sinni frá þeim reglum sem íslenska Heilbrigðiseftirlitið vill hafa hér, og ekki heldur í sambandi við nein sérstök rekstrarfríðindi. Það verður sem sagt unnið að því af fullum krafti að koma fram breytingum á þessum atriðum, því til þess höfum við alveg ótvírætt vald samkvæmt því sem hér er verið að gera. Sjálfstfl. er þegar bilaður í þessu máli. Hann getur ekki einu sinni trompað fram öllu sínu liði. Hann ræður því ekki eftir næstu kosningar að geta tryggt áframhald þessara reglna. Hans lið verður þar margsprungið, eins og það er þegar í dag. Framsfl. sannfærum við. Og aðra fáum við einnig með okkur í stjórnarandstöðunni, auk þess sem við ætlum að koma miklu fleirum inn hjá Alþb. eftir næstu kosningar. Þá breytum við þessum ákvæðum. Ég tel að það sé rétt og það sé einnig þýðingarmikið að hinn erlendi aðili, sem hér á hlut að máli, fái að vita það alveg milliliðalaust, að þessar yfirlýsingar eru gefnar hér á Alþ., að að þessu verður unnið. Hann skal ekki treysta á að hann njóti hér stórfríðinda umfram íslenskan atvinnurekstur. Hann skal ekki heldur treysta á að það verði vikið frá þeim stöðlum sem Heilbrigðiseftirlit ríkisins vill halda hér í heiðri í sambandi við mengunarvarnir. Hann verður þá kannske, þessi erlendi aðili, að kaupa sig út úr þessum leik á eitthvað svipaðan hátt og Union Carbide, borga okkur einhverjar krónur um leið og hann kveður.
En það er rétt, að það er þýðingarmikið atriði í sambandi við afgreiðslu þessa máls, varðandi járnblendiverksmiðjuna, að það er ætlast til þess að hún lúti íslenskum lögum, það sé hægt að koma yfir hana íslenskum lagabreytingum. Og auðvitað ber okkur skylda til að fylgja þessu máli eftir á þann hátt að knýja þarna fram breytingar. Við eigum ekki að þola það að útlendingar geti treyst á að koma hingað með mengunariðnað sinn sem þeir eru flæmdir úr sínum eigin löndum með, og við eigum ekki heldur að koma þeim upp á það, að þeir geti náð í okkar vatnsorku hér á framleiðslukostnaðarverði og treyst á það að þeir eigi hana. Það fer auðvitað ekkert á milli mála, að það hefur verið að gerast hér á Íslandi nú að undanförnu, að það er að verða stórkostleg breyting á afstöðu fólks í landinu til þessarar erlendu stóriðju. Það er enginn vafi á því. Og það segir nokkra sögu í þessum efnum, að þegar Dagblaðið lætur fara fram skoðanakönnun hér nýlega á afstöðu manna til erlendrar stóriðju, þá kemur í ljós að yfir 80% af þeim, sem svara, lýsa sig andvíga þessari stóriðju. Og það er auðvitað alveg eins og með veðurvitann, þegar hv. þm. Þórarinn Þórarinsson segir í lok sinnar ræðu, — maður þekkir þennan framsóknarveðurvita, hvernig hann snýst, — þá segir hann: Hingað og ekki lengra. Það er komið nóg af þessu. Þeir eiga ekki að fá þriðja kerskáalann í Straumsvík, sem hæstv. iðnrh. er þó að semja um eða a. m. k. að ræða um. (Gripið fram í.) Já, bara ræða, En menn treysta nú ekki á veðurvitann mjög mikið. Hann getur snúist eftir ýmsum aðstæðum. Þetta er að mínum dómi samt sem áður táknrænt um það sem er að gerast hjá Framsfl. Hann er núna að snúast með þessum vindi. Hann er að verða á móti þessari stóriðju. Hann þorir ekki að segja núna að hann sé með stækkun álversins í Straumsvík, þó hann væri með stækkun á álverinu þar í fyrra. Þeir þurfa bara svolítið lengri tíma, framsóknarmenn, til að snúast aðeins betur, og upp úr næstu kosningum fáum við þá til þess að breyta þessum lögum og láta þá Elkem-Spigerverket-menn í Noregi skilja að þeir eiga þetta ekki á þurru.
