20.04.1977
Sameinað þing: 78. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3389 í B-deild Alþingistíðinda. (2390)

220. mál, skipulagsskrá fyrir Þjóðhátíðarsjóð

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Fyrst nokkur orð um þá staðhæfingu nokkurra hv. þm., að aðdragandi þessa máls beri því vitni að stofnun utan Alþ. sé að seilast inn á valdsvið Alþingis og taka sér vald sem þeirri stofnun ber ekki, en Alþingi einu. Hæstv. dómsmrh. gerði þessu atriði að vísu mjög skilmerkileg skil í ræðu sinni, en ég vil þó draga saman í örfáum atriðum það sem máli skiptir.

Í fyrsta lagi ákveður bankastjórn Seðlabank­ans að gefa út þjóðhátíðarmynt, skýtur þeirri ákvörðun til þingkjörins bankaráðs Seðlabank­ans og hefur samhliða þessu samráð við þá að­ila sem undirbúa hátíðarhöld á þjóðhátíðarári, þ. á m. þingkjörna þjóðhátíðarnefnd. Í kjölfar samþykkta bankastjórnar og bankaráðs Seðla­banka er málið borið sérstaklega undir ríkisstj., fyrrv. ríkisstj. sem samþykkir þessar fyrirætlanir. Þá er að vísu búist við einhverjum ágóða af þessari útgáfu þjóðhátíðarmyntar, en það var ekki efni til þess að fara nánar út í hver til­gangur með ráðstöfun þess ágóða ætti að vera í einstökum atriðum fyrr en á daginn kæmi hver sá ágóði yrði. Þegar reikningsskil liggja fyrir og raunar nokkru áður er borið undir núv. ríkis­stj. hvort hún sé samþykk meginstefnumiðum sem áður hafði verið ljóst, og svo reyndist. Tvívegis hefur þetta mál borið á góma hér á Alþ. og í bæði skiptin verið lýst yfir að til kasta Alþ. kæmi endanlega varðandi ráðstöfun þessa fjár. Og nú er að því komið. Till. sú, sem hér er á dagskrá, hljóðar svo:

„Alþ. ályktar að heimila ríkisstj. að setja Þjóðhátíðarsjóði þá skipulagsskrá sem prentuð er með ályktun þessari“

Alþ. er í sjálfsvald sett hvort það fellst á þessa till. eða hvort Alþ. breytir þessari till. Þannig hefur að engu leyti verið farið fram hjá Alþ. eða virðing Alþ. verið skert, og því er óþarfi að vera með þau stóryrði sem ýmsir hv. þm. höfðu um það efni.

Ég vildi sérstaklega láta það koma fram, að ummæli hv. 5. þm. Norðurl. e. í garð fjar­stadds manns, sem ekki hefur tilefni til að bera hönd fyrir höfuð sér, eru mjög ómakleg. Hér er um að ræða formann stjórnar Landsvirkj­unar sem er einnig bankastjóri í Seðlabanka. Í báðum tilvikum er hann bundinn ákvörðunum þingkjörins bankaráðs annars vegar og þing­kjörinna og borgarstjórnarkjörinna manna hins vegar, þar sem Landsvirkjun á í hlut, þannig að það eru þessir aðilar sem bera ábyrgð á gerðum Landsvirkjunar sem hv. þm. hafði sitt­hvað við að athuga. En það er annað mál og ekki hér á dagskrá.

Ég hlýt einnig að gera sérstaka athugasemd við þau ummæli hv. 1. landsk. þm., þar sem hann taldi að fjárhagsleg útkoma þjóðhátíðarinnar gæfi ekki tilefni til þess að Seðlabankinn hefði leyfi til að gera till. um ráðstöfun þessa sjóðs. Samkvæmt því, sem greint er frá í aths. Við þáltill., hefur afkoma þjóðhátíðarhaldanna verið á þann veg að ekki er ástæða til annars en að fara þeim orðum þar um, að hyggilega hafi verið á málum haldið af hálfu þjóðhátíðarnefnd­ar og af forsjálni. Ef miðað er við bókfært verð þeirra birgða, sem þjóðhátíðarnefnd skilaði af sér, og útlagðan kostnað við ritun og útgáfu Sögu Íslands, þá er um nettóskil að ræða af hálfu þjóðhátíðarnefndar. Að vísu skal fram tekið að óvíst er um verðmæti umræddra birgða, en á hinn bóginn skulum við líka hafa í huga að þjóðhátíðarnefnd fékk engar þær fjárveit­ingar frá Alþ. til þessa þjóðhátíðarhalds sem umtalsverðar séu. Ég hygg að það komi fram í aths., að fjárveitingar til n. samkvæmt fjár­lögum allan þann tíma sem þjóðhátíðarnefnd starfaði muni ekki hafa náð 5 millj. kr. samtals. Því er ekki óeðlilegt að með ágóða af sölu þess­arar þjóðhátíðarmyntar hafi verið gerðir upp reikningar ýmissa þeirra framkvæmda og athafna á þjóðhátíðarári sem þar er gerð grein fyrir. Eftir það uppgjör er til ráðstöfunar stofnfé þess sjóðs sem við hér höfum rætt um.

Ég vil einnig gera það að umtalsefni, hvort stofnun þessa Þjóðhátíðarsjóðs skerði að einhverju leyti framkvæmd byggingar þjóðarbókhlöðu eða tefur þá framkvæmd.

