19.04.1977
Sameinað þing: 77. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3310 í B-deild Alþingistíðinda. (2349)

73. mál, aðild Grænlendinga að Norðurlandaráði

Utanrrh. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Sú till., sem hér er til umr., fjallar, eins og forseti lýsti og frsm. gerði grein fyrir, um aðild græn­lendinga að Norðurlandaraði. Ég sakna þess að okkar ágæti vínur og þingbróðir, 1. flm. till., skuli ekki eiga þess kost að mæla fyrir henni. En það er ekki þar fyrir, að það var vel gert engu að síður, þó að af öðrum væri. Og ég vil lýsa því hér og nú, eins og ég hef raunar gert við 1. flm., — ég held að hann sé einn með till., — að ég er þessu mjög sammála. Ég álít að grænlendingar eigi ekkert síður rétt á því held­ur en færeyingar, álendingar og við að eiga aðild að Norðurlandaráði og kynna þar aðstæður sínar, málefni og vinna þeim það fylgi sem Norðurlandaráð getur veitt og við höfum áður rætt um hér og það ekki alls fyrir löngu að er umtalsvert.

Það er vissulega rétt, sem hv. frsm., Gils Guð­mundsson, sagði áðan, að það hefur verið fram­in rányrkja á grænlenskum fiskveiðislóðum og það er kominn meir en tími til þess að henni sé hætt. Það er einmitt þess vegna sem ég hef verið þeirrar skoðunar og er, að við eigum að gera fiskverndarsamning við Efnahagsbandalag Evrópu til þess að taka upp í sameiningu vernd á grælenskum og íslenskum fiskimiðum og fisk­stofnum. Ég álít að m. a. þess vegna sé það áríðandi og eðlilegt að grænlendingar fái aðild að Norðurlandaráði, þar sem þeir geti flutt mál sitt, eins og ég áðan sagði, og unnið sínum mál­stað gagn.

Ég veit ekki hversu margir grænlendingar eru. Hv. þm. talaði um að þeir væru 50 þús. Ég hygg að hann eigi þar við alla íbúa Grænlands, en hluti þeirra eru danir, eins og við öll vitum. Engu að síður er hér um umtalsvert þjóðarbrot að ræða, fólk sem er af sérstökum kynstofni, fólk sem byggir sérstakt land og fólk sem skilið að njóta fyllstu mannréttinda. Þess vegna styð ég þessa till. af heilum hug.