18.04.1977
Neðri deild: 66. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3283 í B-deild Alþingistíðinda. (2315)
129. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Sigurlaug Bjarnadóttir:
Herra forseti. Ég hafði nú eiginlega fallið frá orðinu í þeirri von, að þessari umr. yrði frestað til morguns, en úr því að á að ljúka henni í kvöld, þá sé ég mig til neydda til að koma því fram nú sem ég vildi sagt hafa í þessu máli. Ég skal reyna að vera eins stuttorð og ég get, þó að hér sé um stórt mál að ræða.
Við erum búin að hlusta hér dag eftir dag á rök með og á móti þessu máli. Ég hef að sjálfsögðu tekið með fyrirvara máflutning þeirra manna utan þings og innan sem ég veit að eru fyrir fram fjandsamlegir allri stóriðju. Sjálf er ég í flokki þeirra manna sem hafa talið stóriðju góða og gilda, en vilja fara með ákaflega mikilli gát.
Það, sem ég tel jákvætt við þetta mál í sjálfu sér, er það, eins og við aðra þá stóriðju sem um hefur verið að ræða hjá okkur, að slík fyrirtæki skapa óneitanlega atvinnuöryggi í okkar sveiflukennda atvinnulífi. Það hefur eða á að gera okkur fært að komast léttara frá að byggja stór raforkuver með hagkvæmri orkusölu og þá sérstaklega með tilliti til betri nýtingar á umframorku, sem annars nýttist ekki. Þetta fyrirtæki, sem hér um ræðir, kæmi vafalaust til þess að veita mikla atvinnu og verða mikil lyftistöng fyrir hlutaðeigandi byggðarlag. Þó ber þess að gæta, að atvinnuástand okkar í dag er þannig, að við megum í rauninni ekki við meiri þenslu í eftirspurn eftir vinnuafli, þannig að það verkar í þessu tilliti sem nokkur mínus. Mér er fyllilega ljóst að það eru mörg vandkvæði á því og erfiðleikar að hverfa frá þessu máli á þessu stigi. Þó eru framkvæmdir hafnar, en íslenska ríkið þó búið að leggja fram nokkurn hluta af sínu lögboðna framlagi samkv. frv. og samningi.
Eftir að hafa drepið á það, sem ég tel jákvætt við málið, þó hlýt ég að snúa mér að hinu, sem ég er ákaflega hrædd við og hikandi gagnvart. Ég læt þó gott heita það sem gert er ráð fyrir varðandi mengunarvarnir, umhverfisvernd og heilbrigðisaðstæður í þessu fyrirtæki, þó ég hins vegar telji að þar megi ekkert tæpara standa. En ég mundi ekki láta það fæla mig frá fylgi við málið. Það er staðreynd að tækni og framförum í mengunarvörnum hefur fleygt fram, og ég mundi treysta því, að það mundi hægt að búa svo um hnútana í þessu tilliti að við væri unandi.
Það, sem gerir mig mest hikandi og hrædda við að styðja þetta mál, er fyrst og fremst fjárhagslega hliðin. Ég sé ekki betur en að áhætta og óvissa um afkomu og arðsemi fyrirtækisins, þessir bættir séu svo veigamiklir að við hljótum að staldra verulega við. Mér sýnist líka áætlanir og umsagnir íslenskra aðila, eins og t. d. Þjóðhagsstofnunar, á furðu mikilli bjartsýni byggðar, og ég skil ekki samræmið á milli þess að gera ráð fyrir hækkandi söluverði á framleiðslunni, en ekki hækkandi verði á hráefninu, sem þó er mjög líklegt að haldist í hendur þó að erfitt sé að meta hvort muni hækka meira. Ég sé ekki betur en að Elkem-Spigerverket komi betur út að því er varðar alla áhættu við þetta fyrirtæki. Þannig er t. d. hlutafjárframlagið, sem er lagt fram, ýmist í reiðufé eða með hluthafalanum, það nemur 60 millj. norskra kr. hjá Elkem, en hins vegar 94.2 millj. hjá íslenska ríkinu. Ég sé ekki betur en að þetta hlutfall sé ekki það sama og eignarhlutfallið: 55 á móti 45. þar við bætist, við þetta beina hlutafjárframlag og hluthafalán, að auk þess er íslenska ríkinu gert að standa straum af bæði höfn, vegalagningu, kaupum á landi og lagningu raflínu. En raflínan ein frá Geithálsi og í Hvalfjörð minnir mig að sé áætluð um einn milljarð kr. (Gripið fram í.) Hún þarf að koma hvort eð er, að sjálfsögðu er það rétt.
En þá er ég komin að því sem mér ógnar hvað mest, og það vil ég leggja áherslu á, mér ógnar það, við það efnahagsástand, sem við búum við í dag, og við 100 milljarða kr. erlendar skuldir, að bæta barna við þessum stóru lánsfuglum, en mér skilst að gert sé ráð fyrir 18 milljörðum í heildarfjárfestingu í fyrirtækinu og þar kemur íslenska ríkið til með að bera bróðurpartinn.