Ég sagði í upphafi míns máls, að ég hefði við 1. umr. um málið einkum lagt áherslu á að ræða þann þátt þessa máls sem sneri að raforkusölunni og af því gæti ég í rauninni sparað mér það nokkuð að ræða þann þýðingarmikla þátt í löngu máli nú að þessu sinni. En ég vil þó bæta við það, sem ég hef áður sagt um það atriði, örfáum orðum; því það er auðvitað enginn vafi á því, að ef það er fullkomlega rétt sem ég og ýmsir fleiri hafa haldið fram, að raforkusalan sjálf sé mjög óhagstæð viðskipti fyrir okkur íslendinga, að þarna fórum við illa með dýrmæta orku og látum hana á undirverði, — ef þetta er rétt, sem ég og margir aðrir hafa haldið fram og ekki hefur verið reynt að hrekja í þessum umr., þá sjá menn auðvitað að þetta er fraleit ráðstöfun, því það getur enginn haldið því fram að það sé eitthvað álitlegt upp á rekstrarafkomuna að efna til þessa rekstrar.
Það, sem ég ætlaði að bæta við hér í sambandi við sjálfa raforkusöluna, er m. a. þetta sem fram kemur í þessu hóflega orðaða bréfi, eins og við var að búast, um raforkusölusamning ríkisstj. frá Orkustofnun, hvað hún segir þarna um þennan samning eða orkumálastjórinn sjálfur, Jakob Björnsson. Hann segir í þessu bréfi, sem prentað er með nál. 2. minni hl. iðnn., um þennan raforkusölusamning m. a. þetta: „Eftir því sem séð verður af tiltækum gögnum virðist forgangsorkuverðið vera svipað og kostnaðarverð orkunnar frá Sigöldu á verðlagi nú, miðað við 10% vexti og 40 ára afskriftartíma.“ Sem sagt, forgangsorkan, sem er rétt um það bil á helmingi hærra verði en meðaltalsorkan er seld á samkv. samningnum, hún er að dómi orkumálastjóra, verðið á forgangsorkunni er um það bil framleiðslukostnaðarverð. Og þá sjá menn að við erum raunverulega samkv. þessu að selja verksmiðjunni orkuna á hálfvirði.
Ég vil fara orfaum orðum um það fyrirkomulag, sem notað er í sambandi við orkusöluna, að kalla um það bil helminginn af orkunni, sem seldur er samkv. þessum samningi, afgangsorku. Þar er bent á að það sé ekki bein skylda að afhenda nema um það bil helminginn af þessu orkumagni óslitið sem forgangsorku, það megi rjúfa orkusöluna til verksmiðjunnar eftir þar til settum reglum. En þó eru þær reglur svo stífar að þar er ekki hægt að víkja frá með því að rjúfa orkuna nema um örstuttan tíma án þess að lenda í því að brjóta samninginn.
Hvað mundi það svo þýða ef menn reyndu að notfæra sér þessi ákvæði, að taka af verksmiðjunni orkuna einhvern tiltekinn tíma þannig að hún gæti ekki haft í gangi nema annan ofninn stuttan tíma eða þá annan ofninn í fullum gangi og hinn kannske í hálfum líka stuttan tíma,því það er ekki hægt öðruvísi, annars eru menn búnir að reka sig upp undir afhendingarskilyrði sem nefnd eru í samningnum, — hvað gerist þá, ef menn gerðu þetta, af því þeir vildu ekki láta þessa afgangsorku í svona ríkum mæli og ætluðu að nota hana í eitthvað annað, selja hana til annarra á hærra verði? Hvað gerist þá? fellur einfaldlega niður framleiðslumagnið hjá verksmiðjunni, hún framleiðir minna. Jú, það væri aðeins hægt að bjarga þarna að örlitlu leyti raforkuseljandanum sem þarf ekki að láta orkuna alla á þessu óhagstæða verði. En þá kemur það niður á rekstri verksmiðjunnar, að hún framleiðir þá ekki það sem reiknað er með í rekstraráætlunum hennar, og þá myndast þar taprekstur.
