02.11.1976
Sameinað þing: 13. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 425 í B-deild Alþingistíðinda. (258)
Umræður utan dagskrár
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Athugasemd mín getur vissulega verið örstutt, því að ekkert hefur það fram komið í hinu langa máli hæstv. sjútvrh., sem hann hefur flutt hér í tvígang, sem á einn eða annan veg hefur haggað því sem ég sagði í minni upphafsræðu, og raunar hefur hæstv. ráðh. gert sér sérstakt far um að forðast að minnast á þau atriði sem þar var drepið á. Hann hefur t.d. með öllu forðast að minnast á það, að því meginefni þessa frv. að festa ákveðna samninga í gildi hefur nú verið hnekkt. Hann hefur einnig forðast, þó að ítrekað hafi verið á hann skorað, að ræða sérstaklega 1. málsgr. 2. gr. þessa frv. Meira að segja í ræðu sinni hér áðan, eftir áskorun frá hv. þm. Gylfa Þ. Gíslasyni, hljóp hann vísvitandi yfir þessa málsgr., en las 2. málsgr. Málsgr., sem hæstv. ráðh. hefur með öllu forðast að vitna i, er að hann bannar í þessum brbl. verkbönn, verkföll og allar aðrar aðgerðir sem eru til þess fallnar að knýja fram aðra skipun kjaramála er lög þessi ákveða. Það hefur þegar verið gert. Skipan kjaramála er orðin önnur. Eftir stendur aðeins að það á að láta Alþ. skrifa upp á siðferðisvottorð fyrir hæstv. ráðh. fyrir þá valdbeitingu sem hann hefur gert sig sekan um.
Önnur efnisatriði í ræðu hæstv. ráðh. þarf ég ekki að ræða, því þau hafa bókstaflega engin verið. Hins vegar er þetta orðið einkennilegur frasi hjá hæstv. ríkisstj. eða ráðh. hennar, að það má varla anda á einhvern ráðh. í þessari hæstv. ríkisstj. svo að hann kalli ekki upp: Nixon, McCarthy eða eitthvað svoleiðis. Það er eins og hæstv. ríkisstj. sé að tala um einhverja fjölskylduvini sína sem standa henni sérstaklega nærri. Þegar hún þarf á hjálp að halda, þá kallar hún í sífellu: McCarthy, Nixon. Ég vildi gjarnan vona að góðkunningjar hæstv. ríkisstj. væru úr öðrum röðum en þessum.
Þá kemur það einnig fram hjá hæstv. ráðh., raunverulega það eina sem hann hefur rætt um efni 2. gr., að hann hefur gefið það í skyn að verkfallsrétturinn hafi raunverulega gufað upp hjá sjómannastéttinni og það, sem hann hafi gert með brbl., hafi ekki verið annað en að gera sjómönnum þann greiða að gefa verkfallsréttinum náðarhöggið. Hann talar um þetta í svipuðum dúr eins og þegar hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson ætlaði að gera skagfirðingum þann greiða að slátra hrútnum. Það eina, sem hann hefur að segja um þessa grein við sjómenn, er: Verkfallsrétturinn var að gufa upp í höndunum á ykkur og ég geri ykkur þann greiða að greiða honum náðarhöggið. — En ég er ansi hræddur um að hæstv. sjútvrh. eigi eftir að reka sig illilega á það, að félagsleg réttindi samtaka sjómanna í þessu landi eru aldeilis hreint ekki gufuð upp, langt í frá.
Hæstv. ráðh, fór hér með gamansögu sem hann var leiðréttur með. Ég ætla að segja honum aðra sögu. Hún er ekki gamansöm, hún er sorgarsaga, a.m.k. hvað hann varðar, hæstv. ráðh. Ég er nefnilega ansi hræddur um það, að ástandið hjá sjómönnum gagnvart hæstv. ráðh. nú sé það, að það sé auðveldara — miklu auðveldara að fá sjómenn til þess að viðurkenna það að hafa gert ömmu sinni grikk heldur en að fá þá til að játast undir að styðja hæstv. sjútvrh. áfram til valda.