Ég hef margoft lýst því yfir hér á hv. Alþ. að undanförnu að ég sé ekki til viðtals um frekari erlendar lántökur, jafnvel ekki til þess að leggja vegi um landið, svo þungt sem mér liggur það verkefni á hjarta, þess vegna finnst mér erfitt að láta sér detta í hug að bæta svo stórum lánskvöðum við ríkissjóð, svo illa og hættulega, að ég tel, sem hann er staddur að þessu leyti gagnvart lántökum við útlönd. Við hljótum líka að taka mið af þeirri vitneskju sem er fyrir hendi um sérstaka erfiðleika á mörkuðum á stáli í heiminum. Og ég get ekki lokað augunum fyrir staðreyndum eins og þeim, að það eru að bætast í hóp stál- og kísiljárnsframleiðanda voldugir aðilar, eins og Japan með sínum voæduga iðnkrafti og fleiri þróunarlönd, sem bæði verða hugsanlega útflytjendur á stáli eða kísiljárni eða alla vega sjálfum sér nóg að meira eða minna leyti, þannig að það verði til að þrengja um á markaðinum fyrir Evrópu og í Bandaríkjunum. Það fór ekki heldur hjá því að ég legði við eyrun er ég hlustaði á sjónvarpsfréttir nú á dögunum. Þar var talað um að búið væri að smíða kafbát úr plasti og innan 10 ára yrðu flugvélar smíðaðar úr plasti sem væri sterkara en stál og margfalt léttara. Þetta eru kannske draumórar, en kafbáturinn er þó orðinn staðreynd — og hvað er ekki mögulegt á tæknisviðinu í dag?
Þá kem ég að enn einu atriði sem er mér stór þyrnir í augum, og það er að ég tel íslenskum iðnaði mismunað með þeim fríðindum öllum sem margoft er búið að minnast hér á, ég þarf ekki að endurtaka það: Undanþága frá tollum, söluskatti, aðflutningsgjöldum. Þetta skapar að sjálfsögðu erfiða samkeppnisaðstöðu fyrir íslenska aðila. Mér er sagt að þetta sé alþjóðleg regla í þess konar viðskiptum eins og hér er um að ræða. Sjálfsagt er það rétt. En engu að síður slær það mann mjög illa. Og ég verð að segja það og taka undir með mínum andstæðingum, að mér finnst það dálítið sárt fyrir Sjálfstfl., talsmann einkaframtaks, að það skuli falla í hans hlut að leggja svo þungar byrðar á okkar efnahag til þess að styðja ríkisfyrirtæki í samvinnu við erlendan aðila, vitandi vits að fjöldamargir íslenskir einkaaðilar í iðnrekstri berjast í bökkum og kvarta sáran yfir of litlum skilningi og of lítilli fyrirgreiðslu af hálfu ríkisvaldsins.
Ég get ekki látið hjá líða að minnast á íslenskt hlutafélag sem heitir Íslenska stálfélagið. Það er búið núna, að ég best veit, í 10 ár að fara fram á fyrirgreiðslu frá íslenska ríkinu til að stofna hér verksmiðju sem framleiddi steypustyrktarjárn úr brotajárni, sem nú er allt flutt úr landi óunnið, og spara þannig íslenska ríkinu hundruð milljóna í erlendum gjaldeyri árlega. Það hefur hingað til verið daufheyrst við þessari málaleitan þessara íslensku aðila, sem ég held að hafi sýnt fram á með rökum að það er vert þess að hlustað sé á málaleitan þeirra og þeir studdir til þess að koma á þessu fyrirtæki.
Það eru nokkur önnur atriði, sem ég hlýt að benda á, í frv. og aðalsamningi sem fylgir sem fskj. með frv.
Það er þá í fyrsta lagi í 2. gr. aðalsamningsins, þar sem gengið er út frá að Elkem geti að 15 árum liðnum gert íslenska ríkinu að skyldu að kaupa öll þess hlutabréf. Íslenska ríkið hefur þarna bæði forkaupsrétt og jafnframt skyldu til að gera það ef norska fyrirtækinu sýnist svo. Hins vegar er svo í því tilfelli að íslenska ríkið vildi selja Elkem sinn hlut, að þá er aðeins um að ræða forkaupsrétt Elkems, en enga skyldu til að verða við þeirri ósk íslenska ríkisins. Það má segja að þetta sé kannske ekki eins afleitt og það lítur út fyrir að vera, því að þarna er talað um að söluverð skuli það ákvörðun endurskoðandafirma sem báðir aðilar hafa orðið ásattir um, þannig að ef fyrirtækið er mjög illa statt og Elkem vildi losna við sinn hlut, þá yrði söluverðið sennilega mjög lágt. En hvar stöndum við uppi með aðgerðarlaust stórfyrirtæki og einir á báti með rekstur þess, framleiðsluvöru og annað?
