22.04.1977
Neðri deild: 69. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3505 í B-deild Alþingistíðinda. (2458)

15. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi

Friðjón Þóðarson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að orðlengja þessar umr. Ég skírskota að­eins til þess, sem ég hef áður sagt um þetta mál, og þeirra raka, sem getið hefur verið, og þeirrar víðtæku samstöðu sem náðst hefur um þær brtt. sem fyrirhugaðar eru. En í tilefni orða hv. 3. þm. Austurl., sem hann viðhafði og beindi sérstaklega til mín, vil ég aðeins taka það fram, að ég ætlast til þess af honum að hann þekki mun á reglugerð og lögum.