22.04.1977
Efri deild: 61. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3471 í B-deild Alþingistíðinda. (2430)
229. mál, Bjargráðasjóður
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Þetta frv. fjallar um breyt. á 10 gr. laga um Bjargráðasjóð. Hlutverk Bjargráðasjóðs er m. a. að veita fjárhagsaðstoð til fóðurkaupa vegna grasbrests af völdum kulda, kals eða óþurrka. Óþurrkar urðu miklir á Suðurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum s. l. sumar og vegna þeirra mikil fóðurvöntun hjá bændum í þessum landshlutum.
Á vegum landbrn. var skipuð n. til að kanna þessi mál og álit hennar var það, að afföll á fóðri vegna lítilla og lélegra heyja s. l. sumar væru að verðmæti um 850 millj. kr. Lagði n. til að tilgreindum sveitarfélögum, 70 að tölu, á þessu svæði yrðu veitt lán, samtals að fjárhæð um 370 millj. kr., til 5 ára til að endurlána bændum til fóðurkaupa og að það yrði Bjargráðasjóður sem veitti þessi lán. Stjórn Bjargráðasjóðs hefur rætt þessi mál ítarlega og fallist á till. n. En það var ljóst að sjóðnum þurfti að afla verulegs fjár til viðbótar eigin ráðstöfunarfé. Nú eru líkur til þess að sú lánafyrirgreiðsla fáist frá bönkum. Lánin, sem Bjargráðasjóður tekur, þarf hann að endurgreiða á næstu tveim árum og eru þau lán með venjulegum vöxtum.
Þessi endurgreiðslukjör valda sjóðnum aukinni greiðslubyrði á næstu árum. Stjórn Bjargráðasjóðs hefur talið óumflýjanlegt að reiknaðir yrðu vextir af þessum lánum Bjargráðasjóðs til bænda, en í gildandi lögum um Bjargráðasjóð er gert ráð fyrir að lán, sem hann veitir, séu vaxtalaus, þess vegna hefur stjórn Bjargráðasjóðs samþ. einróma að breytt verði lögunum, þannig að heimild verði til þess að taka ársvexti allt að 10%, og er það efni þessa frv.
Ég vænti þess, að frv. þetta fái afgreiðslu nú á þessu þingi, og það er í rauninni nauðsynlegt. Ég legg til að því verði vísað til 2. umr. og félmn.