Í annan stað er talað um í 12. gr. samningsins að Elkem-Spigerverket skuli tryggja lágmarkssölu fram til 30. júní 1982. Eftir það ábyrgist það ekki þetta lágmark, sem nemur um 70% framleiðslunnar, að öðru leyti en því, að í samningnum er talað um að Járnblendifélagið skuli sitja við sama borð og hliðstæðar verksmiðjur norskar um sölu framleiðslunnar. Þarna finnst mér allt of ótryggilega um hnútana búið. Enn fremur finnst mér að í okkar áætlunum sé ákaflega hæpið að gera ráð fyrir hámarksframleiðslu 50 þús. tonnum, þó að erlendar verksmiðjur, semnú eru í rekstri, skili ekki nema 60–80 % afköstum.
Þetta eru allt mjög svo veikjandi punktar sem ég óttast að geti orðið okkur að fótakefli. Það vekur óhjákvæmilega spurningar að Union Carbide skuli draga sig í hlé, fyrirtæki og aðilar sem gerþekkja þessi mál. En einhverra hluta vegna hafa þeir ekki áhuga lengur og bjóðast til að greiða álitlegar skaðabætur, um 800 millj., til Járnblendifélagsins fyrir brigð þeirra á samningsgerð.
Ég skal ekki lengja þetta mál mitt miklu meir. Ég veit að það eru mikil rök annars vegar með þessu fyrirtæki, að við erum því miður ekki tilbúin í dag til að nýta þá orku, sem Sigalda framleiðir, til þess að nota hana í það sem við helst vildum, að rafvæða landið, koma húsahitun á þar sem jarðvarmi kemur ekki til greina. Þar eigum við eftir að byggja dreifikerfi og stofnlínur. En spurningin er, ef við tökum þær stóru fúlgur sem við ætlum að taka að láni erlendis og einbeitum okkur að þessu verkefni, hvort Sigöldu-orkan, sem annars færi til járnblendiverksmiðjunnar, væri ekki betur komin til þeirra þarfa heldur en að selja hana á fremur lágu og óhagkvæmu verði, að ég tel, til járnblendiframleiðslu. Það hlýtur líka að hvarfla að manni, ef við létum þessa miklu fjármuni renna til þess að styðja ýmsar íslenskar iðngreinar sem er fjárvant í dag, hvort útkoman yrði ekki jákvæðari og heppilegri fyrir íslenskan efnahag heldur en umrædd járnblendiverksmiðja.
Það er alveg rétt, að auðvitað fylgir áhætta öllum atvinnurekstri, sjávarútvegurinn okkar er ekki þar undanskilinn. En mér finnst að þessi áhætta sé annars eðlis og miklu stærri í sniðum heldur en við eigum að venjast við venjuleg íslensk atvinnufyrirtæki. Ég er hrædd um að með okkar meirihlutaeignaraðild og meirihlutaábyrgð, fjármálalegri og rekstrarlegri ábyrgð, séum við hugsanlega að reisa okkar efnahag hurðarás um öxl. Það kann vel að vera að þetta sé hugleysi sem ekki er samboðið góðum og kjörkuðum stjórnmálamanni, og það getur vel verið að afstaða mín byggist á því, að ég misskilji suma hluti í þessu máli eða hafi of litla þekkingu á öllum hliðum þess. En mín afstaða er sú, að ég vil heldur hætta á það, að ég geti sakað sjálfa mig eftir á um fákænsku og þekkingarskort í þessu máli, ef fyrirtækið skyldi nú bera sig og bera sig vel og verða okkur til þess vaxtarauka sem við mundum öll vilja vona. Því mundi ég sannarlega fagna, og þá skiptir minn misskilningur og mín fákænska engu máli. Ég vil sem sagt heldur hætta á það, heldur en hitt, að hafa léð málinu lið eiginlega alveg gegn því sem mín sannfæring í dag og mín dómgreind í dag býður mér, ef svo færi, sem ég því miður óttast, að þessi verksmiðja á Grundartanga gæti orðið íslenska ríkinu og efnahag íslensku þjóðarinnar allt að því óbærileg byrði.
Ég hlýt því að taka þá ákvörðun að styðja ekki þetta mál. Ég hygg að ég hafi fært að því rök. Ég vona að framtíðin leiði í ljós að rök mín séu ekki þau réttu og þetta muni ganga betur en mér sýnist allar horfur á í dag eftir þeim upplýsingum og gögnum sem við höfum í höndunum nú. Að sjálfsögðu hafa þm. reynt að athuga þetta mál eins vel og gaumgæfilega og þeim hefur verið unnt, og auðvitað taka þeir afstöðu eftir því hvað þau rök með málinu og á móti hafa vegið í hugum þeirra, eftir að athugun þeirra og dómgreind hefur verið að verki þessa daga og þessar vikur og raunar lengur sem þetta mál er búið að vera á döfinni.