01.11.1976
Efri deild: 7. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 380 í B-deild Alþingistíðinda. (240)
51. mál, skotvopn
Steingrímur Hermannsson:
Herra forseti. Jú, ég man, að hér urðu nokkrar umr. á síðasta þingi um þetta frv., og það, sem hv. þm. mun vísa til, er það, að ég færði hér sterk rök að því að hann hefði ekki hundsvit á skotvopnum. Ég vakti athygli á þessu í sambandi við sjálfvirk skotvopn. Ég taldi ástæðu til þess að banna notkun t.d. haglabyssu sem getur skotið sjálfvirkt allt að t.d. 5 skotum, og ég vakti athygli á því, að viða erlendis er bannað að hafa slíkar byssur með möguleikum til að skjóta fleiri en 3 skotum.
Hv. þm, greip þetta á lofti og fékk sett inn í frv. ákvæði í 7. gr. um bann við innflutningi vissra vopna, þar sem segir, reyndar í sviga: „þar með talin sjálfvirk skotvopn“. Ég óskaði síðan eftir nánari upplýsingum um það, hvað hann ætti við með sjálfvirku skotvopni, en það fékk ég aldrei, sem er kannske ekki von miðað við það sem ég sagði áðan. En þarna vaknar t.d. sú spurning, hvort tvíhleypt haglabyssa, sem er mjög algeng og kannske einar algengustu haglabyssur sem notaðar eru, telst sjálfvirk þegar hún spennir upp gikkinn fyrir annað skot við það að fyrsta skoti er hleypt af. Ég veit ekki hvort ég ætti að spyrja hæstv. dómsmrh. að þessu. En mér finnst sem sagt að skilgreina þyrfti þetta betur. Ég sé hvergi í grg. með þessu frv. nú neina skilgreiningu á því hvað er átt við með sjálfvirku skotvopni, svo að mín efasemd stendur enn.