26.04.1977
Sameinað þing: 81. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3755 í B-deild Alþingistíðinda. (2669)

10. mál, votheysverkun

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Ég þarf nú ekki að lengja þennan fund svo mjög, en ég get ekki alveg vikist undan því að segja nokkur orð um þá till. sem hér er rædd. Ég vil lýsa ánægju minni yfir því, að hún er afgreidd frá n. með þeim hætti sem hér hefur komið fram, en mér þykir rétt, um leið og hún er rædd hér, að það komi fram hvað unnið hefur verið í mínu byggð­arlagi á þessum vetri til þess að menn átti sig á ástandinu á svæðinu og reyni að finna leiðir til lausnar á þeim vanda sem við hefur verið að etja tvö s.l. sumur.

Ég hygg að það sé búið að ferðast um líklega átta sveitir á Suðurlandi. Það starf hafa haft með höndum tveir ráðunautar hjá Búnaðarsam­bandi Suðurlands. Þeir hafa safnað upplýsingum, talað við bændur og safnað sýnum og látið efna­greina heyið úr hinum ýmsu geymslum, og þeg­ar hafa verið haldnir tveir fundir til þess að ræða niðurstöður þessara athugana, með bútæknimönnum frá Bændaskólanum á Hvanneyri og Rannsóknastofnun landbúnaðarins.

Ég held að það fari ekki milli mála þegar þetta er haft í huga, sem ég hef hér verið að lýsa, að það muni hafa örvandi áhrif á bændur á þessu svæði að finna að Alþ. og alþm. vilja ræða þeirra vanda og gera nokkuð til úrbóta. Það eru mörg vandamál sem við er að etja í sambandi við heyverkunina. Ég hygg að hér sé rætt um einn stóran þátt í þeim aðgerðum sem helst eru til úrlausnar, og þess vegna er ég þakk­látur fyrir að það hefur verið tekið jákvætt undir það mál sem hér er lagt fyrir.