01.11.1976
Efri deild: 7. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í B-deild Alþingistíðinda. (239)
51. mál, skotvopn
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég vil fyrst og fremst lýsa ánægju minni með það, að frv. þetta skuli vera lagt fram nú þegar með þeim breyt. sem gerðar voru á því hér í Ed. á síðasta þingi. Ég lýsti þá yfir stuðningi mínum við þetta frv. og ánægju minni með það. Ég held að það sé til mjög mikilla bóta, og þó er nú gott að deildin skuli öðru sinni hafa fengið það til umfjöllunar, því ég minnist þess að einn dm., hv. þm. Steingrímur Hermannsson, flutti á síðustu stundu, við 3. umr., rökstudda gagnrýni á breyt. sem gerð var á 7. gr. frv., þar sem fjallað er um framleiðslu, innflutning, útflutning og verslun með skotvopn. Vænti ég þess að hann muni nú rifja þá gagnrýni sína upp, ef vera mætti að það yrði álit d. að hún væri rökstudd og mætti vera til bóta á frv. ef það yrði upp í það tekið sem hv. þm. gerði grein fyrir þá, ef hann skyldi nú muna það enn þá.
Enda þótt ég telji þetta frv. til mjög mikilla bóta frá því sem áður var og miða til hins betra í meðferð skotvopna, þá vil ég vekja athygli á því, að það ber að ýmsu leyti þess vott að löggjafinn viðurkenni ekki þá meginnauðsyn, þá meginþörf sem á bak við þann tiltölulega mikla fjölda skotvopna sem fyrir er í landinu, þ.e.a.s. þetta gagn sem menn hafa af skotvopnum til veiðiskapar fyrst og fremst sér til ánægju, þ.e.a.s. sportveiðina. Þessari skoðun minni til stuðnings vil ég benda á 15. gr., þar sem segir: „Aðeins má veita þeim einstaklingi leyfi til þess að eignast skotvopn, er sýnir fram á, að honum sé það gagnlegt eða nauðsynlegt.“ Ég sé ekki betur en að þessi skilgreining kynni t.d. að útiloka það að nokkur hv. þm. í þessari d. gæti fengið byssuleyfi. Nú, um Nd., það kynni að vera einn ónefndur hv. þm. úr Norðurl. v. sem gæti rökstutt eða hefði getað rökstutt þörf sína með gagnsemi eða nauðsyn á þessu hausti fyrir skotvopn. Í alvöru talað, þá finnst mér að þetta ágæta frv., sem ég styð, beri svip af því að löggjafinn neiti að viðurkenna sportveiði á landi hér með þessum verkfærum. Ég er þeirrar skoðunar að nauðsynlegt sé að setja löggjöf um skotveiði á Íslandi, þar sem brúað verði bilið milli hinna ýmsu lagabálka sem fjalla um meðferð skotvopna og þar sem gerðar yrðu ráðstafanir til þess að auðvelda framkvæmd ýmissa ákvæða í fuglafriðunarlögunum og löggjöf þessari um skotvopn. Það mál biður betri tíma, en ég mun reyna að stuðla að því, að í þessari hv. d. verði ræddir möguleikar á því, að fá fram slíka lagasetningu.