14.10.1976
Neðri deild: 3. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í B-deild Alþingistíðinda. (25)
11. mál, rannsóknarlögregla ríkisins
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Hv. form. allshn. þessarar d. er ekki viðstaddur og þess vegna hef ég kvatt mér hljóðs.
Hv. hm. Sighvatur Björgvinsson sagði að það væri komið í ljós, að það hafi skaðað að þetta frv. var ekki afgr. á síðasta þingi, og fór nokkrum orðum um að stuðningsmenn ríkisstj. hafi tafið frv, enda þótt hæstv. dómsmrh. hafi lagt áherslu á að fá það samþ. Ég á bágt með að skilja í hverju essi skaði er fólginn sem hv. þm. talaði um, vegna þess að ekki var gert ráð fyrir að login tækju gildi fyrr en um n.k. áramót. enda þótt frv. hefði verið samþ. á síðasta þingi. Ég tel þess vegna að það sé enginn skaði skeður. Það er enn tækifæri til þess að samþ. þetta frv. og láta það taka gildi á sama tíma og gert var ráð fyrir á síðasta þingi þegar hæstv. dómsmrh. lagði frv. fram. Hins vegar hefur þetta mál verið í athugun síðan á síðasta þingi og hæstv. ráðh. hefur lagt frv. aftur fram, að vísu með lítilli breyt., en þó nokkurri.
Ég er sannfærður nm að bað er enginn hv. hm., hvorki stjórnarstuðningsmaður né í andstöðu við ríkisstj., sem vill tefja þetta frv. þegar menn hafa sannfærst um að það megi verða til góðs í þeim vandamálum sem íslenska þjóðin á við að stríða um þessar mundir í alls konar saka- og afbrotamálum. Ég held að við ættum að ræða þetta með rökum og án ásakana hver á annan. Það vex enginn hv. þm. á því að bera þingbræðrum eða systrum það á brýn. að þau vilji standa í vegi fyrir lagasetningu sem getur orðið til bóta.
Á síðasta þingi komu fram umsagnir frá ýmsum aðilum um þetta frv., og þær voru ekki samhljóða. Allir hv. þm. gera sér grein fyrir því að her er um stórmál að ræða og það er ekki vandalaust að setja lög í þessum efnum sem megi verða tvímælalaust til bóta. Að því er stefnt. Þegar umsagnirnar voru ekki samhljóða, sumar mjög neikvæðar frá virðulegum embættum, þá var eðlilegt að þm. vildu staldra við, gefa sér nokkurn tíma til frekari athugunar, og sérstaklega vegna þess að það var enginn skaði skeður þótt sá dráttur yrði á sem orðinn er, ef lagabreyt. gæti tekið gildi á sama tíma og ætlað var með fyrra frv. Ég geri ráð fyrir því, að hv. þm. Sighvatur Björgvinsson muni að frv., sem rætt var á síðasta þingi, var ætlað að taka gildi um n.k. áramót. Nú hefur hv. form. allshn. þessarar d. boðað fund í allshn. n.k. mánudag, og hann ræddi við mig áðan og sagðist hafa áhuga á að flýta afgreiðslu málsins, og ég latti ekki til þess. Við skulum þess vegna hætta brýningum í þessu máli, en sameinast um að afgr. það á sem bestan hátt, e.t.v. með einhverjum breyt., afgr. það nógu fljótt, að það geti tekið gildi um n.k. áramót, eins og hæstv. dómsmrh. lagði til þegar hann lagði hið fyrra frv. fram á síðasta þingi.