Ég ræddi þetta mál nokkuð í framsöguræðu minni í gær og gat þess þá, að við hæstv. menntmrh. höfum ekki aðeins á þeim fundi, sem ég þá vitnaði til að haldinn hefði verið með byggingarnefnd Þjóðarbókhlöðu í byrjun þessa árs, við höfum einnig haldið aðra fundi með þessari byggingarnefnd í tilefni af fjárveitingum til þessarar framkvæmdar, og á þessum fundum og í viðræðum við byggingarnefnd Þjóðarbókhlöðu hefur verið lögð áhersla á að byggingarnefnd héldi ótrauð áfram undirbúningi byggingarfram­kvæmda og undirbyggi þær til tilboðs og léti ekkert tefja sig í þeim efnum eða hamla því að fullur hraði væri á hafður.

Hv. 8. landsk. þm. hafði orð á því, að aðgerðaleysi hefði ríkt í undirbúningi Þjóðarbókhlöðu. Ég veit að hv. þm. beinir þessum orðum tæpast sem gagnrýni til byggingarnefndar Þjóð­arbókhlöðu. En sannleikurinn er sá, að hafi aðgerðaleysi ríkt í undirbúningi Þjóðarbókhlöðu, þá er eingöngu við byggingarnefndina að sak­ast. Ég er ekki sammála því. Ég hygg að hún hafi haldið fram undirbúningsathöfnum eins og unnt var af henni að krefjast. Skýringin á því, að undirbúningur hafi tekið svo langan tíma sem raun ber vitni, er sú, að hér er um viða­mikið verk og vandasamt að ræða.

Fyrir liggur að fjármunir eru nægilegir á yfirstandandi ári til þess að unnt sé að hefja byggingu Þjóðarbókhlöðu og halda fullum byggingar­hraða. Ég minntist á þann möguleika í fram­söguræðu minni í gær, að flýta mætti byggingarframkvæmdum á næsta og þar næsta ári með því að taka að láni úr fyrirhuguðum Þjóðhátíðarsjóði fjármagn til viðbótar hækkuðum fjárveit­ingum Alþ. þau tvö ár. Fjárveiting á yfirstand­andi ári til byggingar Þjóðarbókhlöðu er 50 millj. kr., og ég tel eðlilegt að sú fjárveiting hækki á næsta ári. Sé slíkt lánsfé til viðbótar á því ári og e. t. v. á árinu 1979 kvíði ég engu um það, að ekki verði unnt að halda fullum byggingarhraða í þessum framkvæmdum. En við þetta má bæta, að í lok ársins 1979 verður því átaki lokið sem alþm. sameinuðust um, þ. e. a. s. landgræðsluáætluninni er alþm. sameinuðust um á þingfundi á Þingvöllum á þjóðhátíð, og þá er eðlilegt að beina því átaki, sem þessi árin hefur beinst að landgræðslunni, til byggingar þjóðar­bókhlöðunnar sem algjör einhugur hefur ríkt um hér á hv. Alþingi.

Þess vegna hygg ég að það séu ekki efni til að fara í meting um það, hvort verja skuli þessum fjármunum til byggingar Þjóðarbókhlöðu eða hvort við höfum efni á því að stofna þann sjóð sem þáltill. gerir ráð fyrir. Ég er þeirrar skoð­unar, að við höfum efni á hvoru tveggju, og raunar ber okkur skylda til hvors tveggja, vegna þess að samhliða landgræðslu annars vegar og byggingu Þjóðarbókhlöðu hins vegar eru margvísleg verkefni er lúta að varðveislu þess arfs, er við höfum hlotið af landi og menningu þjóðarinnar, sem nauðsynlegt er að hlúa að. Og tilgangur þessa sjóðs er einmitt sá.

Hv. 3. þm. Reykn. minntist á þann möguleika, að verðtryggja Þjóðhátíðarsjóðinn, og ég tel þá till. vel þess virði að hún sé athuguð og jafn­vel sé slíkt ákvæði í væntanlega skipulagsskrá sett. En að öðru leyti get ég tekið undir þau orð er hv. þm. viðhafði hér áðan.

Ég vil svo aðeins að lokum leggja á það áherslu, að Alþ. hefur hér síðasta orðið, og ég bið alþm. sérstaklega um að taka afstöðu skv. efnisinni­haldi málsins, þótt eitthvað sé athugavert varð­andi formhlið þess, aðdraganda og undirbúning. Að mínu áliti, eins og ég hef fært rök að, skiptir aðalmáli hvert efnisinnihald málsins er. Hv. 5. þm. Vestf. var annarrar skoðunar. Hann taldi ekki aðalatriði málsins efnisinnihaldið, heldur hitt, að fá úr því skorið hvort alþm. séu sjálfstæðir. Ég tel að sjálfstæði alþm. komi fram í því að gera sér efnislega grein fyrir málum og taka afstöðu skv. því og láta það ekki hafa áhrif á sig þótt aðrir hafi góðar till. fram að færa. Þótt góðar till. fæðist utan sala Alþ. geta alþm. ekki verið þekktir fyrir, hvað þá heldur sýnt sjálfstæði sitt með því að hafna góðum till. af því að þær fæddust utan þingsala og ekki með þeim sjálfum. Slíkt væri vissulega fyrir neðan virðingu Alþingis.

Ég vænti því að mál þetta fái efnislega með­ferð og hljóti lyktir sem verða megi til farsæld­ar landi og lýði.