19.04.1977
Sameinað þing: 77. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3343 í B-deild Alþingistíðinda. (2365)

196. mál, þjóðaratkvæði um prestskosningar

Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra for­seti. Till. sú til þal. á þskj. 396, sem hér er til umr., er flutt af okkur hv. 1. þm. Vesturl. og hv. 5. þm. Reykv. Till. kveður svo á, að ríkisstj. skuli falið að láta fara fram þjóðaratkv. jafnhliða næstu alþingiskosningum um það, hvort afnema skuli beinar og almennar prestskosningar.

Í l. nr. 32 frá 1915, um veitingu prestakalla, er kveðið á um að beinar og almennar kosningar skuli fram fara við veitingu prestakalla. Á síðari árum hefur komið fram ákveðinn vilji af hálfu forustumanna þjóðkirkjunnar til að afnema þetta skipulag. Á þriðja Kirkjuþingi þjóðkirkju Íslands árið 1962 var samþykkt frv. til l. um veitingu prestakalla, þar sem gert var ráð fyrir afnami beinna og almennra kosninga. Þetta frv. var lagt fram á Alþ. árið 1962–1963. Ein umr. fór fram um frv. og var það ekki tekið á dagskrá framar. Árið 1964 var sama frv. lagt fram á ný. Fór nú enn á sömu leið og í fyrra sinn, að aðeins ein umr. fór fram um málið. Segir nú næst af málinu, að frv. er flutt enn á ný á Alþ. árið 1972–1973 og enn fer sem fyrr, að frv. fer aðeins til 1. umr. Loks er svo frv. flutt á Alþ. 1973–1974. Er þá frv. vísað til ríkisstj.

Af þessu má tvennt vera ljóst: Annars vegar hefur mál þetta verið fast sótt af hálfu Kirkju­þings, hins vegar hefur á Alþ. farið lítið fyrir stuðningi við málið. Enginn kirkjumálaráðh. hef­ur gert mál þetta að sínu með því að flytja frv. sem stjfrv. Í öll skiptin hefur þess verið farið á leit við menntmn. viðkomandi þd. að flytja frv. án skuldbindingar um stuðning við það.

Af hálfu þjóðkirkjunnar hafa verið færð rök fyrir nýrri skipan um veitingu prestakalla, að prestskosningar í núverandi mynd reynist einatt illkynjuð þolraun fyrir söfnuðina, og að þær geri prestum óeðlilega erfitt að færa sig til á starfssviði sínu. Áhersla er lögð á vilja Kirkju­þings sem fram kom í því að frv. var þar sam­þykkt árið 1962 með 10:5 atkv., árið 1964 með 10:4 atkv., árið 1972 með 14:1 atkv. og árið 1974 með 2 mótatkv. Enn fremur er bent á afstöðu prestastefna, almennra kirkjufunda, sóknar­nefnda og héraðsfunda málinu til stuðnings. Er haldið fram að mikil gagnrýni og óánægja hafi komið fram með núverandi fyrirkomulag við veitingu prestakalla, og hefur þessi gagnrýni og óánægja farið sívaxandi að dómi Kirkjuþings.

Á Alþ. hefur þetta mál þjóðkirkjunnar lítinn hljómgrunn átt. Bornar hafa verið brigður á réttmæti þess að afnema beinar og almennar prestskosningar. Í síðasta sinn sem þetta frv. Kirkjuþings var lagt fyrir Alþ. sendi menntmn. Ed. það til umsagnar ýmsum aðilum innan þjóðkirkjunnar. Virtist þá koma í ljós, að ekki væri jafnmikil eining innan þjóðkirkjunnar um af­nám prestskosninga og af hafði verið látið. N. lagði til að frv. yrði vísað til ríkisstj., og var sú afgreiðsla málsins samþ. vorið 1974. Síðan hefur ekkert gerst í málinu nema Kirkjuþing hefur haldið áfram að samþykkja stuðning við afnám prestskosninga. Frv. hefur ekki komið á ný fyrir Alþ. En á síðasta þingi var lögð fram till. til þál. um skipun nefndar til að endurskoða lög um veitingu prestakalla og hlaut till. þessi ekki afgreiðslu. Hefur þessi till. nú verið endur­flutt á þessu þingi.

Hinar síendurteknu samþykktir Kirkjuþings og endurflutningur frv. um afnám prestskosninga sýna svo glöggt sem verða má hver alvara fylgir máli þessu og hve illa Kirkjuþingið unir því að það skuli eigi fá framgang. Afdrif frv. sýna og glögglega hve mjög skortir á að sannfæring og samviska þm. leyfi stuðning við afnám prests­kosninga. Málið er því í sjálfheldu. Í raun og veru er það lítt viðunandi ástand, að Kirkjuþing og Alþ. skuli enn vera svo mjög á öndverðum meið í máli sem varðar svo mjög starfsemi þjóð­kirkjunnar. Þessu ástandi þarf því að ljúka sem fyrst.

