19.04.1977
Sameinað þing: 77. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3360 í B-deild Alþingistíðinda. (2371)
196. mál, þjóðaratkvæði um prestskosningar
Garðar Sigurðsson:
Herra forseti. Ég skal hvorki tala hátt né lengi í þessu máli, enda aldrei tekið til máls áður þegar upphlaup hafa verið gerð hér á hinu háa Alþ. í því skyni að taka þann rétt af fólkinu í landinu að fá að velja sér sálusorgara, eins og hefur verið gert hér um mjög langt skeið. Ég teldi illa farið ef þessari gömlu og grónu venju yrði breytt og allt vald fengið í hendur biskupi.
Það, sem kom mér fyrst og fremst til þess að standa hér upp, voru nokkur orð frá hv. 3. þm. Vestf. Hann sagði: Alþ. liggur undir ámæli fyrir að leysa ekki ágreining milli Kirkjuþings og Alþingis. — Ég sé ekkert að því að þarna geti verið ágreiningur á milli, og sé ekkert því til fyrirstöðu að þeir, sem koma á Fiskiþing, Búnaðarþing, Kirkjuþing eða önnur slík þing, hafi einhverjar aðrar skoðanir en Alþ. En það er Alþ. sem er yfir öllum þessum þingum, það er Alþ. sem á að ráða og það er Alþ. sem á að skera úr.
Hv. þm. sagði einnig að Kirkjuþing fullyrti að fólkið í landinu vildi afnema prestskosningar og eina leiðin til þess að leysa úr því væri þjóðaratkvgr. Þetta finnst mér einkennilega ályktað. Í fyrsta lagi er ég ekki viss um að forsendan sé rétt. Ég hef enga hugmynd um það að fólkið í landinu hafi látið uppi þá skoðun að það vildi afnema prestskosningar. Rödd almennings hefur ekki heyrst í þessum efnum. Það er rödd embættismannanna, prestanna, biskupsskrifstofu og kirkjuráðs. Það er þetta fólk sem hefur sagt sitt álit. Síðan fullyrðir hv. þm. án þess að rökstyðja sitt mál, því miður, sem hann er þó vanur að gera, að Kirkjuþing fullyrði að fólkið í landinu vilji afnema prestskosningar og eina leiðin út úr því sé þjóðaratkvgr. Þarna ályktar hv. 3. þm. Vestf. eins og barn. Þetta minnir mig á það sem hinn ágæti postuli Páll segir í Korintubréfinu:
„Þegar ég var barn hugsaði ég eins og barn og talaði eins og barn og ályktaði eins og barn, en þegar ég fullorðnaðist lagði ég niður barnaskapinn.“
Þetta segir í 13. kapítula fyrra Korintubréfs og haft eftir ágætum manni, ekki ómerkari en sjálfum Páli.
Mér finnst að hv. 3. þm. Vestf., þrátt fyrir að hann sé nú orðinn vel fullorðinn, hafi haldið áfram að álykta eins og barn.
Hvar eru rökin fyrir því, hvar eru rökin fyrir þeirri fullyrðingu, þegar hv. 3. þm. Vestf. segir hér að Kirkjuþing fullyrði að fólkið í landinu vilji afnema prestskosningar? Ég þekki ekki þau rök. Þau eru komin úr öðrum áttum. Og ég spyr á þessum tímum félagsfræðilegra kannanna: Hvar liggja fyrir niðurstöður skoðanakönnunar í þessum efnum? Mér sýnist að þarna sé notaður fullyrðingastíllinn, engar athuganir hafi farið fram í þessum efnum, hv. þm. byggi á því sem ég vil leyfa mér að kalla órökstuddar fullyrðingar hinna svartklæddu hempumanna á Kirkjuþingi. Rökfærsla hans í þessum efnum er líkust því að byggja hús sitt á sandi.
Hv. þm. sagði einnig að hann hefði ekki heyrt í þessum umr. neitt sem gagnrýndi þá till. sem hér liggur fyrir til umr. Ég skal viðurkenna það, að ég hef ekki hlustað grannt, — ég heyrði meðan ég var niðri í eldhúsi dálítið af því sem hv. þm. Karvel Pálsson sagði, og ég gat ekki heyrt betur en hann hefði ýmislegt við þessa till. að athuga. Það má vera að mér hafi misheyrst, en þó er það nú vandi þessa þm. að tala nægilega hátt til þess að ekkert fari á milli mála hvað hann hefur sagt og hvað ekki. (Gripið fram í.) En ef hv. þm. hefur hingað til ekki heyrt neina gagnrýnisrödd á þessu frv., þá vil ég lýsa því yfir sem minni skoðun að það sé engin þörf á þjóðaratkvgr. Ég tel að það fyrirkomulag, sem nú er í gildi, fólk hefur vanist og flestum líkar vel, eigi að halda áfram á meðan ekki er hægt að sýna fram á að fólkið vilji breyta til. Ég held að sú rödd, sem hann heldur að hafi komið frá fólkinu, sé hjáróma söngur sem borist hefur til eyrna þessara hv. þm. frá biskupsskrifstofunni.