Það fer auðvitað ekkert á milli mála að öll þessi ákvæði í orkusölusamningnum um afgangsorku eru hrein blekking. Hinn norski aðili, alveg eins og sá ameríski áður, eins og Union Carbide áður, í fyrri samningnum, reikna alltaf með í öllum sínum útreikningum og öllu því, sem gerð er grein fyrir í grg. með frv. báðum, þá reikna þeir alltaf með meðaltalsverði á kwst. af því að þeir eru að kaupa þetta, sem nefnd er forgangsorka og afgangsorka, og miða allar sínar áætlanir við að þeir fái hvort tveggja í því magni sem hér er um að ræða til þess að geta haldið verksmiðjunni í óslitnum gangi, það er því alveg ljóst að við erum að selja þessa raforku, helminginn af allri orkunni frá Sigölduvirkjun, til þessarar verksmiðju á hálfvirði, undir framleiðslukostnaðarverði.
Orkumálastjóri orðar þetta auðvitað eins og hver annar embættismaður og undirmaður ráðh. í þessum efnum, þá orðar hann allt þetta á þennan prúðmannlega og hóflega hátt til að stinga ráðh. og aðra þá, sem hafa gert þennan samning, ekki allt of mikið. Þegar hann kemur að afhendingarskilyrðum, sem snerta afgangsorkuna, þá segir hann ósköp einfaldlega:
Varðandi þessi ákvæði vill Orkustofnun benda á eftirfarandi: Í fyrsta lagi, að miðað við verðlagningu orkunnar sýnast þessi ákvæði tæplega eiga heima. Hér er gerð gæðakrafa, þ. e. um afhendingu á orkunni, — hér er gerð gæðakrafa sem varla er í samræmi við verð vörunnar. Og orkumálastjóri bætir hér við orðrétt á þessa leið: „Óeðlilegt er hins vegar að notandi, sem ekki greiðir hærra verð, geti gert slíka gæðakröfu.“
Það er því alveg ljóst, eins og ég hef sagt hér áður, að við erum hér að ráðstafa mikilli orku á of lágu verði. Það er því ómögulegt að ætla að hleypa þeim rökum undir þennan málflutning þeirra járnblendimanna, að við eigum að gera þennan samning af orkusöluástæðum. Við getum líka notað þessa orku til okkur gagnlegra hluta á allt annan veg, þar sem orkan mundi skila okkur miklu meiri verðmætum, ég tala nú ekki um að því leyti til sem við kæmum orkunni út í almennan iðnað okkar sem við seljum orkuna á tiltölulega háu verði, og einnig að sjálfsögðu til þess að losa okkur sem mest mögulegt er við olíuna til upphitunar húsa, því það fer auðvitað ekkert á milli mála að það bendir allt til þess, að sá kostnaðarliður, olían til húsahitunar, verði sífellt hærri og hærri, óhagkvæmari og óhagkvæmari. Að sjálfsögðu eigum við að athuga vel með hvaða hætti við notum okkar raforku til upphitunar húsa, hvort við gerum það að verulegu leyti í gegnum fjárvarmaveitur, sem kallaðar eru, eða með beinni upphitun þilofna, og fleiri aðferðir geta komið vissulega til greina. En þar er bara spurningin um það, hvaða leið á að velja. Auðvitað borgar það sig fyrir okkur þjóðhagslega sérstaklega, þegar eitthvað er lítið fram í tímann, að ráðstafa okkar orku í þessu skyni, og það borgar sig margfaldlega á við það að ráðstafa henni á þann hátt sem hér er gert ráð fyrir.