Hér er um að ræða ágreining um grundvallaratriði. Annaðhvort eru prestskosningar beinar og almennar eða þær eru það ekki. Lausnar þessa ágreinings þarf samt að leita eftir leiðum sem líklegastar eru til niðurstöðu sem báðir aðilar ættu að geta sætt sig við, hvort heldur það yrðu beinar og almennar prestskosningar eða afnám þeirrar skipunar. Til þess að svo megi verða er nauðsyn að málið skýrist enn betur en orðið er. Það er nauðsyn að draga fram staðreyndir til að byggja á ákvarðanatöku í málinu. Hvorki Kirkjuþingi né Alþ. er ætlandi sá vanþroski að neita staðreyndum.

Nú er það svo, að ágreiningur er um það, hve mikil brögð eru að gagnrýni og óánægju með beinar og almennar prestskosningar, bæði innan einstakra félagseininga þjóðkirkjunnar og eink­um meðal hinna almennu félaga þjóðkirkjunnar, almennings í landinu. Það verða og naumast fundin haldgóð rök gegn réttmæti þess, að fólkið í landinu, sem þjóðkirkjunni er ætlað að þjóna, sé spurt um álit þess um það, hvort það vilji áfram beinar og almennar prestskosningar eða afnám þeirra. Til þess að fá sem gleggsta mynd af skoðunum og vilja almennings í máli þessu er lagt til í till. þessari til þál. að látin verði fara fram þjóðaratkvgr. um það, hvort afnema skuli beinar og almennar prestskosningar.

þjóðaratkv. það, sem hér er lagt til, er sérstaks eðlis. Þetta leiðir af sérstöðu þjóðkirkju Íslands. Þjóðkirkjan nytur sérstakrar stjórnar­skrárverndar og breytingar á kirkjuskipun ríkis­ins skulu samkv. stjórnarskránni lagðar undir þjóðaratkv. til samþykktar eða synjunar. Af þessu er ljóst hve stjórnarskráin leggur mikla áherslu á að almenningur í landinu sé hafður með í ráðum um kirkjuskipanina. Till. sú, sem hér er borin fram, skal ekki heimfærð beint undir þetta stjórnarskrarákvæði, en samt er hún vissulega í besta samræmi við það tillit sem þar er tekið til fólksins sem þjóðkirkjan á að þjóna. Og svo best eflum við kristni og kirkju í landinu að samráð verði haft við fólkið sjálft. Í trausti þess er þessi till. til þal. fram borin.

Að gefnu tilefni vil ég nú víkja að till. þeirri til þal. um n. til að endurskoða lög um veitingu prestakalla, sem flutt var á síðasta þingi og nú er endurflutt á þskj. 352. Í umr, um till. þessa hér í Sþ. í síðasta mánuði kom sú skoðun fram, að till. sú til þál., sem hér er nú til umr. og mælir fyrir um þjóðaratkvgr., sé frávísunartill. við þáltill. um nefndarskipunina. Formlega séð getur þetta að sjálfsögðu ekki verið. Það hefði orðið að bera slíka till. fram sem brtt. við þáltill. um nefndarskipunina, en ekki sem sjálfstæða till. um þjóðaratkv. Þessar till. eru baðar sjálf­stæðar og útiloka ekki hvor aðra, heldur væri hugsanlegt að báðar yrðu samþykktar. Hins vegar er ekkert óeðlilegt við ráð að mönnum komi í hug frávísun á till. um nefndarskipunina í þeim skilningi, að sú till. sé ekki raunhæf fyrr en þjóðaratkvgr. hefur farið fram samkv. till. þeirri semnú er hér til umr.

Miklar umr. urðu á síðasta þingi og hafa þegar orðið á þessu þingi um till. um nefndarskipun á Þskj. 352. Það er sama á hvaða hátt málið ber að, ásteytingarsteinninn er hinn sami. Það er deilt um hvort hafa skuli beinar og almenn­ar prestskosningar eða ekki, og það er ágrein­ingur um hver sé vilji þjóðkirkjumanna, al­mennings í landinu, í þessu efni. Hins vegar hef ég engan heyrt segja að fólki, sem búi við kirkjuskipanina, komi málið ekki við eða hafi ekki vit á hvað sé því fyrir bestu. Ég geri ráð fyrir því, að þm. gangi almennt út frá því að fólkið eigi sjálft að ráða hvaða fyrirkomulag skuli vera, beinar og almennar prestskosningar eða ekki. Ef þetta er rétt hjá mér ættu allir að vera sammála um að fá fram ótvíræðan vilja fólksins í þessu efni, hver sem hann kann að reynast og hvaða persónulega skoðun sem þm. kunna að hafa á málinu. Þetta verður að sjálf­sögðu ekki betur gert en með þjóðaratkvgr.

þegar þjóðarviljinn er fram kominn hljóta deilur að minnka um þetta grundvallaratriði, hvort hafa skuli beinar og almennar prestskosn­ingar eða ekki. Og þá er fyrst forsenda fyrir því að láta fara fram endurskoðun á lögum um veitingu prestakalla. Endurskoðunin hlýtur að vera með mjög mismunandi hætti eftir því, hvort gengið er út frá beinum og almennum prests­kosningum eða ekki. Með tilliti til þessa er ótímabært að setja n. í endurskoðun laganna fyrr en þjóðarviljinn er í ljós kominn, þjóðar­atkvgr. hefur farið fram.

Herra forseti. Ég legg til að að loknum þessum fyrri hluta umr. verði till. þessari vísað til hv. allshn.