Ég ætla ekki að fara að ræða síðari hluta málflutnings þessa hv. þm., þegar hann er eitthvað að bera saman þjóðaratkvgr. um áfengisbann og þjóðaratkvgr. um prestskosningar. Ég get bara ekki séð neitt skylt með þessu, hvort það eigi að leyfa að flytja vínanda inn í landið eða hvort eigi að leyfa fólki að hafa þennan rétt áfram, að mega velja sér sálusorgara.
Ég er ansi hræddur um það, að ef þetta nýja fyrirkomulag hefði fyrir kannske ekki löngu verið komið á, þá væri jafnvel búið að setja ýmsa presta, sem enginn söfnuður hefur hingað til viljað sjá, í allfeit brauð.
Ég vil ekki mæla almennt hér fyrir íhaldssemi. En eðli málsins samkvæmt eru vissar stofnanir og hljóta að vera og hljóta að verða nokkuð íhaldssamar í sínum störfum. Það verður að vera ákveðin festa í vissum stofnunum. Ég er á þeirri skoðun að íslenska þjóðkirkjan, hjá þessum trúleysingjum sem íslendingar eru almennt, hafi kannske verið íhaldssöm um of. En við eigum ekki að hlaupa til við hverja hugmynd sem upp kemur, eins og að flytja inn í kirkjurnar rokksöng, eins og mönnum datt í hug hér um árið, og rjúfa þannig hina fegurstu tónlist sem hinir miklu meistarar hafa samið guði sínum til dýrðar um aldir.
Kirkjan er í eðli sínu íhaldssöm stofnun og verður að mínum dómi að vera það og ég get ekki séð að það sé háskalegt að fólkið fái nú og í framtíðinni sem áður að kjósa sinn prest.
Herra forseti. Það mætti vissulega margt um þetta mál segja í viðbót. Þetta er eins og við vitum tímar vandamálanna. Ekkert mál er umtalað í þjóðfélaginu og í veröldinni öðruvísi en það sé kallað vandamál um leið. Það er unglingavandamálið og vandamálið með kynslóðabilið og vandamál með þetta og vandamál með hitt. Allt er orðið að vandamálum, ekki viðfangsefnum, ekki að raunverulegum úrlausnarefnum, heldur að vandamálum. Ég held að það sé nóg komið af þessum vandamálum, sé ærið af þeim fyrir, svo menn séu ekki að búa þau til, eins og mér heyrðist á fleiri en einum hv. alþm. áðan. Þeir sögðu að það væri ágreiningur milli Kirkjuþings og Alþingis. Strax var það orðið vandamál í þeirra munni. Það er ekkert vandamál, að menn hafi skiptar skoðanir. Það væri hins vegar vandamál og hefur sums staðar reynst afar mikið vandamál ef allir hefðu nákvæmlega sömu skoðun, sem ekki er æskilegt. Ég sé ekki að þarna sé vandamál á ferðinni. Samkoman Kirkjuþing hefur sínar faglegu skoðanir í þessum efnum, og þó ég vilji alls ekki væna okkar ágætu prestastétt um neina hlutdrægni gagnvart sínum málum yfirleitt, þá eru þeir líka menn eins og við. Það er hugsanlegt að þeir hugsi dálítið um sína stöðu og vilji leysa málin með öðrum hætti, sem þeim líkar betur flestum hverjum. Þó veit ég það, að það eru ekki allir prestar á þessari skoðun þó að meiri hl. Kirkjuþings hafi lýst þessu yfir. En ég held að Kirkjuþing ætti ekki að fullyrða annað eins og það, að það viti hverjar skoðanir fólkið í landinu hefur, til þess að geta sagt eitthvað um það, hverjir eru með eða á móti prestskosningum, þarf að fara fram könnun á því. Það er miklu viðaminna fyrirtæki heldur en að hlaupa út í þjóðaratkvgr. eða ryðjast í slíkt fyrirtæki til þess eins að hrugga við góðum og gömlum sið.
Ég hef að vísu ekki ákaflega miklar áhyggjur af því, hvernig þessum málum er skipað yfirleitt. Þetta hefur aldrei verið neitt sérstakt vandamál fyrir mér, enda hef ég ekki gert mikið að því að kjósa presta. Þó gerði ég það í fyrra. Það vantaði prest í söfnuðinn okkar úti í Vestmannaeyjum og það var aðeins einn umsækjandi, ungur maður utan af landsbyggðinni, og til þess að þessi ágæti piltur, sem hefði líklega verið skipaður hvort sem var í embættið, gæti vitað að hann hefði stuðning sinna sóknarbarna, hann væri velkominn í þetta starf til þess að vinna með þessu fólki, þá lögðum við allmargir áherslu á að hann fengi miklu fleiri atkv. en hann þyrfti til þess að hljóta löglega kosningu. Það fékk hann. En það er ekki svo alltaf að um einn mann sé að ræða. Ef fólkið vill ekki prestinn, þá kýs hann enginn. Ef fólk vill hætta að kjósa presta, þá gerir það það bara ekki. En mér finnst að við ættum að reyna að glíma við að leysa úr öðrum efnum en þessum. Þetta lag hefur dugað lengi vandræðalítið, og ég sé ekki nokkra þörf á því að við förum að hlaupa til þjóðaratkvgr. vegna þess, og enn minni þörf á því að hætta að gefa fólki í landinu það sjálfsagða tækifæri að kjósa sér sjálft sinn prest.