22.04.1977
Efri deild: 61. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3498 í B-deild Alþingistíðinda. (2447)
165. mál, póst- og símamál
Oddur Ólafsson:
Herra forseti. Það var með kostnaðinn, jöfnunina. Ekki er ég öruggur um hvernig ég muni hafa komið orðum að minni hugdettu. En Albert Guðmundsson, hv. 12. þm. Reykv., bað um upplýsingar um hvað mundi hækka mikið á þéttbýlisstöðunum, og þá held ég að ég hafi sagt, að ég gæti hugsað mér að það hækkaði um 30% — ekki að það væru 30%, vegna þess að ég var, held ég, áður búinn að taka fram að ég hefði ekki tölur um þetta. Hins vegar gat ég vel hugsað mér að það hækkaði um 30%. Hvernig stendur nú á því, að ég get hugsað mér að þetta hækki um 30%? Það er vegna þess hvað þetta er hlægilega lágt í dag. Nú vitum við hvers vegna það er. Skýringin er komin. Það er vegna þess að þetta er í raun og veru niðurgreitt. Þetta kemur inn í vísitöluna og eingöngu símgjöld reykvíkinga. Eða hvaða skýring skyldi vera á því, að við símnotendur upp við Mosfell greiðum kannske tvöfalt eða þrefalt gjald á hvern símnotanda borið saman við reykvíkinga? Það hlýtur að vera af því, eins og hæstv. ráðh. sagði, að þetta eru einu símgjöldin sem tekin eru inn í vísitöluna og þess vegna passað upp á að halda þeim neðan við sannvirði. (Gripið fram í.) Vísitalan er að sjálfsögðu gerð fyrir landið og fyrir ríkisstj., en það þykir hagkvæmt að taka gjald Hitaveitu Reykjavíkur og miða við það, þegar vísitala hitakostnaðar í landinu er ákveðin. Og það þykir hagkvæmt að hafa símgjöld í Reykjavík lág til þess að þau komi inn í vísitöluna sem lág gjöld og hagstæð gjöld. Svona einfalt er nú þetta.