Þar að auki verðum við svo auðvitað að hafa það í huga, sem aldrei fæst tekið inn í þessi útreikningsdæmi, hvað það hefur að segja fyrir okkur í okkar efnahagslífi að standa þannig að málum að við seljum á slíku verði eins og hér er um að ræða jafnmikið af orkunni til erlendrar stóriðju, hvað það hefur að segja í sambandi við það að við verðum miklu fyrr en ella að ráðast í nýja virkjun. Það er auðvitað enginn vafi á því, að hefðum við núna lagt áherslu á að ráðstafa allri orku frá Sigöldu nú í okkar eigin þágu án slíkrar stóriðju sem hér er um að ræða, þá hefðum við ekki þurft að ákveða að hefja strax framkvæmdir við Hrauneyjafoss, þar sem um er að ræða eflaust framkvæmdakostnað sem mun hlaupa upp á 18–20 milljarða, eins og sá kostnaður kemur til með að verða. Hér erum við því að leggja á okkur bunga bagga eða á framtíðina með því að ráðstafa orkunni og það til langs tíma á þann hátt sem hér er gert.
Ég skal nú fara að stytta mál mitt. Niðurstaða mín í þessum efnum er þessi: Ég tel að það hafi ótvírætt komið fram í þessum umr., bæði nú við 2. umr. málsins og eins við 1. umr., að þessi járnblendiverksmiðja er okkur óhagstæð. Orkusalan er óhagkvæm. Við ættum að ráðstafa orkunni á allt annan veg. Í þeim efnum erum við sennilega að binda okkur talsvert þunga bagga fjárhagslega séð þegar litið er til framtíðarinnar, en það er algjör misskilningur að við höfum eitthvað upp úr þeim viðskiptum.
Í öðru lagi tel ég að það hafi komið skýrt fram í þessum umr. að rekstrarafkoma þessarar verksmiðju er vægast sagt tvísýn. Bendir í rauninni allt til þess, að hér geti orðið um alvarlegan hallarekstur að ræða sem kæmi til með að hvíla allþungt á okkur á næstu árum. Við verðum að binda hér mikið fjármagn sem er að sjálfsögðu tekið frá öðrum, og kostar sitt að leggja þetta fjármagn fram. Við erum að fara út í mikinn áhætturekstur, þar sem samningarnir eru meira að segja þannig að hinn erlendi aðili hefur alla möguleika til þess að skjóta sér undan áhættunni og skilja okkur eftir í aðalrekstraráhættunni. Hann hefur einkaumboð til að selja alla framleiðsluna og tekur sín háu sölulaun. Hann áskilur sér rétt til þess að smíða og selja þá ofna sem eiga að fara í þessa verksmiðju. Við megum ekki einu sinni kaupa þá eftir frjálsu og eðlilegu útboði og velja það sem okkur þykir ódýrast og best. Það er áskilið í samningunum af hans hálfu að við verðum að kaupa af honum. Hann á að fá árlega myndarlegar fjárhæðir fyrir það sem hann kallar rekstrarlega þekkingu sem hann leggur fram, og hann á að fá líka sérreiknað verulega fjárhæð fyrir þekkingu sem hann leggur fram í sambandi við stofnkostnaðinn. Og það er auðvitað enginn vafi á því, að sú aðstaða öll, sem þessi erlendi aðili hefur varðandi einkaumboð á sölunni og alla þá möguleika sem hann hefur til þess að selja okkur það sem þarf til rekstrarins og í stofnkostnað, er slík að með því bjargar hann sér í lengstu lög þó að illa kunni að fara. En við sitjum uppi með tap.
Í þriðja lagi tel ég einnig að hafi komið fram í þessum umr. að veruleg hætta sé á því að við séum að kalla yfir okkur meiri og miklum mun meiri mengun, bæði gagnvart okkar starfsfólki og umhverfi, heldur en eðlilegt er. Hér er slakað verulega varðandi mengunarkröfur frá því sem Heilbrigðiseftirlit ríkisins hefur sett fram kröfur um. Það er augljóst að hinn erlendi aðili gengur þarna á lagið, hann ætlar að fá undanþágur, hann gefur það strax til kynna, og hann vildi helst fá svo rúmt starfsleyfi að hann þyrfti ekki að vera að biðja um neinar undanþágur. Og hann vill áskilja sér rétt til þess að mega láta reykinn ganga þarna út yfir nágrennið algjörlega óhreinsaðan um alllangan tíma á hverju ári í sambandi við bilunartilfelli.
