29.10.1976
Sameinað þing: 12. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 372 í B-deild Alþingistíðinda. (236)
28. mál, samkomulag um veiðar breskra togara
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Ég vona, að ég hafi misskilið hv. 2. landsk. þm. þegar mér virtist hann túlka 10. gr. samkomulagsins, sem gert var í Osló, á þá leið að í henni fælist eitthvert fyrirheit um það af hálfu íslendinga að semja áfram við breta um fiskveiðimálin. Það er alger misskilningur að túlka samninginn á þann veg eða 10. gr. hans. Það segir skýrt í henni, hvort sem menn nota íslenska eða enska textann, að eftir 1. des. muni bretar ekki veiða innan íslensku fiskveiðilögsögunnar nema það sé samþykkt af íslendingum, hvort heldur sem það er gert með samningi eða á annan hátt. Ef þetta samþykki íslendinga liggur ekki fyrir, þá veiða bretar ekki innan fiskveiðilögsögunnar samkvæmt ákvæðum þessarar gr. samkomulagsins. Það liggur alveg skýrt fyrir. Það er ekki hægt að túlka þetta öðruvísi, hvort heldur menn leggja enska textann eða þann íslenska til grundvallar.
Mér finnst líka rétt að það komi fram, að í þeim umr., sem fóru fram í London, kom aldrei nein ósk eða till. um það af breta hálfu að þeir fengju framlengdan samning við Ísland. Þeir lögðu þvert á móti áherslu á að þetta yrði síðasti fiskveiðisamningurinn sem bretar mundu gera við Ísland, vegna þess að eftirleiðis mundi Efnahagsbandalagið annast slíka samningagerð fyrir breta hönd. Og því vildu þeir fá framgengt á þessum fundi að íslendingar féllust á það eða gæfu fyrirheit um að hefja viðræður við Efnahagsbandalagið um fiskveiðiréttindi fyrir breta til lengri tíma. Þeir vildu fá tekið inn í samninginn ákvæði um þetta, fyrirheit um að slíkar samningaviðræður yrðu hafnar. Þetta kom líka fram í þeim drögum sem okkur voru send af breta hálfu áður en farið var til Oslóar. Þessu var alveg eindregið neitað af íslensku samningamönnunum. Og þá var það sem breski ráðh. ritaði sérstaka orðsendingu sem fylgir með samningum, þar sem segir m.a. um þessar veiðar, með leyfi hæstv. forseta:
„Ríkisstj. Bretlands mun fara þess á leit við Efnahagsbandalag Evrópu, að það hefji samningaviðræður við Ísland svo fljótt sem verða má um samkomulag til lengri tíma um gagnkvæm fiskveiðiréttindi. Ef ekki reynist mögulegt að gera slíkt samkomulag innan 6 mánaða gildistíma þessa samnings milli Bretlands og Íslands mun ríkisstj. Bretlands fara þess á leit við Efnahagsbandalag Evrópu, að það geri bráðabirgðasamkomulag um að bresk skip geti haldið áfram veiðum á því magni sem um semst við ríkisstj. Íslands.“
Þetta var yfirlýsing af breta hálfu um það sem þeir vildu gera. Við svöruðum þessu með sérstöku bréfi þar sem alls ekki er minnst á þetta atriði, vegna þess að við vildum ekkert fyrirheit gefa um það, ekki einu sinni að það verði rætt við Efnahagsbandalagið, þó að ég telji eðlilegt að það verði hlustað á það sem það hefur að segja. En á þessum fundi vildi íslenska samninganefndin ekki einu sinni gefa yfirlýsingu um að það yrði rætt við Efnahagsbandalagið og því síður að það yrði farið að ræða við það um fiskveiðiréttindi til lengri tíma. Það kemur svo glöggt fram í því svari sem utanrrh. Íslands sendi breska utanrrh. í tilefni af þessu bréfi hans, að við höfnum þessu atriði algerlega, því að það fjallar eingöngu um bókun sex. Og það var vegna þess að við vildum ekkert fyrirheit gefa um að það yrðu hafnar samningavíðræður við Efnahagsbandalagið og því síður að það yrði gerður samningur. Hins vegar tel ég eðlilegt, eins og hefur komið fram hjá fleiri ræðumönnum, að við hlustum á það sem Efnahagsbandalagið kann að hafa að segja.
En sem sagt, af okkar hálfu hefur ekki á neinu sviði verið gefið fyrirheit um að hefja samninga við Efnahagsbandalagið eða breta þegar núverandi samkomulagi við breta lýkur. Og það er ekki aðeins rangt, heldur hættulegt að mínum dómi að ætla að túlka 10. gr. á þá leið, að í henni felist eitthvert fyrirheit um að við ætlum að gera frekari samninga við breta. Bretar sjálfir halda þessu ekki fram, og ég held að við ættum ekki hér á Alþ. að vera að gefa þeim það vopn í bendur að túlka samkomulagið á þennan veg.
Ég get svo sagt það sem mína skoðun, að til þess að við getum rætt við Efnahagsbandalagið eða aðra aðila á jafnréttisgrundvelli, þá þurfi sá aðili að hafa jafnstóra fiskveiðilögsögu og við sjálfir, þannig að viðkomandi aðill hafi þá aðstöðu til þess að veita okkur réttindi innan 200 mílna, eins og við getum nú gert. Þess vegna finnst mér það vera frumskilyrði þess, að það geti nokkrar viðræður farið fram í alvörn við einn eða neinn, að sá hinn sami aðili sé búinn að tileinka sér 200 mílna lögsögu.