19.04.1977
Sameinað þing: 77. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3366 í B-deild Alþingistíðinda. (2374)

196. mál, þjóðaratkvæði um prestskosningar

Gunnlaugur Finnsson:

Herra forseti. Það er nú visst tilgangsleysi í því að halda hér uppi löng­um umr. um þessi mál er svo fáir eru á fundi, og ég hafði raunar ekki hugsað mér að gera það. En í tilefni af ræðu síðasta ræðumanns þykir mér þó rétt að gera hér aðeins athugasemd, og úr því að ég er hér á annað borð kominn, þá vildi ég fyrst og fremst segja þetta varðandi ræðu hv. 3. þm. Vestf.:

Mér finnst að ef við förum af stað með þjóðaratkvgr. á þessu stigi, þá komi upp vissar spurn­ingar og þ. á m. þessi spurning: Hverjir eiga að taka þátt í þessari atkvgr.? Það var alveg rétt ályktað hjá honum og rétt tekið fram, að það er heimild til þess að stofna söfnuði. Það eru margir söfnuðir hér á landi sem ekki eru þjóðkirkjusöfnuðir.

Það eru einstaklingar sem skipta þúsundum. Eiga þeir að taka þátt í slíkri þjóðar­atkvgr., eða á að gilda þar önnur kjörskrá en sú sem gildir við alþingiskosningar?

Í öðru lagi er ég ekki sammála um það, að greidd verði aðeins atkv. með eða móti: Mér finnst brýn nauðsyn til að í þjóðaratkvgr. komi fram stefnumörkun í aðalatriðum. Ég hef aldrei talað um það að leggja lagabálk fram til þjóðar­atkvgr., heldur að það komi fram í aðalatriðum hvað ráð er sem fólk vill, hvaða form það er sem fólk vill taka upp.

Mér finnst að hér hafi komið fram mikill misskilningur og vanþekking á hvers konar stofnun Kirkjuþing er. Hv. 3. þm. Austf. kallar þetta þrýstihóp og ég veit ekki hvað og hvað, hagsmunasamtök, eins og LÍÚ. Og hv. 5. þm. Suðurl., Garðar Sigurðsson, lét liggja að því hér, að Kirkjuþing væri fagleg stofnun. Fagleg stofnun geistlegrar stéttar manna heitir Prestastefna, en Kirkjuþingið er aftur stofnun þar sem saman starfa bæði leikmenn og prestar, jafnmargir af hvorum, nema biskup er þá oddamaður, og fjallar um ýmsa ytri starfsemi kirkjunnar — ekki hina faglegu hlið og ekki boðun sem slíka, heldur hin ytri mál kirkjunnar og starfsemi hennar, starfsemi sóknanna og annað því um líkt.

En varðandi það sem hv. síðasti ræðumaður kom að og kemur enn að, þá vil ég segja það, að ég vil helst ræða um málin á því stigi þar sem þau raunverulega eru til umfjöllunar. Ég hóf þó mína ræðu á því að tala um þáltill. sem hér liggur fyrir til umr., og ég lauk mínu máli með því að tala um hana, þó að ég léti freistast til þess að svara nokkrum atriðum úr ræðum þeirra manna sem fjölluðu um þá till. sem nú liggur fyrir n., og það vegna þess að það kom fram ítrekað og enn þá einu sinni, — ég veit ekki hvort það er fimmta, sjötta eða sjöunda ræðan hér sem hefur verið haldin af hálfu þessa við­komandi hv. þm., — þar sem enn er talað um það, að við séum með tvískinnung í málflutningi og siglum undir fölsku flaggi. Ég hef viljað ræða um þessi viðhorf, þessar skoðanir, á því stigi þegar það yrði raunverulega til umr., ef um það væri að ræða að það kæmi fram frv. eða eitthvert álit. Á því stigi hefði ég ekki skorast undan að ræða það.

Ég vil segja það, að það er alveg hárrétt, það hefur aldrei farið á milli mála, það er alveg hárrétt t. d. með mína afstöðu, að ég tel að breyt­ingar séu æskilegar frá því formi sem nú er. Það fer ekkert á milli mála með það. En ég hef ekki viljað taka afstöðu til þess, hvaða form ég vildi taka upp. Ég hef viljað halda opnum dyrum eða opinni leið til að fallast á þær hugmyndir sem ég tel vera æskilegar hugmyndir um ein­földun á þessum málum frá því formi sem nú er.

Hv. þm. kom með þungar ásakanir um það, að við vildum ekki tala um lýðræðið í þessum mál­um. Ég skil þetta nú ekki út af fyrir sig. Það er ákaflega takmarkað lýðræði sem er fólgið í því þegar fimmtugir menn hafa aldrei fengið að velja sér prest. Það er ákaflega takmarkað lýðræði. Og ég tel lýðræðið ekkert minna þannig að söfnuðirnir fái sjálfir að fyrra bragði að ráða sér prest. Ég tók undir það, að upp verði tekið rýmkunarákvæði, þannig að prestar gætu farið frá jafnvel tíðar en nú er ef þeir standa sig ekki í sinni embættisfærslu. Og ég sé ekki að þetta sé neitt minna lýðræði heldur en það sem nú gildir. Og ég ætlaðist til að þm. geti fengið upplýsingar um það, hversu virkt þetta lýðræði hefur verið í landinu á undanförnum svo sem tveimur áratugum, hversu virkt það hefur verið í raun. En þetta eru umr. sem ég hefði viljað spara mér og spara tíma Alþ. að ræða um þetta, þangað til að því kæmi að raunverulega yrði tekin ákvörðun um þetta. Það er ekkert annað sem liggur þarna á bak við. Svo er að sjálfsögðu ekkert við því að segja, þó að skoðanir séu skiptar um þessi mál ef menn vilja vel. Og það skal ég láta vera mitt síðasta orð, og það met ég þó við hv. 5. þm. Vestf., að ég veit að hann vill vel í þessum málum, og þá er miklu betra að deila við slíka menn, þegar maður veit það, jafn­vel þó að þeir séu ósammála um einstök atriði.