Enn vil ég svo nefna það til, að þessi framkvæmd, eins og stóriðjustefnan öll, er í algjöru ósamræmi við margumtalaða byggðastefnu. Framkvæmd af þessu tagi miðar að því að festa mikið fjármagn á einum stað, sem dregur eðlilega úr því að hægt sé að mæta þörfum annarra. Stóriðjustefnan öll miðar að því að draga fólkið saman að vissum stórum einingum þar sem hinir erlendu aðilar hafa tögl og hagldir. Það hefði að mínum dómi verið miklu réttara og meira í samræmi við yfirlýsta byggðastefnu að nota þessa fjármuni til þess að efla þá atvinnuvegi okkar sem eru í eðlilegu samræmi við þá byggð sem nú er í landinu, eins og okkar sjávarútvegur og landbúnaður er og okkar margbreytilegi iðnaður getur verið. En stóriðjustefnan er þarna fullkomin andstæða. Og enn vil ég nefna þá ástæðu, að með þessari stefnu erum við að gefa erlendum stórfyrirtækjum allt of mikið vald í okkar litla og tiltölulega fábreytilega efnahagslífi.
Það er enginn vafi á því, að þegar slíkir auðjötnar eins og þeir, sem eiga álverið í Straumsvík, verða búnir að stækka það en um 1/3 hluta og þessir norsku aðilar, sem hér eru á ferðinni í sambandi við Grundartangaverksmiðjuna, fara að krækja saman sínum klóm og koma sér saman um það að hafa áhrif miðað við sína hagsmuni á hvernig við stjórnum okkar málum; þá er okkur hætt. Þessir aðilar vilja t. d, frá sínum hagsmunum séð að við göngum í Efnahagsbandalag Evrópu. Það er þeirra bandalag. Þar njóta þeir sín best. Það er ekki nokkur einasti vafi á því, að eftir því sem tók þessara aðila verða sterkari. — (Gripið fram í.) Þessi stórfyrirtæki studdu þá stefnu í Noregi. Það stóð ekki á því. Það voru aðrir sem komu í veg fyrir að Noregur kæmist í Efnahagsbandalagið. Þessi stórfyrirtæki börðust fyrir því að norðmenn yrðu þar þátttakendur eins og þau gátu, og þau munu gera það hér líka. Sem sagt, vaðandi áhrifavald þessara aðila er einnig stórhættulegt okkar litla efnahagslífi.
Það skal svo einnig haft í huga, að það rekur engin nauður til þess að við séum að fara út í þessa glæfra. Við erum ekki í neinum vandræðum. Við höfum atvinnumöguleika í ríkum mæli þegar við ætlum okkur að fara að nýta til fulls okkar auðugu fiskimið sem innan skamms vitanlega færa okkur helmingi meiri verðmæti en þau gera í dag. Og þegar við reynum að notfæra okkur aðra atvinnulega möguleika, sem við eigum og vitum um á svíði iðnaðar og landbúnaðar, þá er auðvitað enginn vafi á því, að íslenska þjóðin er ekki í neinum vandræðum með atvinnutækifæri og möguleika til þess að halda vel á sínum málum. Við erum því ekki í sömu aðstöðu sem sumar fátækar þjóðir eru úti í heimi, eins og ný ríki í Afríku, sem neyðast jafnvel í þeirri stöðu, sem þær standa í, til þess að taka við erlendri stóriðju, þó að þær viti vel um þá hættu sem henni fylgir. Við eigum allt aðra möguleika hér. Því eigum við að hafna þessari stefnu. Það er hreinlega ekkert til sem hægt er fram að færa þessari stefnu til gildis. hví er það að við í Alþb. leggjum eindregið til að Alþ. afgreiði þetta mál með þeirri till. sem fulltrúi ukkar í iðnn., Sigurður Magnússon, hefur lagt hér fram, að málið verði afgreitt með rökstuddri dagskra, því vísað frá og tekið fyrir næsta mál á dagskrá, eins og þar stendur, sem sagt snúið sér að þarfari málum.