01.11.1976
Efri deild: 7. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 381 í B-deild Alþingistíðinda. (241)

51. mál, skotvopn

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Svo fór sem mig grunaði, að enn gildir hið forna, að þó menn segi eitthvað skynsamlegt að vori, þá er ekki þar með sagt að þeir muni það að hausti. Gagnrýni hv. þm. Steingríms Hermannssonar á brtt. við 7. gr. í vor stafaði ekki af því sem hann gerði nú grein fyrir, því að í brtt. var talað um sjálfhlæð skotvopn og skilgreiningin lá þá alveg ljós fyrir. Það voru þau skotvopn sem eru með þess háttar útbúnaði að þau kasta úr sér tómu skothylki, en setja annað skothylki í staðinn, þannig að hægt er að hleypa af öðru skoti með því að taka í gikkinn.

Ég er ánægður með 7. gr. eins og hún er hér.prentuð, vegna þess að hér er það lagt á vald dómsmrh. að setja reglur eða reglugerð um innflutning þessara tækja, þar sem hann getur með aðstoð sérfróðra manna, eða við skulum segja manna sem hafa hundsvit á meðferð þessara tækja eða við skulum ætla í líkingu við hv. síðasta ræðumann, kveðið á um það hvað forðast beri í þessu skyni, og sé ég nú persónulega ekki nokkra þörf á því að ónáða hæstv. dómsmrh. upp í þennan ræðustól aftur til þess að ræða tæknilegan útbúnað tvíhleypunnar í þessu sambandi.

Ég þarf ekki að orðlengja það sem ég áður sagði um stuðning minn við þetta frv., ekki heldur að ítreka það sem ég sagði um nauðsyn þess að setja lög um skotveiði á landi hér. En ýmislegt er á reiki hvað leyfilegt er og hvað óleyfilegt, æskilegt og óæskilegt varðandi skotveiðina. Hitt er staðreynd, að hundruð manna, ef ekki þúsundir, sækja í þennan veiðiskap fyrst og fremst af ánægju, heilbrigði í fjallaferðir með byssu um öxl, og svo á hinn bóginn vitum við að veiðiferðir meðal borgarbúanna, landleysingjanna, stangast stundum á við vilja og hagsmuni bænda. Árekstrar hafa orðið sem engum hafa orðið til gleði, öllum til leiðinda, og æskilegt væri að loku verði skotið fyrir þess háttar árekstra framvegis.